Morgunblaðið - 08.06.1999, Blaðsíða 39

Morgunblaðið - 08.06.1999, Blaðsíða 39
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 8. JÚNÍ 1999 39 1 Island um helgina kjós- mm þeirrar staðreyndar að við vorum komnir í þá stöðu að hafa einungis 28% fylgi skv. skoðanakönnunum og okkur var ljóst að fullt af fólki hafði hætt stuðningi við okkur og gengið íhaldsmönnum á hönd,“ segir Prescott. Til að vinna traust fólks á nýjan leik segir Prescott að Verkamanna- flokkurinn hafí orðið að aðstoða kjós- endur við að yfirstíga ákveðinn sál- fræðilegan þröskuld sem grafíð hafði um sig í hugskoti þeirra. „Ef menn höfðu hætt stuðningi við Verka- mannaflokkinn vegna þess að þeim mislíkaði við flokkinn þá var vart við því að búast að þeir færu allt í einu að hugsa, nei heyrðu mig nú, ég hafði rangt fyrir mér og ætla aftur að ger- ast kjósandi Verkamannaflokksins, mér líkar ekki lengur við frú Thatcher.11 Á hinn bóginn kveðst Prescott telja að fólk hafi verið reiðubúið til að hugsa sem svo „allt í lagi, ég get aftur tekið að styðja Verkamannaflokkinn því hann hefur tekið breytingum". „Og ég held að okkur hafi tekist vel upp í tilraunum okkar til að koma þessum skilaboðum á framfæri. Á hinn bóginn verða menn auðvitað að dæma okkur af verkunum. Og stað- reyndin er sú að við höfum staðið fyr- ir miklum stjórnarskrárbreytingum og hrint 60% stefnumála okkar í framkvæmd og þetta er það sem skiptir máli.“ Prescott sættir sig ekki við þær kenningar að stjórnmál nútímans snúist æ meira um ímynd flokka og stjórnmálaleiðtoga, fremur en það sem þeir hafa fram að færa, og segir alrangt að þetta eigi við'um breska Verkamannaflokkinn. „Þú getur ekki blekkt kjósendur með ímyndinni einni saman í heil tvö ár.“ Ekki alltaf sammála Blair Prescott kemur úr vinstri væng Verkamannaflokksins en segir að þótt hann hafi vissulega mjög ákveðnar stjómmálaskoðanir, sem mótist ekki síst af því að hann kemur úr verkamannastétt og starfaði á sín- um tíma í verkalýðshreyfingunni, þá sé rangt að líta svo á að hann hafi verið tilnefndur í þessa ríkisstjóm sem einhver fulltrúi vinstri sjónar- miða. „Þó getur vissulega verið að menn álíti að gott sé að hafa mann í stjórn- inni sem á rætur í „gamla“ Verka- mannaflokksins eða er í tengslum við verkalýðsfélögin," segir Prescott. „Kannski má segja að ég sé röddin sem vari menn við að ganga of langt og sýnir þeim fram á að aðrir valkost- ir eru fyrir hendi. Staðreyndin er nefnilega sú að Verkamannaflokkur- inn er samsteypuflokkur ólíkra skoð- ana. Menn geta kallað þær fylkingar hinn „nýja“ Verkamannaflokk eða hinn „gamla“, hægri arminn eða vinstri, eftir því sem verkast vill. Eft- ir sem áður rúmast þar ólíkar skoð- anir og ég tel mig hafa gegnt ákveðnu hlutverki við að koma vissum sjónar- miðum á framfæri sem eiga fylgis að fagna í flokknum." Þegar að er spurt gengst Prescott fyllilega við því að þeir Blair séu ekki alltaf sammála í öllum málum. „Nei, það erum við ekki. Ég hef t.d. opin- berlega lýst því yfir að ég er ekki mikill fylgismaður hlutfallskosninga- kerfisins [sem Blair hefur beitt sér fyrir að verði tekið upp]. Ég get nefnilega ekki séð að það hafi í öllum tilfellum leitt af sér stöðugleika.