Morgunblaðið - 08.06.1999, Síða 59
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 8. JÚNÍ 1999 59
FRETTIR
Norrænt hjarta-
læknaþing
í Reykjavík
NORRÆNA hjartalæknaþingið í
Reykjavík, dagana 9.-11. júní, verð-
ur ein fjölmennasta læknaráðstefna
sem haldin hefur verið hér á landi.
Þetta verður 17. norræna hjarta-
læknaþingið, en Norðurlöndin fímm
skiptast á um að halda þessi þing á
tveggja ára fresti. Slíkt þing var
síðast haldið hér á landi 1989 og
tókst mjög vel. Nú þegar eru skráð-
ir um 800 þátttakendur, þar af eru
um 80% frá Norðurlöndunum en
aðrir koma frá öðrum Evrópulönd-
um, Bandaríkjunum, ísrael og
Nýja-Sjálandi. Þingið verður haldið
í sölum Háskólabíós og á Radisson
SAS/Hótel Sögu og hefst miðviku-
daginn 9. júní kl. 14 í Háskólabíói
með þremur námskeiðum.
Formleg opnun þess verður um
kvöldið í Súlnasal Hótels Sögu. Sér-
stakur heiðursgestur þingsins er
prófessor Lars Rydén, forseti Evr-
ópusamtaka hjartalækna, en auk
þess að taka virkan þátt í þinginu
sem fundarstjóri og fýrirlesari held-
ur hann fund með formönnum Nor-
rænu hjartalæknasamtakanna, þar
sem rædd verða tengsl og framlag
norrænna hjartalækna innan Evr-
ópusamtakanna.
Á fimmtudag og fóstudag verða
fyrirlestrar haldnir samtímis í 4 söl-
um í Háskólabíói. Um 65 yfirlitser-
indi verða flutt af sérstaklega boðn-
um gestaíyrirlesurum sem flestir
koma frá útlöndum. Meðal þeirra
eru margir heimsþekktir fræði-
menn á sínu sviði sem hafa haft
áhrif á þróun hjartalækninga und-
anfama tvo áratugi. Þó erfitt sé að
gera upp á milli manna má nefna að
sérstaka heiðursfyrirlestra halda
Eugene Braunwald prófessor við
Harvard-háskóla og Eric Topol frá
Cleveland Clinic. Báðir em heims-
þekktir vísindamenn sem hafa skrif-
að merkar kennslubækur um
hjartalækningar. Vísindanefnd
þingsins vom sendir um 140 út-
drættir um rannsóknir og verður
helmingur þeirra kynntur af höf-
undum með stuttum erindum, en
hinir sem veggspjöld. Sérstök úr-
slitakeppni um þrenn verðlaun
verður milli sex ungra vísinda-
manna sem komust í undanúrslit
eftir stigagjöf Vísindanefndar.
Á þinginu verður fjallað um öll
svið hjartalækninga, bæði hjá börn-
um og fullorðnum. Meðal þess sem
tekið verður fyrir era lífeðlisfræði-
legar grannrannsóknir í hjarta- og
æðasjúkdómum, erfðafræði, þróun
æðakölkunar og kransæðasjúkdóma
og faraldsfræði þeirra. Sérstaklega
verður fjallað um nýjungar í með-
ferð kransæðasjúkdóma með lyfj-
um, kransæðavíkkunum og skurð-
aðgerðum. Nýjungar í meðferð
hjartsláttaróreglu með lyfjum, að-
gerðum á leiðsluböndum og
gangráðsísetningum skipa veglegan
sess, svo og þróun í meðferð við
hjartabilun og hjarta- og æðasjúk-
dómum hjá sykursjúkum. Sérstak-
lega verður fjallað um nýjungar í
greiningu hjartasjúkdóma með
hjartaómun og annarri myndgrein-
ingartækni og meðferð meðfæddra
hjartagalla. Norrænir hjúkrunar-
fræðingar á hjartadeildum fjalla um
hjúkran og endurhæfingu hjarta-
sjúklinga.
Norræna hjartalæknaþingið er
skipulagt af Hjartasjúkdómafélagi
íslenskra lækna í samráði við
Ferðaskrifstofu íslands og hefur
verið 2 ár í undirbúningi. Formaður
Hjartasjúkdómafélags íslenskra
lækna og framkvæmdastjóri þing-
ins er Ragnar Danielsen hjarta-
læknir, en heiðursforseti þingsins
er Þórður Harðarson prófessor.
