Morgunblaðið - 08.06.1999, Side 28
28 ÞRIÐJUDAGUR 8. JÚNÍ 1999
MORGUNB L AÐIÐ
ERLENT
Kosningarnar á Indónesíu taldar hafa farið heiðarlega fram
Otti um óeirðir
reyndist ástæðulaus
Reuters
MEGAWATI Sukarnoputri greiðir atkvæði í gær.
Jakarta, Dili á Austur-Tímor. Reuters, AP.
KJÖRFUNDI á Indónesíu
lauk í gær án þess að fregn-
ir bærust af alvarlegum
óeirðum, en ekki er búist
við að endanleg úrslit í
þingkosningunum liggi fyr-
ir fyrr en í kvöld. Þetta
voru íyrstu frjálsu kosning-
amar í landinu í 44 ár. Full-
trúar eins helsta stjómar-
andstöðuflokksins segjast
hafa unnið stórsigur.
Kjörfundi lauk klukkan
tvö síðdegis að staðartíma,
eða klukkan sjö í gærmorg-
un að íslenskum tíma. Ails
vora um 130 milljónir á
kjörskrá, og kosið var um
462 sæti af 500 á þinginu.
Þrjátíu og átta sæti era frá-
tekin fyrir fulltrúa hersins,
og hafa fréttaskýrendur
sagt líklegt að herinn muni
ráða miklu um hver tekur
við stj ómartaumunum.
Astralskur ráðgjafi yfir-
kjörstjómar, Ross Mackay,
tjáði fréttastofu Reuters í
gær að fyrstu tölur yrðu
kunnar þá um kvöldið, en
þær dygðu ekki til að gefa
trúverðuga mynd af endan-
legum niðurstöðum.
Hverfandi stuðningur
við Golkar
Niðurstöður skoðanakannana
benda til þess að helstu stjómarand-
stöðuflokkamir, Indónesíska lýð-
ræðisflokksbaráttan (PDI-P) og
Þjóðaramboðsflokkurinn (PAN),
muni fá flest atkvæði, en stjómar-
flokkurinn, Golkar, sem var flokkur
fyrrverandi forseta, Suhartos, fái
hverfandi stuðning kjósenda.
Leiðtogi PDI-P er Megawati
Sukamoputri, dóttir fyrrverandi
leiðtoga landsins, Sukamos. Fulltrúi
flokksins, sem ekki vildi láta nafns
síns getið, sagði í gær að fyrstu tölur
frá austustu héraðum landsins bentu
til stórsigurs flokksins, allt að 70%
atkvæða. Fréttaskýrendur sögðu
fyrir kosningamar að flokkurinn
yrði að lfldndum einn fárra flokka, af
þeim 48 sem byðu fram, sem fengju
um 10% atkvæða.
Fulltrúi PAN sagði í gær að alltof
snemmt væri að segja til um endan-
leg úrslit, en kvaðst telja líklegt að
flokkamir tveir hefðu mjög svipað
fylgi-
Staða indónesíska gjaldmiðilsins
styrktist á mörkuðum í gær þegar í
ljós kom að spár um miklar óeirðir á
kjördag reyndust rangar. „Menn era
ánægðir á kjörstöðum og kosning-
amar virðast hafa farið heiðarlega
fram, enn sem komið er,“ sagði
Hartmut Schauerte, þýskur þing-
maður og einn fulltrúa Evrópusam-
bandsins er fylgdust með framgangi
kosninganna.
„Fólk hefur tekið þetta mjög al-
varlega. Þetta hefur verið einna lík-
ast helgiathöfn. Spumingin er sú
hvort þessi von rætist,“ sagði
Schauerte.
Akib, 25 ára atvinnulaus íbúi í fá-
tækrahverfi í Jakarta, sagði and-
rúmsloftið lýðræðislegt og kvaðst
bjartsýnn. Þegar hann var spurður
hvem hann hefði kosið sagði hann:
„Það er leyndarmál.“
Haft var eftir öðram kjós-
anda að einhverjir hefðu
boðið fólki að borga því 25
þúsund íúpíur ef það greiddi
Golkar atkvæði. „En það
höfnuðu allir því boði. Þótt
ég sé skuldum vafinn og lífið
sé erfitt hugsaði ég aldrei
um peninga, heldur um
frelsið. Samviska fólksins
hér er ekki til sölu.“
Áhugaleysi á A-Tímor
Kosningamar gengu vel
fyrir sig á Austur-Tímor
sem annars staðar, en
fréttaskýrendur segja þó
flesta íbúa héraðsins ekki
mjög áhugasama um kosn-
ingar til indónesíska þings-
ins. Ibúamir hafi mun meiri
áhuga á kosningunum sem
fram fara 8. nóvember er
þeir kjósa um sjálfstæði frá
Indónesíu.
Indónesía réðst inn í
Austur-Tímor 1975 og lagði
héraðið undir sig ári síðar.
Sameinuðu þjóðimar, sem
hafa ekki viðurkennt forráð
Indónesa í héraðinu, munu
standa að kosningunum í
nóvember. Fréttaskýrendur
segja lfldegt að sjáÍFstæðis-
sinnar verði ofan á.