“ Prescott lætur þess getið að hann gruni reyndar að skoðanir Blairs hafi eitthvað breyst í þessu efni í kjölfar kosninganna í Skotlandi og Wales í síðasta mánuði. „Það er hins vegar hans að leggja mat á merkingu kosn- inganna þar, sem og Evrópuþing- kosninganna sem nú eru fyrir hönd- um en þar munum við tapa þingsæt- um vegna hlutfallskosningakerfísins eins og sér. Við höfum, að ég held, sextíu og fjögur af áttatíu þingsætum Bretlands á Evrópuþinginu, sem ger- ir okkur að ráðandi afli á þeim vett- vangi, en í þessum kosningum liggur hins vegar fyrir að við munum tapa þingsætum einfaldlega vegna hlut- fallskosningakerfisins." Blair hefur sýnt mikla forystuhæfíleika Segja má að ferskur andblær hafi verið leystur úr læðingi í bresku þjóðmálalífi með kosningasigri Verkamannaflokkins árið 1997, eftir átján ára stjórnarsetu íhaldsmanna og Prescott segir kosninganóttina hreint út sagt hafa verið ótrúlega stund. Hann efast hinsvegar um að menn geti gert sér vonir um að við- líka áhuga og eftirvæntingu meðal al- mennings á ný. „Kosningasigur okkar sýndi auð- vitað hver var vilji fólks. En við átt- um hins vegar aldrei von á þessum stórsigri. Við höfðum gert okkur von- ir um að ná e.t.v. fjörutíu eða fimmtíu þingsæta meirihluta og að ná eitt- hundrað og sjötíu sæta meirihluta, sem eru fleiri þingsæti en Ihalds- flokkurinn allur náði að tryggja sér, er undraverður árangur. En ég held reyndar líka að þessi stórsigur segi mikið um leiðtoga okkar Tony Blair, og hvern mann hann hefur að geyma.“ Segir Prescott að almenningur hafi séð í Blair traustan og ungan leiðtoga sem hafði í farteskinu ferskar og nýjar hugmyndir í stjórn- málum. Reynsla Preseott af Evrópu- samstarfinu sagði honum einnig að Blair yrði vel tekið á þeim vettvangi. „Og í ljósi þess að Bretland hefur nú ákveðið að taka þátt í Evrópusam- starfinu á jákvæðum nótum, í stað þess að hafa ávallt allt á hornum sér, hefur vegur hans aukist enda hafa menn áttað sig á því að hann er hug- sjónamaður, auk þess sem hann hef- ur sannað að hann býr yfir miklu hugrekki. Hann hefur sýnt og sann- að, ekki síst að undanförnu í Kosovo- deilunni, að hann hefur stálvilja og er maður sem neitar að gefast upp fyrr en þeim markmiðum, sem sett voru í upphafi, er náð.“ „Kosovo-deilan er fjarri því eins- dæmi,“ segir Prescott. „Blair hefur sýnt sama hugrekki í leit sinni að lausn deilnanna á Norður-írlandi. Þar hefur náðst gífurlegur árangur og þótt við getum auðvitað ekki séð fyrir- fram hvort friður fæst á endanum er Ijóst að ýmis tækifæri eru fyrir hendi á Norður-írlandi sem ekki hafa áður verið fyrir hendi.“ Ráðstefna um mat á arðsemi hálendissvæða hafa aflað sér þekkingar um það hvernig meta megi arðsemi hálendis- ins. Er þess vænst að sú aðferðafræði komi inn í ákvarðanatökuferli við virkjanaframkvæmdir á hálendinu síðar enda bendir margt til þess ef marka má þróunina er- lendis. Örlygur Steinn Sigurjdnsson kynnti sér nokkur atriði sem varða þessi mál og komu fram á ráðstefnu Umhverfis- ---------------7------ verndarsamtaka Islands. Hálendissvæði metin til fj ár s Islenskir vísindamenn Morgunblaðið/Ámi Sæberg ÝMSAR aðferðir hafa verið þróaðar til að meta náttúruverðmæti til fjár og hefur þróunin erlendis verið sú að aðferðafræðin hefur verið tekin inn í lögboðið mat á