Morgunblaðið - 22.06.1999, Blaðsíða 20
20 ÞRIÐJUDAGUR 22. JÚNÍ 1999
MORGUNBLAÐIÐ
VIÐSKIPTI
Nýir tímar
Teymis
Þekkingar- og hugbúnaðarfyrirtækið
Teymi hefur vaxið hratt undanfarin ár, svo
hratt reyndar að fyrirsjáanlegt er að vilji
það vaxa hraðar þarf það að komast á
stærri markað. Árni Matthíasson ræddi
við Elvar Stein Þorkelsson, framkvæmda-
stjóra Teymis, sem sagði honum af fyrir-
hugaðri sókn fyrirtækisins inn á erlendan
markað meðal annars.
Morgunblaöið/Arni Sæberg
Þarftu
að skipta
um þurrku-
blöð?
vg> mbUs
ÞEKKINGAR- og hugbúnað-
arfyrirtækið Teymi hefur
verið leiðandi í þjónustu við
Oracle hugbúnað hér á landi und-
anfarin ár. Teymi hefur vaxið hratt
og er löngu búið að sprengja utan
af sér húsnæði sitt í Borgartúninu.
Fljótlega flytur Teymi í nýtt hús-
næði, reyndar einnig í Borgartúni,
sem verið er að leggja síðustu hönd
á, en fleiri breytingar eru í aðsigi
hjá fyrirtækinu; skammt er síðan
það tók fyrstu skrefín inn á markað
fyrir veflausnir, fyrirhuguð er sókn
á erlendan markað með lausnir fyr-
ir Concorde- og Axaptafjárhags-
kerfi og framundan þátttaka í nýrri
högun gagnavinnslu sem kalla má
viðfangamiðlaravistun.
Elvar Steinn Þorkelsson, fram-
kvæmdastjóri Teymis, segir að þeir
Teymismenn séu að skerpa fókus
fyrirtækisins með kaupum á hlut í
Islensku vefstofunni, undirbúningi
að sókn á markað ytra og fyrirhug-
uðu samstarfi um viðfangamiðlara-
vistun. „Við munum leggja meginá-
herslu á Oracle framvegis eins og
hingað til, en leggjum á sama tíma
meiri áherslu á lausnir," segir El-
var. Undanfarin þijú ár hefur
Teymi unnið að lausnum fyrir
Concorde, ákvarðanastuðning og
vöruhús gagna, og nokki-ir við-
skiptavinir fyrirtækisins hafa sett
Elvar Steinn Þorkelsson, framkvæmdastjóri Teymis.
slíkar lausnir upp hjá sér hér
heima. Elvar segir að það sé ekki
nóg, íslenskur markaður sé ekki
nógu stór til að það borgi sig að
vinna flókið þróunarstarf aðeins
fyrir hann, hér séu ekki nema 35 til
40 fyrirtæki af þeirri stærðargráðu
að þurfa á lausnum vegna ákvarð-
anastuðnings og vöruhúss gagna að
halda. „Við sækjum inn á markað í
Danmörku til að byrja með og verð-
um í samstarfi við dreifingaraðila
Concorde-hugbúnaðarins þar í
landi. I gegnum það samstarf
komumst við í samband við aðra
álíka aðila víðar í Evrópu og náum
þannig að fara margfalt hraðar inn
á markaðinn en ef við reynum að
gera þetta sjálfir.
Þegar við erum síðan búnir að
koma útrásinni af stað hyggjumst
við þróa sambærilegar lausnir fyrir
Navision, Axapta og fleiri fjárhags-
kerfi. Við höfum þróað með okkur
ákveðna grunnþætti sniðna að þörf-
um stjórnenda fyrirtækja, enda
þurfa þeir ævinlega á ákveðnum
lykilupplýsingum að halda, alveg
sama í hvaða rekstri þeir eru. Síðan
má laga kerfi okkar nánar að þörf-
um hvers og eins.“
Hluthafafundur Baugs hf.
Nykaup
Aukahluthafafundur Baugs hf. verður haldinn í Gullteigi á Grand Hótel
Reykjavík, fimmtudaginn 24. júní n.k og hefst kl. 14.00.
Dagskrá:
1. Tillaga um hækkun hlutafjár um 82.500.000 kr. að nafnverði með áskrift
nýrra hluta og að hluthafar falli frá rétti sínum til að skrá sig fyrir hinum
nýju hlutum í hlutfalli við hlutafjáreign sína. Jafnframt gerir tillagan ráð fyrir
að hluthafar ákveði að framselja alla áskriftarrétti sína til seljenda hlutafjár í
Vöruveltunni hf. (10-11) á genginu 10,0 sem hluta af endurgjaldi Baugs hf.
fyrir þá hluti. Þannig mun Baugur hf. greiða að hluta til fyrir kaupin á
Vöruveltunni hf. með hinum nýju hlutabréfum.
2. Önnur mál.
flBBlll
Stjórn
Baugs hf.
rs
BAUGUR
/
Nýr kafli í sögu Teymis
Elvar segir að nú sé að hefjast
nýr kafli í sögu Teymis, sem hafi
fram að þessu einbeitt sér að innan-
landsmarkaði. „Við gerðum okkur
grein fyrir því fyrir tveimur árum
að markaðurinn myndi breytast,
menn reyna nú að taka staðlaðar
lausnir og laga þær að sínum
rekstri í stað þess að reyna að
smíða kerfi frá grunni. Við notum
Concorde í okkar rekstri og vitum
því að þar er þörf fyrir ákveðnar
lausnir eins og vörhúsi gagna og
ákvaðanatökukerfi. I Concorde
hafa menn eytt stórfé í að þróa með
sér einfaldar skýrslur og einfalda
hluti sem leitt hafa til meiri hag-
kvæmni. A því sviði höfum við náð
mjög góðum árangri og ætlum að
uppfylla þá þörf sem er til staðar
hér á landi og í enn meira mæli í
Danmörku og hún mun margfald-
ast á næstu árum.
