Morgunblaðið - 08.06.1999, Síða 63

Morgunblaðið - 08.06.1999, Síða 63
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 8. JÚNÍ 1999 63 FRÉTTIR Úr dagbók lögreglu Annasöm helgi hjá lögreglunni LÖGREGLAN hafði í nógu að snúast um helgina. Lögreglu var tilkynnt um akstur ökutækis á göngustíg í Seljahverfi á laugar- dag. Lögreglan fann bifreiðina á stígnum skömmu síðar. Við skoð- un lögreglu kom í ljós að bifreiðin var á röngum númeram og voru þau því fjarlægð. Haft var uppi á eiganda og viðurkenndi hann akst- urinn og má nú vænta sektar fyrir athæfi sitt og tillitsleysi við þá sem göngustígar eru ætlaðir fyrir. Tvö tilvik voru þessa helgi þar sem ökumenn eða farþegar urðu fyrir meiðslum við umferðaró- höpp og höfðu ekki spennt örygg- isbelti bifreiðanna. Áiækstur þriggja bifreiða varð á Miklu- braut við Skeiðavog síðdegis á fóstudag. Einn ökumanna fór sjálfur á slysadeild vegna háls- meiðsla, en hann hafði ekki spennt öryggisbelti. Umferðar- slys varð í Hraunbæ við Bæjar- háls um miðnætti á föstudag. Einn farþega slasaðist á höfði, en hann hafði ekki spennt beltið. Karlmaður var færður á lög- reglustöð af heimili sínu eftir að hafa ekið brott af árekstrarvett- vangi aðfaranótt laugardags. Maðurinn er einnig grunaður um að hafa ekið bifreið sinni undir áhrifum áfengis. Um helgina voru 53 ökumenn kærðir vegna hraðaksturs og 16 vegna ölvunaraksturs. A næstunni mega ökumenn gera ráð fyrir hert- um aðgerðum en lögreglan telur brýnt að sett mörk um hámarks- hraða í íbúðargötum séu virt. Sér- stakt þessa helgina var að kona var stöðvuð í tvígang með nokkurra klukkustunda millibili grunuð um ölvun við akstur. Hún bar því við að þar sem hún hefði verið stöðvuð einu sinni væri ekkert hægt að gera þótt hún myndi aftur hefja akstur og þá á öðru ökutæki. Kon- an mun verða kærð vegna þess að hafa í tvígang ekið undir áhrifum áfengis og þannig skapað hættu í'yrir aðra ökumenn og sjálfa sig um leið. Einn sviptur ökumaður var tekinn eftir miðnætti á laugar- dag við akstur. Sektir fyrir slíkan akstur eru 50 þúsund krónur fyrir fyrsta brot og síðan 100 þúsund krónur við annað brot. Höfð voru afskipti af þremur 16 til 19 ára piltum að kvöldi fóstu- dags. Við leit í bifreið þeirra fund- ust ætluð fíkniefni, bæði e-töflur, amfetamín og kannabisefni. Ung- mennin voru vistuð í fanga- geymslu. Höfð voru afskipti af ungu pari í miðbænum aðfaranótt laugardags. í bifreið þeh-ra og við líkamsleit fundust ætluð fíkniefni. Parið var flutt í fangageymslu. Piltur var handtekinn eftir að hann reyndi að hlaupa frá lög- reglu eftir að hafa reynt að stela styttu á veitingastað í miðbænum. Pilturinn reyndi síðan að losa sig við fíkniefni sem hann hafði á sér. Pilturinn var vistaður í fanga- geymslu en styttunni komið til skila til eiganda. Við notkun öryggismyndavéla miðbænum að morgni laugardags sáu lögreglumenn til manna sem vora að handleika hníf. Lögreglu- menn voru sendh' á staðinn og við leit fundust einnig ætluð fíkniefni. Þegai' lögreglumenn voru að að- stoða slasaðan karlmann sem ók bifreið sinni út af á Kjalarnesi á laugardag fundust ætluð fíkniefni og talsvert meira magn af reiðufé en almennt þekkist