Morgunblaðið - 23.06.1999, Síða 2
2 MIÐVIKUDAGUR 23. JÚNÍ 1999
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Morgunblaðið/Helgi Garðarsson
Jónsmessunótt
JÓNSMESSUNÓTT tekur við í dagslok og Jóns-
messa, messa Jóhannesar skírara, er á morgun, 24.
júní. I Sögu daganna eftir Árna Björnsson segir að
Jónsmessunótt sé ein af fjórum mögnuðustu nóttum
ársins, og fylgi henni ýmis þjóðtrú, meðal annars að
kýr tali og selir fari úr hömum sínum. Þessa nótt á
einnig að vera gott að leita töfragrasa og náttúru-
steina og Jónsmessudöggin þykir heilnæm til lækn-
inga ef menn velta sér í henni allsberir. Myndin var
tekin í miðnætursól við Héraðsflóa.
Skjávarp ehf. á Höfn færir út kvíarnar
Aformar að setja upp
25 senda í sumar
NYR sendir íyrir sjónvarpsstöðina Skjávarp ehf. á Höfn var settur upp í
Vestmannaeyjum á mánudagskvöld og eru tilraunasendingar þegar hafn-
ar, en fyrirtækið hyggst setja upp 25 senda víðs vegar á landinu í sumar.
Að sögn Brynjólfs Brynjólfssonar, starfsmanns Skjávarps, er gert ráð
fyrir að fólk í Vestmannaeyjum geti farið að nota stöðina fyrir helgi, en
fyrr í mánuðinum var settur upp sendir á Seyðisfirði.
Tíi pó-
skjálfti við
Grímsey
SKÖMMU fyrir klukkan 15 í
gær varð jarðskjálfti 35-40
km norður af Tjörnesi eða 25
km austur af Grímsey.
Skjálftinn mældist 3,2 á
Richter og er stærsti skjálfti
sem mælst hefur á svæðinu
um nokkra hríð. Nokkrir
minni skjálftar fylgdu í kjöl-
farið.
„Á næstunni verða settir upp
sendar í Mosfellsbæ, á ísafirði og á
Dalvík, en ráðgert er að setja upp
senda á 25 stærstu þéttbýlisstöð-
um utan Reykjavíkur fyrir haust-
ið,“ sagði Brynjólfur. „Reykjavík
er ekki inni í myndinni svona fyrst
um sinn.“
Textavarp
í haust
Að sögn Brynjólfs er Skjávarpið
hugsað sem almennt auglýsinga-
og upplýsingasjónvarp. Hann
sagði að tæknin byði upp á þann
möguleika að vera með textavarp
og að fyrirhugað væri að fara í
gang með það í haust eða þegar
allir sendarnir hefðu verið settir
upp.
Brynjólfur sagði að á Höfn
hefðu bæjarstjórnarfundir verið
sendir út á stöðinni á hverju
fimmtudagskvöldi eftir að þeim
lyki og að verið væri að athuga
möguleikana á því að gera slíkt hið
sama á fleiri stöðum. Hann sagði
að hefðbundin dagskrárgerð væri
ekki mikil, en að stöðin hefði þó
gert nokkra þætti.
Kostnaðurinn við Skjávarpið er
ekki mikill, að sögn Brynjólfs, en
það eru helst auglýsingatekjur
sem standa undir rekstri stöðvar-
innar. Stofnkostnaður er nokkur
en rekstrarkostnaðurinn er lítill,
enda eru aðeins tveir starfsmenn í
fullu starfi hjá fyrirtækinu.
Skjávarpið hefur verið með
starfsemi á Höfn í Homafirði í 5 til
6 ár, og þar eru höfuðstöðvar fyrir-
tækisins. Fyrr í þessum mánuði
var Ágúst Ólafsson, fyrrverandi
fréttamaður Stöðvar 2, ráðinn sem
framkvæmdastjóri fyrirtækisins,
en eigandi þess og upphafsmaður
er Sveinbjöm Imsland.
