Morgunblaðið - 08.06.1999, Qupperneq 18
18 ÞRIÐJUDAGUR 8. JÚNÍ 1999
MORGUNBLAÐIÐ
VIÐSKIPTI
Líklegt að Parket og
gólf kaupi Aldin
„Sáttur við
töluna“
Akureyri. Morgunblaðið.
ALLAR líkur eru á því að fyrirtæk-
ið Parket og gólf hf. í Reykjavík,
ásamt tveimur sænskum aðilum,
kaupi viðarvinnslufyrirtækið Aldin
hf. á Húsavík sem lýst var gjald-
þrota á dögunum.
Kaupin eru ekki frágengin, en
Olafur Birgir Ámason, skiptastjóri
þrotabúsins, sagðist í gær vonast til
að endanlega yrði gengið frá málinu
um miðja þessa viku. Ólafur Birgir
vildi ekki gefa upp líklegt söluverð
fyrirtækisins, en sagði þó: „Eg er
mjög sáttur við töluna sem nefnd
hefur verið - og hún er umtalsvert
hærri en það sem áður hefur verið
birt.“ í fréttum Stöðvar 2 mun á
dögunum hafa verið nefnd talan 22,5
milljónir króna sem líklegt söluverð,
„en talan er ekki minna en helmingi
hærri en það“, sagði Ólafur Birgir.
----------------------
Nýr fram-
kvæmdastjóri
hjá Burnham
HANDSAL hf. hefur tilkynnt Verð-
bréfaþingi að nafni félagsins hafi
Bumham
verið breytt
Intemational á
íslandi hf. Guð-
mundur Pálma-
son, héraðsdóms-
lögmaður og
rekstrarhag-
fræðingur, hefur
verið ráðinn
framkvæmda-
stjóri hjá Bum-
ham Intemational frá 1. júní sl.
Guðmundur er 31 árs að aldri.
Hann hefur starfað sem lögmaður
um nokkurra ára skeið, auk þess
sem hann hefur setið í stjómum
hlutafélaga hér á landi og í Banda-
ríkjunum. Maki Guðmundar er Sig-
rún Gísladóttir, BSc. í viðskipta-
fræði, og eiga þau tvö böm.
Hjálmar Kjartansson og Sigrún
Eysteinsdóttir munu starfa áfram
sem framkvæmdastjórar hjá Bum-
ham Intemational.
Nýtt á íslandi
Verksmiðja hollenska stálframleiðandans, Hoogovens.
Stærsta málm-
fyrirtæki Evr-
ópu myndað
FORSVARSMENN breska fyrir-
tækisins British Steel PLC og hol-
lenska fyrirtækisins Koninklijke
Hoogovens NV tilkynntu í gær
áform um samruna fyrirtækjanna.
Til verður stærsta málmfram-
leiðslufyrirtæki í Evrópu og þriðja
stærsta fyrirtæki heims af því
tagi. Er samruninn metinn á 4
milljarða punda eða 480 milljarða
króna.
Hoogovens var eitt fyrirtækjanna
þriggja í Atlantsálshópnum svo-
nefnda sem áformuðu að byggja 240
þúsund tonna álver á Keilisnesi, en
áformunum var skotið á frest 1991
vegna óhagstæðrar verðþróunar á
áli.
Breska fyrirtækið, sem hefur
nærri tvöfalt meiri veltu en
Hoogovens, mun eiga 62% hlut í
nýja fyrirtækinu en velta þess er
áætluð 14,5 milljarðar evra, um 11
hundruð milljarðar króna. Hluthaf-
ar British Steel fá einnig 35 pensa
greiðslu á hlut þegar samningum
um samrunann lýkur.
Samkeppnisyfirvöld í löndunum
tveimur og hluthafar verða að sam-
þykkja samrunann, en ef allt geng-
ur eftir fá hluthafar beggja fyrir-
tækjanna hlutabréf í nýja fyrirtæk-
EuroBusiness
glæsilegt fagtímarit um viðskiptalíf
Skrifað sérstaklega fyrir Evrópumarkað.
Efnismikið, líflegt og spennandi.
Hlaðið fréttum, fróðleik ög upplýsingum.
Fyrir alla sem vilja fylgjast með í viðskiptaheiminum.
Ritstjórnarskrifstofur í London, Brussel, Frankfurt, París og Mílanó.
Kemur út mánaðarlega
inu, sem fengið hefur bráðabirgða-
nafnið BSKH.
Hagnaður British Steel nam
364,5 milljónum dollara eða tæpum
27 milljörðum króna á síðasta
rekstrarári, sem lauk 28. mars, og
lækkaði um 27% frá fyrra ári.
Fyrirtækin tvö segjast búast við
að samruninn leiði til lægri stjóm-
unarkostnaðar, hagkvæmari inn-
kaupa og flutninga og að sá spam-
aður muni nema um 300 milljónum
evra á ári eftir þrjú ár, rúmum 23
milljörðum króna.
íslenskir aðilar kaupa hlut í búl-
görsku lyfjafyrirtæki
700 milljóna
króna hlutur
FJARFESTINGAFELAGIÐ Icon-
sjóðurinn ehf., sem er í eigu lyfja-
fyrirtækisins Pharmaco og Amber
International Ltd., keypti þann 1.
júní ásamt Morgan Grenfell & Co.
og Deutsche Bank meirihluta hluta-
fjár í lyfjafyrirtækinu Balkanp-
harma í Búlgaríu. Hlutur Iconsjóðs-
ins er um 700 milljónir króna eða
um það bil helmingur. I fréttatil-
kynningu segir að sjóðurinn sé leið-
andi fjárfestir í félaginu og með
meirihluta í stjórn þess og stjómar-
formannssæti.