Hlógu að Suharto
Nágrannar Suhartos, fyrrverandi
forseta, snera baki við honum í gær.
Tæplega 300 íbúar í Menteng-hverfi
efnafólks í Jakarta, þar sem Suharto
og nokkur bama hans búa, greiddu
flestir atkvæði með flokki Megawati,
sem fékk um 33% atkvæða, en Golk-
ar um 10%.
Úrslitin voru gerð heyrinkunn að
viðstöddu nokkra fjölmenni og að
sögn fréttamanna fóru margir að
hlæja er þau vora tilkynnt.
Margir Indónesar hafa aldrei áður
kosið í eiginlegum, frjálsum kosning-
um. Niðurstöðum þeirra kosninga er
haldnar hafa verið undanfarin 44 ár
hefur verið stýrt til þess að tryggja
að frambjóðendur Golkar næðu
kjöri.
„En ef Golkar sigrar núna þá fer
allt á annan endann,“ sagði
Muswantoro, 55 ára enskukennari í
Jakarta, í samtali við AP.
Hollenskur ráðherra segir af sér vegna eiturefnahneyksiis
Fleiri lönd banna
matvæli frá ESB
Brussel, París, Prag, Sofia, Washington, Reuters.
STÖÐUGT fleiri lönd hafa bannað
innflutning á landbúnaðarafurðum
frá ríkjum Evrópusambandsins,
vegna díoxín-mengunarinnar í mat-
vælum sem uppvíst varð um í Belgíu
fyrir rúmri viku. Landbúnaðarráð-
herra Hollands, Hayo Apotheker,
sagði af sér í gær vegna málsins, en
hann hefur sætt mikilli gagnrýni eft-
ir að í ljós kom að belgísk stjómvöld
létu hann vita af vandanum 12. maí
sl., án þess að hann hefðist nokkuð
að til að koma í veg fyrir dreifingu
mengaðra matvæla.
Mörg lönd, þar á meðal Bandarík-
in, stöðvuðu í síðustu viku innflutn-
ing á matvælum frá Belgíu og öðr-
um ríkjum Evrópusambandsins. Nú
hafa Asíulönd einnig hvert af öðru
stöðvað innflutning á landbúnaðar-
afurðum frá Evrópu, þar á meðal
Hong Kong, Malasía, Singapúr,
Suður-Kórea og Tafland. Þá hafa
Sameinuðu arabísku furstadæmin,
Saudí-Arabía, ísrael og Alsír bæst í
hópinn, auk Búlgaríu, Kýpur og
Tékklands í gær.
Þúsund
ramleiðendur
Belgísk stjómvöld bönnuðu í gær
sölu á innlendu smjöri, og hefur því
enn fækkað þeim matvælategund-
um sem Belgar geta lagt sér til
munns. Ríkisstjómin sat á neyðar-
fundi vegna málsins í gær, fjórða
daginn í röð. Hundruð kjötkaup-
manna og bakara hafa neyðst til að
loka verslunum sínum, enda hefur
öll sala á belgísku fuglakjöti, nauta-
kjöti, svínakjöti og mjólkurvörum
verið bönnuð, sem og sala á vörum
sem innihalda þessi hráefni. Samtök
matvælaframleiðenda í Belgíu telja
að hneykslið hafi þegar kostað.
framleiðendur um 40 milljarða ís-
lenskra króna.
Grunaðir látnir lausir
Forsætisráðherra Belgíu, Jean-
Luc Dehaene, staðfesti í gær að tala
bóndabæja sem notað hefðu meng-
að dýrafóður væri nokkuð yfir eitt
þúsund. Vonast er til að nú, þegar
ljóst er hvaða framleiðendur áttu í
hlut, verði hægt að rekja slóð meng-
aðra afurða frá þeim. Belgíska
stjómin átti í gær viðræður við full-
trúa framkvæmdastjómar Evrópu-
sambandsins um hvort þessar upp-
Ný staða æðsta yfirmanns utanríkis- og
varnarmála hjá Evrópusambandinu
Aðildarríki
binda vonir við
Javier Solana
London, The Daily Telegraph.
SKIPUN Javiers Solana, fram-
kvæmdastjóra Atlantshafsbanda-
lagsins (NATO), í nýja stöðu æðsta
yfirmanns utanrflds- og vamarmála
hjá Evrópusambandinu hefur vakið
vonir um að staða sambandsins sem
afls á alþjóðavettvangi styrkist. Bíð-
ur Solanas það verkefni að sam-
ræma stefnu ESB á sviði utanríkis-
og vamarmála, og mun hann koma
fram fyrir hönd sambandsins í sam-
skiptum við önnur rfld. .
I Maastricht-sáttmálanum er
kveðið á um að Evrópusambandið
hafi sameiginlega stefnu í utanrflds-
og vamarmálum, en lítið hefur reynt
á það hingað til. Þykir það hafa háð
sambandinu að enginn fastur emb-
ættismaður hefur komið fram sem
fulltrúi þess í samskiptum við erlend
ríki. Ekki hefur þótt ýkja traust-
vekjandi að utanrfldsráðherrar smá-
ríkja innan ESB fari með stjóm ut-
anríkismála sambandsins, auk þess
sem hlutverkin færast reglulega
milli aðildarlanda.