ISI sendir íþróttafélögum
um allt land tilmæli
Iþróttamenn
láti af munn-
tóbaksnotkun
ÍÞRÓTTA- og Ólympíusamband ís-
lands hefur beint þeim tilmælum til
þjálfara og forsvarsmanna íþrótta-
félaganna í landinu að þeir hafi
áhrif í þá átt að íþróttamenn og
þjálfarar láti af notkun munntó-
baks. Bréf með tilmælunum var
sent öllum íþróttafélögunum fyrir
skömmu.
Ellert B. Schram, forseti íþrótta-
og Ólympíusambands Islands, segir
að sambandið sé í samstarfi við Tó-
baksvamamefnd um þetta mál.
Nefndin hafi lagt til að varað sé við
notkun munntóbaks, en samkvæmt
upplýsingum sem hún hefur afiað
sér munu vera brögð að því að það
sé notað af íþróttafólki og þjálfur-
um.
Ellert segir að það fari ekki á
milli mála þegar menn sjái útbólgn-
ar efri varir á íþróttamönnum að
munntóbaksnotkun á sér stað innan
íþróttahreyfingarinnar.
Hann kveðst þeirrar hyggju að
dregið hafi úr tóbaksreykingum
meðal íþróttamanna enda fari þær
illa saman við árangur í íþróttum,
eins og munntóbaksnotkun.
„Við teljum að þjálfarar og
íþróttafólk í fremstu röð eigi að vera
fyrirmyndir og það sé til lýta að
þetta sé haft fyrir yngra fólki. Við
mælumst til þess að munntóbaks-
notkun verði útrýmt en við höfum að
sjálfsögðu ekkert agavald í þessu
máli. Eg hef þá skoðun að munntó-
baksnotkunin hafi aukist á síðustu
árum. Þetta eru áhrif utan úr heimi
og mun vera algengt í Svíþjóð og
Þýskalandi. Ég geri þó ekki ráð fyr-
ir því að menn séu að troða þessu
upp í sig í miðjum leik. En það er
ljóst að munntóbak er notað og það
er óviðeigandi og til vansa. Við vilj-
um fyrir okkar leyti vara fólk við því
og mælast til þess að það láti af
þessum ósið,“ sagði Ellert.
Morgunblaðið/Sverrir
Prestastefnan hafin
HELGIGÖNGUR
einkenna presta-
stefnuna sem hófst á
Kirkjubæjarklaustri
í gær. Hér má sjá hr.
Karl Sigurbjömsson
biskup ávarpa
göngumenn og hon-
um til aðstoðar era
sr. Þorvaldur Karl
Helgason biskupsrit-
ari, sr. Sigurður
Árni Þórðarson,
verkefnisstjóri kirkjunnar, og
Jónas Þórisson, framkvæmda-
sljóri Hjálparstarfs
kirkjunnar. Þá má
sjá nýtt merki þjóð-
kirkjunnar sem
kynnt var á presta-
stefnunni í gær en
Jóna Sigríður Þor-
leifsdóttir hannaði
merkið. Það á að
sýna „skipið með
krossinn sem mast-
ur, á öldum hafsins,
eða skírnarinnar".
■ Helgigöngur/12
aagskra
Verðlaunakrossgáta
► Þættir íþróttir
► Kvikmyndir Fólk
Hálfur mánuður af
dagskrá frá
míðvikudegi til
fimmtudags
Morgun-
blaðinu í
dag fylgir
12 síðna
blað frá
Kringl-
unni,
„Krlnglu-
kast“.
Blaðinu er
drelftá
hSfuð-
boryar-
svæðinu.
4
8 SfeWJi
4 SfeUli
••••••••••••••••••••••
Pétur Pétursson spáir í ís-
landsmeistarabaráttuna / C2
Guðrún Arnardóttir
missir af „draumamótinu"
á Bislett / C4
► í Verinu í dag er fjallað um vinsæld-
ir íslenzkrar sfldar í Finnlandi. Fréttir
eru af aflabrögðum og sagt frá vinnslu
á gulllaxi f maming úti á sjó og tillög-
um um veiðar á sandsfli í Norðursjón-
um.
Pennavinir
Safnarar