Morgunblaðið - 22.06.1999, Síða 33
MORGUNBLAÐIÐ
MENNTUN
ÞRIÐJUDAGUR 22. JÚNÍ 1999 33
Giangrecos
og Doyles
1. Námskeið í námskrárgerð
Dr. Michael Giangreco heldur
miðvikud. 30. júní eins dags nám-
skeið fyrir skólastjórnendur grunn-
skóla í Reykjavík, fagstjóra í sér-
kennslu, námsráðgjafa og fulltrúa
foreldra í foreldraráðum og for-
eldrafélögum í borginni.
Umfjöllunarefnið er námskrár-
gerð eftir kei-fí Eflingar. Það lýsir
hugmyndum og vinnubrögðum sem
beita má í grunnskólum til að koma
til móts við námsþarfir allra nem-
enda í skólanum, án tillits til fótlun-
ar þeirra. Námskeiðið er haldið á
vegum KHÍ, Landsamtakanna
Þroskahjálpar og Fræðslumiðstöðv-
ar Reykjavíkur. Það fer fram 1
Kennaraháskóla Islands við Stakka-
hlíð og er þátttökugjald 1.000 kr.
sem greiðast við innganginn. Nauð-
synlegt er að skrá sig vegna tak-
markaðs sætafjölda. Skráning er í
KHÍ kl. 8-16 virka daga, sími 563
3800. Upplýsingar veitir Gretar L.
Marinósson í síma 563 3832 eða 552
3077.
Námskeiðið er endurtekið á
Akureyri, í Verkmenntaskólanum,
mánudaginn 5. júlí á vegum Skóla-
þjónustu Eyþings og Þroskahjálpar
á Norðurlandi eystra. Þátttöku má
skrá á Skólaþjónustu Eyþings til
18. júní í síma 460 1480 og eftir það
á skrifstofu Þroskahjálpar á Norð-
urlandi eystra í síma 461 2279. Þátt-
tökugjald er 1.000 kr. Upplýsingar
gefur Ingibjörg Haraldsdóttir í
síma 462 2177.
2. Námskeið um þátttöku
fatlaðra neinenda í
framhaldsskólum
Dr. Mary Beth Doyle heldur mið-
vikud. 30. júní eins dags námskeið í
Kennaraháskóla Islands við Stakka-
hlíð fyrir skólameistara framhalds-
skóla, námsráðgjafa og sérkennara
í framhaldsskólum, kennara fatl-
aðra nemenda og foreldra þeirra.
Umfjöllunarefnið er vinnubrögð við
námskrárgerð, stuðningur og
kennsla fatlaðra nemenda í fram-
haldsskólum. Námskeiðið er haldið
á vegum KHÍ, menntamálaráðu-
neytisins og Landsamtakanna
Þroskahjálpar. Þátttökugjald er kr.
1.000 og nauðsynlegt er að skrá sig
vegna takmarkaðs fjölda sæta.
Ski-áning er í KHÍ kl. 8-16 virka
daga í síma 563 3800. Upplýsingar
veitir Gretar L. Marinósson í síma
563 3832 eða 552 3077.
Námskeiðið er endurtekið á
Akureyri mánudaginn 5. júlí í Verk-
menntaskólanum á Akureyri. Hægt
er að skrá þátttöku á Skólaþjónustu
Eyþings til 18. júní í síma 460 1480.
Eftir það má skrá þátttöku á skrif-
stofu Þroskahjálpar á Norðurlandi
eystra í síma 461 2279. Þátttöku-
gjald er 1.000 kr. Upplýsingar gefur
Ingibjörg Haraldsdóttir í síma 462
2177. Námskeiðið er haldið á vegum
Skólaþjónustu Eyþings og Þroska-
hjálpar á Norðurlandi eystra.
3. Fyrirlestur Giangrecos
Michael Giangreco heldur opinn
fyrirlestur um vinnubrögð í skóla
fyrir alia í Kennaraháskóla íslands
fímmtudaginn 1. júlí kl. 16.
4. Fjölbreyttar þarfír einstak-
linga og hópa
Michael og Mary Beth munu
kenna 2. júlí einn dag á námskeiði í
framhaldsnámi í sérkennslu við
KHI sem Hafdís Guðjónsdóttir
hefur umsjón með. Námskeiðið
fjallar um hvernig koma megi til
móts við fjölbreyttar þarfir ein-
staklinga og hópa í kennslu. Kenn-
urum sem áhuga hafa á efninu er
heimilt að taka þátt þótt þeir séu
ekki innritaðir í framhaldsnámið.
