Morgunblaðið - 08.06.1999, Side 58
58 ÞRIÐJUDAGUR 8. JÚNÍ 1999
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Rektor Háskólans á Akureyri brautskráði 100 kandídata á háskólahátíð
Framkvæmdavaldið fylgi
stefnu stjórnvalda eftir
Morgunblaðið/Kristján
FJOLMENNI var á háskólahátíð Háskólans á Akureyri í Glerárkirkju á laugardag. Þaðan voru brautskráðir
100 kandídatar og m.a. fyrstu leikskólakennararnir á háskólastigi.
HÁSKÓLINN á Akureyri braut-
skráði 100 kandídata á háskólahátíð í
Glerárkirkju sl. laugardag. Að þessu
sinni voru 16 leikskólakennarar
brautskráðir í fyrsta sinn á háskóla-
stigi. Nám fyrir leikskólakennara
hófst fyrst hér á landi í HA haustið
1996, námið tekur þrjú ár og lýkur
með B.Ed gráðu.
Þorsteinn Gunnarsson, rektor HA,
gerði stefnu nýrrar ríkisstjómar
Sjálfstæðisflokks og Framsóknar-
flokks í byggða- og menntamálum að
umtalsefni í ávarpi sínu á hátíðinni. I
máli hans kom fram að markmið rík-
isstjórnarinnar væru að treysta und-
irstöður byggðar í landinu í sam-
ræmi við nýsamþykkta þingsályktun
um það efni. Opinberar aðgerðir
miðist m.a. að því að á landsbyggð-
inni verði sterkir byggðakjamar sem
bjóði upp á fjölbreytta atvinnu,
menntun, velferðarþjónustu og góð
búsetuskilyrði.
Menntun á háskólastigi verði efld
auk þess sem enn ríkari áhersla verði
lögð á rannsóknir og vísindi. Fjar-
kennsla og fjamám verði aukin í sam-
vinnu við þá skóla sem nú era starf-
andi á framhalds- og háskólastigi.
„Fagna ber þessum áherslum
nýrrar ríkisstjómar á mikilvægi há-
skólanáms, rannsókna og byggða-
mála. En eins og vitað er fara ekki
alltaf saman orð og gerðir. Áður-
nefndir stjómmálaflokkar hafa starf-
að saman í ríkisstjórn frá árinu 1995.
Á þessu tímabili hefur búsetuþróun í
landinu verið afar óhagstæð lands-
byggðinni. Þannig hefur fólki á
landsbyggðinni fækkað um tæplega
2.000 en fólki á höfuðborgarsvæðinu
hefur fjölgað um tæplega 10.000.“
Þorsteinn óskaði nýrri ríkisstjórn
velfamaðar en sagði að í Ijósi
reynslu síðasta kjörtímabils væri
nauðsynlegt að þessum almennu yf-
irlýsingum yrði fylgt eftir með að-
gerðum sem duga og að eftirlit verði
haft með að framkvæmdavaldið, sem
í eðli sínu sé höfuðborgarmiðað, fylgi
stefnu stjómvalda eftir.
Framhaldsnám til meistara-
og doktorsgráðu
„Háskólinn á Akureyri vinnur nú
að gerð samnings við Byggðastofnun
um samstarf í atvinnu- og byggða-
þróun. Þar heita samningsaðilar að
vinna að eflingu rannsóknar- og þró-
unarstarfs atvinnulífs á landsbyggð-
inni og að stefna skuli að því að sem
flestir þættir rannsóknar- og þróun-
arstarfsemi atvinnulífsins fari fram á
landsbyggðinni.“
Þorsteinn sagði að Alþingi hefði
nýverið samþykkt ný lög um Háskól-
ann á Akureyri, sem taka munu gildi
1. júlí nk. Helstu nýjungarnar í þess-
um lögum eru að gert er ráð fyrir að
komið verði á fót framhaldsnámi við
háskólann, þ.e. til meistara- og dokt-
orsgráðu.