ESB fái
aukið vægi
Forystumönnum annarra ríkja
hefur því ekki alltaf verið ljóst við
hvem ætti að ræða í Brassel, þegar
mikið hefur legið við, sem vitaskuld
hefur þótt afar bagalegt. Einnig hef-
ur sýnt sig, meðal annars í Kosovo-
deilunni, að Evrópurfldn era enn
háð Bandaríkjunum í öryggismál-
um, bæði hvað varðar pólitískt
frumkvæði og hemaðarlegan mátt.
Eitt meginmarkmið Amsterdam-
sáttmálans, sem aðildarríkin undir-
rituðu í júní 1997 og tók gildí 1. maí
sl., var að auka vægi Evrópusam-
bandsins á alþjóðavettvangi með því
að skipa þungavigtarmann sem full-
trúa þess gagnvart öðram ríkjum.
Þar var kveðið á um að stofnað
skyldi embætti yfirmanns utanrflds-
mála sambandsins. Auk þess að
koma fram fyrir hönd ESB þegar
þess er þörf mun hann hafa umsjón
með eftirlitsstöð sambandsins í
Brassel, en hlutverk hennar er að
rannsaka, segja fyrir um og búa að-
ildarrfldn undir hugsanleg átök er
snerta kunni Evrópuríki.
Innan ESB er þess vænst að þeg-
ar yfirmaður utanríkismála hefur
tekið til starfa muni þörfin minnka á
að kalla til sérstaka sendimenn, eins
og t.d. Bandaríkjamanninn Richard
Holbrooke, til að leysa deilumál í
álfunni. Þá er vonast til að með fleiri
skrefum í átt til sameiginlegrar
vamarstefnu verði Evrópusamband-
ið óháðara Bandaríkjunum í hemað-
arlegu tilliti.
Solana uppfyllir
allar kröfur
Leiðtogar aðildarríkja ESB sam-
þykktu skipun Solanas á fundi sín-
um í Köln sl. föstudag. Hann hafði
verið talinn eiga mikla möguleika á
að hljóta embættið, en þó töldu sum-
ir að ekki væri heppilegt að hann
léti af störfum hjá NATO á meðan
bandalagið ætti í sínu fyrsta stríði,
auk þess sem rætt var um að hlut-
laus rfld innan ESB hefðu nokkrar
efasemdir um hann. Þessar raddir
hljóðnuðu fljótt á fimmtudag, þegar
óvæntir friðarsamningar við Milos-
evic Júgóslavíuforseta virtust í aug-
sýn.
Solana, sem verið hefur fram-
kvæmdastjóri NATO síðan árið
1996, þykir uppfylla allar kröfur til
að takast embættið á hendur. Hann
var áður prófessor í eðlisfræði, og
hefur gefið út yfir 30 fræðirit á því
sviði. I stöðu sinni hjá NATO hefur
hann getið sér gott orð í Washington
og meðal rfldsstjórna aðildarríkja
ESB, ekki síst fyrir framgöngu sína
í Kosovo-deilunni, en einnig þykir
hann hafa tekið vel á málum er
varða stækkun Atlantshafsbanda-
lagsins. Þá er talið að reynslan af
því að miðla málum með 19 aðildar-
ríkjum NATO komi honum að góð-
um notum er hann tekur til við að
samræma utanrfldsstefnu ESB-ríkj-
anna fimmtán.
Solana lýsti því yfir eftir skipun-
ina að sér væri heiður að því að taka
við embættinu, en að hann hefði þó
hugann allann við þróun mála í
Kosovo þessa dagana. Ekki er ljóst
hvenær hann tekur við hinni nýju
stöðu, en hann hefur gefið í skyn að
hann vilji sitja út skipunartíma sinn
hjá NATO, sem lýkur 19. desember
næstkomandi.
Reuters
STARFSMAÐUR kjúklingabús í Liege í Belgíu við hlið veggmyndar,
þar sem kjúklingi eru lögð þessi orð í munn: „Lengi lifi bannið, því
lengur lifi ég“.
lýsingar nægðu til að þess að bænd-
ur, sem ekki hefur fundist mengun
hjá, geti farið að selja afurðir sínar
áný.
Akveðið var í gær að skipa sér-
staka rannsóknamefnd til að kanna
hvemig svo hættulegt eiturefni sem
díoxín gat komist í stóran hluta af
belgískum landbúnaðaafurðum á
skömmum tíma. Heilbrigisráðherra
Belgíu kvað eftirlit skorta með
framleiðslu dýrafóðurs.
Talið er að mengunina megi rekja
til verksmiðju í eigu fjölskyldu að
nafni Verkest, þar sem framleiddar
eru olíur sem notaðar era í dýrafóð-
ur. Lögregluyfirvöld í Belgíu létu í
gær lausa tvo starfsmenn verk-
smiðjunnar, en þeir höfðu verið
grunaðir um skjalafals.