Morgunblaðið - 23.06.1999, Qupperneq 11
MORGUNBLAÐIÐ
MIÐVIKUDAGUR 23. JÚNÍ 1999 11
FRÉTTIR
David Architzel, yfírmaður varnarliðsins, um Norður-Víking ‘99
Æfíngar taki mið af raun
verulegum aðstæðum
VARN ARÆFIN GIN Norður-Vík-
ingur ‘99 tekur mið af raunveru-
legum aðstæðum er upp gætu
komið hér á landi eins og staðan
er í heiminum í dag. Yfirmaður
varnarliðsins á Keflavíkurflug-
velli, David Architzel flotafor-
ingi, segir að þetta sé æfing
varnarviðbragða gegn alþjóðleg-
um hryðjuverkum sem eigi að
tryggja öryggi almenn-
ings og mikilvægra staða.
David Architzel segir
að æfingin sé mikilvægur
liður í því að treysta sam-
band varnarliðsins við rík-
isstjórn Islands. Æfingin
sýni fram á að vamarliðið
sé tilbúið til að veija land-
ið ef hætta steðji að. Þátt-
taka Landhelgisgæslunn-
ar og víkingasveitar Rík-
islögreglustjóra sé til þess
fallin að styrkja samvinnu
þeirra og varnarliðsins
um vamir íslands, í þessu
tilviki ef hryðjuverkahóp-
ur ógnaði öryggi landsins.
Architzel segir að ekki
sé hægt að vanmeta gildi
og mikilvægi þessa æf-
inga fyrir vamir landsins
og vamarsamstarf
NATO-þjóða. Annað
hvert ár fengist þetta
tækifæri. „Ekki er hægt
að vanmeta mikilvægi
þéss að fá allan þennan
herafla til lands, tilbúinn
til aðgerða ef þörf krefur,
og fá sfðan þessa mikil-
vægu æfingu í samvinnu
og skipulagningu sem
varnaræfingin hefur í för með
sér,“ sagði Architzel.
Samstarf varnarliðsins
og ríkisstjómar
Annar mikilvægur þáttur æf-
ingarinnar er, að sögn Architzel,
að það gefst tækifæri á að efla
samband varnarliðsins og ríkis-
stjórnar íslands. „Við höfum okk-
ar skyldum að gegna við ísland
samkvæmt varnarsamningnum
frá árinu 1951. Við höldum þess-
ar æfingar á tveggja ára fresti til
að sýna fram á að við erum til-
búnir til að veija Iandið og til-
búnir að mæta þeim hættum sem
steðja að hveiju sinni, og í þetta
sinn er óvinur æfingarinnar
öfgasinnaðir hryðjuverkjahóp-
ar,“ sagði Architzel. Að þessu
sinni er sjónum beint að raun-
vemlegum aðstæðum sem upp
gætu komið í hvaða landi sem er.
„Hryðjuverkahópurinn í æfing-
unni er öfgasinnaður hópur sem
hefur sagt skilið við friðsæl um-
hverfissamtök sem vi^ja vel.
Skilaboðin frá þessum samtökum
eru siðan að þau styðji ekki
þennan hóp, hann sé hryðju-
verkahópur og ekki hluti af
þeirra samtökum. Ríkisstjórn Is-
lands hefur þá fengið viðvömn
um þennan öfgahóp. Varnarliðið,
að kröfu ríkisstjórnar Islands,
fer þá í viðbragðsstöðu, tilbúið til
aðgerða gegn hryðjuverkahópn-
um,“ sagði Architzel þegar hann
útskýrði skipulag æfingarinnar.
Architzel segir að þessar að-
stæður, er upp koma í æfingunni,
endurspegli mjög vel aðstæður
er upp gætu komið í hinum raun-
vemlega heimi, fremur
heldur en varnir gegn
árás óvinaríkis inn í Is-
land, en það hefur verið
skipulag æfinga síðustu
ára. „Það að taka mið af
raunvemlegum aðstæð-
um hjálpar okkur að
hafa það að augnamiði
að æfingin er hluti af
hinu raunvemlega lífi og
nútímasamfélagi, en ekki
eingöngu „æfing“,“ sagði
Architzel.
Þátttaka Gæslunnar
mikilvæg
Hann segir að einnig
sé mikilvægt að fá tæki-
færi til að æfa með
Landhelgisgæslunni, sem
hefur ekki tekið þátt í
siðustu æfingum en
gegnir nú lykilhlutverki
í leitar- og björgunarað-
gerðum æfingarinnar.
Sveitir frá Þýskalandi og
Hollandi fá einnig góða
æfingu, en það er hlut-
verk NATO-þjóða að æfa
og þjálfa saman til að
efla samstarf þeirra inn-
an NATO, að sögn
Architzel.
Að lokum sagði Architzel að
stór þáttur í æfingunni í ár sé
hlutdeild rfldsstjórnar Islands í
aðgerðum allt frá byijun. „Rflds-
stjórnin er aðili að þróun að-
gerða, tekur ákvörðun með okk-
ur um hvernig aðgerðir fara
fram og er í nánu samstarfi við
varnarliðið og aðrar sveitir allt
frá upphafi til enda,“ sagði
Architzel.
Morgunblaðið/Jón Svavarsson
DAVID Architzel, flotaforingi varnarliðsins á
Keflavíkurflugvelli.
