Morgunblaðið - 08.06.1999, Blaðsíða 71

Morgunblaðið - 08.06.1999, Blaðsíða 71
MORGUNBLAÐIÐ PRIÐJUDAGUR 8. JÚNÍ 1999 71 l Shellac á Gauknum í kvöld ★ lAUQAFjA ★ ■ m ~ ★ ~ ~ O TZ 553 2075 ALVÖRUBÍÖ! mDo'Sv STAFRÆHIT STÆRSTA TJALDIB MEO KLJOÐKERFII ÖLLUM SÖLUM! I HX www.austinpowers.com 1 i í i c Rokkað af ástríðu á eigin forsendum Bandaríska pönksveitin Shellac spilar á Gauki á Stöng í kvöld ásamt íslensku- sveitinni Bisund. Dóra Ósk Halldórsdóttir dró meðlimi Shellac í spjall þegar þeir voru nýkomnir til landsins. HELLAC er búin að vera á tónleikaferð um Norður- löndin undanfamar tvær vikur og verða tónleikamir í kvöld lokapunkturinn á ferðinni. >,Hollenska sveitin Ex bauð okkur í partí til sín til að halda upp á 20 ára afmæli sveitarinnar og við ákváðum að nota tækifærið og fara í tónleika- ferð. Við höfum aldrei spilað áður á Norðurlöndum og fannst þetta til- valið tækifæri." Hljómsveitin Shellac hefur starf- Iað frá árinu 1993 og gefíð út tvær breiðskífur, At Action Park árið | 1994 og Terraform, sem kom út á síðasta ári. Auk þeirra hafa þeir gefið út nokkr- ar smáskífur og átt lög á öðram plötum. Tónlist Shellac sver sig í ætt við pönkið þótt sveitarmeð- limir vilji frekar skil- greina hana sem hart rokk ef menn ímynda sér hart rokk án þeirrar Istöðnuðu ímyndar sem oft fylgir þeirri skilgreiningu. í Shellac eru Steve Albini gítar- leikari og aðalsöngvari, Bob Weston bassaleikari og söngvari og Todd Trainer trommuleikari. Með þeim í ferðinni er einnig Gerard Boissy, sem hljómblandar á tónleikunum. Steve Albini er án efa þeirra þekkt- astur, en hann hefur gert garðinn frægan sem upptökustjóri margra frægra sveita og má þar nefna Nir- vana, Pbdes, PJ Harvey, Robert Plant og Jimmy Page úr Led Zepp- elin svo aðeins nokkrir séu nefndir. Pað eru þó jaðarhljómsveitir pönk- rokksins sem taka mestan hans tíma og segist hann reyna að gera allt sem hann getur fyrir þær hljómsveitir en sé mun vandfýsnari þegar kemur að stóra nöfnunum. Bob Weston hefur einnig sinn helsta starfa af upptökum iyrir hljómsveitir en Todd Trainer vinnur sem sölustjóri í stóru fyrirtæld í Minneapolis sem framleiðir hár- snyrtivörur. „Vantar þig sjampó?“ segir hann kíminn þegar innt er nánar eftir starfi hans. Tónlistin er þeirra helsta áhugamál og segja þeir að samstarfið bygg- ist á áhuga og ástríðu en ekki á fjárhagslegri þörf eða löngun í frægð og firama. „Við lítum á hljómsveitina sem tækifæri til að gera það sem við höf- um mestan áhuga á: Að semja og flytja tónlist," segir Albini, sem hef- ur aðallega orð fyrir þeim félögum. „Við höfum allir verið í ýmsum hljómsveitum undanfarin 20 ár. Fyrir okkur er það ekki leið til að verða frægir, enda höfðar það dæmi ekki til okkar. Tónlistin er næg verðlaun í sjálfu sér.“ - Nú hefur þú starfað mikið með Meirihlutinn hefur rangt fyrir sér um flesta hluti Morgunblaðið/Sverrir SHELLAC. Frá vinstri Bob Weston, Steve Albini og Todd Trainer. rokksveitum, bæði vestanhafs og í Bretlartdi, Steve. Sérðu mun á sveitum frá þessum löndum? „Pað er ákveðinn munur þegar á heildina er litið. Mér finnst banda- rískar hljómsveitir koma meira beint úr bílskúrunum. Era að spila ánægjunnar vegna og eru afslapp- aðri en bresku sveitirnar. I Bret- landi er tónlistarpressan svo áköf að mér finnst þarlendir tónlistar- menn mun meðvitaðri um frægðar- pælinguna en í Bandaríkjunum. Jafnvel sveitir sem era úti í jaðri era með stjörnufotin tiltæk og trúa á frægðarmaskínuna.“ - Ertu þá bara að tala um muninn á bandarískum og breskum jaðar- sveitum? ei, ég held að þetta gangi yfir línuna, en samt á það sérstaklega við um rokksveitir í Bandaríkj- unum og poppsveitir í Bretlandi, en það era eiginlega engar rokksveitir í Bretlandi sem stendur. En auðvit- að eru undantekningar frá reglunni og þetta er náttúrlega gróf einfold- un á stöðunni.“ - Nú eru Bandaríkjamenn mjög uppteknir af frægð og frama, svo maður gæti haldið að þessu værí þveröfugt faríð. „Já, en það á meira við um leik- ara, sjónvarpið og bíómyndimar. Ekki eins mildð í tónlistinni," segir Albini. „Nema þú sért Madonna eða Prince,“ segir Bob og hinir hlæja. - Nú spilið þið frekar hart pönk, sem margir tengja við áttunda og níunda áratuginn. „Fyrir mér var koma pönksins eins og franska byltingin í tónlistar- heiminum. Sumir sjá pönkið fyrir sér sem tónlistarstíl sem hægt er að herma eftir, en ég sé það ekki þannig," segir Steve. „Pönkið er meira viðhorf og staðsetning utan megintískustrauma tónlistariðnað- arins,“ segir Bob. - Fyrsta pönksveitin? „Ramones, auðvitað," segir Albini og blæs á það þegar blaðamaður segir flesta tengja pönkið meira við Bretland og sveitir eins og Sex Pistols, Clash og fleiri. „Meirihlut- inn hefur rangt fyrir sér um flesta / hluti,“ segir hann á ótrúlega ljúf- lingslegan hátt þannig að hug- myndafræði setningarinnar mýkist öll í framsetningunni. - Hvaða áhríf hefur það á tónlist- arsköpun ykkar að staifa allir á öðr- um sviðum? ín áhrif,“ segir Bob og Todd, sem lítið hefur látið til sín taka í viðtalinu, seg- ir að á milli þess sem þeir hittist séu þeir að spá í tónlistina. „Við hittumst kannski bara í einn mánuð á ári, en vinnum sjálfstætt þess á milli og erum að melta pæl- ingar frá síðasta fundi. Við tökum okkur þann tíma sem við þurfum og erum ekkert að flýta okkur enda ^ engin pressa frá útgefendum eða utanaðkomandi krafa um hvemig tónlist við eigum að gera. Við semj- um alla okkar tónlist algjörlega á okkar eigin forsendum," segir Todd að lokum. ^mwu^iÉiSí) SVMbi * HKDV * tjS★ ★★ 1/2 JJ ^^■Kvikmyndir.is ® <|||ró&asagan jjf AMERICAN HISTORYX m Sýnd kl. 9. iesi Sýndkl. 11.10. Simi 462 3500 • Akureyri • www.nell.is,'boraarbÍD
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.