Morgunblaðið - 22.06.1999, Page 31
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 22. JÚNÍ 1999 31
LISTIR
„Söngurinn léttir lífið“
AHUGI á að syngja saman í ís-
lenskum hópi var uppsprett-
an að tilurð íslensks kvenna-
kórs í Höfn, sem æft hefur saman í
tvo vetur undir stjóm Ingibjargar
Guðjónsdóttur söngkonu. Þær
halda tvenna tónleika á íslandi, í
Selfosskirkju 22. júní og í Seltjarn-
arneskirkju 24. júní, en óvenjulegur
endahnútur ferðarinnar er að kór-
inn syngur við brúðkaup Ingibjarg-
ar og Andra Kárasonar, sambýlis-
manns hennar.
Konurnar eru á öllum aldri, sum-
ar hafa aðeins búið í Danmörku í
nokkra mánuði, aðrar í nokkra ára-
tugi, en það er sönggleðin og löng-
unin til að vera saman, sem er meg-
in aðdráttaraflið. Hvort tveggja,
sönggleðin og gleðin yfir að koma
saman, lá í loftinu í Jónshúsi kvöldið
sem þær eru heimsóttar, þar sem
þær eru á kafí að æfa fyrir tónleik-
ana á Islandi.
„Ingibjörg hringdi okkur nokkrar
saman í ágúst 1997 og upp úr því
kviknaði áhugi hjá okkur að stofna
kór,“ segir Sigrún Jónasdóttir, for-
maður kórsins. „Svo funduðum við
og þetta fréttist og úr varð kór með
um tuttugu konum.“ í íslandsferð-
inni verða þær 23, auk Ingibjargar
kórstjóra.
Þegar Sigrún er spurð hvað sé
skemmtilegast í kórstarfinu
svarar hún hiklaust að það sé
að vera í þessum góða hópi. „Kon-
urnar hafa verið búsettar hér mis-
lengi, allt frá nokkrum mánuðum
upp í rúm 40 ár. Sumar sækja í fé-
lagsskapinn, aðrar í tónlistina. Ingi-
björg er stórkostlegur músíkant og
heldur okkur vel við efnið.“
Viðfangsefni kórsins hefur verið
fjölbreytt. Þær hafa fengið ýmis
tækifæri til að koma fram í Dan-
mörku og þá lagt áherslu á að
kynna íslenska tónlist, en nú þegar
Islenskur kvennakór starfar í Kaup-
mannahöfn og hyggur nú á tónleikahald á
7 — —— —
Islandi eins og Sigrún Daviðsdóttir heyrði
er hún heimsótti kórinn á æfíngu.
Morgunblaðið/Sigrún Davíðsdóttir
ÍSLENSKI kvennakórinn í Kaupmannahöfn á æfingu
undir stjórn Ingibjargar Guðjónsdóttur.
farið er heim hafa þær einbeitt sér
að erlendri tónlist, gjarnan nor-
rænni, en annars allt frá háklassík
yfir í djass og negrasálma.
I æfingahléinu sitja þær Ingi-
björg og Sigi-ún og skrafa saman
ásamt fleiri kórfélögum. Ein þeÚTa
er Svanhildur Gunnlaugsdóttir sem
er að ljúka námi í landslagsarki-
tektúr. „Mér finnst rosalega gaman
að syngja,“ segir hún af sannfær-
ingu og bætir við að á hverju hausti
hafi hún hugsað með sér að nú gef-
ist ekki lengur tími til að stunda
sönginn, en alltaf hafi þó orðið ofan
á að vera í kór.
„Eg er algjört kórfrík," segir
Svanhildur. „Ætli það sé ekki útrás-
in sem fylgir söngnum," er ástæðan
sem hún gefur upp fyrir kóráhugan-
um. Hún hefur verið í bamakór,
MA-kórnum, Háskólakómum, ís-
lenska kirkjukómum í Kaupmanna-
höfn og nú kvennakómum. „Það
léttir á fjölskyldunni að ég fari að
heiman til að syngja," bætir hún við
með bros á vör. „Kvennakórinn er
einn besti kórinn, sem ég hef verið í.
Við fáum svo góða leiðbeiningu.
Fyrir utan útrásina í söngnum þá er
leiðbeiningin það besta.“
Svanhildur er að klára skólann
og því er að mörgu að huga.
„Eg hef enn ekkert ákveðið í
huga, margt sem kemur til greina,
en ég held ömgglega áfram í kór,“
segir hún af sannfæringu.
I glugganum sitja Hrund Vern-
harðsdóttir, Kolbrún Sigurðardóttir
og Guðrún Snorradóttir og spjalla
saman í hléinu. „Söngurinn léttir líf-
ið,“ segir Kolbrún hiklaust, þegar
hún er spurð af hverju hún sé í
kórnum. „Það er svo gefandi að
vera með,“ bætir hún við. Hrund
tekur undir og bendir einnig á að
vinskapurinn í kórnum geri gott.