„Þegar er hafinn undirbúningur
að því að koma á fót sjálfstæðu
meistaranámi í hjúkranarfræði auk
þess sem unnið er að skipulagningu
sérhæfðs framhaldsnáms í dreifbýl-
islækningum - hjúkrun innan heil-
brigðisdeildar. Ég vek einnig athygli
á því að síðar á þessu ári munu sex
hjúkranarfræðingar Ijúka fjarnámi
tÖ meistaragráðu í hjúkranarfræði,
sem þeir hafa stundað við Royal Col-
lege of Nursing við Háskólann í
Manchester, í samvinnu við heil;
brigðisdeild Háskólans á Akureyri. í
öðram deildum skólans er einnig
hafin undirbúningsvinna varðandi
framhaldsnám.“
Átak í byggingu stúdentagarða
Þorsteinn kom einnig inn á hús-
næðismál stúdenta og sagði að vegna
húsnæðisskorts hefðu á síðasta ári
tugir stúdenta afþakkað nám við há-
skólann. „Það er mikið ánægjuefni
að nú er verið að gera átak í bygg-
ingu stúdentagarða fyrir Háskólann
á Akureyri. Viðræður standa yfir við
verktaka og fjármögnunaraðila um
byggingu 30 2ja og 3ja herbergja
stúdentaíbúða í nágrenni háskóla-
svæðisins, sem yrðu tilbúnar til af-
hendingar næsta sumar. I áætlun
um fjármögnun er gert ráð fyrir að
Félagsstofnun stúdenta kaupi 10
íbúðir strax og hinar eins fljótt og
auðið er. Þessi fjölgun stúdentaíbúða
mun gjörbreyta allri húsnæðisað-
stöðu á Akureyri til hins betra.“
Háskólinn á Akureyri hóf síðast-
liðið haust fjarkennslu á fyrsta
námsári í hjúkrunarfræði til Isa-
fjarðar og stunda 10 nemendur þetta
nám þar. Þessi námsbraut er sú eina
á háskólastigi á Islandi sem býður
upp á fjarnám sem er fullkomlega
sambærilegt við staðbundið nám.
Þorsteinn sagði að árangur nemend-
anna á ísafirði væri glæsilegur og
fullkomlega jafngildur á við heima-
nemendur á Akureyri.
Tæknilegar aðstæður standast
ekki lágmarkskröfur
„Þetta brautryðjendastarf hefur
vakið mikla athygli og fær háskólinn
áskoranir alls staðar að af landinu til
að koma fjarnámi á sem víðast. Eng-
in von er til þess að háskólinn geti
sinnt öllum þeim beiðnum sem ber-
ast um fjamám. Ástæður þess eru
bæði tæknilegar og fjárhagslegar.
Tengingar Landssímans era hvorki
nægilega hraðvirkar né er skipulag
flutningskerfis hans nógu skilvirkt
til að hægt sé að bjóða upp á fjarnám
hvar sem er.
Vonandi er hér um tímabundið
ástand að ræða en háskólinn getur
ekki axlað þá ábyrgð að hefja fjamám
þar sem tæknilegar aðstæður stand-
ast ekki lágmarkskröfur. Fjárhagur
skólans leyfir heldur ekki aukið um-
fang starfseminnar á sviði fjarkennslu
þrátt fyrii- fagrar yfirlýsingar stjóm-
málamanna um gildi hennar.“
Háskólar ekki Iengur einráðir
Þorsteinn sagði að háskólar væra
ekki lengur einráðir á þeim sviðum
sem snerta kennslu og rannsóknir,
rannsóknarstofnanir og fyrirtæki
hafi í auknum mæli tekið að sér hluta
af þeirri starfsemi sem aðeins há-
skólar sinntu áður. Þessi þróun sé í
höfuðatriðum jákvæð og stuðli að
hraðari framþróun vísinda og tækni.
„Ekki eru þó allir háskólamenn
sammála um ágæti þessara breyt-
inga og sumir þeirra áköfustu hafa
skorið upp herör gegn þeim fyrir-
tækjum og aðilum sem standa í far-
arbroddi þessarar þróunar,“ sagði
Þorsteinn og bætti við að slík valda-
barátta dragi úr trú almennings á
gildi háskólamenntunar og kæfi
margar vænlegar hugmyndir sem
gætu orðið landi og þjóð til heilla.
