Morgunblaðið - 23.06.1999, Side 11

Morgunblaðið - 23.06.1999, Side 11
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 23. JÚNÍ 1999 11 FRÉTTIR David Architzel, yfírmaður varnarliðsins, um Norður-Víking ‘99 Æfíngar taki mið af raun verulegum aðstæðum VARN ARÆFIN GIN Norður-Vík- ingur ‘99 tekur mið af raunveru- legum aðstæðum er upp gætu komið hér á landi eins og staðan er í heiminum í dag. Yfirmaður varnarliðsins á Keflavíkurflug- velli, David Architzel flotafor- ingi, segir að þetta sé æfing varnarviðbragða gegn alþjóðleg- um hryðjuverkum sem eigi að tryggja öryggi almenn- ings og mikilvægra staða. David Architzel segir að æfingin sé mikilvægur liður í því að treysta sam- band varnarliðsins við rík- isstjórn Islands. Æfingin sýni fram á að vamarliðið sé tilbúið til að veija land- ið ef hætta steðji að. Þátt- taka Landhelgisgæslunn- ar og víkingasveitar Rík- islögreglustjóra sé til þess fallin að styrkja samvinnu þeirra og varnarliðsins um vamir íslands, í þessu tilviki ef hryðjuverkahóp- ur ógnaði öryggi landsins. Architzel segir að ekki sé hægt að vanmeta gildi og mikilvægi þessa æf- inga fyrir vamir landsins og vamarsamstarf NATO-þjóða. Annað hvert ár fengist þetta tækifæri. „Ekki er hægt að vanmeta mikilvægi þéss að fá allan þennan herafla til lands, tilbúinn til aðgerða ef þörf krefur, og fá sfðan þessa mikil- vægu æfingu í samvinnu og skipulagningu sem varnaræfingin hefur í för með sér,“ sagði Architzel. Samstarf varnarliðsins og ríkisstjómar Annar mikilvægur þáttur æf- ingarinnar er, að sögn Architzel, að það gefst tækifæri á að efla samband varnarliðsins og ríkis- stjórnar íslands. „Við höfum okk- ar skyldum að gegna við ísland samkvæmt varnarsamningnum frá árinu 1951. Við höldum þess- ar æfingar á tveggja ára fresti til að sýna fram á að við erum til- búnir til að veija Iandið og til- búnir að mæta þeim hættum sem steðja að hveiju sinni, og í þetta sinn er óvinur æfingarinnar öfgasinnaðir hryðjuverkjahóp- ar,“ sagði Architzel. Að þessu sinni er sjónum beint að raun- vemlegum aðstæðum sem upp gætu komið í hvaða landi sem er. „Hryðjuverkahópurinn í æfing- unni er öfgasinnaður hópur sem hefur sagt skilið við friðsæl um- hverfissamtök sem vi^ja vel. Skilaboðin frá þessum samtökum eru siðan að þau styðji ekki þennan hóp, hann sé hryðju- verkahópur og ekki hluti af þeirra samtökum. Ríkisstjórn Is- lands hefur þá fengið viðvömn um þennan öfgahóp. Varnarliðið, að kröfu ríkisstjórnar Islands, fer þá í viðbragðsstöðu, tilbúið til aðgerða gegn hryðjuverkahópn- um,“ sagði Architzel þegar hann útskýrði skipulag æfingarinnar. Architzel segir að þessar að- stæður, er upp koma í æfingunni, endurspegli mjög vel aðstæður er upp gætu komið í hinum raun- vemlega heimi, fremur heldur en varnir gegn árás óvinaríkis inn í Is- land, en það hefur verið skipulag æfinga síðustu ára. „Það að taka mið af raunvemlegum aðstæð- um hjálpar okkur að hafa það að augnamiði að æfingin er hluti af hinu raunvemlega lífi og nútímasamfélagi, en ekki eingöngu „æfing“,“ sagði Architzel. Þátttaka Gæslunnar mikilvæg Hann segir að einnig sé mikilvægt að fá tæki- færi til að æfa með Landhelgisgæslunni, sem hefur ekki tekið þátt í siðustu æfingum en gegnir nú lykilhlutverki í leitar- og björgunarað- gerðum æfingarinnar. Sveitir frá Þýskalandi og Hollandi fá einnig góða æfingu, en það er hlut- verk NATO-þjóða að æfa og þjálfa saman til að efla samstarf þeirra inn- an NATO, að sögn Architzel. Að lokum sagði Architzel að stór þáttur í æfingunni í ár sé hlutdeild rfldsstjórnar Islands í aðgerðum allt frá byijun. „Rflds- stjórnin er aðili að þróun að- gerða, tekur ákvörðun með okk- ur um hvernig aðgerðir fara fram og er í nánu samstarfi við varnarliðið og aðrar sveitir allt frá upphafi til enda,“ sagði Architzel. Morgunblaðið/Jón Svavarsson DAVID Architzel, flotaforingi varnarliðsins á Keflavíkurflugvelli. Lúgusalar mótmæla McDonald’s-auglýs- ingum á sumarflöskum Coca-cola Vilja ekki auglýsa keppi- nauta sína Taka ekki