Markaður í Danmörku er fimm-
tíu sinnum stærri en hér á landi og
þar eru um 500 Concorde-við-
skiptavinir. Þar er um að ræða 30-
40 samstarfsaðila og við hyggjumst
styðja þá með kennslu, ráðgjöf og
símaþjónustu á meðan þeir era að
ná tökum á þeirri tækni sem um er
að ræða, enda er hún allt önnur en
sú sem þeir eiga að venjast í
Concorde-umhverfmu. I þvf um-
hverfi nota menn eigið hugbúnað-
arumhverfi, þróa í því skýrslur og
aðra hluti, en við tökum menn út úr
því umhverfi og fáum þá til að nota
annað og sveigjanlegra til grein-
inga á afkomu og árangri. I okkar
vinnu notum við síðan verkfæri eins
og Oracle Discoverer og Oracle Ex-
press sem eru báðar veftækar. Fyr-
ir vikið skiptir ekki máli hvaða
lausnir viðskiptavinurinn vill, hvort
hann kýs að nota miðlara/biðlara
útfærslu eða veftæka lausn.“
Teymi er í fremstu röð gagna-
grunnsfyrirtækja hér á landi en á
markaði sem er fimmtugfaldur sá
íslenski er hætt við að sérstaðan
hverfi. Elvar segist þó ekki óttast
samkeppnina ytra, Oracle-þekking
innan Teymis standi jafnfætis því
sem best gerist til að mynda hjá
Oracle og helstu samstarfsaðilum
Oracle í Evrópu og Bandaríkjunum.
„Vitanlega geta allir tamið sér
þessa þekkingu, því er ekkert öðra-
vísi farið en með hvaða þekkingu
aðra, en við höfum forðast að fara
inn á svið þar sem aðrir era sterkir
fyrir, frekar reynt að koma okkur
fyrir þar sem við teljum okkur geta
stutt aðrar lausnir eða komið að
sem hrein viðbót. Við ætlum okkur
ekki að fara í beina samkeppni við
fyrirtæki eins og Oracle, það er
frekar að Oracle vanti ýmsar lausn-
ir sem við getum boðið. Það er því
mjög líklegt að Oracle muni vilja
vinna náið með fyrirtæki því sem
við munum setja á fót í Danmörku
og úr verði samstarf um einhverjar
heildarlausnir.
fslenska vefstofan og
Lux Inflecta
Teymi er ekki aðeins að huga að
útflutningi á þekkingu sinni með
hugbúnaði; fyrirtækið hefur einnig
fært sig inn á markað fyrir veflausn-
ir og keypti fyrir skemmstu hlut í
íslensku vefstofunni í samstarfi við
Flugleiðir. Elvar segir að íslenska
vefstofan eigi fyrst og fremst að
sinna innanlandsmarkaði, einkum í
hönnun og ráðgjöf á því sviði. „Síðan
er ætlunin að þróa lausnir sem era
hugsaðar sem hluti af heildarvef-
lausn fyrir fyrirtæki, hvort sem það
er innranet, ytranet eða Netið. I því
ætlum við að fara í samstarf við
nokkur önnur fyrirtæki en eram
einnig að herja á nýja markaði með-
al annars með kaupum á hlut í Lux
Inflecta, sem vinnur að þróun á
Java-þróunarverkfærum, enda höf-
um við óbilandi trú á Netinu sem
umhverfi. Inn í þessi fyrirtæki kom-
um við með tæknilegan, markaðs-
legan og rekstrarlegan bakgrann,
en leyfum þeirra hugmyndum og
sköpunargleði að njóta sín.“
Elvar segist ekki telja að Teymi
sé að taka mikla áhættu með kaup-
um sínum á hlut í þessum fyrir-
tækjum, að hans mati sé engin
áhætta fólgin í kaupunum á Is-
lensku vefstofunni, hún sé traust og
gott fyrirtæki, og þó það sé alltaf
einhver áhætta fólgin í því að taka
þátt í frumkvöðlafyrirtækjum eins
og Lux Inflecta, hafi Teymi trölla-
trú á hugmyndinni sem þar er unn-
ið að.
Elvar segir að þó Islenska vef-
stofan sé ekki stór felist í henni
miklir möguleikar og hún muni-
stækka ört á næstu mánuðum, enda
stefnan að gera hana að fremsta
fyrirtæki á því sviði hér á landi.
„Við ætlum þó ekki að gera allt þar,
innan vefstofunnar verður sjónum
Auglýsing um uppgreiðslu
skuldabréfa Hf. Eimskipafélags
íslands, 1. ftokks A 1995
Hf. Eimskipafélag íslands hefur ákveðiö að nýta sér
uppgreiðsluákvæði bréfa 1. flokks A1995 og greiða þau
upp þann 10. júlí 1999. Bréfin eru verðtryggð með
vísitölu neysluverðs og bera 6,1% fasta ársvexti.
Nánari upplýsingar er hægt að fá í fjárreiðudeild
Eimskips, Pósthússtrœti 2, eða ísíma 525-7354.
Reykjavík 22. júní 1999,
Hf. Eimskipafélag íslands
EIMSKIP