Morgunblaðið - 08.06.1999, Blaðsíða 6
6 ÞRIÐJUDAGUR 8. JÚNÍ 1999
MORGUNBLAÐIÐ
46 ára kona frá Taívan beið bana í
8. banaslysinu sem verður í Bláa Ióninu
Skipulag öryggis-
mála gagnrýnt
FRÉTTIR
Morgunblaðið/Jim Smart
HARALDUR Sveinsson, stjómarformaður Árvakurs, útgáfiifélags Morgunblaðsins, tekur við umhverfisverð-
launum Reykjavíkurborgar úr hendi Helga Péturssonar, varaforseta borgarstjómar og formanns heilbrigðis- og
umhverfísnefndar Reykjavfkur. I forgrunni er verðlaunagripurinn, Eldurinn eftir listamanninn Huldu Hákon.
Morgunblaðið hlýtur
umhverfisverðlaun
Reykj avíkurborgar
46 ARA gömul kona frá Taívan beið
bana í slysi í Bláa lóninu á sunnu-
dag. Þetta er áttunda banaslysið í
lóninu frá 1984. Norskur atvinnu-
kafari, sem var staddur í lóninu
þegar slysið bar að höndum, hefur
skrifað lögreglunni í Grindavík bréf
þar sem hann fer hörðum orðum
um skipulag öryggismála og björg-
unaraðgerða í lóninu. Hann segist
vilja leggja fram opinbera kæru
gegn fyrirtækinu sem rekur Bláa
lónið fyrir það hvernig skipulagi
björgunarmála er háttað og segir
ábyrgðarleysi að loka ekki staðnum
eins og ástandið er.
Að sögn Johns Hills, lögreglu-
fulltrúa rannsóknadeildar lögregl-
unnar í Keflavík, sem annast rann-
sókn málsins, barst lögreglunni í
Grindavík tilkynning um slysið
klukkan 17.45 í gær. Þá voru liðnar
um það bil 10 mínútur frá því kon-
unnar var saknað og leit hófst. Hún
fannst svo klukkan 18.10 og var þá
látin í vík um það bil 20 metra frá
landi þar sem dýpi er um það bil
1,60 metrar.
Konan var hér með hópi ferða-
manna frá Taívan og var hópurinn
nýkominn ofan í lónið þegar slysið
varð. Að sögn Johns Hills er ekki
vitað hvað kom fyrir konuna eða
hver dánarorsök hennar var. Hann
vildi ekki upplýsa um nafn konunn-
ar í gær.
Grímur Sæmundsen, stjómarfor-
maður Bláa lónsins, sagði í samtali
við Morgunblaðið í gær að konan
hefði verið talsvert utan öryggis-
línu þegar hún fannst. Slíkar línur
væru greinilegar í Bláa lóninu og
baðgestir ættu að halda sig innan
þeirra. Hann sagði margs konar ör-
yggisviðbúnað viðhafðan og þegar
einhvers væri saknað færi ákveðið
ferli í gang. Grímur sagði orsök
dauðsfallsins í fyrradag ekki ljósa.
Morgunblaðinu barst í gær afrit
af bréfí frá Robin Kirkhus, norsk-
um manni sem segist starfa sem
kafari og hafa verið gestur í lóninu
þegar slysið varð í gær. Bréfið
sendi hann lögreglunni í Grindavík
á sunnudag.
Lífgunartilraunir
ekki reyndar
Robin Kirkhus fer hörðum orð-
um um skipulag öryggismála og
björgunaraðgerða á staðnum. „Eg
tel að björgunaraðgerðimar hafi
verið ófullnægjandi í mikilvægum
atriðum. Ef öðmvísi hefði verið
staðið að verki hefði verið hægt að
finna líkið mun fyrr sem hefði jafn-
vel getað leitt til þess að lífgunartil-
raunir hefðu getað borið árangur.
En þegar líkið fannst reyndi björg-
unarlið ekki einu sinni lífgunartil-
raunir," segir í bréfinu.
„Eftir þvi sem mér skildist var
ekki til fullnægjandi björgunarbún-
aður, ekki súrefnisgeymir, enginn
almennilegur skyndihjálparbúnað-
ur var til staðar, báturinn var ekki
notaður, hátalarar vom ekki notað-
ir, það var engum einum falin
stjóm á vettvangi og það var ekk-
ert gert til þess að gera gestum við-
vart, koma þeim úr vatninu og láta
þá taka þátt í björgunarnaðgerð-
um,“ segir ennfremur.
