Morgunblaðið - 08.06.1999, Síða 26

Morgunblaðið - 08.06.1999, Síða 26
26 ÞRIÐJUDAGUR 8. JÚNÍ 1999 MORGUNBLAÐIÐ ERLENT Afleiðingar loftárása NATQ á Júgóslavíu Serbneska hag- kerfíð í molum Belgrad. The Daily Telegraph. AFLEIÐINGAR linnulausra loft- árása Atlantshafsbandalagsins und- anfarinna níu vikna (NATO) á Jú- góslavíu eru þær að í hagkerfi lands: ins stendur vart steinn yfir steini. í opinberum tölum stjórnvalda í Belgrad er leitt að því líkum að ástand hagkerfisins nú sé svipað því og það var við lok heimsstyrjaldar- innar síðari. Nokkrir leiðtogar NATO, með Tony Blair forsætisráð- herra Bretlands fremstan í flokki, hafa heitið því að ekki muni koma til fjárhagsaðstoðar til uppbyggingar- starfs í Serbíu og Kosovo á meðan Slobodan Milosevic, yfirlýstur stríðs- glæpamaður, sitji í valdastóli. Hvort sem Milosevic verður við stjómvöl- inn eða ekki mun júgóslvneska þjóð- in þurfa að byggja upp innviði ríkis- ins. Bróðurpartur hersins er í mol- um, hundrað verksmiðja ónýt, bygg- ingar, brýr, íbúðarhús, vegir og lest- arspor rústir einar. I ljósi einangr- unar Júgóslavíu á alþjóðavettvangi og sundrungar heima fyrir virðist framtíðin harla dökk. Alþjóðlegrar aðstoðar er talin þörf. Júgóslavneskir embættismenn segja að um hálf milljón manna sé nú án atvinnu, s.s. tæp 30% vinnufærra einstaklinga séu atvinnulaus. Duhð atvinnuleysi er talið vera nær 50%. Eldri borgurum hefur verið tjáð að eftirlaunagreiðslur verði frystar. Fram hefur komið að NATO hafi eyðilagt um 50 brýr, sex þjóðvegi og fimm flugvelli. Þá segja stjórnvöld í Belgrad að tuttugu sjúkrahús séu óstarfhæf, þrjátíu heilsugæslustöðv- ar, 190 menntastofnanir og tólf lest- arspor ónýt. Blómleg bifreiðaframleiðsla Jú- góslava hefur verið eyðilögð í loft- árásum á Zastava-verksmiðjurnar í Kragujevac. Obein afleiðing þessa er að u.þ.b. 120 undirverktakar eru gjaldþrota. Fyrir um mánuði var ol- íurisinn Petrohemija eitt af óska- bömum júgóslavnesku þjóðarinnar og var markaðsvirði fyrirtækisins metið á um 70 milljarða íslenskra króna. I dag hafa nær allar olíu- birgðir þess verið eyðilagðar. Tvær af stærstu olíuhreinsunar- stöðvum Júgóslava sem eru í Pancevo og Novisad hafa verið jafn- aðar við jörðu. Afleiðingu þessa telja sérfræðingar vera að færa hagkerfi landsins aftur á stig landbúnaðar- framleiðslu. Tahð er að landbúnaðar- framleiðsla sem hlutfall af vergri þjóðarframleiðslu muni hækka úr 35% í 50% til skemmri tíma litið. Þá eru ýmis vandkvæði bundin slíkri framleiðslu þar eð almenningur ótt- ast að mikill hluti matvöru, sem framleidd er innanlands, sé eitraður. Júgóslavneskir hagfræðingar telja að það muni kosta á bilinu 1.500 til 3.000 milljarða að koma hagkerfi landsins á svipað stig og það var áð- ur en hafist var handa við að varpa sprengjum NATO hinn 24. mars sl. Eru þessar tölur varlega áætlaðar. Þykir vist að Serbar munu fara fram á stríðsskaðabætur frá bandalaginu. Ef slíkri bón yrði hafnað mundu stjórnvöld líklega fara fram á að al- menningur legði sitt af mörkum til uppbyggingar brúa, vega og annarra mannvirkja. Áður en stríðið braust út var hag- kerfi Júgóslavíu í molum. Viðskipta- Reuters SERBNESKUR karlmaður virðir fyrir sér úrval gaskúta á útimarkaði í Belgrad. Á undanförnum vikum hefur almenningur í höfuðborginni búið sig undir hart ár. bann Sameinuðu þjóðanna tók mik- inn toll af frumkvæði og framþróun í júgóslavneskum efnahag. G-17, sjálf- stæð hagfræðistofnun sem sérhæfir sig í málefnum ríkjanna á Balkanskaga, taldi að áður en loft- árásimar hófust myndi það taka Jú- góslava um 29 ár til að komast á svipað stig hagsældar og ríkti árið 1989. Tveimur og hálfum mánuði síð- ar telja fulltrúar stofnunarinnar að 45 ár séu nær lagi - þ.e. án þess að til umfangsmikillar alþjóðlegrar að- stoðar komi. Almenningur flykkist til sveita Serbneska þjóðin