Morgunblaðið - 08.06.1999, Qupperneq 37
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 8. JÚNÍ 1999 87
MENNTUN
MARGRET Amar konsúlsfrú afhendir Leolu Josefson þakkarbréf frá
Jóni Baldvini Hannibalssyni.
Y elgerðar-
maður hættir
Leola Josefson hefur starfað ötullega að ís-
lenskum málefnum og meðal annars veríð
formaður Val Bjomson sjóðsins í Minnesota
í Bandaríkjunum. Hún lætur nú af störfum.
LEOLA Amason Josefson hefur lát-
ið af störfum sem formaður Val
Bjomson sjóðsins sem styrkir að
minnsta kosti einn nemanda á ári frá
Háskóla Islands annarsvegar og Uni-
versity of Minnesota hinsvegar til
náms. Háskóli Islands og Minnesota-
háskóli era með skiptinemasamning
sín á milli og fá nemendur niðurfell-
ingu skólagjalda og fjárstyrk til uppi-
halds úr Val Bjomson sjóðnum.
Einnig getur sjóðurinn styrkt nem-
endur til skemmri tíma.
Undanfarin 18 ár hefur styrkþegi
frá HI verið við framhaldsnám í
Minnesotahaskólanum. Margir Is-
lendingar í Minnesota og afkomend-
ur þeirra hafa verið duglegir að safha
fé í þennan sjóð og er ætlunin að efla
hann enn frekar. Leola Josefsson
formaður hans er Vestur-íslending-
ur, fædd og uppaliní Minneota í
Minnesota.
Leolu var nýlega þakkað sérstak-
lega í athöfn við Minnesotaháskólann
fyrir störf sín í þágu Val Bjomson
sjóðsins og fékk hún meðal annars
þakkarbréf frá Jóni Baldvini Hanni-
baldssyni sendiherra. Hann segir þar
að Leola hafi í tæp tuttugu ár lagt
sjóðnum lið sitt og telur að það hafi
gert gæfumuninn til að gera sjóðinn
velstöndugan. Jón telur Leolu vera
fordæmi um hvemig viðleitni ein-
staklings og fylgi við málstað geti
riðið baggamuninn.
Leola hefur verið atorkusöm i fé-
lagsmálum og hefur m.a. unnið sem
sjálfboðaliði í fjölmörgum félögum.
Hún hefur ævinlega lagt íslenskum
málefnum mikið lið og verið með í
norrænu samstarfí. Hún átti t.d. sæti
í stjóm Scandinavian Center í Minn-
eapolis og Scandinavian Foundation í
Minnesotafylki i þrjátíu ár.
Um það bil 200 nemendur hafa
fengið styrk úr Val Bjomson sjóðn-
um og hafa m.a. lagt stund á hjúkr-
unarfræði, MBA, sjúkrahússtjómun,
landafræði, sálarfræði, verkfræði og
námsefnisforritun. Þeir sem hafa far-
ið til náms á íslandi hafa t.d. numið
íslensku fyrir útlendinga, bókmennt-
ir og sagnfræði.
Leola Josefson afhenti John
Magnussyni flugstjóra hjá North-
west Airlines fundahamar Val Bjom-
son sjóðsins við sömu athöfn í
Minnesotaháskólanum en hann er
orðinn formaður sjóðsins.
Hætta á einangrun þjóða
Jón Þór segir að víða um lönd
séu menn smeykir um að þjóðfé-
lög skiptist í tvo hópa, þá sem
kunna að nálgast upplýsingar f
gegnum Netið og þá sem geta það
ekki. „Ég held að hér á landi höf-
um við blessunarlega sloppið við
það, kannski af því að við erum
svo forvitin og viljum prófa nýja
hluti.“
Þessi skipting getur komið til
vegna þess, segir Jón Þór, að fólk
óttast þessar breytingar sem eru
að eiga sér stað vegna þess m.a.
að fólk hafi ekki efni á að eignast
nauðsynlegan tækjabúnað og hafí
misgóða þekkingu á ensku en Qöl-
margir gagnagrunnar, svo sem
Encyclopædea Brittanica, eru á
enskri tungu.
„Til er félagsskapur sem heitir
CECULA eða Confederation of
European Computer Users Associ-
ation,“ segir Jón Þór og bætir við
að hann sé reyndar forseti félags-
ins. „Þetta eru Evrópusamtök og í
þeim er fólk frá öllum löndum
Evrópska efnahagssvæðisins. Við
héldum ráðstefnu í Brussel í fyrra
undir heitinu The citizen in the
globai informntion society þar sem
við ætluðum að fjalla aðallega um
þrennt. Við áttum von á að mestur
tími færi í að ræða um væntingar
fólks til upplýsingasamfélagisins
annars vegar og tækifærin sem
það býður upp á hins vegar. Því
miður fjölluðum við mest um
áhyggjurnar sem menn hafa af
þessum málum. Þær snúast helst
um að fólk og jafnvel þjóðir ein-
angrist á einn eða annan hátt, þær
kunni ekki á tæknina, hafi ekki að-
gang að upplýsingunum, ekki fé
eða að lítil tungumálakunnátta
getur orðið þeim þrándur í götu.
Og Jón Þór spyr: „Hvemig á að
taka á þessum ótta?“ og svarar sér
sjálfúr um hæl:
„Við gætum sett lög en það er
þungt í vöfúm. Það var því ákveðið
að búa til réttindaskrá notend-
anna, Bill ofrights for the citizens
of the informational society eða
BOR. Hún verður eins konar ör-
yggisnet þar sem tekið verður á
þessum málum. Til þess að koma
umræðunni í gang er búið að opna
vefsíðu, www.cecua.org, þar sem
fólk getur lagt sitt til málanna.
Upplýsingar á Netinu eru alheims-
mál en það þýðir ekki að setja al-
heimslög. Við Iftum svo á að betra
sé að við komum okkur saman um
siðareglur. Við höfum fengið alls
kyns ábendingar á vefsíðuna," seg-
ir Jón Þór og hvetur fólk til að
taka þátt í umræðunni.
stæðipLstrætó
NY ÞJÓNUSTA
í MIÐBORGINNI
ókeypis stæði og strætó
í sumar verður gerð tilraun með nýja þjónustu við
þá sem kjósa að aka á eigin bíl í miðborgina.
Tilraunin felst í því að tengja saman stæði í jaðri
miðborgarinnar og ferðir strætó. Háskóli íslands
hefur góðfúslega heimilað afnot af lóð skólans
fyrir 300 bilastæði á svæðinu austan Háskóla og
vestan Umferðarmiðstöðvar.
Stæðin eru til ókeypis afnota og einnig ferðir með
strætó sem gengur milli stæðanna og miðbæjarins
á 10 mínútna fresti.
Tilraun þessi er unnin af miðborgarstjórn í samvinnu
við Bílastæðasjóð og Strætisvagna Reykjavíkur.
Njóttu vel þess margvíslega sem miðborgin hefur
að bjóða í sumar.
í V >
'4ú
«i,ví .KííI..
Ekið er frá kl. 7.40 til kl. 19.00 og ferðin tekur 5 mínútur.
Miðborgin - þar sem hjarta mannlífsins slær
Ígl Reykjavíkmtiorg
■ r Miðborgarstjóm