Morgunblaðið - 08.06.1999, Síða 34
34 ÞRIÐJUDAGUR 8. JÚNÍ 1999
MORGUNBLAÐIÐ
LISTIR
Tónleikar með Gunnari Kvaran í sal Beethoven-hússins í Bonn
Islenzkt framlag til al-
þjóðlegrar tónleikaraðar
gegnsæja tónverki kannar Karólína
tónsvið og eiginleika sellósins og
vekur með verkfærum tónsmíðanna
hugrenningartengsl við skýjamynd-
anir og myndir á himni. Karólína
var viðstödd flutning verksins og
var henni vel fagnað. Með næsta
stykki, tilbrigðum fyrir píanó og
selló við aríuna „Bei Mánnern,
welche Liebe fiihlen“ úr Töfraflautu
Mozarts, vottuðu flytjendurnir á 1
táknrænan hátt virðingu sína íyrir I
„gestgjafanum" Ludwig van Beet- |
hoven.
Gunnar Kvaran sellóleikari kom fyrir
skemmstu fram á tónleikum í Beethoven
International-tónleikaröðinni í Bonn.
Ursula Timmer, forstöðumaður Kammer-
tónlistarsalar Beethoven-hússins, segir
frá tónleikunum og kveðst hlakka til
næstu stefnumóta við íslenzka tónlist og
íslenzka listamenn.
„BEETHOVEN
intemational" - að baki
þessari yfirskrift er
tónleikaröð, sem Beet-
hoven-húss-félagið
stendur að í samstarfi
við sendiráð erlendra
ríkja í Bonn. Þessi tón-
leikaröð hófst tónleika-
árið 1995/96 í Kammer-
tónlistarsal Beethoven-
hússins, sem er mjög
góður lítill tónleikasal-
ur sem nýlega var inn-
réttaður næst við fæð-
ingarhús Beethovens.
Upphafiegu hug-
myndina að tónleika-
röðinni átti þáverandi
sendiherra Lúxemborgar, Dr.
Adrien Meisch, sem á sínum tíma
hvatti starfsbræður sína til að
leggja sitt af mörkum til að viðhalda
fæðingarhúsi Beethovens og alþjóð-
legrar ræktarstarfsemi við arfleifð
Beethovens. Beethoven-húss-félag-
ið [Verein Beethoven-Haus], stóð
þá frammi fyrir því stóra verkefni,
að þurfa að ráðast í að endurnýja
fæðingarhús Ludwigs van Beet-
hoven, sem var orðið
mjög aðkallandi, og að
safna fé til þess. Undir
yfirskriftinni „Hver
bjargar fæðingarhús-
inu mínu“ var efnt til
umfangsmikillar söfn-
unar, sem tókst framar
vonum.
Hugmynd Adriens
Meiseh hlaut líka mikl-
ar undirtektir. Sendi-
ráð Lúxemborgar reið
á vaðið með því að efna
til söfnunartónleika
með „Solistes
Européen Luxembo-
urg“ undir stjóm Jacks
Martin Handler og hin-
um víðkunna píanóleikara Cyprien
Katsaris sem einleikara. Fjöldi
sendiráða fylgdi í kjölfarið með því
að kynna tónlistarmenn úr heima-
löndum sínum á tónleikum í
Kammertónlistarsalnum, og létu
allan hagnað af miðasölu renna í
sjóð Beethoven-hússins. Meðal
þeirra landa, sem með þessum
hætti tóku þátt í tónleikaröðinni
„Beethoven intemational“ vom
Gunnar
Kvaran
BEETHOVEN-HUSIÐ í Bonn.
Austurríki, Slóvenía, Kanada, Sviss,
Danmörk, Líbanon, Spánn, Króatía,
Svíþjóð, Chile, Ekvador, Mexíkó,
Tyrkland og - á þessu tónleikaári -
Island.
Sendiherra Islands í Bonn, Ingi-
mundur Sigfússon, hafði þá þegar
fyrir um tveimur áram haft sam-
band við Beethoven-húsið og beitt
sér fyrir því, að ísland tæki þátt í
tónleikaröðinni. Fyrstu „íslenzku"
tónleikamir fóra síðan fram hinn
23. apríl sl. í Kammertónlistarsaln-
um. Hinn kunni sellóleikari Gunnar
Kvaran lék, en hann hefur einnig
getið sér gott orð sem kennari við
Tónlistarskólann í Reykjavík. Und-
irleikari hans á tónleikunum var
ungur rússneskur píanóleikari,
Alexander Burdenko, en hann býr í
Þýzkalandi.