umhverfisáhrifum. RÁÐSTEFNA umhverfís- vemdarsamtaka íslands héldu ráðstefnu um mat á arðsemi hálendissvæða á laugardaginn og kom þar m.a. fram að ýmsar aðferðir hafa verið þróaðar til að meta náttúruverðmæti til fjár. I ávarpi Sivjar Friðleifsdóttur um- hverfisráðherra á ráðstefnunni kom fram að stjómmálamönnum bæri skylda til að nálgast svörin við m.a. þeirri spurningu hvernig meta ætti arðsemi hálendissvæða. „Ein slík nálgun var sú að gera rammaáætlun til langs tíma um nýt- ingu vatnsafls og jarðhita sem tekur tillit til vemdargildis einstakra svæða. Vonandi næst að klára áætl- unina á þessu kjörtímabili," sagði ráðherra. „Með rammaáætluninni „Maður- nýting-náttúra“ ætlum við að leggja gmnn að forgangsröðun virkunar- kosta með tilliti tU þarfar þjóðfélags- ins fyrir atvinnustarfsemi, varðveislu náttúragæða, styrkingu landsbyggð- ar og vemdun menningar- og nátt- úraminjar," sagði ráðherra. Einn fyrirlesara ráðstefnunnar, Geir Oddsson auðlinda- og umhverf- isfræðingur hjá Umhverfisstofnun Háskóla Islands, fjallaði um tilgang- inn með mati á arðsemi náttúrannar og hvernig væri hægt að koma slíku mati inn í ákvarðanatökuferlið. Hann sagði að þróunin í þessari að- ferðafræði væri sú að koma henni inn í ákvarðanatökuferlið. „Leiðin til þess er m.a. sú, að hún komi inn í mat á vemdargildi svæða þar sem ekki einungis er tekið mið af mikilvægi svæðisins sem búsvæðis fyrir dýr eða plöntur, heldur líka innra gildis fyrir okkur mennina," sagði Geir. „Éf við sleppum þessu mati úr ákvarðanatökuferlinu þá er- um við þar með að sleppa því að taka tillit til þessara gilda, sem vissulega eru verðmætagildi.“ Beinar og óbeinar matsaðferðir Geir minntist á annað atriði sem hann taldi ekki síður mikilvægt, sem lýtur að því að taka aðferðafræðina inn í lögboðið mat á umhverfisáhrif- um á nýjum framkvæmdum. „Það er þar sem aðaláherslan hefur verið lögð á þetta erlendis, t.d. í Banda- ríkjunum og á Norðurlöndunum, sérstaklega í Noregi þar sem Norð- menn standa í svipuðum fram- kvæmdum og við Islendingar á sviði vatnsorku. Þar er tekið til þessara hluta í ákvörðunum um framkvæmd- ir.“ Meðal þeirra aðferða sem hafa verið þróaðar til að meta verðmæti náttúrannar era beinar matsaðferðir, sem fela í sér tilraunir og við- horfskannanir, og óbeinar matsað- ferðir, sem fela í sér markaðshlið- stæðuaðferðir þar sem fjallað er um einkaneysluáhrif og lífsgæðamat, og markaðsvirðisaðferðir, en þar er m.a. fjallað um endurreisnarkostnaðarað- ferð og fómarkostnaðaraðferð. Kom þetta fram í fyrirlestri Stefáns Gísla- sonar umhverfisstjórnunarfræðings en í erindi hans kom einnig fram að í grófum dráttum mætti skipta heild- arverðmæti náttúrunnar í tvo megin- þætti, þ.e. notagildi og annað gildi. Væri notagildið annars vegar fólg- ið í beinu notagildi, þ.e. atvinnutekj- um í ferðaþjónustu og öðra sem hafa má af svæðinu og hins vegar í óbeinu notagildi, t.d. þeirri ánægju sem ferðamenn hafa af því að heimsækja svæðið umfram það sem þeir beinlín- is greiða fyrir. Þriðji þáttur notagild- isins er svonefnt valkostagildi, sem er fólgið í verðmæti þess að eiga kost á því að nýta svæðið síðar. Annað gildi, sem er snörun Stef- áns á enska hugtakinu Non Use Value felst í verðmætum sem ekki tengjast beinni