inn vörur með auglýsingum keppinauta EIGENDUR Aktu - taktu-sölu- skálans við Skúlagötu hafa skrifað Vífilfelli hf. erindi með ósk um að fyrirtækið framleiði hálfs lítra og tveggja lítra flösk- ur af kóki og diet-kóki án aug- lýsinga fyrir keppinaut fyrir- tækisins. Kristján Þór Sveins- son, eigandi Aktu - taktu, segir að fyrirtækið sé ósátt við að vera látið dreifa auglýsingum fyrir keppinauta sína með svokölluðum sumarflöskum Coca-cola og hafi ákveðið að hætta að taka inn vörur með auglýsingum fyrir keppinaut- ana, þ.e.a.s. sumarflöskur Coca- cola. Kristján sagðist hafa haft samband við kollega sína sem reka staði eins og Staldrið, Sundanesti og fleiri í því skyni að kanna hvort þeir vildu bind- ast samtökum um mótmæli af þessu tagi. Pítsastaðir bindast samtökum Hann segir að nokkrir pítsa- staðir hafi áður bundist samtök- um á svipaðan hátt til að mót- mæla auglýsingum fyrir Dom- ino’s-pítsur á sumarflöskunum. Arangur þeirra mótmæla hafi orðið sá að Vífilfell hafi farið að framleiða fyrir þá ómerktar tveggja lítra flöskiu- af kóki og diet-kóki. I bréfi sem Kristján og Sveinn Pálsson, meðeigandi hans, hafa sent fyrirtækjum sem stunda lúgusölu á veiting- um segir að herferð Vífilfells birtist þannig að fyrirtækin sem lökust hafa kjörin hjá Vífil- felli eigi að taka að sér að aug- lýsa upp keppinauta sína, þá sem best hafa kjörin hjá Vífil- felli.“ „Eins og allir vita gengur leikurinn út á það að prentaðar eru auglýsingar frá fyrirtækjum eins og MacDonald’s, American Style, Subway og Domino’s á söluvörur Vífilfells og síðan eiga almennir kaupmenn að sjá um dreifingu á þessum „auglýsing- um + söluvörum + happdrætt- ismiðum". Auglýsendumir sjálf- ir eiga ekkert að koma nálægt dreifingunni, enda selja þeir gosdrykki úr vélum en ekki í pakkningum frá Vífilfelli. Þeir eiga bara að taka við viðskipta- vinunum þegar auglýsingarnar eru famar að virka,“ segir í bréfinu. „Það sjá auðvitað allir sem eitthvert vit hafa á markaðsmál- um að „svona gerir maður ekki“, segir í bréfinu. „Við von- um því að sem flestir segi núna: NEI TAKK, við seljum ekki lengur vömr merktar keppi- nautum okkar. Látum ekki valta yfir okkur meira.“ Kristján sagðist í samtali við Morgunblaðið ekki vera að mót- mæla verðlaunaleiknum sem slíkum heldur því að vera látinn dreifa auglýsingum fyrir keppi- nauta sína. VILBORG Traustadóttir, formaður MS-félagsins, og Gyða J. Ólafs- dóttir, framkvæmdastjóri dagvistar, taka fyrstu skóflustunguna að viðbyggingunni. Byggt við dagvist MS-félags íslands FRAMKVÆMDIR eru hafnar við viðbyggingu dagvistar MS-félags íslands að Sléttuvegi 5. Fyrsta skóflustunga var tekin 3. júní og áætluð verklok em um miðjan janú- ar á næsta ári. Eigið húsnæði félagsins var vígt 1995. „Starfsemin hefur vaxið og dafnað og smám saman sprengt hús- næðið utan af sér,“ segir í fréttatil- kynningu. ,A-ðstaða verður fyrir lækni, félagsráðgjafa, smærri fundi og sjálfshjálparhópa í nýju álmunni. Með tilkomu viðbyggingarinnar flyst starfemi félagsins alfarið þangað og rýmkar við það um dagvistina. Hvíldarherbergjum fjölgar, baðað- staða verður bætt og almennt rými eykst. Matsalur mun stækka umtals- vert og munar þar miklu þar sem oft er þröng á þingi í honum. Hægt verður að loka alveg milli félagsað- stöðu og dagvistar þannig að um- gangur tengdur félaginu mun ekki trufla starf dagvistar og öfugt.“ Ágóði af sölu spilastokka MS fé- lagsins rennur alfarið til byggingar- innar og í fréttatilkynningu segir að sala hafi farið fram úr björtustu vonum. í byggingamefnd eru Sveinn Frímannsson tæknifræðingur, for- maður, Vilborg Traustadóttir, for- maður MS-félagsins, og Gyða J. Ólafsdóttir, framkvæmdastjóri dag- vistar. Les allar tegundir greiðslukorta Er með lesara fyrir sem notuð eru á Islandi. snjallkort og segulrandarkort. Hliöasmára 10 Kópavogi Simi 544 5060 Fax 544 5061 Léítur og ineftfærilegur GSM posi ineð iniibyggðiiiii prentara Hraðvirkur hljóðlátur prentari.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.