Morgunblaðið - 08.06.1999, Qupperneq 33
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 8. JÚNÍ 1999 33
LISTIR
KEPPNIN fer þannig
fram að fimm söngvarar
keppa fimm kvöld í röð,
meðlimir dómnefndarinn-
ar raða keppendunum í sæti frá
eitt til fimm og sá söngvari sem
hlýtur fæst stig er lýstur sigurveg-
arinn það kvöldið. Loks eru fimm
sem keppa til úrslita sem verða
laugardagskvöldið 12. júní þegar
sigurvegari keppninnar er valinn
og einnig eru veitt ljóðasöngsverð-
laun. Síðan munu sigurvegararnir
tveir halda tónleika hinn 16. júní í
Barbican-listamiðstöðinni í
London.
Cardiff Singer of the World-
keppnin hefur verið haldin annað
hvert ár síðan 1983 og er stefnan sú
að gefa ungum atvinnusöngvurum á
sviði sígildrar tónlistar tækifæri til
að sýna hvers þeir eru megnugir.
Keppninni er sjónvarpað um allt
Bretland og víðar, fimm sópran-
söngvarai-, sex messósópranar, þrír
tenórar, átta barítonar, einn
barítonbassi og tveh- bassar keppa
þessa vikuna í St. David’s Hall í
Cardiff. Það er til mikils að vinna,
ekki einungis er það heiðurinn og
þau tækifæri sem gætu skapast við
að vinna keppnina, heldur hlýtur
sigurvegarinn einnig tíu þúsund
sterlingspund og verðlaunagrip sem
hefur verið hannaður af glerlista-
konunni Linzi Hodges. Ljóðasöngs-
verðlaunin, sem hljóða upp á tvö
þúsund sterlingspund, eru ekki síð-
ur eftirsóknarverð og gætu leitt til
frekari frægðar og frama, það var
t.d. velska hetjan Bryn Terfel sem
hlaut þau árið 1989. Aðrir sem hafa
hlotið verðlaunin eru t.d. Dmitri
Hvorostovsky, rússneskur baríton,
finnska sópransöngkonan Karita
Mattila, sænsld messósópraninn
Katarina Kameus og kínverski
messósópraninn Guang Yang sem
vann keppnina 1997.
Verkefni víða
Tómas Tómasson lærði söng í
Tónlistarskóla Reykjavíkur hjá
Elísabetu Erlingsdóttur, útskrifað-
ist þaðan 1993 og var síðan næstu
Upphefð að
vera valinn
Cardiff Singer of the World-keppnin er
ein virtasta söngvarakeppnin sem um
getur. Af þeim fimm hundruð söngvurum
sem reyndu fyrir sér 1 ár komust 25
áfram í sjálfa keppnina, þeirra á meðal
Tómas Tómasson bassasöngvari. Dagur
Gunnarsson náði tali af Tómasi símleiðis
þar sem hann var staddur í Wales að búa
sig undir keppnina.
tvö árin í óperudeild-
inni í Royal College of
Music í London. Eftir
það var hann lausráð-
inn í tvö ár og söng
víða í Evrópu, þangað
til að hann fékk lausan
samning við óperu-
deildina við Konung-
lega leikhúsið í Kaup-
mannahöfn, þar sem
hann hefur verið und-
anfarin tvö ár. Hann
hefur á prjónunum
hugsanleg verkefni í
Köln, Brussel, Napólí
og það eru miklar lík-
ur á að hann verði
fenginn til að syngja í La Bohéme í
Konunglegu óperunni í London á
næsta ári.
Tómas er sjötti íslendingurinn
sem tekur þátt í Cardiff-keppninni,
í fyrstu keppninni, árið 1983, tók
Sigríður Gröndal þátt, Ingibjörg
Guðjónsdóttir keppti
árið 1985, Kristinn
Sigmundsson árið
1987, Rannveig Fríða
Bragadóttir 1989 og
árið 1993 var Ólafur
Arni Bjarnason ís-
lenski þátttakandinn.