hefur þegar undirbúið sig fyrir þá tíma sem framundan eru. Sala á rafstöðvum og kolaofnum hefur snarhækkað undanfamar vikur og horfa menn þar með til komandi vetrar. Tugir þúsunda borgarbúa hafa flust inn á ættmenni sín til sveita þar sem unnt er að rækta grænmeti, kynda í eld- stóm og lifa af afurðum búpenings- ins. En Júgóslavía þarf einnig á póli- tískri uppbyggingu að halda. Líkt og einn viðmælandi blaðamanns Was- hinton Post í Belgrad komst að orði: „Það er ekki nægjanlegt að bæta skaðann á mannvirkjum. Við þurfum réttarfarsbreytingar, við þörfnumst stöðugleika, við viljum eðlilegt ástand.“ „Stjómarskipti gætu hjálp- að til,“ bætti hann við. „Eg er kaup- sýslumaður. Ber mér að fara út á götu og leitast við að endurreisa allt upp á eigin spýtur? Slíkt gæti þýtt fimmtán ára fangelsi. Eg vil aðeins sinna mínu starfi, afla fjár, fara heim að loknum vinnudegi og vera með fjölskyldu minni.“ Reuters S Miklir þurrkar í Irak Friðarviðræðurnar og pólitísk framtíð Júgóslavíu • • Orlögin eru enn í höndum Milosevics Belgrad. AFP, Reuters. LÍTILL íraskur drengur gengur á þurrum jarðvegi í Diyala-hér- aði, eitt hundrað kílómetra norð- austur af Bagdad, höfuðborg AFRISKA þjóðarráðið (ANC), stjómarflokkurinn í Suður-Afríku, fékk ekki tvo þriðju þingsætanna í kosningunum á miðvikudaginn var eins og spáð hafði verið. Flokkurinn fékk 266 þingsæti af 400 og 66,5% atkvæðanna, sam- kvæmt lokatölunum sem vom birt- ar í gær. Horfumar á því að hann fengi tvo þriðju þingsætanna, sem hefði gert honum kleift að breyta stjórnarskránni án stuðnings ann- arra flokka, höfðu valdið titringi á fraks, í gær. Fulltrúar Samein- uðu þjóðanna spá því að þurrkar verði verri í frak í ár en nokkru sinni áður á þessari öld. fjármálamörkuðum landsins. Lýðræðisflokkurinn fékk næst- mest fylgi, 9,5%, og er nú stærsti stjómarandstöðuflokkurinn, með 38 þingmenn. Inkatha-frelsisflokkur- inn fékk 34 þingmenn og 8,5% at- kvæðanna. Nýi þjóðarflokkurinn, sem var áður næststærstur, er nú fjórði stærsti flokkurinn á þinginu, fékk 28 sæti og 7% fylgi. Níu flokkar fengu 1-14 þingsæti í kosningunum. STJÓRNVÖLD í Belgrad reyndu í gær allt hvað þau gátu til að koma í veg fyrir að Atlantshafsbandalagið (NATO) gæti sent friðargæslulið sitt inn í Kosovo-hérað hið fyrsta og vís- uðu til þess að ályktun öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna yrði að liggja fyrir áður. Þá fór Júgóslavíustjóm fram á að serbneskar hersveitir, sem í Kosovo era, verði ekki kallaðar út úr héraðinu í einu lagi, heldur tvennu, til að koma í veg fyrir að vopnaðar sveitir Frelsishers Kosovo (UCK) nái tangarhaldi á hernaðar- lega mikilvægum stöðum. Tafir og þóf hafa einkennt viðræður deiluaðila um helgina og virðist sem Slobodan Milosevic Júgóslavíuforseti leiki nú sama leik og áður - fallist á mála- miðlanir og reyni síðan til hins ýtrasta að ná fram markmiðum sín- um og þar með að styrkja sig í sessi heima fyrir - leik sem leiðtogar aðild- arríkja NATO hafa ítrekað varað við. Fréttaskýrendur reyna nú að ráða í viðbrögð stjórnvalda í Belgrad og skýra stöðu þeirra á þessum við- kvæma tímapunkti í þróun átakanna um Kosovo-hérað. Milosevic hefur enn tögl og hagldir í Belgrad en víst þykir að stjórnarandstaðan muni geta færst í aukana nú er friður virð- ist geta verið á næsta leiti. Serbar langþreyttir á stríðs- rekstri Milosevics Zoran Djindjic, leiðtogi serbneska lýðræðisflokksins, stærsta stjómar- andstöðuflokksins í Serbíu, sagði í viðtali við fréttastofu AFP í gær að það væri ástæða til að gæta „hóflegr- ar bjartsýni“ um framhald friðarferl- isins á Balkanskaga. Hann væri enn að bíða eftir „upphafi“ þess í ljósi undangengins þófs. „Málið snýst ekki um að hafa trú á forsetanum,“ sagði Djindjic, „almennt séð er ógerlegt að hafa trú á honum, við verðum að treysta trúna á sannanir." Sannanir