Morgunblaðið - 08.06.1999, Síða 25
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 8. JÚNÍ 1999 25
ÚR VERINU
Innréttingar, hillur
fyrirfyrirtæki og ve
borð - Heildarlausnir
mir af öllum stærðum.
Leitaðu tilboða.
|a Einfalt í
| uppsetningu
skrúfufrítt
■ smellt saman
' Umboðs-og heildverslun
Nethyl3-3a -112 Reykjavik
Sími53 53 600- Fax5673609
Fjölmenn hátíð-
arhöld í Eyjum
Vestmannaeyjum. Morgunblaðið.
SJÓMANNADAGURINN var
haldinn hátíðlegur í góðviðri í Eyj-
um um helgina. Segja má að smá
forskot hafi verið tekið á daginn
strax á fóstudagskvöld þegar söng-
skemmtun undir stjórn Arna John-
sen var í Akógeshúsinu. Fyrir há-
degi á laugardag var síðan kapp-
róður, koddaslagur og fleiri keppn-
isíþróttir í Friðarhöfn en eftir há-
degið var skemmtidagskrá á
Stakkagerðistúni. Ymislegt var til
gamans gert, Helgi Ólafsson tefldi
fjöltefli, hljómsveitirnar Skíta-
mórall og Dans á rósum léku og
Laddi tróð upp.
A laugardagskvöld voru síðan
sjómannadansleikir í Týsheimilinu
og Alþýðuhúsinu.
Hátíðarhöld sunnudagsins hófúst
með messu í Landakirkju en að
henni lokinni var minningarathöfn
undir stjóm Snorra Óskarssonar við
minnisvarðann um hrapaða,
drukknaða og þá sem farist hafa í
flugslysum. Síðdegis á sunnudag
var svo hátíðarsamkoma á Stakka-
gerðistúni. Jón Bondó Pálsson flutti
ræðu dagsins en að henni lokmni
voru ýmsir heiðraðir. Sigmund Jó-
hannsson, teiknari og uppfinninga-
maður, var heiðraður fýrir sitt
mikla framlag til öryggismála sjó-
manna. Guðmundur Ingi Guð-
mundsson, skipstjóri, Gísli Gríms-
son, vélstjóri, og Jóhann Björgvins-
son, matsveinn, vom heiðraðir fyrir
sitt framlag til starfa í sjómanna-
stétt. Pétur Arnmarsson fékk viður-
kenningu fyrir björgun manns úr
sjávarháska. Áhöfnin á Þómnni
Sveinsdóttur fékk viðurkenningu
frá Siglingastofnun fyrir góða um-
gengni um skip sitt og gott ástand
öryggis og björgunartækja og að
lokum fékk Friðrik Heiðar Vigfús-
son afhent Verðandaúrið fyrir best-
an árangur í siglingafræðigreinum á
2. stigi Stýrimannaskólans í Eyjum.
Viðurkenningar vora veittar fyr-
ir kappróður og aðrar keppnis-
greinar laugardagsins en síðan
söng Samkór Vestmannaeyja nokk-
ur lög og Örvar Kristjánsson þandi
nikkuna fyrir viðstadda. Að vanda
sáu konur úr Slysavarnadeildinni
Eykyndli um sjómannadagskaffi í
Alþýðuhúsinu.
Morgunblaðið/Sigurgeir Jónasson
GUÐMUNDUR Ingi Guðmundsson, skipstjóri, Gísli Grímsson, vél-
sljóri, og Jóhann Björgvinsson, matsveinn, voru heiðraðir fyrir sitt
framlag til starfa í sjómannastétt.
Morgunblaðið/Þorkell
FRÁ vinstri: Guðmundur Þórir Einarsson, Jón Guðmundsson, Steinar Axelsson, Bjarni Bjarnason, Ásgeir Sig-
urðsson og Guðmundur Hallvarðsson, formaður sjómannadagsráðs. Á myndina vantar Hauk Dan Þórhallsson.
Sjómenn heiðraðir
SEX sjómenn voru heiðraðir á sjó-
mannadaginn í samræmi við
ábendingar þeirra sjómannafélaga
sem að sjómannasamtökunum
standa.
Ásgeir Sigurðsson skipsfjóri
fæddist í Reykjavík árið 1923.