að menn hafi á sér. Karlmaðurinn sem oft áður hefur tengst slíkum brotum var fluttur á slysadeild til aðhlynningar en síðan vistaður í fangageymslu lögreglu. Við húsleit lögreglu á heimili hans í kjölfarið fannst síðan meh'a af ætluðum fíkniefnum og vai' ein kona handtekin og flutt á lögreglustöð vegna málsins. Neyslumagn af ætluðu kanna- bisefni fannst á karlmanni sem stöðvaður var við umferðareftirlit að morgni sunnudags. Hann var fluttur á lögreglustöð til skýrslu- töku. Óskað var eftir sjúkrabifreið að íbúð í Breiðholti vegna tvítugs einstaklings með óreglulegan hjartslátt eftir neyslu á e-töflu. Lögreglan fann við húsleit frekari fíkniefni á staðnum. Eitt af þekkt- ari hliðarverkun þessa fíkniefnis er einmitt hættuleg áhrif á hjartslátt neytenda sem í nokkram tilvikum hefur leitt til dauða. Tveir karl- menn vora handteknh- á sunnu- dagskvöld og fundust á þeim báð- um ætluð fíkniefni auk fatnaðar sem talinn er vera úr innbroti á Laugavegi fyrir skömmu. Menn- imir voru fluttir í fangageymslu. Brotist var inn í bílskúr á Sel- tjarnarnesi en eigandinn hafði gleymt lyklum í dyrum skúrsins. Stolið var ýmsum tækjum að verðmæti um 100 þúsund. A laugardag voru 10 ungmenni flutt í athvarf lögreglu, ITR og Félagsþjónustunnar vegna úti- vistar í andstöðu við lög. Foreldr- ar eru minntir á að virða gildandi reglur um útivist barna og ung- menna. Þá var fjöldi ungmenna fluttur á lögreglustöð aðfaranótt sunnudags þangað sem þau voru sótt af foreldrum sínum eða öðr- um forráðamönnum. Um helgina kom einnig upp mál þar sem ótt- ast var um tvær 15 ára stúlkur sem höfðu farið í heimsókn til töluvert eldri pilta sem þær höfðu kynnst í gengum spjallrás á ver- aldarvefnum. Málið leystist far- sællega, en ástæða er til fyrir for- eldra að fylgjast með netsam- skiptum barna sinna. A laugai'dagskvöld var tilkynnt um reyk frá íbúð í Hólahverfí í Breiðholti. Slökkvilið þurfti að flytja einn mann á slysadeild vegna reykeitrunar en gleymst hafði að slökkva undir potti á elda- vél. Lögi’eglu var tilkynnt um hitalykt frá íbúð í kjallara í Hlíð- unum aðfaranótt sunnudags. Er lögreglan kom á staðinn vora eng- in svör frá íbúum en nokkur reyk- ur frá íbúðinni. Lögreglan tók þá til ráðs að brjóta rúðu í íbúðinni og fundu þeir þá húsráðanda sofandi inni. Gleymst hafði að slökkva á flatböku sem var í ofni. Slökkvilið var fengið til að reykræsta. Dreifísvæði Tals á Suðurlandi stækkar GSM dreifisvæði Tals hf. á Suður- landi stækkaði nýlega þegar sendai- á Hellu og Torfstaðaheiði voru teknir í notkun. Þar með eru sumarhúsalönd uppsveita Ámessýslu, Biskupsþung- ur, Flúðir, Laugai’vatn og Úthlíð komnar í gott talsamband, segir í fréttatilkynningu. Fyrir eru á dreifís- væði Tals á Suðurlandi, sendar sem þjóna Hveragerði, Selfossi, Eyrar- bakka, Stokkseyri og Þorlákshöfn og nærsveitum þessara þéttbýliskjarna. Dreifísvæði Tals á Suðurlandi stækkar enn frekar í sumar þegai' reistur verður sendir á Þingvöllum. Nýr sendir sem tekinn verður í notk- un á Seyðishólum í Grímsnesi seinna í sumar bætir verulega talsamband í Grímsnesinu. Einnig verða skilyrði í Þorlákshöfn og Hveragerði bætt. Unnið er að uppsetningu GSM send- is