Morgunblaðið - 08.06.1999, Síða 21
MORGUNBLAÐIÐ
VIÐSKIPTI
ÞRIÐ JUDAGUR 8. JÚNÍ 1999 21
mennirnir hafi hingað til komist
upp með að tala ekki um óæskileg-
ar hliðar þeirrar stefnu sem þeir
reka; þeir tala bara um þægilegu
hliðarnar."
Getur einnig kallað á sam-
drátt opinberra útgjalda
I meðfylgjandi töflu má sjá
hvernig flest lönd í töflunni þyrftu
að hækka skatta til að koma á jafn-
vægi milli núverandi kynslóða og
þeirra sem erfa munu landið.
Laurence J. Kotlikoff segir að vit-
anlega megi einnig túlka niðurstöð-
ur kynslóðareikninga á þann hátt að
hið opinbera þurfi að draga úr út-
gjöldum sínum, í stað þess að
hækka skatta.
A afmælisráðstefnunni upplýsti
Kotlikoff að til dæmis þyrfti hið op-
inbera í Bandaríkjunum að draga úr
innkaupum og fjárfestingum, (sem
innifelur ekki ýmsar tilfærslur fjár-
muna gegnum velferðarkerfið), um
27%, í Þýskalandi um 25,9%, í Bret-
landi um 9,7% og í Japan um 29,5%,
miðað við óbreytta skattheimtu. Op-
inberir aðilar í Danmörku þyrftu að
draga úr innkaupum og fjárfesting-
um um 29%, í Finnlandi um 67,6%, í
Noregi um 9,9% og í Svíþjóð um
50,5%, svo dæmi sé tekið frá frænd-
þjóðum okkar á norðurlöndum.
Mikill munur á löndum
Laurence J. Kotlikoff ræðir um
Okkar
verð
199-
Við rciknum efnisþörfina og veituni
þér faglegor róðleggingar
um vinnu ó viðnum
Grensásvegi 18 s: 581 2444
Þar sem þiónustan
er f fyrirrúmL
Þó færð allar helstu
fúavarnartegundir hjó
Litaveri, Grensósvegi.
Kjörvari 16 4 Itr. - gegnsær
kr.
3.314-
Okkar verð 2817-
Woodex Ultra 2.5 Itr.- gegnsær
Verð kr
2.509-
Okkar verð 2258-
Sólignum 5 Itr.- þekjandi
kr.
5.376-
Okkar verð 4.838-
Texolin 4 Itr. - þekjandi
þann mun sem augljóslega er milli
landa hvað varðar niðurstöðu kyn-
slóðareikninga (sjá töflu), þar sem
böggum virðist vera velt yfir á
framtíðarkynslóðir í sumum lönd-
um, en í öðrum kemur í Ijós að
framtíðarkynslóðir munu þurfa að
greiða minna en kynslóðir dagsins
í dag, að teknu tilliti til ákveðinnar
hagvaxtarspár. Kotlikoff segir
ýmsar ástæður fyi-ir þessu.
„I sumum löndum er aldurssam:
setning þjóðarinnar talsvert ólík. í
Taílandi er þjóðin t.d. fremur ung
þannig að það eru margir til að taka
við þjóðfélaginu. Annars staðar er
gömlum að fjölga og ungum að
fækka sem skekkir framtíðarmynd-
ina þar sem eftirlaunakerfi munu í
mörgum tilvikum verða mun þyngri
í skauti. Þetta á t.d. við í sumum
Evrópulöndum.
En ef þú berð saman Kanada og
Bandaríkin er aldurssamsetningin
svipuð, en Kanada hefur ekki opin-
bert heilbrigðiskerfi sem vex hröð-
um skrefum, heldur er styrk stjórn
á útgjöldum þeiri-a til heilbrigðis-
mála. Einnig er hið opinbera lífeyr-
iskerfi þar mun minna en í Banda-
ríkjunum.
Bjögun af notkun hugtaka
í opinberum fjármálum
Kotlikoff minnist á að útkoma kyn-
slóðareikninga sé eitt þeirra atriða
sem taka þurfi með í myndina þegar
íslendingar hugleiði samband sitt við
Evrópusambandið. Innan þess sé að
finna lönd þar sem mikill þungi muni
fýrirsjáanlega hvfla á rfldsfjármálum
þegar framtíðarkynslóðir taki við,
verði ekki gripið í taumana. Það geti
haft áhrif á hversu eftirsóknarvert
muni verða að tengjast þeim löndum
nánari böndum.
Kotiikoff segir að aðferðarfræði
kynslóðareikninga sé ekki fullkom-
in, þar sem talsverð óvissa sé varð-
andi það hvað stjórnvöld í tilteknu
landi muni koma til með að taka
frá hverju okkar í formi skatta og
láta af hendi í formi tilfærslna af
ýmsum toga, og hve miklu muni
verða varið í vegi og brýr og slíkt.
„En þó að framtíðin sé bundin
óvissu þýðir það ekki að þú getir
látið sem hún sé ekki til,“ segir
Laurence Kotlikoff, og bætir við
að það höfum við hinsvegar verið
að gera kerfisbundið. „Við höfum
verið að gera eitthvað verra en að
neita að horfast í augu við framtíð-
ina, þar sem við höfum verið að
framleiða talnagögn varðandi fjár-
mál hins opinbera sem hafa enga
grundvallar efnahagslega þýð-
ingu.“
Þar á Kotlikoff við hið venju-
bundna ríkisbókhald þar sem litið
er til halla eða afgangs af fjárlög-
um, en stærð þeirrar hallatölu fer
eftir því hvernig stjórnvöld merkja
hinar ýmsu stærðir, eða hvaða
nöfn þau nota yfir hinar ýmsu
tekjur og gjöld í fjármálum hins
opinbera, að því er Kotlikoff segir.
„Ef stjórnvöld t.d. kalla tillag
þitt til lífeyriskerfisins skatt, þá
verður niðurstöðutala ríkissjóðs
önnur en ef það kallar tillag þitt
lán. Þannig að við höfum algert
frelsi hvað varðar nafngiftir, og
hallinn á fjármálum hins opinbera
er ekki hugtak sem grundvallast af
ákveðinni óumbreytanlegri reikni-
formúlu heldur af því hvaða nöfn
eru notuð til að skýra ýmsar
stærðir. Á móti gefa kynslóða-
reikningar alltaf sömu niðurstöðu,
sama hvaða nöfnum þú nefnir hlut-
ina.“
Samlæsingar og rafmagn
í rúðum. Litað gler.
Sjálfskiptur eða 5 gíra.
Bensínlok opnanlegt innan frá.
Tvöfaldir styrktarbitar
í hurðum.
Vökva- og veltistýri.
1500 cc 90 hövél.
Tölvustýrð innspýting.
Eyðsla aðeins 8,4 Itr.
Falleg innrétting.
Hljómflutningstæki
með 4 hátölurum.
Gott farangursrými.
Niðurfellanleg aftursæti.
Samlitir stuðarar.
Loftpúðar fyrir bilstjóra og farþega
íffamsæti.
Hæðarstillanlegt öryggisbelti.
^ÖOgi
Accent 5 dyra beinskiptur
1.199.000 kr.
Accent 5 dyra sjálfskiptun
1.279.000 kr.
Sumarpakki: 70.000 kr.
Grjótháls 1
Sími 575 1200
Söludelld 5751280
aföllu
Viðarklæðning
i mælaborði
Álfelgur
Vindskeið
Hliðarsólhlif
Geislaspilari
FossHóís n
B*J- I
HostfíóB L \ OftStMáls