Það eru umboðsmenn,
tónlistarstjómendur
og söngstjórar í óp-
eruhúsum og hljóm-
sveitarstjórar sem
senda inn sínar út-
nefningar fyrir keppn-
ina og svo er það Juli-
an Smith, sem er tón-
listarstjóri og stjóm-
andi við velsku Óperuna, sem ferð-
ast um allan hnöttinn á tveimur
mánuðum og hlýðir á tæplega
fimm hundrað umsækjendur, til að
velja síðan þá tuttugu og fimm sem
munu keppa til úrslita.
„Það var tónlistarstjórinn við
Tómas Tómasson
Konunglegu ópemna í Kaup-
mannahöfn, Elain Tadmore, sem
sendi keppninni bréf og tilnefndi
okkur Johan Reuter til keppninn-
ar,“ sagði Tómas þegar hann var
spurður hvernig það vildi til að
hann komst í úrslit þessarar
keppni. Johan Reuter er baríton-
bassi og keppir fyrir hönd Dan-
merkur. Tómas heldur áfram:
„Flestir þátttakendurnir em fast-
ráðnir við óperahús, en þessi
keppni er ætluð söngvumm sem
era að hefja feril sinn, það er ein-
ungis hægt að taka þátt einu sinni
og jú, auðvitað er þetta töluvert
spennandi. Það er náttúrlega upp-
hefð að vera valinn af þeim fimm
hundrað söngvuram sem sungu
fyrir en það er ekki hægt að gera
annað en að sjá til hvernig þetta
fer.“
Tómas sagðist hafa valið aríu úr
Rakaranum í Sevilla, La Calunia
og tvo Ijóðasöngva, annan eftir Ric-
hard Strauss, Allra sálnamessu og
hinn eftir Rachmaninoff, I þögn
hinnar dularfullu nætur, til að
flytja í keppninni. Ef hann yrði svo
lukkulegur að komast í úrslitin ætl-
ar hann að flytja aríu úr I Puritani
eftir Bellini, Chinta di furi eða
Blómum skrýdd og Nautabana-
sönginn úr Carmen eftir Bizet.
„Við þurfum að flytja tuttugu mín-
útna efnisskrá í fýrstu umferð og
svo þurfum við að vera tilbúin með
aðra tuttugu mínútna efnisskrá
fyrir undanúrslitin og sigurvegar-
amir þurfa síðan að endurtaka það
í Barbican-menningarmiðstöðinni
hinn 16. júní.“
- Hvernig lýst þér svo á sam-
keppnina?
„Jú, það segir sig sjálft að sam-
keppnin er mjög hörð, þetta era
allt duglegir ki-akkar.“
Tómas sagðist ekki hafa sungið í
Wales áður og hann hefði ekki haft
neinn tíma til að líta í kringum sig,
en hann þekkti að sjálfsögðu til
þeirra fallegu karlakórahefðar sem-
væri næstum því í sama gæðaflokki
og heima á Islandi og að lokum
vildi hann senda kveðjur heim.
SPOR í sandinn eftir Sigurjón
Ólafsson frá árinu 1982.
Spor í
sandinn 1
Listasafni
Sigurjóns
í LISTASAFNI Sigurjóns Ólafs-
sonar í Laugamesi hefur verið
opnuð sumarsýning á völdum
verkum eftir Sigurjón. Sýningin
heitir Spor í sandinn og vísar í
síðasta verkið frá hendi lista-
mannsins. Myndin verður til sýn-
is í safninu ásamt 23 öðmm verk-
um Siguijóns frá ólíkum tímabil-
uin í listsköpun hans.
I sumar verður safnið opið alla
daga nema mánudaga kl. 14-17.
mbl.is
Tónlist, hafín yf-
ir tískur og tíma
TOIVLIST
Salurinn
PÍANÓTÓNLEIKAR
György Sebök flutti verk eftir Moz-
art, Beethoven og Schubert. Sunnu-
dagurinn 6. júní 1999.
