Morgunblaðið - 22.06.1999, Qupperneq 17
MORGUNBLAÐIÐ
PRIÐJUDAGUR 22. JÚNÍ 1999 17
AKUREYRI
Tryggvi Gíslason,
skólameistari MA
Ríkið sjái
um grunn-
skólana
TRYGGVI Gíslason, skólameistari
Menntaskólans á Akureyri, telur
betra að ríkissjóður reki grunnskóla
en sveitarfélög eða sjálfseignar-
stofnanir í tengslum við atvinnulífíð
sjái um framhaldsskólana. Rekstur
grunnskólans var nýverið fluttur
frá ríki til sveitarfélaga, sem kunn-
ugt er.
Tryggvi sagði í ræðu sinni á
Skólahátíð MA 17. júní að skólinn
hefði markað sér þá stefnu, í sam-
ræmi við gildandi lög og aðal-
námskrá, að taka einungis inn nem-
endur sem hafa góðan undirbúning í
bóklegum greinum og áhuga á að
búa sig undir nám í háskóla. „Aðrir
skólar sjá svo um aðra mikilsverða
þætti í menntun þjóðarinnar. Pyrfti
að mínum dómi að leggja meiri
áherslu á að gera greinarmun á
þessu tvennu: bóklegu undirbún-
ingsnámi undir frekara nám og
verklegu starfsnámi í tengslum við
atvinnulíf þjóðarinnar. Eina leiðin
til þess að bæta verklega menntun í
landinu er að gera atvinnurekendur
- hverju nafni sem þeir nefnast -
ábyrga fyrir menntun hver í sinni
atvinnugrein,“ sagði Tryggvi.
Hann sagði það í anda þess að
dreifa valdi og ábyrgð í þjóðfélag-
inu, og nær væri að brjóta þá braut
en einkavæða grunnskólana. „Hefði
ég fyrir mitt leyti viljað snúa því við
sem gert hefur verið í skólamálum
undanfarin ár og láta ríkissjóð sjá
um grunnskólana, grunnmenntun
þjóðarinnar, hina almennu mennt-
un, en sveitarfélög eða samtök
þeirra - ellegar sjálfseignarstofnir í
tengslum við atvinnulífið sjá um
rekstur framhaldsskóla og há-
skóla.“
MA-tónlist
á hljómdisk
MENNTASKÓLINN á Akur-
eyri minnist 120 ára afmælis
síns á næsta ári. Af því tilefni
verða ýmsar sýningar í húsum
skólans við næstu skólaslit,
m.a. sýning á kennslubókum
frá upphafi skólahalds á
Möðruvöllum, sýning á
kennslubúnaði og sýning á
listaverkum og ljósmyndum í
eigu skólans. Þetta kom fram í
ræðu skólameistara í íþrótta-
höllinni 17. júní.
Tryggvi Gíslason, skóla-
meistari, gat þess einnig að
gefinn verður út hljómdiskur
Menntaskólans á Akureyri
2000 með söng kóra, sönghópa
og einsöngvara og leik hljóð-
færaleikara og hljómsveita úr
hópi nemenda skólans, „en
söng- og tónlistarhefð er göm-
ul í skólanum," sagði skóla-
meistari.
Þá lýsti Tryggvi þeirri von
sinni að unnt verði að efna til
fjórða bindis af sögu skólans
sem komi út árið 2005 - á 125
ára afmæli skólans, en þrjú
fyrstu bindin af sögu skólans
komu út árið 1980.
FRIÐURIHUSIANDANNA
Morgunblaðið/Kristj án
RÓ OG friður ríkti í Húsi andanna á Ijörninni í Ólafsfirði þegar ljósmyndari átti leið hjá, enda eru fuglarnir sem þar hafast við
önnum kafnir þessa dagana við að unga út eggjum sinum.
(ð -------
flfl Royale
Þak- og utanhússklæðningar í miklu úrvali. Allar gerðir festinga.
Slétt ál og stál með gæðastaðal ISO 9001.
Plannja
Ármúla 16 • 108 Reykjavík • Sími 533 1600 • Fax 533 1610
ASETA