Pharmaco hf. og Amber
International Ltd. stofnuðu fjár-
festingafélagið Iconsjóðinn ehf. með
375 milljóna króna hlutafé. Eignar-
hlutur Amber Int. er 52% en
Pharmaco hf. 48%. Tilgangur fé-
lagsins er að fjárfesta hérlendis og
erlendis, sem og ráðgjafa- og lána-
starfsemi.
Stjórn Iconsjóðsins ehf. skipa
Sindri Sindrason formaður, Björ-
gólfur Guðmundsson, Björgólfur
Thor Björgólfsson forsvarsmaður
eigenda Amber Int. og Kristinn R.
Gunnarsson. Framkvæmdastjóri er
Björgólfur Guðmundsson.
Balkanpharma er lyfjadreifing-
arfyrirtæki í Búlgaríu sem fram-
leiðir hráefni til lyfjagerðar, flest-
ar tegundir lyfja og ýmsar skyldar
vömr. Fyrirtækið hefur keypt
þrjár af stærstu lyfjaverksmiðjum
í Búlgaríu sem verið er að einka-
væða. Helmingur framleiðslu
Balkanpharma er seldur á erlenda
markaði og hefur útflutningurinn
náð til 32 landa, meðal annars til
Vestur-Evrópu og Bandaríkjanna.
Að sögn Sindra Sindrasonar
framkvæmdastjóra Pharmaco era
helstu markaðir íyrirtækisins þó í
Austur-Evrópu en Búlgaría hefur
um langt skeið verið eitt af helstu
lyfjaframleiðslulöndum Austur-
Evrópu.
Áætluð velta í ár 8 milljarðar
Balkanpharma rekur einnig
nokkur dótturfyrirtæki, meðal ann-
ars í Rússlandi og Úkraínu. Hjá fýr-
irtækinu starfa um 6.000 manns og
hefur verið hagnaður af rekstrinum
undanfarin ár. Velta í ár er áætluð
yfir 8.000 milljónir króna og reiknað
er með 30% aukningu á næsta ári.
Sindri segir að hér sé um að ræða
fyrirtæki sem er í hröðum vexti
vegna batnandi aðstæðna í
búlgarska efnahagslífinu. Möguleik-
amir séu miklir á þessu svæði og
því megi búast við því að fjárfest-
ingin skili góðri ávöxtun á tiltölu-
lega skömmum tíma.
Starfsemi Balkanpharma mun
verða kynnt frekar í júlímánuði
næstkomandi.
Nýtt félsig um rekstur
rækjuvinnslu á Kópaskeri
FISKIÐJUSAMLAG Húsavíkur,
Öxarfjarðarhreppur og ýmsir aðilar
á Kópaskeri hafa ákveðið að setja á
stofn nýtt hlutafélag um rekstur
rækjuvinnslu á Kópaskeri og hefur
viljayfirlýsing þess efnis verið und-
irrituð. Að sögn Einars Svanssonar,
framkvæmdastjóra FH, liggur ekki
endanlega fyrir hverjir muni eiga
hið nýja félag en verið er að kanna
það. „Þetta lítur þannig út í dag að
það er stefnt að því að hlutafé verði
65 milljónir í félaginu og höfum við
þegar fengið til liðs við okkur aðila
sem era tilbúnir að koma með 45
milijónir af því. Stefnt er að því að
eiginfjárstaða nýja hlutafélgasins
verði sterk eða um 30%,“ segir Ein-
ar.
Rekstur rækjuverksmiðju Fisk-
iðjusamlags Húsavíkur á Kópaskeri
hefur ekki gengið sem skyldi að und-
anfómu og er markmiðið með stofn-
un nýs félags um starfsemina að fyr-
irbyggja að leggja verði vinnsluna
niður. „Það var meiningin hjá okkur
að stöðva vinnslu tímabundið í vor
vegna erfiðleika í rekstrinum en í
kjölfar samkomulagsins nú hefur
verið ákveðið að halda starfseminni
gangandi þar til niðurstaða fæst. Við
stefnum að því að búið verði að
ganga frá fjármögnun fyrirtækisins
fyrir lok júlí, þannig að nýtt félag
geti tekið við starfseminni í síðasta
lagi í haust, á nýju kvótaári.“
í samtali við Steindór Sigurðsson,
sveitarstjóra á Kópaskeri, kom fram
að ásamt FH og Óxarfjarðarhreppi
stæðu útgerðarmenn og sjómenn á
Kópaskeri að baki hinu nýja félagi.
„Ég reikna með að á miðvikudaginn
verði málið tekið fyrir í sveitarstjóm
en hreppurinn mun að líkindum eiga
um 20% hlut ef af verður. Við vonum
að með þessu móti megi tryggja að
rækjuvinnsla haldi áfram hér á
staðnum en það yrði mjög alvarlegt
ef starfsemin legðist niður því að
hún hefur verið stór þáttur í atvinnu-
lífi hér á staðnum," sagði Steindór.
1969-1999
30 ára reynsla
Hleðslugler
Speglar
GLERVERKSMIÐJAN
Samverk
Eyjasondur 2 • SSO Hella
® 487 5888 • Fax 487 5907
1969-1999
30 ára reynsla
mmmmmmmmmmmmmmmammmmmmmmmm
Hljóð-
einangrunar-
gler
GLERVERKSMIÐJAN
Samverk
Eyjasandur 2 • 850 Hella
n 487 5888 • Fax 487 5907
Dilbert á Netinu
mbUs
-ALLTAf= eiTTHVAO NÝ~TT~