Morgunblaðið - 08.06.1999, Síða 70
70 ÞRIÐJUDAGUR 8. JÚNÍ 1999
MORGUNBLAÐIÐ
FÓLK í FRÉTTUM
Allsherjar ævintýri
rétt að byrja
Söngkonan unga, Svala
Björgvinsdóttir, hefur
fyrir milligöngu Skíf-
unnar undirritað
útgáfusamning við
Priority, dótturfyrir-
tæki útgáfusam-
steypunnar EMI.
ÍSLENSKIR tónlistarmenn verða
sífellt meira áberandi á alþjóðavett-
vangi og nú hefur Svala Björgvins-
dóttir bæst í hóp þeirra. Að sögn
Steinars Bergs hjá Skífunni er út-
gáfusamningur hennar við Priority
Reeords með stærri samningum
sem gerðir hafa verið við nýliða í
tónlistarheiminum til þessa.
Skífan hefur unnið að því i rösk
tvö ár að gera upptökur með Svölu
og kynna hana á erlendum vett-
vangi og hefur þetta kynningarátak
nú leitt til framangreinds tímamóta-
samnings. Jafnframt hefur verið
unnið að upptöku íyrsta geisladisks
Svölu. Sú vinna hófst fyrir einu og
hálfu ári og er stefnt að því að henni
ljúki í ár. Virtir upptökustjórar eru
við stjómvölinn og lögin á disknum
eru eftir kunna erlenda höfunda,
auk þess sem Svala leggur sjálf
hönd á plóg við tónsmíðamar.
Svala varð landsþekkt fyrir flutn-
ovav;
’arsson
ing sinn og hljómsveitarinnar Scope
á langinu „Was it all it was“ þegar
hún var aðeins sautján ára. Þá þeg-
ar var ákveðið að hún gerði geisla-
disk fyrir Skífuna sem stefnt yrði á
alþjóðlegan markað. Jafnframt var
ákveðið að ekki yrði hafíst handa
um gerð disksins íyrr en að hún lyki
stúdentsprófí.
Ánægð með miklar kröfur
Svala segist hlakka til að takast á
við þetta stóra verkefni, þar sem
fyrirhugað er að gefa út sex hljóm-
diska á næstu ámm, ef allt gengur
að óskum og fylgja þeim eftir með
tónleikum víðs vegar um heim. Hún
segist taka miklum kröfum fagn-
andi, þannig vilji hún vinna og upp-
skera annaðhvort allt eða ekkert.
„Fyrsti diskurinn er prófsteinn því
viðtökumar á honum ráða svo miklu
um framhaldið," segir Svala. „Mér
er í rauninni hent út í djúpu laugina
og þarf að læra að synda strax.
Þetta er eitt allsherjar ævintýri og
rosaleg vinna, en ég er staðráðin í
að gera mitt besta.“
Svala kveðst hafa tekið út tónlist-
arlegan þroska á síðustu missemm
og þar hafi m.a. munað um hvatn-
ingu föður síns, Björgvins Halldórs-
sonar, sem sé kröfuharður gagnrýn-
andi. Einnig er hún þakklát fyrir
þann stuðning og traust sem Skifan
hefur sýnt henni.
f góðum félagsskap
Söngrödd Svölu þykir hafa mjög
sterk sérkenni sem er ein mikilvæg-
asta forsenda þess að spjara sig í
hinni hörðu samkeppni sem ríkir í
tónlistarheiminum. Þó að Priority
Records sé dótturfyrirtæki EMI út-
gáfurisans, flokkast það undir
óháðu fyrirtækin í Bandaríkjunum.
Fyrirtækið hefur sérhæft sig í út-
gáfu á rapp, hipp-hopp og R & B
tónlist og náð góðum árangri á því
sviði. Meðal listamanna þeirra em
Snoop Dogg, Ice Cube, Master P.
og fleiri. EMI, hið alþjóðlega út-
gáfufyrirtæki Svölu, er eitt öflug-
asta hljómplötufyrirtæki í heimi og
Svala verður því í fríðum flokki
listamanna sem fyrirtækið hefur á
sínum snæmm. Þar má nefna Roll-
ing Stones, Queen, George Michael,
Blur, Radiohead, Spice Girls, Skunk
Anansie og Lenny Kravitz.
Svala heldur innan tíðar utan til
að semja og ljúka við upptöku síð-
ustu laganna á væntanlegum geisla-
diski. Þar til hann kemur út er fátt
annað að gera fyrir íslendinga en
að krossleggja fingur og senda
Svölu baráttukveðjur út í hinn
harða alþjóðlega tónlistarheim.
SVALA Björgvinsdóttir héfur gert túnamóta útgáfusamning.
Svala Björgvinsdóttir gerir stórsamning
Dýfðu í 1000 eyja sósu á mbl.is, leik þar sem þú getur unnið miða
fyrir tvo með súpu og brauði á leikritið 1000 eyja sósu eftir Hallgrím
Helgason eða kvöldverð fyrir tvo í Iðnó við Tjörnina.
Um þessar mundir frumsýnir Hádegisleikhús Iðnó 1000 eyja sósu,
nýtt leikrit eftir Hallgrím Helgason. í verkinu kynnumst við Sigurði
Karli sem er ævintýramaður í íslensku viðskiptalífi.
Taktu þátt í leiknum, það er aldrei að vita!
H>mbl.is
-J\LLTAf= £/TTH\SA£J A/ÝTT~
1000 eyja sósa frumsýnd í Iðnó
Morgunblaðið/Jón Svavarsson
FLUGFREYJAN tekur
á móti gestinum.
STEFÁN Karl sestur
í flugsljórasætið.
KOLBRÚN Guðmundsdóttir
flugfreyja gerir athugasemdir
við farsímanotkun...
... svo hann laumast til að tala 1
farsímann á salerninu.
Hitað upp í flugvél
►EINLEIKURINN 1000 eyja
sósa eftir Hallgrím Helgason
verður frumsýndur á morgun í
hádegisleikhúsi Iðnó. Gamanieik-
arinn Stefán Karl Stefánsson
túlkar þar ævintýramanninn Sig-
urð Karl sem hefur flækt mál sín
svo rækilega að hann ákveður að
koma sér úr landi. Leikritið ger-
ist í flugvél og að því tilefni brá
Stefán Karl sér í prufúferð til að
hita upp fyrir frumsýningu.