Gunnar Kvaran hóf tónleikadag-
skrána með einu mest krefjandi
verki sem samið hefur verið fyrir
selló, Bach-svítu í d-moll BWV
1008. Þá lék hann verk eftir ís-
lenzka tónskáldið Karólínu Eiríks-
dóttur, einleiksverk undir titlinum
„Skýin“ sem var samið sérstaklega
fyrir Gunnar. I þessu fínlega og
Spilaði meistaravel
Síðari hluti tónleikanna hófst með
einleiksverki fyrir selló, serenöðu
eftir Hans-Wemer Henze, sem tón-
skáldið hefur samið ungt og var lítið
eitt snúin en Gunnari tókst samt
meistaravel að spila. Tónleikunum s . .
lauk með sónötu fyrir selló og píarm
í e-moll, op. 38 eftir Johannes Bra-
hms, og - sem aukalag - „Svanur- jp
inn“ eftir Camille Saint Saéns. A
heildina litið buðu tónlistarmenn-
irnir tveir upp á metnaðarfulla og
fjölbreytta dagskrá.
Sum sendiráðin munu einnig eftir
flutninginn til Berlínar viðhalda
sambandinu við Beethoven-húsið og
halda áfram að kynna tónlistar-
menn og tónlist heimalandanna í ■
Kammertónlistarsalnum. Það gleð- í
ur okkur. Þannig mun fulltrúa Is-
lands heldur ekki vanta í dagskrá B
næsta tónleikatímabils. Að þessu
sinni verða það meðlimir Kammer-
hljómsveitar Reykjavíkur sem spila.
Þeir munu kynna dagskrá í tilefni af
aldarafmæli Jóns Leifs. Tónskáldið
Hjálmar H. Ragnarsson mun enn-
fremur verða við þessa tónleika og
flytja erindi um Jón Leifs og nú-
tímatónlist á Islandi. n
Burtséð frá því, að leggja sitt af ij
mörkum til að tryggja fjárhagsleg- ;
an grann að því að betri rækt sé {
lögð við arfleifð Beethovens og
stuðla að alþjóðlegum menningar-
samskiptum, gefur tónleikaröð
sendiráðanna dagskrá Beethoven-
hússins litríkan blæ og áheyrendum
tækifæri til að fá innsýn í tónlistar-
líf annarra landa. Þannig hafa þeir
sem sóttu tónleika Gunnars Kvaran
vafalaust þegar fengið lítils háttar fe.
innsýn í hið ríkulega tónlistarlíf Is-
lendinga. Við hlökkum til næstu
stefnumóta við íslenzka tónlist og W
íslenzka listamenn.
Spæjarinn Spencer og
góðgerðarsvindlið
ERLEIVDAR
RÆKUR
Spennusaga
„SUDDEN MISCHIEF"
eftir Robert B. Parker. Berkley
Fiction 1999. 297 síður.
BANDARÍSKI sakamálasagna-
höfundurinn Robert B. Parker
sendir reglulega frá sér harðsoðna
reyfara um einkaspæjarann
Spencer og ævintýri hans. Parker
skrifar mjög í Chandler-hefðinni og
tók að sér á sínum tíma að ljúka
ókláraðu handriti frá meistara sín-
um sem kallaðist „Poodle Springs“.
Auk þess gerðist hann svo djarfur
einu sinni að skrifa framhald
Svefnsins langa, einnar frægustu
sakamálasögu Chandlers, og kallaði
það „Perchance to Dream“. Nýlega
kom út í vasabroti sagan „Sudden
Mischief1 eftir Parker hjá Berkley
útgáfunni og er hún dæmigerður
Spcencer-reyfari og talsvert betri
en sá síðasti um spæjarann húmor-
ríka, „Small Vices“.
Dæmigerður
einkaspæjari
Spencer er kannski dæmigerður
einkaspæjari reyfarabókmennt-
anna, jafnvel klisjukenndur, en Par-
ker tekst að vinna þannig með klisj-
una, húmorinn og karlmennskuna
og veikleikana, að maður tekur
hann trúanlegan og það er sannar-
lega hægt að hafa gaman af honum.