nýtingu náttúrufyrir- bærisins, hvorki fyrr né síðar. Mætti skipta þessu í umboðsgildi, sem er fólgið í þeirri velferð sem verður til við óbeina neyslu, svo sem í gegnum t.d. fræðslumyndir, arfleiðslugildi, sem felst í gildi svæðisins fyrir af- komendur núverandi kynslóðar og tilvistargildi, sem er fólgið í gildi þess að svæðið skuli yfirleitt vera til í þeirri mynd sem það er. Rannsóknir til að verðleggja hálendissvæði Geir Oddsson sagði aðspurður að fátt annað en fjárskortur væri því til fyrirstöðu að vísindamenn gætu hafið rannsóknarstörf sem hefðu það að markmiði að verðleggja hálendis- svæði. Enn sem komið er hefur ekki verið gerð nema ein rannsókn á þessu sviði hérlendis, svo vitað sé, en það er rannsókn Sigríðar Ásgríms- dóttur rafmagnsverkfræðings og hagfræðings sem kynnti niðurstöður sínar í fyrirlestri á ráðstefnunni. í rannsókn hennar var notuð bein matsaðferð sem fólst í ítarlegri við- horfskönnun til að leggja mat á nátt- úru, minjar og útivist á fyrirhuguð- um virkjanasvæðum í Skagafirði, þ.e. Merkigilsvirkjun, Stafnsvatnavirkj- un, Flatatunguvirkjun og Villinga- nesvirkjun. Búinn var til hugsaður markaður sem varð til er rannsakendur settust riiður með viðmælendum sínum og var þýðið ákveðið öll heimili í Skaga- firði. Viðmælendur vora fulltrúar allra þjóðfélagshópa og var svarhlut- fallið 68%. Fengust alls 75 nýtanleg viðtöl, sem era 5% af heimilum í hér- aðinu. Fjórum virkjanakostum lýst Fjórum virkjanakostum var lýst og með spumingunum vora svarend- ur fengnh’ til þess að rifja upp það sem þeir vissu fyrirfram um virkjan- ir. Reynt var að lýsa sem best áhrif- um á náttúra, minjar og útivist á svæðunum. Miðaði kynningin að því að undirbúa spurningar um það að vemda eitt eða fleiri umrædd svæði gegn íyrirhugaðri vh'kjun, að nefna hæstu upphæð sem heimilið vildi borga árlega fyrir verndun svæðis- ins, að staðfesta greiðsluvilja sinn með því að velja á milli þess að fá við- bótargreiðslu með næsta orkureikn- ingi eða fá venjulegan orkureikning. I niðurstöðum rannsóknarinnar kom m.a. í ljós að 53% svarenda telja að vemda beri eitt eða fleiri um- ræddra fyrirhugaðra virkjanasvæða í Skagafirði. I ljós kom að meðal- greiðsluvilji til vemdar virkjunar við Merkigil er 1.260 krónur á ári á heim- ili, 1.209 krónur vegna Stafnsvatna- virkjunar, 1.622 krónur vegna Flata- tunguvirkjunar og 577 krónur vegna vemdunar svæðisins við Villinganes. Niðurstaða könnunarinnar er sú að meðalgreiðsluvilji vegna Skaga- fjarðar er 4.700 krónur á ári á hvert heimili. Marktækni miðast við 90% líkur á að greiðsluviljinn sé milli 0 og 9.700 krónur á ári á hvert heimili. Með því að yfirfæra þetta yfir á þýð- ið, sem var öll heimili í Skagafirði, fást 7,5 milljónir á ári. „Við virkjanaáætlanir hafa um- hverfisáhrifin verið vanmetin eða ekki reiknuð með og þar af leiðandi eru engar forsendur fyrir því að sú virkj- anaröð sem hér hefur verið notuð sé sú hagkvæmasta,11 sagði Sigríður. „í fyrsta lagi vantar stóran kostn- aðarlið inn í hagkvæmustu virkjana- röðina, sem er umhverfísþátturinn og í öðra lagi kemur rannsóknin inn á það hvort eitthvað vanti ekki inn í það orkuverð sem verið er bjóða stóriðjunni," sagði Sigríður.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.