væra það sem til þyrfti til að sýna fram á að Milosevic væri full alvara. Gabriel Partos, fréttaskýrandi BBC, ritaði nýlega á vefsíðu frétta- stofunnar að þótt Milosevic hefði náð að halda völdum allt þar til nú, væru ýmis merki þess að honum kunni að reynast það erfitt í kjölfar friðarvið- ræðna. Ástæðumar væru tvær að stofni til. Annars vegar væri serbneskur almenningur orðinn lang- þreyttur á stríðsreksfri forsetans - ekki eingöngu í Kosovo heldur einnig í Bosníu og Króatíu. Innviðir þjóðfé- lagsins væru rústir einar og alþjóð- legt fjármagn ekki fyrirsjáanlegt meðan Milosevic væri við völd. Hina ástæðuna telur Partos vera þá að stjómarandstöðuöflin í Júgóslavíu muni gera aukið tilkall til valda - að hluta til í skjóli yfirlýsinga leiðtoga NATO. Munu þeir reyna að gera sem mest úr eyðileggingunni í landinu og skella skuldinni á núverandi valdhafa og viljaleysi þeirra til samninga við NATO. Telur Partos að þótt staða forset- ans virðist vera mjög veik sé styrkur Milosevics nú skortur á trúverðugum valkostum. Enn sé stjómarandstað- an klofin og fáir kostir hvað nýjan leiðtoga varði. Milosevic ætti því að geta haldið völdum til skemmri tíma litið. John Simpson, starfsbróðir Par- tos hjá BBC, kemst svo að orði að erfiðir tímar kunni að vera framund- an - jafnvel verri en júgóslavneska þjóðin hefur áður lifað - ef valda- skipti verða ekki senn í Belgrad. „Vandinn er hins vegar sá að Milos- evic mun ekki fara hljóðlega, hið raunveralega pólitíska afl [í Serbíu] er ekki hófsamt, og hin hófsömu öfl hafa engin völd.“ Valdastaða stjórnarinnar veik - stjórnarandstaðan lasburða Á meðan valdastaða Milosevics veikist virðist Simpson sem stjómar- andstaðan sé afar lasburða. Enginn hafi sett sig á móti valdhöfum á með- an á hernaðinum stóð - með þeirri undantekningu þó að Vuk Obradovic, leiðtogi hins smáa lýðræðisflokks, gagnrýndi forsetann opinberlega. Aðrir, líkt og Zoran Djindjic hafi ráð- ist gegn forsetanum í tiltölulega tryggu umhverfi í Svartfjallalandi og þjóðernissinnann Vuk Drascovic, fyrrverandi aðstoðarforsætisráð- herra Júgóslavíu, sé eflaust hægt að ginna aftur í faðm stjómarinnar. Að þeim frátöldum sé eftir Vojslav Seslj, leiðtogi Öfgaflokksins, þing- flokks öfgafullra þjóðemissinna og harðlínumanna og aðstoðarforsætis- ráðherra Serbíu. Að undanfömu hef- ur hann gagnrýnt Milosevic harðlega fyrir að láta undan kröfum NATO og hótað að segja sig úr ríkisstjórn Ser- bíu. Telur Simpson að ef Milosevic takist ekki að róa Seslj og halda hon- um innan stjórnarinnar sé voðinn vís. Seslj sé maður sem fari ofbeldi ágætlega úr hendi; nafn hans hafi verið ritað á tugi húsa í Króatíu og Bosníu þar sem þjóðemishreinsanir voru sem verstar í fyrri stríðum Milosevics. Að mati Simpsons er fólk í Belgrad farið að ræða alvarlega um hugsanlega borgarastyrjöld í Serbíu. Hvort sem það er raunhæfur mögu- leiki eða ekki þá þykir ljóst að efni- viðurinn er nægur. Mikið sé til af fólki sem sé reiðubúið til að berjast fyrir málstaðinn. Milosevic kunni jafnvel að færa sér aðstæðurnar í nyt, ótta fólks, og skapa þar með mynd af sjálfum sér sem eina leið- toganum sem haldið geti í horfinu. Slíkt væri mjög í anda stjómvisku Milosevics. Noel Malcolm, sagnfræðingur og dálkahöfundur The Daily Telegraph, telur að þótt blaðalesendum á Vest- urlöndum kunni að þykja líklegt að serbneskur almenningur hafi fengið nóg af Milosevic þá horfi málið öðra- visi við í Serbíu. Fjölmiðlar í landinu - flestir hverjir undir hæl forsetans - básúna sigur Serba sem hafi náð öllum meginmarkmiðum sínum í gegn. Ríkinu verði ekki skipt upp og Kosovo verði áfram undir lögform- legri stjórn Júgóslavíu. M.ö.o., í Ser- bíu er Milosevic enn við stjómvölinn. ANC fékk ekki tvo þriðju þingsætanna Pretoriu. Reuters.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.