Morgunblaðið - 08.06.1999, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 08.06.1999, Blaðsíða 12
12 ÞRIÐJUDAGUR 8. JÚNÍ 1999 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Eco, rit umhverfísverndarsinna Islendingar gagnrýndir vegna Kyoto-bókunar Umhverfisverndarsamtök gagn- rýna Islendinga í fréttabréfi sínu Eco, sem gefið er út í tengslum við fund vísinda- og tækninefndar rammasamnings Sameinuðu þjóð- anna um loftslagsbreytingar, sem nú stendur yfir í Bonn. I Eco er sagt frá að Islendingar hafi sam- kvæmt Kyoto bókuninni fengið „mestan mengunarkvóta allra iðn- væddra ríkja, eða 10% aukningu á útblæstri á árunum 2008-2012.“ Það hafi þó ekki nægt þeim heldur hafi landið jafnframt lagt fram til- lögu um að útblástur frá fyrirhug- aðri stóriðju skuli vera undanskil- inn heildarkvóta landsins vegna smæðar efnahagskerfisins. í grein í Eco, sem einnig er birt á netinu, er því haldið fram að miklir fjárhagslegir hagsmunir séu í húfi fyrir íslendinga. Heimsmark- aðsverð á útblásturskvótum sé á bilinu 20-30 dollarar á hvert tonn af koltvísýringi. Markaðsverð á út- blásturskvóta fyrir fyrirhugað ál- ver, sem verði að hluta til í eigu Norsk Hydro, með 120.000 tonna framleiðslugetu á ári, sé því 4,2-6,4 milljónir dollara, eða á bilinu 316-480 milljónir króna. Yrði fram- leiðslugetan aukin upp í 480.000 tonn á ári væri markaðsvirði út- blásturskvótans, sem fengist gefins ef tillaga Islands yrði samþykkt, 1.260-1.920 milljónir króna. Eco segir að Island hafi eitt iðn- þjóða neitað að skrifa undir Kyoto bókunina og spyr hvort veita eigi landinu viðurkenningu iyrir það með því að samþykkja tillöguna. Einnig spyr Eco hvort sérstakar aðstæður hér á landi réttlæti stóraukinn út- blásturskvóta og hvort þar með sé ekki sett fordæmi fyrir aðrar þjóðir. Tillögu Islands hefur verið vísað til fundar vísinda- og tækninefndar á næsta ári. Morgunblaðið/Jón E. Gústafsson Ræðismannsskrifstofa opnuð í Winnipeg SKRIFSTOFA aðalræðismanns Á myndinni sem tekin var við Guðrún Ágústsdóttir, John íslands í Kanada var formlega opnunina eru Svavar Gestsson Harward þingmaður og Jón Bald- opnuð í Winnipeg á föstudaginn. aðalræðismaður og sendiherra, vin Hannibalsson sendiherra. INGIBJÖRG Sólrún Gísladóttir borgarstjóri og Jón G. Kristjáns- son, framkvæmdastjóri LSS, undirrita samning um rekstur líf- eyrissjóðs borgarinnar. Tekur að sér rekstur Lífeyr- issjóðs Reykja- víkurborgar LÍFEYRISSJÓÐUR starfs- manna sveitarfélaga (LSS) hefur tekið að sér rekstur Lífeyris- sjóðs starfsmanna Reykjavíkur- borgar. Samkomulag þess efnis var nýlega undirritað af borgar- stjóranum í Reykjavík, Ingi- björgu Sólrúnu Gísladóttur, og Jóni G. Kristjánssyni, fram- kvæmdastjóra LSS. Lífeyrissjóður starfsmanna sveitarfélaga var stofnaður síð- astliðið haust í þeim tilgangi að taka við iðgjöldum nýrra starfs- manna sveitarfélaga. Þá var líf- eyrissjóðum sveitarfélaganna lokað fyrir nýjum félögum og gert ráð fyrir þeim möguleika að LSS tæki að sér rekstur eldri sjóðanna. Lífeyrissjóður starfs- manna Reykjavíkurborgar er langstærsti sveitarfélagasjóður- inn með um 3.600 greiðendur