Morgunblaðið - 08.06.1999, Page 76
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLAN 1,103 REYKJAVIK, SÍMI5091100, SÍMBRÉF 5691181
PÓSTHÓLF 3010, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KA UPVANGSSTRÆTI1
ÞRIÐJUDAGUR 8. JÚNÍ 1999
VERÐ í LAUSASÖLU 150 KR. MEÐ VSK
Rannsókn hjá Sjúkrahúsi Reykjavíkur á heilablóðfalli
Færri tilfelli hér en á
öðrum Vesturlöndum
Kemur
Kasparov
til íslands?
FYRIRHUGAÐ er að halda
sterkt atskákmót hér á landi
síðar á þessu ári, að sögn
Askels Arnar Kárasonar, ný-
kjörins forseta Skáksambands
Islands. Ef af því verður eru
möguleikar á því að Gary
Kasparov taki þátt. Þegar hef-
ur verið komið að máli við
hann og hann hefur lýst áhuga
sínum á því að koma en ekki er
enn ljóst hvort af mótinu verð-
ur. Það veltur m.a. á fjár-
magni. Mótið yrði skipað fleiri
sterkum skákmönnum og
myndi standa yfir í þrjá til
fjóra daga, að sögn Áskels.
■ Kvíði ekki/13
NIÐURSTÖÐUR rannsóknar sem
fram fór hjá Sjúkrahúsi Reykjavík-
ur benda til þess að heilablóðfall sé
vægari sjúkdómur hér á landi en
annars staðar á Vesturlöndum.
Bæði eru afleiðingar hans vægari
og þeir færri sem verða fyrir hon-
um.
Læknamir Jón Hersir Elíasson,
Einar Már Valdimarsson og Finn-
bogi Jakobsson, á taugalækninga-
deild Sjúkrahúss Reykjavíkur, unnu
að rannsókninni en á SHR er rekin
sérstök heilablóðfallseining, sem er
til húsa á Grensásdeild. Arin 1996
og 1997 greindust 377 heilablóðfóll
á SHR og voru afdrif sjúklinganna
rannsökuð.
I ljós kom að 17% þeirra sem
fengu heilablóðfall létust eftir að
komið var á sjúkrahús, sem lækn-
amir segja lægra hlutfall en þekkist
úr sambærilegum erlendum rann-
sóknum. Þá em einkenni sjúkling-
anna hérlendis ekki eins alvarleg.
Einar Már Valdimarsson segir dán-
arhlutfall vegna heilablóðfalls hafa
farið lækkandi víða á Vesturlöndum
og telur þessa þróun geta verið
lengra komna hér á landi. „Astæð-
umar em ekki ljósar en hafa verið
raktar til batnandi ástands hvað
varðar áhættuþætti, aukinna for-
vama og betri bráðameðferðar.
Notkun magnyls í segavamarskyni
virðist útbreidd hér á landi og
starfsfólk heilbrigðisþjónustunnar
vel upplýst um gagnsemi þess.
Blóðþynningu til vamar heilablóð-
falli virðist beitt þar sem hún á við
og meðferð við hækkuðum blóð-
þrýstingi er almenn.“
Einar segir að skjót viðbrögð til
að spoma við því að sjúklingum
versni enn meir og endurhæfing frá
fyrsta degi skipti miklu máli.
■ Heilablóðfóll/11
4 v| IHgg
f/í . i _ ‘ö
r/J® ÍHi
Eftirlitsstofnun EFTA efast um réttmæti íslenskra styrkja
Kannar styrkveitingar
til kvikmyndagerðar
EFTIRLITSSTOFNUN EFTA
hefur ákveðið að hefja rannsókn á
því hvort styrkir, sem íslensk
stjórnvöld hyggjast veita kvik-
myndaframleiðendum vegna kvik-
mynda sem framleiddar eru á Is-
landi, samrýmast samningnum um
Evrópska efnahagssvæðið. Lög
þessa efnis vom samþykkt á Al-
þingi í mars síðastliðnum.
Tilgangnrinn að laða hingað
erlenda framleiðendur
Tilgangur laganna er að laða
hingað til lands erlenda framleið-
endur kvikmynda og sjónvarps-
mynda og yrðu allt að 12% kostnað-
ar sem til verður hérlendis endur-
greidd. Ekki yrðu styrktar myndir
sem kosta undir 80 milljónum
króna og myndir sem kosta yfir 121
milljón nytu 12% endurgreiðslu-
hlutfallsins. Til að koma til greina
við styrkúthlutun er í lögunum skil-
yrt að erlendu aðilarnir stofni fyrir-
tæki á Islandi, skili nákvæmri
kostnaðar- og fjármögnunaráætlun,
að framleiðslan tald ekki lengri
tíma en þrjú ár og að endurskoð-
andi fari yfir kostnaðartölur.