„Háskólar eiga að vera stökkpallur
inn í framtíðina og í hugmyndinni
um háskóla era tækifæri ungu kyn-
slóðarinnar falin.“
Auk leikskólakennara var 21
brautskráður með BS-próf í hjúki-un-
arfræði úr heilbrigðisdeild, 16 með
B.Ed.-próf í kennslufræði úr kenn-
aradeild, 28 með próf í kennslufræði
til kennsluréttinda, 14 með BS-próf í
rekstrarfræði úr rekstrardeild og 1
með framhaldsnám í gæðastjómun
og 4 með BS-próf í sjávarútvegsfræði
úr sjávarútvegsdeild.
Skólahátíð
Samvinnuháskólans
Á SKÓLAHATÍÐ laugardaginn
22. maí útskrifaði Samvinnuhá-
skólinn á Bifröst 32 rekstrarfræð-
inga og 12 BS-rekstrarfræðinga.
Á þessu skólaári Samvinnuhá-
skólans voru 140 einstaklingar
skráðir til náms, þar af voru 16
skráðir við nám í frumgreina-
deild, 70 í rekstrarfræðadeild og
30 í rekstrarfræðadeild II. Þá
hófu 24 nemendur nám við nýja
deild háskólans, fjarnámsdeiíd
nú um síðustu áramót. Meðalald-
ur nemenda í skólanum í vor var
tæplega 29 ár. Nemendur komu
víðsvegar að af iandinu. Þá
stunduðu fjórir erlendir nemend-
ur frá Þýskalandi og HoIIandi
nám við skólann á vormisseri.
Besta árangri í hópi rekstrar-
fræðinga náðu Daðey S. Einars-
dóttir og Sigurður Rúnar Magn-
ússon. Besta árangri þeirra sem
luku BS-prófi náðu þær Björg
Elsa Sigfúsdóttir og Linda Rut
Benediktsdóttir.
Jónas Guðmundsson rektor
lætur í sumar af því embætti og
heldur í tveggja ára leyfi til
starfa og náms erlendis. Jónasi
voru þökkuð vel unnin störf í
þágu stofnunarinnar á liðnum ár-
um. Við starfi hans tekur Runólf-
ur Ágústsson.
Utskrifaðir rekstrarfræðingar:
Arna Pálsdóttir, Auður Steinars-
dóttir, Bernhard Þór Bernhards-
son, Birna Þorbergsdóttir, Björn
Garðarsson, Borghildur Kristín
Magnúsdóttir, Búi Orlygsson,
Daðey S. Einarsdóttir, Dagrún
Ingvarsdóttir, Elfa Ingibergs-
dóttir, Ellen María Sveinbjörns-
dóttir, Eva Steinunn Sveinsdótt-
ir, Fannar Baldursson, Guð-
mundur Ólafsson, Guðmundur
Ólafsson, Hafsteinn Jóhann
Hannesson, Hallgrímur Magnús
Sigurjónsson, Ingi Þór Rúnars-
son, Kristín Guðjónsdóttir, Lóa
Ólafsdóttir, Magnea Lilja Þor-
geirsdóttir, Ólöf Lilja Eyþórs-
dóttir, Rakel Óskarsdóttir, Ró-
bert Marinó Sigurðsson, Sigríður
Jónsdóttir, Sigurður Guðmunds-
son, Sigurður Rúnar Magnússon,
Steinar Gunnarsson, Unnsteinn
B. Eggertsson, Valdís Eyjólfs-
dóttir, Þorvarður Sigurbjörnsson
og Þóra Sverrisdóttir
títskrifaðir BS-rekstrarfræð-
ingar: Ásta Mikkaelsdóttir, Björg
Elsa Sigfúsdóttir, Brynja Vignis-
dóttir, Brynjar S. Sigurðarson,
Dagný Þórólfsdóttir, Geirlaug
Jóhannsdóttir, Gylfi Þór Gylfa-
son, Jón Guðmundur Ottósson,
Kristinn Kristófersson, Linda
Rut Benediktsdóttir og Margrét
Helgadóttir.
NÝUTSKRIFAÐIR rekstrarfræðingar frá Samvinnuháskólanum.
REKSTRARFRÆÐINGAR sem luku BS-prófi f vor.
ÉmJmm M X—a m/*á- i 1
i1 Al Wmm ■ ■' 1 HÉbjlf f
. ■ / - ■
■ ■ 1