Guðrún bætir við að Ingibjörg sé
svo góður kennari og geri kröfur.
„Það þýðir ekkert að syngja með
hangandi hendi,“ hnykkir Kolbrún
á. Þær eru sammála um að það sé
viðbótargaman að kórinn sé íslensk-
ur. Það eigi þær þá sameiginlegt
auk sönggleðinnar.
Hrund hefur búið í Danmörku
í 45 ár, starfar á afleysinga-
skrifstofu, hjólar 30-40 km
á dag og stundar sjóböð árið um
kring. Guðrún hefur búið í Dan-
mörku í 1 1/2 ár, flutti þegar mann-
inum hennar bauðst þar vinna. Hún
hefur verið í skóla í vetur, lært bók-
hald og annað, en við það starfaði
hún á Islandi og hyggst halda áfram
hér. Kolbrún er búin að búa fimm
ár í Danmörku, er að ljúka námi
hliðstæðu sjúkraliðanámi og starfar
á elliheimili.
„Markmiðið hefur verið að fást
við sem fjölbreyttust verkefni," seg-
ir Ingibjörg kórstjóri. „Við erum
auðvitað áhugamannakór og það
tekur tíma að vinna upp efnisskrá,
sem leyfir hverjum og einum að
njóta sín, en ég held við höfum
fundið okkur nokkuð vel.“ Kórinn
hefur að sögn Ingibjargar troðið
upp við ýmis og ólík tækifæri og það
hefur skilað sér vel.
Það er ekki mikið til af tónlist
fyrir kvennakór, segir Ingi-
björg og efnisvalið hefur því
ráðist svolítið af því hvað finnst af
heppilegri tónlist. „En ég hef fengið
að ráða verkefnavalinu," segir Ingi-
björg brosandi. Hér er tekið á mál-
unum með styrkri hendi og eðlilegt
að sú sem þekkinguna hefur fari
fyrir.
„Það er auðvelt að vinna með
konur,“ segir Ingibjörg, þegar hún
er spurð hvernig sé að stjórna
kvennakór. „Þær eru samvinnufús-
ar og viljugar. Konumar finna
stuðning hver hjá annarri og það
finnst mér heillandi að sjá. í vetur
höfum við staðið í fjáröflun fyrir
ferðina og það hefur enn aukið á
samheldnina.“
Gifting í lokin er óvæntur end-
ir á tónleikaferð og Ingibjörg
tekur hlæjandi undir að svo
sé. „Mér fannst þetta tilvalið. Það
kostar blóð, svita og tár að stjórna
kór og það verður óneitanlega mik-
ill hluti af manni. Þessi endahnútur
passar því vel.“
Það dugir ekki að hanga í hléi of
lengi. Ingibjörg fer á sinn stað og
konurnar taka strax við sér. Þær
taka til við æfingar, nútímaleg tón-
list á dagskrá. „Þið eigið að vera
sterkar, ekki frekar," undirstrikar
Ingibjörg. Sú hugsun vaknar að
þessi ábending sé gott vegarnesti
almennt, ekki bara í söngnum. Ekki
að undra að kórinn verði nauðsyn-
legur hluti af lífinu hjá þeim sem
hafa reynt slíkt.
Dómkórinn
syngur í
Reykholts-
kirkju
Á JÓNSMESSUNÓTT, 23.
júní kl. 21, syngur Dómkórinn
í Reykholtskirkju. Ef veður
leyfir mun kórinn í upphafi
syngja fyrir utan kirkju ís-
lensk þjóðlög og kórlög sem
eiga erindi við Jónsmessuhá-
tíð.
Dómkórinn er að undirbúa
ferð til Prag og mun taka þátt í
listahátíð sem haldin verður til
heiðurs tékkneska tónskáldinu
Petr Eben. Kórinn mun syngja
tónverk eftir hann auk kór-
verka eftir íslensk tónskáld í
Reykholtskirkju.
Stjórnandi kórsins er Mar-
teinn H. Friðriksson.
KVIKMYJVPIR
Ilfóborgin
LOLITA irk
Leikstjdri Adrian Lyne. Handrits-
höfundur Stephen Schiff, byggt á
skáldsögu Vladimirs Nabokovs.
Kvikmyndatökustjóri Howard
Atherton. Tónskáld Ennio Morricone.
Aðalleikendur Jeremy Irons,
Dominique Swain, Melanie Griffith,
Frank Langella. 135 mín.
Bandarísk/frönsk. Pathé, 1997.