Hann hóf sjómannsferil árið 1939
sem aðstoðarmatsveinn á togaran-
um Gylli frá Reykjavík og var á
fiski- og flutningaskipum fram til
ársins 1946 er hann réðst sem há-
seti á eimskipið Lagarfoss í eigu
Eimskipafélags Islands. Hann hætti
störfum árið 1986 eftir 47 ára sjó-
mannsferil og 40 ára st.arf hjá Eim-
skipafélagi íslands. Ásgeir er
kvæntur Kristbjörgu Sigvaldadótt-
ur og eiga þau 4 börn.
Bjarni Bjarnason bryti fæddist í
Vestmannaeyjum árið 1926. Hann
hóf sjómannsferil sinn á Skaftfell-
ingi frá Vestmannaeyjum árið 1942
og var síðar á vertíðarbátum. Að
námi loknu hóf hann störf á varð-
skipum ríkisins, hjá Jöklum hf. og
síðustu 25 ár sjómennskunnar, af
43 ára sjómannsferli, starfaði
Bjarni hjá Eimskipafélagi íslands,
lengst af á Dettifossi. Bjarni er
kvæntur Onnu Kristjánsdóttur og
eiga þau 5 börn.
Guðmundur Þórir Einarsson sjó-
maður fæddist í Reykjavík árið
1932. Hann hóf sjómennsku árið
1948 sem aðstoðarmatsveinn á tog-
aranum Tryggva gamla frá
Reykjavík. Arið 1952 fór Guð-
mundur á togarann Hallveigu
Komdu við í glæsilegum sýningarsal okkar aó Nethyl 3-3a
Fróðadóttur frá Reykjavfk og var
þar í 11 ár. Árið 1954 bjargaði
Guðmundur tveimur skipsfélögum
sínum sem féllu í sjóinn skammt
undan Akranesi. Sama ár bjargaði
áhöfn Hallveigar 5 sjómönnum úr
sökkvandi fiskibát á Breiðafirði og
sýndi Guðmyndur fádæma þrek-
virki er hann stökk um borð í
sökkvandi bátinn og bjargaði
manni sem hafði orðið þar eftir.
Árið 1975 hóf Guðmundur störf á
skipum Hafrannsóknastofnunar og
starfar hann nú sem bátsmaður á
rannsóknaskipinu Dröfn. Guð-
mundur er kvæntur Margréti Sig-
urðardóttur og eiga þau sex börn.
Haukur Dan Þórhallsson skip-
sljóri fæddist á Höfn í Hornafirði
árið 1923. Hann hóf sjómannsferil
sinn sem háseti á vélbátnum Björg-
vini frá Hornafirði, starfaði á fiski-
bátum til ársins 1945 en hóf þá
störf sem háseti á eimskipinu Fjall-
fossi. Hann var fastráðinn skip-
stjóri á skipum Eimskipafélagsins
árið 1969 en lét af störfum árið
1989 eftir 44 ára starf hjá félaginu.
Haukur er kvæntur Önnu Heiðdal
Sigurðardóttur og eiga þau 5 börn.
S^rúðkmtj..
ws
x!/M
Xkristall
Q^alkcjt úrvat /wáékaajJFj/afja
Jón Guðmundsson vélstjóri
fæddist á Ytri-Veðrará í Önundar-
firði árið 1927. Hann var vélsijóri
á Gylfa BA frá Patreksfirði árið
1952, yfirvélstjóri hjá Bæjarútgerð
Reykjavíkur, vélsljóri og yfirvél-
stjóri hjá skipadeild SÍS og hjá
Samskipum 1954-1995 er hann lét
af störfum. Jón er kvæntur Hólm-
fríði Heiðdal Benediktsdóttur og
eiga þau einn son.
Steinar Axelsson matsveinn
fæddist í Reykjavík 4. aprfl árið
1925. Hann hóf sjómennsku árið
1941 sem aðstoðarmatsveinn á tog-
aranum Gulltoppi. Var hann næstu
45 árin á ýmsum fiski- og farskip-
um og um tíma á sanddæluskipum
Björgunar hf. Steinar hætti til sjós
árið 1989 en starfaði lengi eftir
það hjá Björgun.
Skilst lyfið út með
m óðurmj ólkirmi ?
IYFJ1
böki
hefur svariö
og einnig í Árnesapóteki, Húsavíkurapóteki
og Egilsstaöaapóteki.
www.lyfja.is
aðeins
fyrir konur
’TWEMC. framleiðir ekki bara venjuleg fjallahjól
heldur líka sérstakar útgáfur af hjólum fyrir konur á
öllum aldri með sérhönnuðum hnakk og stýri.Ævilöng
ábyrgð á stelli og gaffli.
& KLEIN
GOIPSNIfí:
CATEYE
SMimnna'