NOKKUÐ hefur það vafist fyr-
ir fólki og oft verið reynt að skil-
greina hvers vegna nútíminn hafi
lagt tiltölulega lítið til með píanó-
inu, þrátt fyrir að enn læri fleiri á
píanó en nokkurt annað hljóðfæri
og það njóti enn mikillar vinsælda
sem konserthljóðfæri. Svo virðist
sem hljómborðið og leiktækni á
það sé ekki lengur viðfangsefni
tónskálda og skýringin hugsan-
lega sú, að píanóleikur sé bundinn
í ákveðnar tækniviðjar og sem
tóngjafi, sé píanóið síður fallið til
tilrauna með hljóð og blæbrigði en
önnur hljóðfæri. Mozart og Beet-
hoven voru afburða pianóleikarar
en sagt er, að Schubert hafi ekki
getað leikið t.d. Wanderer-
fantasíuna, sem var síðasta við-
fangsefnið á tónleikum György
Sebök, sem haldnir voru í salnum
sl. sunnudagskvöld.
Tónleikarnir hófust á sónötu í c-
moll, K 457, eftir Wolfgang Ama-
deus Mozart, sem var að mörgu
leyti mjög fallega flutt, þó ekki
væri ávallt farið nákvæmlega eftir
„textanum", sem einnig átti við í
öðru viðfangsefni tónleikanna,
Appasionata-sónötunni, op. 57,
eftir Ludwig van Beethoven, þar
sem við lok framsögunnar, sem
ekki á að endurtaka, heyrðust sér-
kennileg tóntegundaskipti og
framsagan síðan endurtekin en þó
ekki frá upphafí. Eitt af því sem
einkennir leik Sebök, er syngjandi
laglína og létt hljóman undirradd-
anna, sem naut sín sérlega vel í
Mozart sónötunni, en var helst til
um of í sónötunni eftir Beethoven,
vegna þess að undirraddirnar hjá
Beethoven búa oft yfir sterkum
mótoriskum krafti. í heild var
leikur Sebök klassískur, sérlega
hreinn í Mozart, yfirvegaður í
Beethoven og vantaði því þau
átök, sem margir vilja heyra í
þessu tilfinningaþrungna skáld-
verki. Tilbrigðin fögru, annar
þátturinn, var einum of hraður,
þótt margt væri sérlega fallega
„sungið" í þessu sérkennilega
meistaraverki, sem þarf að vera
algjör andstæða við hinn hams-
lausa lokaþátt verksins.
Wanderer-fantasían eftir
Schubert var vel leikin en með létt-
ara yfirbragði en oft gerist að
heyra. Hægi kaflinn væri heldur of
hraður, en yfirskrift hans er
Adagio. Hvað sem þessu líður er
Gyorgy Sebök frábær píanisti og
undurfagur og tær leikur hans
blómstraði í tveimur aukalögum,
Transcription, eftir Franz Liszt, á
sönglaginu, Du bist die Ruh, eftir
Schubert og báðum menúettunum
og Gikknum, úr fyrstu partítunni,
eftir J.S. Bach. Þegar menn hafa
leikið á píanó í sjötíu og tvö ár, frá
fimm ára aldri, eins og Sebök,
verður lærdómur og það sem
menn geta þjálfað með sér í túlkun
og glæsilegum tilþrifum, ekki það
mikilvægasta, heldur tónlistin
sjálf, að hún lifi, án þess að hlust-
anda komi til hugar að það sé flytj-
andinn sem býr hana til með glæsi-
legri tækni sinni. Það sem hlust-
endur heyrðu á tónleikum György
Sebök, var tónlist eftir Mozart,
Beethoven, Schubert, Liszt og
J.S.Bach, tónlist, sem er hafin yfir
tískur og tíma, lifandi list.
Jón Asgeirsson
Sumar-
tilboð
Salemi með
setn og handlaug
á fæti á aðeins
14.800 kr
f>
1
.
HÚSASMIDJAN
Sími 525 3000
Kvennahlaup ÍSÍ
Um land allt, laugardaginn 19. júní
1990 &)
1999