Opinber kæra vegna skipulags
öryggismála
„Ég vil hér með leggja fram op-
inbera kæm gegn fyrirtækinu sem
rekur Bláa lónið fyrir kæmleysis-
legt skipulag öryggismála,“ segir
Robin Kirkhus. „Með tilliti til þess
hve tíminn skiptir miklu máli í til-
viki eins og þessu tel ég ekki útilok-
að að útkoman hefði getað orðið
önnur ef viðkomandi hefði fundist
fljótlega og skyndihjálp hefði verið
beitt. Að þessu leyti hljóta að hafa
orðið önnur dauðaslys. Slys sem, að
því er ég best fæ séð, hafa ekki haft
sjáanleg áhrif á skipulagningu ör-
yggismála og björgunaraðgerða.“
„Eins og ástandið er nú er það í
hæsta máta óábyrgt að loka ekki
þessum stað,“ segir í lok bréfsins
sem Robin Kirkhus segist vonast til
að verði sent ferðaskrifstofunni
sem á óbeinna hagsmuna að gæta
og fjölskyldu hinnar látnu.
Áttunda banaslysið
frá 1984
Sigurður Ágústsson, aðstoðaryf-
irlögregluþjónn lögreglunnar í Gr-
indavík, sagði að það væri mat lög-
reglumanna í Grindavík, sem fóm á
staðinn, að fólk í Bláa lóninu hefði
staðið ágætlega að björgunarað-
gerðum en hann sagði að slysið
væri til rannsóknar hjá rannsókna-
deild lögreglunnar í Keflavík og er-
indi norska kafarans væri til athug-
unar um frekari meðferð hjá sýslu-
manninum í Keflavík sem er lög-
reglustjóri í Grindavík. Ekki náðist
í gær samband við Ásgeir Eiríks-
son, löglærðan fulltrúa sýslumanns,
sem sinnir daglegri lögreglustjóm í
umdæminu.
Sigurður sagði að þetta væri átt-
unda banaslysið í Bláa lóninu frá
því það var tekið í notkun árið 1984.
Fólk hefur beðið bana í lóninu í
slysum árin 1984, 1985, 1986, 1989,
1990, 1994, 1997 og nú. Sigurður
sagðist hafa heyrt að baðgestir
væm nú um 170-200.000 á ári.
MORGUNBLAÐIÐ hlaut um-
hverfisverðlaun Reykjavíkur-
borgar í ár og voru þau afhent
við athöfn í Höfða sl. laugardag,
á alþjóðlega umhverfisdeginum.
Helgi Pétursson, varaforseti
borgarstjórnar og formaður heil-
brigðis- og umhverfisnefndar
Reykjavíkur, afhenti verðlaunin.
í ræðu sagði hann að sérstakar
vinnureglur hefðu verið settar
við mat á fyrirtækjum og stofn-
unum sem til álita þættu koma tU
að hljóta verðlaunin.
Sagði Helgi að í því skyni yrðu
fyrirtækin eða stofnanimar að
skara fram úr á einu eða fleiri
eftirtalinna sviða: umhverfis-
sljórnunar, hreinnar framleiðslu-
tækni, lágmörkunar úrgangs,
mengunarvama, vömþróunar,
framlögum til umhverfismála eða
vinnuumhverfis.
Mörg fyrirtæki vinna markvisst
að bættu umhverfi
„Nokkur fyrirtæki og stofnan-
ir komu til greina og það er
ánægjulegt að sjá hversu mörg
fyrirtæki vinna markvisst að því
að bæta umgengni sína við um-
hverfið og veija til þess miklum
tíma og fjármunum," sagði Helgi.
Hann sagði Morgunblaðið hafa
uppfyllt framangreind skilyrði
fyrir verðlaununum og gott bet-
ur. Auk viðurkenningarskjals
vora verðlaunin Iistaverkið Eld-
urinn eftir Iistamanninn Huldu
Hákon.
Þegar Haraldur Sveinsson,
sfjómarformaður Árvakurs, út-
gáfufélags Morgunblaðsins, tók
við verðlaununum og þakkaði
fyrir hönd Morgunblaðsins sagði
hann að af hálfu blaðsins yrði
áfram haldið á þeirri braut um-
hverfismála sem það hefði mark-
að sér. Hét hann þvf að blaðið
myndi áfram beita sér í því að
bæta umhverfið og sagði að von-
andi stæði það sig í þeim efnum.
I fréttatilkynningu frá skrif-
stofu borgarstjóra um verð-
launaveitinguna, segir m.a.:
„Verðlaunahafínn hefur unnið
markvisst að umhverfismálum
sínum undanfarin ár, bæði inn á
við gagnvart ýmissi mengandi
starfsemi, sem fylgir útgáfu
stórs dagblaðs og gagnvart að-
stöðu starfsmanna sinna, auk
þess sem umhverfi og útlit Morg-
unblaðshússins hefur verið til
fyrirmyndar. Fyrirtækið setti
sér umhverfísstefnu á árinu 1996
og setti sér í henni markmið,
sem ætlað var að ná með tiltekn-
um tímamörkum. Þeim mark-
miðum hefur að mestu verið náð
og öll hafa staðist tímaáætlun.