RITHÖFUNDURINN Vladimir
Nabokov hneykslaði fjöldann á
sjötta áratugnum þegar Lolita,
skáldsagan hans um forboðin ásta-
mál 12 ára telpukrakka og fóstra
hennar á fimmtugsaldri, kom fyrir
almmeningssjónir. Skyldi engan
undra. Menn voru einnig að reyna
að vandlætast yfir kvikmyndagerð
bókarinnar, sem meistari Kubrick
lauk við ‘62. Ég hef ekki lesið sög-
Morgunblaðið/Jón Svavarsson
Leikarahjón fá heiðurs-
laun listamanna í Garðabæ
HJÓNUNUM Margréti Ólafsdótt-
ur leikara og Steindóri Hjörleifs-
syni leikara voru veitt heiðurs-
laun listamanna í Garðabæ og af-
henti Ingimundur Sigurpálsson
bayarstjóri þeim viðurkenningna
við hátiðahöld á þjóðhátíðardag-
inn, 17.júní.
Útvötnuð Lolita
una, höfundurinn skrifaði vissulega
sjálfur handritið fyrir Kubrick, en
hann hefur örugglega tónað niður
þetta ofurviðkvæma efni og lagt
áherslu á kaldhæðnina sem var rík í
þeirri kvikmyndagerð. Hún naut
líka frábærra hæfileika stórleikar-
anna James Mason, Peters Sellers
og ekki síst Shelley Winters.
Nú sem þá fara kvikmyndagerð-
armennirnir í kringum perralegt
efnið eins og kettir í kringum heit-
an graut. Yjað að hlutunum. Sem út
af fyrir sig er heiðarleg lausn ef
menn vilja á annað borð fást við
þessa ókvikmyndanlegu sögu. Irons
leikur Humbert Humbert, breskan
kennara á Nýja Englandi sem
fyllist ást og fysn til telpukrakkans
Charlotte „Lolitu“ Haze. Gifist
móður hennar (Melanie Griffith) til
að geta verið samvistum við
telpuna. Mamman deyr, sambandið
tekur vafasama útúrdúra um þver
og endilöng Bandaríkin og endar
með ósköpum.
Það kemur á óvart að sjá Lolitu
sýnda hérlendis í kvikmyndahúsi,
hún var á hrakhólum á annað ár uns
hún fékk loks dreifingu í Bandaríkj-
unum fyrir rúmu ári. Þar lognaðist
hún út af á örfáum vikum. Maður
bjóst því ekki við miklu, því kemur
það notalega á óvart að þessi útgáfa
býður upp á meira en maður þorði
að vona. í fyrsta lagi lítur fram-
leiðslan einstaklega vel út frá hendi
auglýsingamannsins Adrians Lyne,
sem gætir þess að hvert smáatriði
sé í lagi, en myndin gerist að lang-
mestu leyti á fimmta áratugnum.
Þeir handritshöfundurinn Schiffe
gæta þess einnig að fara ekki gróf-
lega yfir velsæmismörkin í kvik-
myndagerðinni, svo úr verður að
vísu öllu erótískari mynd en hjá Ku-
brick, en alls engin hneykslunar-
hella. Þetta er útvatnað efni. Leik-
urinn hjálpar upp á sakirnar. Irons
er viðunandi. Humbert er í mynd-
inni ósköp brjóstumkennanlegur,
nánast fyrirlitlegur „dónakall",
vantar háðsbitið í handritið sem vís-
aði Mason veginn. Griffith er lítið
afgerandi í örhlutverki móðurinnar
og Frank Langella tilþrifalaus í
bragðlausu hlutverki eljarans Quil-
tys. Sú sem stendur upp úr þessari
útgáfu er hin unga leikkona Domin-
ique Swain, sem fer oftast vel með
titilhlutverkið. Gefur því blæbrigði
og einstaka sinnum tilfinningu.
Samt sem áður er þessi fokdýra
vandræðaframleiðsla að mestu rúin
tilfinningalega og þar sjálfsagt
banamein hennar fundið.
Sæbjörn Valdimarsson
Landsátak um „íslenska fánann í öndvegi“
Útdráttur 17. júní 1999
Bandalag fslenskra skáta
Ford Focus 1.6i-16v kr. 1.600.000
6807 51642 74065
Palomino amerískt fellihýsi kr. 585.000
11731 24460 92366 113553 118958
12430 75234 107818 114728 119537
Ferð fyrir tvo í paradís Karíbahafsins
kr. 220.000
17651 47242 93923 101501 113877
35555 90349 96048 107166 119520
Vöruúttekt í Kringlunni kr. 100.000
2959 17290 42384 63966 89559
4063 22316 43694 64218 98893
5223 23215 44378 69232 102779
7563 24134 46865 69881 103710
9097 31540 46906 70447 103828
10303 37518 47966 73107 106362
10813 38160 48710 77868 111295
11253 38216 50680 82235 115165
13449 39491 54331 83571 118375
16377 41981 55775 84352 124286
Ferð fyrir einn tii Austurlanda kr. 250.000
26163 28390 46705 50932 92443
28255 32017 49906 86275 113555
Upplýsingar um vinninga í síma 562 3190
á skrifstofutíma.
Þökkum landsmönnum góðan stuðning.
Gleðilegt sumar