á Hvolsvelli. FRÁ vinstri eru: Lúðvík Geirsson formaður Hauka, Kristinn Ó. Magnússon bæjarverkfræðingur, Sigurður Haraldsson deildarstjóri, Magnús Gunnarsson bæjarsljóri, Pétur Guðnason frá Strendingi, Kristinn Jörunds- son og Jóhann Hlöðversson frá Risi hf. Kvöldganga í Viðey Samningur um íþróttamiðstöð FIMMTUDAGINN 3. júní und- irrituðu bæjarstjórinn í Hafn- arfirði, Magnús Gunnarsson, og fulltrúar Riss hf., Jóhann Hlöðversson og Kristinn Jör- undsson, samning fyrirtækisins og Hafnarfjarðarbæjar um byggingu íþróttamiðstöðvar Hauka á Ásvöllum. Samnings- upphæð er tæpar 437 milljónir króna (436.883.287 kr.) Um er að ræða íþróttamið- stöð alls um 5.376 fermetra með 45x46m íþróttasal ásamt áhaldageymslu og búningsher- bergjum, forsal með afgreiðslu og aðstöðu starfsfólks og fé- lagsmiðstöð Knattspyrnufé- lagsins Hauka sem í eru skrif- stofur og samkomusalur. Fé- lagsmiðstöð, forsalur og lík- amsræktarstöð, sem í eru leik- fimi- og þreksalir, umlykja inngarð. Byggingin er að mikl- um hluta á einni hæð en bún- ingsklefar og rými tengd þeim eru þó að hluta á tveimur hæð- um. Verkið, sem samningur er gerður um við Ris hf., felst í að fullklára byggingu að undan- skildu íþróttagólfí og áhorf- endapöllum en jarðvinna hefur þegar verið boðin út og verður lokið þegar verktaki getur haf- ið vinnu við bygginguna. Verk- inu skal Ijúka í tveimur megin- áföngum en því skal að fullu lokið eigi síðar en 9. mars árið 2001. Gerð er krafa um skil á íþróttasal fyrir 15. júní árið 2000. Hafnarfjarðarbær er verk- kaupi og ráðgjafar eru Arki- tektar Skógarhlíð ehf. og Verk- fræðistofa Sigurðar Thorodd- sen. Umsjón með verkinu hefur Sigurður Haraldsson, deildar- stjóri á umhverfis- og tækni- sviði Hafnarfjarðarbæjar og verkfræðiþjónustan Strending- ur hefur eftirlit með verkinu. KVÖLDGANGAN verður að þessu sinni um slóðir Jóns Arasonar í Viðey en nokkur ömefni og minjar í eynni tengjast honum og komu hans þang- að, er hann rak Dani þaðan árið 1550. Farið verður með Viðeyjarferjunni úr Sundahöfn kl. 19.30. Byrjað verður í kirkjugarðinum. Þaðan verðui' hald- ið niður fyrir Heljarkinn en síðan yfir að Ráðskonubás, sunnan við Sjónar- hól og yfír að Virkinu sem Jón Ara- son ákvað, að byggt skyldi til vamar V gegri Bessastaðamönnum. Þaðan verður gengið framhjá Áttæringsvör og Sauðhúsavör um Hjallana en svo aftur eftir veginum að Klausturhól og hann skoðaður. Loks verður fom- leifagröfturinn sýndur og fleira þar í grennd. Þetta tekur um tvo tíma. Göngumai' í Viðey eru raðgöngur í fimm áföngum. Sá sem gengur þá alla fær gott yfírlit um það sem er að sjá í þessari söguríku eyju og næsta ná- grenni hennar. Göngufólk er beðið að búa sig eftir veðri og áhersla er lögð á góðan skófatnað. Gjald er ekki annað en ferjutollurinn, 400 kr. fyrir full- orðna og 200 kr. fyrir böm. Veitingahúsið í Viðeyjarstofu er opið daglega, hestaleigan einnig. £ Fæturnir eru grunnur að vellíðan okkar! D0MUS MEDICA við Snorrabraut - Reykjavfk Sími 551 8519 STEINAR WAAGE SKÓVERSLUN KRINGLAN Kringlunni 8-12 ■ Reykjavík Sími 568 9212 * PÓSTSENDUM SAMDÆGURS 5% STAÐGREIÐSLUAFSLÁTTUR

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.