Morgunblaðið - 08.06.1999, Síða 19
MORGUNBLAÐIÐ
VIÐSKIPTI
ÞRIÐJUDAGUR 8. JÚNÍ 1999 19
Hörð barátta um norska
olíufélagið Saga Petroleum
BARÁTTAN um yfirtöku á Saga
Petroleum ASA, þriðja stærsta olíu-
félagi Noregs, harðnaði í gær þegar
franska félagið Elf Aquitaine hækk-
aði tilboð sitt í félagið um rúmlega
8%. Norsk Hydro ASA hefur einnig
boðið í Saga.
Elf hækkaði boð sitt úr 115
norskum krónum á hlut í 125 krón-
ur. Samkvæmt því er markaðsvirði
Saga 18,7 milljarðar norskra
króna, um 154 milljarðar íslenskra
króna. Bréf Saga hækkuðu á
norskum verðbréfamarkaði í 128
krónur þegar fréttist af tilboði Elf.
Norsk Hydro, sem norska ríkið á
meirihluta í, bauð fyrst í Saga 10.
maí sl. Bauðst félagið til að skipta á
hverjum þremur hlutum í Saga á
móti einum hlut í Norsk Hydro.
Jafnframt gerði Norsk Hydro samn-
ing við norska rfldsoh'ufélagið Statoil
AS, sem á 20% í Saga, um að skipta
eignum Saga á milli félaganna.
Þannig myndi Norsk Hydro fá 25%
af eignum Saga en Statoil afganginn.
Elf, sem hefur starfað í Noregi
síðan 1965, lagði síðan fram tilboð í
Saga 28. maí og með því fylgdi að
Saga myndi starfa áfram undir eig-
in nafni. Stjórn Saga fagnaði tilboð-
inu og ætlar að halda fund um málið
í dag. Norsk Hydro hefur ekki enn
brugðist við tilboðinu og ekki er
ljóst hvort félagið hækkar tilboð sitt
fyrir stjómarfundinn í Saga.
Fyrr á þessu ári boðaði Saga nið-
urskurð eftir að tap varð á rekstrin-
um á síðasta ári. Félagið ræður hins
vegar yfir miklum olíu- og gaslind-
um og er því fysilegt til yfirtöku.
Motorola og Cisco
kaupa Bosch
Reuters.
MOTOROLA símafyrirtækið
og hugbúnaðarfyrirtækið Ciseo
Systems hafa tilkynnt um kaup
fyrirtækjanna á bandaríska
hluta Bosch Telecom. Saman
munu fyrirtækin mynda Spect-
raPoint Wireless sem mun sér-
hæfa sig í gagnaflutningum
fyrir einstaklinga og fyrirtæki.
Motorola og Cisco hófu sam-
vinnu í fébrúar sl. og áætluðu
að fjárfesta á sviði rannsókna
og þróunar á netmarkaðnum
fyrir milljarð dollara. Tals-
menn fyrirtækjanna upplýstu
þó ekki kaupverð á Bosch nú
en samkvæmt Financial Times
er það í kringum 300 milljónir
dollara.
Talsmenn Motorola og Cisco
eru ánægðir með viðskiptin og
segja að netmarkaðurinn eigi
eftir að stækka mikið á kom-
andi árum.
Vefverslun
*
Navision á Islandi
Verðlaun frá
Microsoft
e VEFVERSLUN Navision á
íslandi hlaut í gær verðlaunin
„Best Solution Award“
Microsoft-tölvufyrirtækisins á
hugbúnaðarsýningunni
Softworld í Miinchen í Þýska-
landi. I fréttatilkynningu segir
að dómnefndin telji að vefversl-
unin bjóði upp á einstaklega
snjalla möguleika á tengingum
við annan hugbúnað, virki vel
og sé afar sveigjanleg.
Vefverslunin notast við hug-
búnað frá Microsoft,
BackOffíce, og tengist fullkom-
Iega íjárinálakerfi Navision
Software sem fyrirtæki nota til
að tryggja að upplýsingar um
helstu rekstrarþætti, þ. á m.
birgðir, pantanir og tilboð, séu
réttar. Upplýsingar fara inn á
netið til að draga úr þörf fyrir
að færa þær inn handvirkt.
Dómnefndin taldi það einnig
kost hve litla vinnu þyrfti til að
halda kerfínu við og öll lausnin
væri mjög notendavæn.
Navision Software er í
fremstu röð í framleiðslu hug-
búnaðar fyrir stórfyrirtæki og
starfar fyrirtækið nú í 75 lönd-
um. Aðalbækistöðvar eru í Ved-
bæk í Danmörku.
Virgin stefnir
á farsíma-
markadinn
9 RICHARD Branson virðist
ætla sér stóra hluti á breska far-
símamarkaðnum en hann stendur
nú í viðræðum við breska fyrir-
tækið 0ne20ne, fyrir hönd fyrir-
tækis síns, Virgin, eins og fram
kemur á vef BBC.
Samruni fyrirtækjanna í eitt
undir nafninu Virgin Mobile er
skammt undan ef marka má
bresku sunnudagsblöðin. Fyrir-
tækið myndi einbeita sér að
beinni sölu farsíma og afnema
þannig umboðslaun sem hafa
hækkað verð til neytenda vera-
lega.
Samningaviðræður hafa staðið
yfir í u.þ.b. sex mánuði og ef af
verður mun Virgin-fyrirtækið fá
umtalsverða hlutdeild í síbreyti-
legum símamarkaði. Branson hef-
ur nú þegar fjárfest í fyrirtækjum
sem selja allt frá brúðarkjólum til
ferðalaga.
Nýja fyrirtækið mun leggja
áherslu á það nýjasta í farsíma-
tækni, þar sem símar eru' orðnir
að litlum sjónvörpum með að-
gangi að Netinu.
0ne20ne-fyrirtækið er það
minnsta á breskum símamarkaði
með 15% markaðshlutdeild. Fyr-
irhuguð sala þess hefur vakið
áhuga erlendra fjárfesta eins og
þýska og franska símafélagsins.
Nýr stoöur fyrir
notoðo bílo