Regla Spencers númer sex um
hvernig góður einkaspæjari á að
vera er eftirfarandi: Ef ekkert er að
gerast og þú hefur enga hugmynd
um hvað þú ert að gera, farðu þá
eitthvað og sestu niður og horfðu á
eitthvað og bíddu. Sakar ekki að
hafa kaffi og kleinuhring við hönd-
ina. Klæðnaður einkaspæjarans er
eftirfarandi: Strigaskór, gallabuxur,
bolur, leðurjakki, lítil Smith & Wes-
son skammbyssa og Oakley-sólgler-
augu. „Ég sá spegilmynd mína í
gleri bókabúðarinnar og vissi að ég
var allt sem haute monde einka-
spæjari átti að vera. Og kannski
eitthvað meira.“
Þar fyrir utan er Spencer ábyggi-
legur og traustvekjandi, hefur lag á
að vinna slagsmál, er nærgætinn
kvennamaður, reykir ekki og
drekkur mjög í hófi og elskar og
virðir kærustuna sína, Susan Sil-
verman. Það er einmitt hún sem
kemur honum í nýjustu klípuna.
Fyrrverandi eiginmaður hennar
hefur verið sakaður um kynferðis-
lega áreitni og það af fjórum kven-
mönnum og hún biður Spencer að
athuga málið. Eiginmaðurinn fyrr-
verandi er hálfgerður ef ekki alger
ræfill í mannlegum samskiptum en
Spencer gerir sitt besta og kemst
auðvitað að því að það er ekki allt
sem sýnist.
Skemmtileg spæjarasaga
Áður en hann veit af er hann far-
inn að fást við ofbeldisfulla smá-
krimma, leiðinda lögfræðing, sem
er með hótanir, dómara, sem einnig
er með hótanir, okurlánara, sem ber
ábyrgð á einhverjum af þessum of-
beldisfullu smákrimmum, svindl á
góðgerðarsamkomu og tvö lík, ann-
að með tunguna skoma burt.
Svo það er nóg að sýsla fyrir
Spencer og vin hans Hauk eða Hawk,
sem er einskonar lífvörður hans. Par-
ker segir söguna með kaldhæðnis-
legri kímni hins veraldarvana og
óhrædda einkaspæjara og dregur
upp myndir af skemmtilegum karakt-
eram með ósköp lítilli fyrirhöfíi.
Hann lýsir sem fýrr veröld þar sem
skuggaleg plön verða mönnum að
falli og aðeins riddari eins og
Spencer, vinur hans og Susan, bera
vitni um heilbrigða skynsemi og sýna
miskunnsemi við náungann. Stór
hluti hverrar Spencer-sögu fjallar um
ástarsamband hans og sálfræðingsins
Susan og Parker skrifar um fullorð-
insástir eins og sá sem valdið hefur.
„Sudden Mischief' er ljúf og
skemmtileg spæjarasaga laus við
óþarfa ofbeldi, hæfilega spennandi
en full af mannlegri gamansemi og
elsku sem aðeins harðhaus eins og
Spencer getur notið til fulls. Svei
mér ef hann er ekki orðinn einn af
þessum mjúku mönnum.
Arnaldur Indriðason
Morgunblaðið/Jón Svavarsson
SVERRIR Guðjónsson og Lára Stefánsdóttir í frumflutningi
Dýrðar Krists á setningu Kirkjulistahátíðar í Hallgrímskirkju.
Helgidans í
Isafj arðarkirkju
SÖNGUR, dans og orgelleik-
ur verða á þriðju áskriftar-
tónleikum Tónlistarfélags
ísafjarðar í ísafjarðarkirkju
á morgun, miðvikudag, kl.
20.30. Flutt verður orgel-
verkið Dýrð Krists eftir
Jónas Tómasson. Verkið
samdi Jónas árið 1995 í til-
efni af vígslu nýs orgels ísa-
fjarðarkirkju í janúar 1996,
en nú er verkið flutt í nýrri
mynd þar sem hlutverkum
söngvara og dansara hefur
verið bætt við.
Verkið var flutt í þessari
nýju mynd við setningu
Kirkjulistahátíðar í Hall-
grímskirkju sl. sunnudags-
kvöld og flyfja sömu lista-
menn verkið í ísafjarðar-
kirkju.
Wmm