og 1.300 lífeyrisþega, með alls um 15 þúsund sjóðfélaga. Tekjur hans námu um 740 milljónum kr. á síðasta ári. Að sögn Jóns felur samningur- inn í sér að LSS tekur að sér all- an rekstur lífeyrissjóðsins, svo sem móttöku, vörslu og ávöxtun fjár, réttindabókhald, ákvörðun og útborgun lífeyris, sjóðfélaga- lán, svo og reikningshald og þjónustu við sjóðfélaga. Auk samningsins við Reykja- víkurborg liggur fyrir viljayfir- lýsing um að Lífeyrissjóður starfsmanna sveitarfélaga taki með sama hætti að sér rekstur Lífeyrissjóðs starfsmanna Húsa- víkurbæjar. Embættismenn óska eftir launaleiðréttingu í bréfum til kjaranefndar Vilja 13,5% hækkun framhaldi af úr- skurði Kjaradóms Kjaranefnd hefur að undanförnu borist töluverður fjöldi bréfa frá embættismönnum sem heyra undir úrskurðarvald nefndarinnar, þar sem farið er fram á 13,5% hækkun launa til samræmis við úrskurð Kjaradóms 8. maí sl. Á NÍUNDA hundrað embættismenn og starfsmenn ríkisins heyra undir kjaranefnd sem eru með nálægt 100 stöðuheiti. Nefndin hefur ekki kveðið upp úrskurði um laun frá því á seinasta ári en um seinustu áramót ákvað nefndin að hækka laun allra sem undir hana heyra um 3,65% til samræmis við launa- breytingar annarra ríkisstarfsmanna. Skv. ákvörðun Kjaradóms 8. maí sl. hækk- uðu laun ráðherra og þingmanna um tæp 30% og laun embættismanna sem heyra undir Kjarad óm um 13,5%. Eftir úrskurðinn eru fóst laun og yfirvinna hæstaréttardómara og ríkissaksóknara um 532 þús. kr. á mánuði, dómstjórans í Reykjavík um 424 þús. kr., hér- aðsdómara um 425 þús. kr. og umboðsmanns barna um 401 þús. kr. Kjaranefnd ber m.a. að taka mið af úrskurðum Kjaradóms Að sögn Guðrúnar Zoega, formanns kjara- nefndar, hefur nefndinni borist nokkur fjöldi bréfa frá embættismönnum sem heyra undir nefndina í framhaldi af úrskurði Kjaradóms þar sem óskað er eftir 13,5% launahækkun í samræmi við niðurstöðu Kjaradóms. Hafa nefndinni m.a. borist mörg bréf frá sýslu- mönnum svo og skattstjórum og fleiri for- stöðumönnum ríkisstoínana Aðspurð um viðbrögð við þessum erindum sagði Guðrún að nefndinni bæri skv. lögum að kalla eftir upplýsingum og greinargerðum frá forstöðumönnum, þar sem þeir gætu komið sínum sjónarmiðum á framfæri. „Kjaradómur er eitt af því sem við eigum að taka mið af,“ sagði Guðrún. Hún kvaðst ekki geta sagt til um hvænær úrskurðar kjaranefndar væri að vænta. Sýslumenn og fleiri mynda sérstaka kjaranefnd Embættismenn og starfsmenn ríkisins sem heyra undir úrskurðarvald kjaranefndar hafa ekki samningsrétt heldur eru laun þeirra og önnur starfskjör ákveðin einhliða á einstak- lingsgrundvelli. Að sögn Bjöms Jósefs Amviðarsonar, sýslumanns og formanns Sýslumannafélags- ins, hafa flestir sýslumenn og margir for- stöðumenn ríkisstofnana sent kjaranefnd bréf með vísan til Kjaradóms og telja ekki óeðli- legt að þeir fái sambærilega launahækkun og dómurinn úrskurðaði. „Kjaranefnd segir okk- ur að hún sé að taka kjör manna til endur- skoðunar einstaklingsbundið, sem henni ber að gera,“ sagði Björn Jósef. Hefur kjaranefnd einnig sent sýslumönnum og forstöðumönnum bréf þar sem fram kemur að nefndin