Námskeiðið er kl. 9-16 í Kennara-
háskóli íslands. Gjald, 1.000 kr.,
greiðist við innganginn. Skráning
er í KHÍ kl. 8-16 virka daga í síma
563 3800. Upplýsingar veitir Gret-
ar L. Marinósson í síma 563 3832
eða 552 3077.
Brautskráning frá Háskóla íslands fór fram í Laugardalshöll
Morgunblaðið/Halldór Kolbeins
DEILDARFORSETI hverrar deildar afhenti útskriftarnemum prdfskírteini.
alain
miklis
Aldrei fleiri
verið út-
skrifaðir
ALLS útskrifuðust 644 úr Háskóla íslands við hátíð-
lega athöfn á laugardag. Þar af voru 573 kandídatar og
71 lauk viðbótamámi. Þetta var í fimmta skipti sem út-
skriftarathöfnin fór fram í Laugardalshöll en salurinn í
Háskólabíói er orðinn allt of lítill fyrir hinn stóra hóp
útskrifaðra og ættingja þeirra. Aldrei hafa fleiri út-
skrifast úr Háskóla íslands.
Athöfnin var sett með því að Blásarakvintett Reykja-
víkur lék verk eftir Hándel. Því næst afhentu deildar-
forsetar nemendum prófskírteini.
Flestir útskrifuðust úr félagsvísindadeild
Guðfræðideildin var að venju fyrst í röðinni þar sem
hún er elsta deildin. Atta kandídatar voru útskrifaðir
og tveir djáknar. Læknadeildin var næst í röðinni og
þar voru fjörutíu útskrifaðir. Á eftir henni voru tólf
nemendum úr lyfjafræði lyfsala afhent skírteini. 77 út-
skrifuðust af námsbraut í hjúkrunarfræði og fjórtán í
sjúkraþjálfun. Lagadeildin útskrif-
aði 41 að þessu sinni og viðskipta-
og hagfræðideild 71. Alls voru 94
kandídatar útskrifaðir úr heim-
spekideild og tveir með viðbótar-
nám í táknmálstúlkun. Sjö útskrif-
uðust úr tannlæknadeild og 37 úr
verkfræðideild. Raunvísindadeild
útskrifaði 89 manns. Flestir útskrif-
uðust úr félagsvísindadeild eða 150.
Þar af voru 83 kandídatar og 67
sem luku viðbótarnámi.
Páll Skúlason, rektor Háskóla ís-
lands, tók í hönd hvers og eins nem-
anda sem útskrifaðist og ávarpaði
samkomuna að lokinni afhendingu
prófskírteina.
Að því loknu söng Háskólakórinn
tvö lög. Að venju söng kórinn því
næst „ísland ögram skorið“ við ljóð
Eggerts Olafssonar og samkomu-
gestir risu úr sætum og tóku undir
sönginn.
Hlaut hæstu einkunn
Kári Sigurðsson útskrifaðist með
BA-próf í hagfræði. Hann hlaut
ágætiseinkunnina 9,13, sem er
hæsta einkunn sem nokkur út-
skriftarnemi í hagfræði hefur hlotið
frá Háskóla íslands.
Að sögn Amalíu Skúladóttur,
skrifstofustjóra á rektorsskrifstofu,
hefur útskriftarathöfnin aldrei ver-
ið styttri ef miðað er við fjölda út-
skrifaðra. Athöfnin tók tvær
klukkustundir og fimmtán mínútur.
Um 2.500 manns vora í salnum.
Undanfarin fjögur ár hefur verið
útskrifað á þjóðhátíðardaginn og
hefur það mælst misjafnlega fyrir.
Þess vegna var ákveðið að færa
vorútskriftina á laugardag í miðjum
júní, sem að þessu sinni bar upp á
kvenréttindadaginn, 19. júní.
PÁLL Skúlason rektor tdk f hönd nemenda að af-
hendingu prófskírteina lokinni.
L0ND0N
Irá kr. 16.645
í SUMAR MEÐ HEIMSFERÐUM
Heimsferðir bjóða nú beint leiguflug vikulega til London í sum-
ar, en við höfum stórlækkað verðið fyrir íslenska ferðalanga til
þessarar mestu heimsborgar Evrópu. Nú getur þú valið um að
kaupa flugsæti eingöngu, flug og bíl eða valið um eitthvert ágæt-
is hótel Heimsferða í hjarta London. Brottför alla miðvikudaga í
sumar. Bókaðu strax og tryggðu þér lága verðið.
Verð kr. 16*645 Verðkr. 19.990
M.v. hjón með 2 börn, 2-11 ára, Flug og skattur.
flugsæti og skattar.
A
J|iP
HEIMSFERÐIR
Austurstræti 17, 2. hæð • sími 562 4600 • www.heimsferdir.is
lTnsan
Aðalstræti 9