Lúgusalar mótmæla McDonald’s-auglýs-
ingum á sumarflöskum Coca-cola
Vilja ekki
auglýsa keppi-
nauta sína
Taka ekki inn vörur með
auglýsingum keppinauta
EIGENDUR Aktu - taktu-sölu-
skálans við Skúlagötu hafa
skrifað Vífilfelli hf. erindi með
ósk um að fyrirtækið framleiði
hálfs lítra og tveggja lítra flösk-
ur af kóki og diet-kóki án aug-
lýsinga fyrir keppinaut fyrir-
tækisins. Kristján Þór Sveins-
son, eigandi Aktu - taktu, segir
að fyrirtækið sé ósátt við að
vera látið dreifa auglýsingum
fyrir keppinauta sína með
svokölluðum sumarflöskum
Coca-cola og hafi ákveðið að
hætta að taka inn vörur með
auglýsingum fyrir keppinaut-
ana, þ.e.a.s. sumarflöskur Coca-
cola.
Kristján sagðist hafa haft
samband við kollega sína sem
reka staði eins og Staldrið,
Sundanesti og fleiri í því skyni
að kanna hvort þeir vildu bind-
ast samtökum um mótmæli af
þessu tagi.
Pítsastaðir bindast
samtökum
Hann segir að nokkrir pítsa-
staðir hafi áður bundist samtök-
um á svipaðan hátt til að mót-
mæla auglýsingum fyrir Dom-
ino’s-pítsur á sumarflöskunum.
Arangur þeirra mótmæla hafi
orðið sá að Vífilfell hafi farið að
framleiða fyrir þá ómerktar
tveggja lítra flöskiu- af kóki og
diet-kóki.
I bréfi sem Kristján og
Sveinn Pálsson, meðeigandi
hans, hafa sent fyrirtækjum
sem stunda lúgusölu á veiting-
um segir að herferð Vífilfells
birtist þannig að fyrirtækin
sem lökust hafa kjörin hjá Vífil-
felli eigi að taka að sér að aug-
lýsa upp keppinauta sína, þá
sem best hafa kjörin hjá Vífil-
felli.“
„Eins og allir vita gengur
leikurinn út á það að prentaðar
eru auglýsingar frá fyrirtækjum
eins og MacDonald’s, American
Style, Subway og Domino’s á
söluvörur Vífilfells og síðan eiga
almennir kaupmenn að sjá um
dreifingu á þessum „auglýsing-
um + söluvörum + happdrætt-
ismiðum". Auglýsendumir sjálf-
ir eiga ekkert að koma nálægt
dreifingunni, enda selja þeir
gosdrykki úr vélum en ekki í
pakkningum frá Vífilfelli. Þeir
eiga bara að taka við viðskipta-
vinunum þegar auglýsingarnar
eru famar að virka,“ segir í
bréfinu.
„Það sjá auðvitað allir sem
eitthvert vit hafa á markaðsmál-
um að „svona gerir maður
ekki“, segir í bréfinu. „Við von-
um því að sem flestir segi núna:
NEI TAKK, við seljum ekki
lengur vömr merktar keppi-
nautum okkar. Látum ekki valta
yfir okkur meira.“
Kristján sagðist í samtali við
Morgunblaðið ekki vera að mót-
mæla verðlaunaleiknum sem
slíkum heldur því að vera látinn
dreifa auglýsingum fyrir keppi-
nauta sína.
VILBORG Traustadóttir, formaður MS-félagsins, og Gyða J. Ólafs-
dóttir, framkvæmdastjóri dagvistar, taka fyrstu skóflustunguna að
viðbyggingunni.
Byggt við dagvist
MS-félags íslands
FRAMKVÆMDIR eru hafnar við
viðbyggingu dagvistar MS-félags
íslands að Sléttuvegi 5. Fyrsta
skóflustunga var tekin 3. júní og
áætluð verklok em um miðjan janú-
ar á næsta ári.
Eigið húsnæði félagsins var vígt
1995. „Starfsemin hefur vaxið og
dafnað og smám saman sprengt hús-
næðið utan af sér,“ segir í fréttatil-
kynningu. ,A-ðstaða verður fyrir
lækni, félagsráðgjafa, smærri fundi
og sjálfshjálparhópa í nýju álmunni.
Með tilkomu viðbyggingarinnar flyst
starfemi félagsins alfarið þangað og
rýmkar við það um dagvistina.
Hvíldarherbergjum fjölgar, baðað-
staða verður bætt og almennt rými
eykst. Matsalur mun stækka umtals-
vert og munar þar miklu þar sem oft
er þröng á þingi í honum. Hægt
verður að loka alveg milli félagsað-
stöðu og dagvistar þannig að um-
gangur tengdur félaginu mun ekki
trufla starf dagvistar og öfugt.“
Ágóði af sölu spilastokka MS fé-
lagsins rennur alfarið til byggingar-
innar og í fréttatilkynningu segir að
sala hafi farið fram úr björtustu
vonum.
í byggingamefnd eru Sveinn
Frímannsson tæknifræðingur, for-
maður, Vilborg Traustadóttir, for-
maður MS-félagsins, og Gyða J.
Ólafsdóttir, framkvæmdastjóri dag-
vistar.
Les allar tegundir greiðslukorta
Er með lesara fyrir
sem notuð eru á Islandi.
snjallkort og segulrandarkort.
Hliöasmára 10
Kópavogi
Simi 544 5060
Fax 544 5061
Léítur og ineftfærilegur
GSM posi
ineð iniibyggðiiiii prentara
Hraðvirkur hljóðlátur prentari.