hafi ákveðið að taka launakjör for- stöðumanna til endurskoðunar. Hefur við- komandi embættismönnum verið gefinn kost- ur á að senda nefndinni greinargerð m.a. með upplýsingum um hlunnindi og aukastörf sem fylgja viðkomandi störfum og gera grein fyrir hvort breytingar hafa orðið á störfum frá því seinasti úrskurður nefndarinnar var kveðinn upp. Nýlega setti sýslumannafélagið á fót sér- staka kjaranefnd, að sögn Björns Jósefs. Vinnur nefndin að kjaramálefnum félags- manna og samanburði á launaþróun félags- manna við kjör annarra embættismanna. Auk sýslumanna eiga saksóknarar, lögreglu- stjórar og fleiri embættismenn aðild að nefndinni. Rök Kjaradóms eiga jafnt við um forstöðumenn Magnús Jónsson, veðurstofustjóri og ný- kjörinn formaður Félags forstöðumanna rík- isstofnana, bendir á að í forsendum úrskurðar Kjarad óms komi skýrt fram hver launaþró- unin hjá opinberum starfsmönnum, sem eru með samningsrétt, hefur verið síðastliðið hálft annað ár. Hann sagði að 13,5% hækkunin sem Kjaradómur ákvað væri rökstudd með því að um væri að ræða hækkun sem orðið hefði á opinbera markaðinum umfram launabreyting- ar hjá þeim sem heyra undir Kjaradóm og kjaranefnd. „Menn eru að vekja athygli á þessu atriði í bréfinu til kjaranefndar, því menn telja sjálf- gefið að þetta hljóti að eiga jafn vel við um þá sem heyra undir kjaranefnd og Kjaradóni," sagði Magnús. „Viðmiðunin er því ekki Kjara- dómur sem slíkur, heldur ekki síst það um- hverfi sem við störfum í. Við teljum að þessi rök sem Kjaradómur notar eigi nákvæmlega með sama hætti við um forstöðumenn ríkis- stofnana eins og þá aðila sem Kjaradómur var að fella úrskurð um,“ sagði Magnús. Vitnað í álit Umboðsmanns Alþingis í einu þeirra bréfa sem kjaranefnd hefur fengið er vitnað til ákvörðunar Kjaradóms og ákvæða laga um að samræmis skuli gætt milli úrlausna Kjaradóms og kjaranefndar. I bréfinu segir síðan: „...tel ég tilefni til að æskja sem allra fyrst hliðstæðrar ákvörðun- ar kjaranefndar um laun mín. í þessu efni skal sérstaklega vísað til álitsgerðar Um- boðsmanns Alþingis frá 19. október 1998 í til- efni af kvörtun skrifstofustjóra í stjórnarráð- inu. í greinargerð kjaranefndar, sem vitnað er til í álitsgerðinni, segir um þann þátt málsins, sem sneri að launaákvörðunum hennar, sbr. bls. 8 í álitsgerð umboðsmanns: „...Hins vegar er nefndinni, í 10 gr. laga um Kjaradóm og kjaranefnd, jafnframt settur rammi sem markast af úrskurðum Kjara- dóms og kjarasamningum ríkisstarfsmanna og hefur kjaranefnd fyrst og fremst haft hliðsjón af þeim auk þess að gæta innra sam- ræmis." í ályktunarorðum Umboðsmanns Alþingis um þetta efni segir hann, sbr. bls. 16 í álitsgerðinni: „...sé nefndin að megin- stefnu til bundin við þær almennu launafor- sendur, sem Kjarad ómur hefur lagt til grundvallar í úrskurðum sínum.“ Þess er óskað að launabreytingin miðist við 1. maí 1999, þ.e. frá sama tíma og ákvörðun Kjara- dóms, og komi til framkvæmda um næstu mánaðamót eins og hjá þeim sem taka laun samkvæmt ákvörðun Kjaradóms," segir í bréfinu til kjaranefndar.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.