í frétt frá Eftirlitsstofnun EFTA
segir að þrátt fyrir almennt já-
kvætt viðhorf stofnunarinnar til að-
stoðar við menningarmál dragi
stofnunin í efa réttmæti ríkis-
styrkja við kvikmyndaframleiðend-
ur á þann hátt sem íslensku lögin
gera ráð fyrir. Þess vegna hafi Eft-
irlitsstofnunin ákveðið að hefja
formlega rannsókn á réttmæti
styrkjanna. Hefur hún jafnframt
óskað eftir því að íslensk stjórnvöld
bíði með að hrinda styrkveitingun-
um í framkvæmd þar til niðurstaða
liggur fyrir.
Morgunblaðið/Kristján
Sumarið er
komið -
fyrir norðan
AKUREYRINGAR eru þess nd
fullvissir að sumarið sé komið. Þá
var enda marga farið að lengja
eftir sumarkomunni, því veð-
urguðirnir hafa farið frostköld-
um krumlum um Norðlendinga
mánuðum saman.Veðrið lék við
bæjarbúa um sjómannadagshelg-
ina og í gærdag fór hitinn í 17
stig. Blómarósirnar Sofffa Rut
Gunnarsdóttir og Kristín Dögg
Jónsdóttir, sem starfa hjá um-
hverfisdeild bæjarins, voru að
gróðursetja blóm á Eiðsvellinum i
blíðunni í gær og voru í sannköll-
uðu sumarskapi. Þær stöllur voru
þess jafnframt fullvissar að svona
yrði veðrið í sumar og það væri
einmitt góða veðrið sem gæfi
starfinu gildi.
Erró sýnir
í Jeu de
Pomme
JEU de Pomme-safnið í París
mun í haust halda sýningu á
verkum Errós. Um er að ræða
einkasýningu sem nær yfir alla
sali safnsins og segir listamaður-
inn um 70 stór verk verða á sýn-
ingunni.
Að sögn Errós kemur töluverð-
ur hluti verkanna frá Listasafni
Reykjavíkur og verður lögð
nokkur áhersla á pólitísk verk.
Sýningin í Jeu de Pomme er tölu-
verður vegsauki fyrir listamann-
inn sem segir þetta álíka heiður
og að vera boðið að sýna í
Louvre-safninu. Erró segir það
hafa staðið til í nokkurn tíma að
verk hans yrðu sýnd í Jeu de
Pomme. Hann segir að gaman
verði að fá að enda öldina í safn-
inu. Sýningin verður opnuð 25.
október og lýkur 2. janúar nk.
■ Stór sýning/31
---------------
Kaupa í búlg-
örsku lyQa-
fyrirtæki
FJÁRFESTINGAFÉLAGIÐ Icon-
sjóðurinn ehf., sem er í eigu lyfja-
fyrirtækisins Pharmaco og Amber
Intemational Ltd., hefur keypt
ásamt Morgan Grenfell & Co. og
Deutsche Bank meirihluta hlutafjár
í lyfjafyrirtækinu Balkanpharma í
Búlgaríu. Hlutur Iconsjóðsins er
um 700 milljónir króna eða um það
bil helmingur hlutafjár.
Eignarhlutur Amber Int. er 52%
en Pharmaco hf. 48% í Iconsjóðnum
og er heildarhlutafé sjóðsins 375
milljónir króna. Framkvæmdastjóri
Iconsjóðsins er Björgólfur Guð-
mundsson en tilgangur sjóðsins er
að fjárfesta hérlendis og erlendis,
sem og ráðgjafa- og lánastarfsemi.
Balkanpharma er lyfjadreifingar-
fyrirtæki í Búlgaríu sem framleiðir
hráefni til lyfjagerðar, flestar teg-
undir lyfja og ýmsar skyldar vörur.
Fyrirtækið hefur keypt þrjár af
stærstu lyfjaverksmiðjum í Búlgar-
íu, sem verið er að einkavæða.
Balkanpharma rekur einnig nokkur
dótturfyrirtæki, meðal annars í
Rússlandi og Ukraínu. Hjá fyrir-
tækinu starfa um 6.000 manns og
hefur verið hagnaður af rekstrinum
undanfarin ár. Velta í ár er áætluð
yfir 8.000 milljónir króna og reiknað
er með 30% aukningu á næsta ári.
■ 700 milljónir/18