Formaður Vísindanefndar þingsins
er Guðmundur Þorgeirsson prófess-
or.
Þótt dagskrá þingsins sé yfir-
gripsmikil gefa þátttakendur sér
einnig tíma til að hittast óformlega.
Reykjavíkurborg býður til móttöku
í Ráðhúsinu síðdegis á fimmtudeg-
inum og að kvöldi sama dags fer
stór hluti þátttakenda í íslensku óp-
erana. Föstudagskvöldið 11. júní
verður þinginu slitið í hófi í
Perlunni. Margir þátttakendur
hyggjast líka nota tækifærið og
framlengja dvöl sína til að fara í
kynnisferðir um landið.
Parkinsonsamtökin á Islandi
Vom sæmd gullmerki
PARKISONSAMTÖKIN á íslandi
sæmdu á dögunum fimm aðila
gullmerki félagsins fyrir störf
þeirra fyrir samtökin og var
myndin tekin við það tækifæri.
Á myndinni eru frá vinstri: Dr.
Árni Ellertsson taugasérfræðing-
ur, fyrrum trúnaðarlæknir sam-
takanna, Bryndís Tómasdóttir,
ijölmiðlafulltrúi samtakanna, sr.
Magnús Guðmundsson, ábyrgð-
armaður fréttabréfs Parkison-
Kvikmynda-
vinnustofa Kvik-
myndaskólans
KVIKMYNDASKÓLI íslands mun í
sumar starfrækja kvikmyndavinnu-
stofu fyrir ungt fólk á öllum aldri. Að
því er fram kemur í fréttatilkynn-
ingu frá skólanum munu verða hald-
in stutt, yfirgripsmikil og verkleg
kvöldnámskeið í kvikmyndagerð, þar
sem lögð verður áhersla á stuttar
myndir. Einnig verður fjallað um
mismunandi tegundir kvikmynda og
þátttakendur munu fá að spreyta sig
á tilraunamyndum, heimildamynd-
um og verklegum æfingum með leik-
uram. Efnið verður klippt og hljóð-
sett á AVID undir leiðsögn klippara.
Leiðbeinendur á vinnustofunni
verða Böðvar Bjarki Pétursson og
Sigurður Snæberg.
samtakanna, Áslaug Sigurbjörns-
dóttir hjúkrunarfræðingur, for-
maður samtakanna í 10 ár, og dr.
Sigurlaug Sveinbjörnsdóttir
taugasérfræðingur, núverandi
trúnaðarmaður samtakanna, en
hún hefur ásamt fleiri læknum
stundað faraldsfræðilegar rann-
sóknir á Parkisonveiki á Islandi
sl. þijú ár og hafa þær vakið at-
hygli víða um heim, segir í
fréttatilkynningu.
Ný ökuskír-
teini ef aka
á erlendis
LÖGREGLUSTJÓRINN í Reykja-
vík hefur sent eftirfarandi tilkynn-
ingu til ökumanna sem hyggjast
nota ökuskírteini sín erlendis.
„1. Þeir sem hafa fengið ný öku-
skírteini útgefin eftir 15. ágúst 1997
hafa skírteini sem gilda þar til við-
komandi nær 70 ára aldri nema til
komi svipting réttinda.
2. Eldri ökuskírteini er giltu í 10
ár og era útrannin samkvæmt dag-
setningu halda gildi sínu þar til við-
komandi nær 70 ára aldri hafi þau
verið í gildi 1. mars 1998. Viðkom-
andi ökumönnum er þó bent á að
endurnýja ökuskírteini sín til að
forðast óþægindi hyggist þeir aka
erlendis.
3. Kostnaður við endurnýjun á
ökuskírteini er 3.500 kr. en 2.000 kr.
fyrir einstaklinga eldri en 70 ára.
4. Vakin er athygli á því að ein-
staklingar eldri en 65 ára þurfa
alltaf að leggja fram læknisvottorð
við endumýjun ökuréttinda.
Þá vill lögreglustjóri einnig vekja
athygli þeirra sem hyggjast ferðast
erlendis og þurfa nýtt vegabréf að
það er 10 daga (virka) afgreiðslu-
frestur á útgáfu þeirra. Hægt er þó
að fá vegabréf afgreitt á skemmri
tíma gegn aukagreiðslu.“
SUMARFATNABUR
Kidö JíVear
'
slwasi S $ 3
© L Æ S I B Æ
Bein útsending
á morqunf
M áskrifi
áskriftarsíminn ar 515 6100