Þá hefur fyrirtækið lengi verið
með ákveðna umhverfisstefnu
sem miðar að því, að flokka allan
úrgang og farga honum eða end-
urvinna á viðeigandi hátt. Fyrir-
tækið hefur tekið upp nýjungar í
framleiðslutækni, sem draga
veralega úr mengun og hefur
búið starfsmönnum sínum fram-
úrskarandi aðbúað til starfa.
Fyrirtækið er með umhverfisráð
starfandi, sem sett er saman af
lykilmönnum við stjórnun þess.
Þá hefur fyrirtækið lagt metnað
í að gera starfsmenn sína með-
vitaða um umhverfisstefnu sína
og stuðlað að faglegri umræðu
um umhverfismál í Morgunblað-
inu.“
Morgunblaðið/Kristinn
MILLI 15 og 20 manns vinna við nýbyggingu Ármannsfells í Austur-
stræti en botnplata hússins var steypt í gær.
Breytingar á reglugerð um hreindýraveiðar
Stóraukinn kvóti
Botnplat-
an steypt
BOTNPLATA í nýbyggingu við
Austurstræti í Reykjavík var steypt
í gær en það er Ármannsfell sem
reisir þar hús á gömlu ísafoldarlóð-
inni. Húsið verður fjórar hæðir auk
kjallara og þakhæðar og er áætlað
að það verði fullgert næsta vor.
Olafur Hauksson, verkefnastjóri
hjá Armannsfelli, segir fram-
kvæmdir hafa gengið vel þrátt fyrir
þrengsli í miðborginni, enda hafi
borgaryfirvöld reynt að greiða götu
þeirra. Fleiri framkvæmdir standa
yfir á nálægum lóðum, svo sem lag-
færing á Dómkirkjunni og Kirkju-
torgi og bygging þjónustuskála fyr-
ir Alþingi. Segir Ólafur verktaka
því hafa getað fylgst nokkuð að og
nýtt sér sameiginlega lokun gatna á
svæðinu.
í nýja húsinu er gert ráð fyrir
veitingastað á neðstu hæð en síðan
verslunum og skrifstofum og verður
það leigt ýmsum aðilum. Grunnflöt-
ur er 530 fermetrar og sagði Ólafur
steypuframkvæmdir hafa gengið
vel í gær en botnplatan er sérstak-
lega þykk og styrkt þar sem hún
stendur lægra en sjávarmál eins og
á við um hús á þessum slóðum.
í NÝRRI reglugerð um hreindýra-
veiðar, sem gert er ráð fyrir að um-
hverfisráðherra skrifi undir á næst-
unni, verður heimildum til veiða
fjölgað úr 297 í 404 leyfi sem er
rúmlega 36% aukning á kvótanum.
Hvert leyfi gildir fyrir eitt dýr og
nær aukningin til tarfa og kúa en
ekki kálfa. Að sögn Hákonar Hans-
sonar, héraðsdýralæknis á Breið-
dalsvík, sem jafnframt er formaður
hreindýraráðs, hefur eftirspurn eftir
veiðileyfum farið nokkuð vaxandi
undanfarin ár.
Á þessu ári verður tekið í notkun
nýtt fyrirkomulag varðandi sölu
veiðileyfa og hefur hreindýraráð nú í
fyrsta skipti auglýst veiðileyfin til
sölu. Þeir sem hafa hug á að kaupa
veiðileyfi verða að senda umsókn til
ráðsins fyrir 25. júní og fær hver
veiðimaður aðeins eitt leyfi sem gild-
ir til að fella eitt dýr. Ef eftirspum
verður umfram fjölda leyfa verður
dregið úr innsendum umsóknum. Ef
leyfin seljast hins vegar ekki öll
kemur tO greina fyrir veiðimenn að
fá keypt 2 leyfi. Fram til þessa hefur
starfsmaður hreindýraráðs séð um
úthlutun leyfanna heima hjá sér og
að sögn Hákonar Hanssonar hafa
menn verið sammála um að slíkt fyr-
irkomulag sé ekki æskilegt, þó að
ekki hafi verið óánægja með úthlut-
un veiðileyfa hingað til. Þessar
breytingar hafa staðið til í nokkum
tíma og verða með þessu nýja sniði í
ár. Veiðitímabilið hefst 1. ágúst og
stendur til 15. september en þó mun
leyfilegt að veiða tarfa á einstaka
stöðum frá 20. júlí. Verð á leyfum
nemur allt frá 15.000 kr. fyrir kálfa
upp í 90.000 kr. fyrir að skjóta tarf á
dýrustu svæðunum.