Morgunblaðið - 23.06.1999, Qupperneq 20

Morgunblaðið - 23.06.1999, Qupperneq 20
20 MIÐVIKUDAGUR 23. JÚNÍ 1999 MORGUNBLAÐIÐ LANDIÐ Yfír tuttugu þúsund börn hafa dvalið í skólabúðunum í Reykjaskóla í Hrútafírði Tímamót er stjórnendur láta af störfum Hvammstanga - Skólabúðir hafa veríð reknar á Reykjaskóla frá árínu 1988. Tímamót urðu þar í vor, þegar hjónin Bjarni Aðal- steinsson og Guðrún Krisljáns- dóttir luku starfí sínu við skóla- stofnunina eftir áratuga störf og siðustu ár við stjórnun skólabúð- anna. Skólasetur hefur veríð á Reykjatanga frá árinu 1931, einn héraðsskólanna, sem reknir voru vítt um landið. Tími þessara skóla leið undir lok og á Reykja- skóla var tekið upp nýtt rekstr- arform árið 1988. Fyrirmyndin var sótt til Norðurlanda, en var löguð að aðstæðum á Reykja- skóla. Þá höfðu þau hjón starfað við skólann allt frá árinu 1963 og Bjarni sem skólastjóri frá árínu 1981. Þau eru bæði Bolvíkingar að uppruna. Er komið var að Reykjaskóla nýlega voru þar um 70 nemendur úr 7. bekk frá Húsavík, af Sval- barðseyrí og úr Eyjafirði. Þetta var siðasti starfsdagur Bjarna og hann var beðinn að segja frá reynslunni af skóiabúðunum. Hann sagði að í skólabúðirnar hefðu komið um 21-22 þúsund böm á þessu 11 ára túnabili. Þrír kennarar starfa við búðirnar, auk skólastjóra, en fjórir starfs- menn í eldhúsi og við ræstingar. Börnin koma frá skólum vítt um land, bæði þéttbýli og dreifbýli. Bjarni segir að dvalarkostnað- ur fyrir hvert barn hafi verið 5.500 krónur á viku, þ.e. fyrir fæði og umhirðu. Laun og annar kostnaður er greiddur af rekstr- araðilum skólabúðanna, að vem- legum hluta úr jöfnunarsjóði sveitarfélaga. Mörg dæmi em um að einstök sveitarfélög greiði niður dvalar- og ferðakostnað barnanna og einnig dæmi um að skólarnir standi fyrir fijálsri íjáröflun til verkefnisins. Með börnunum em alltaf kennarar, sem þekkja vel til hópsins. Börnin koma um há- degi á mánudag og fara um há- degi á föstudag. Færð og veður getur raskað áætlunum, en það gerist sjaldan. Byggðasafnið notað til kennslu Dagskrá á skóiabúðadögum er fjölbreytt og skiptist í nokkur þema; Bátsferðir og fræðsla tengd þeim, veðurfræði og um- hverfísleiki, fjöruferð, með vinnu á rannsóknarstofu og greiningu fjörudýra og gróðurs, byggða- safnsdvöl, íþróttadagskrá og sundiðkun. Leitast er við að nýta aðstæður á Reykjatanga sem best. Byggðasafn Húnvetninga og Strandamanna er á Reykjatanga og er óspart notað til kennslu og fróðleiksmiðlunar. Þar er há- karlaskipið Ófeigur hinn besti vettvangur. Bjarni segir frá sjó- sókn til forna, nýtingu sjáyarafla og lífi fólks á ströndinni. f gömlu baðstofunni segir Guðrún frá mannlífi á heimilum, matarvenj- um og borðsiðum. Hún sýnir úr- vinnslu ullar með tilheyrandi búnaði og segir frá gildi hennar Morgunblaðið/Karl Sigurgeirsson BJARNI Aðalsteinsson skólasfjóri framan við bóknámshúsið. GUÐRIJN Krisljánsdóttir skýrir ullarvinnslu liðinna tíma í baðstofunni í Byggðasafninu. fyrir allt mannlíf áður fýrr. Þannig eru aðstæður í Byggða- safninu nýttar og áhugi unga fólksins ótvíræður. í fþróttatíma er leitast við að allir séu með og allir geti unnið. Dagurinn líður, en enginn tími er fyrir iðjuleysi. Eftir kvöldverð er undirbúin kvöldvaka, sem er fyrsta kvöldið unnin af heima- fólki, en hin kvöldin af nemend- um og kennurum þeirra. Oft fyrsta ferðin að heiman Með fjörutíu barna hópi frá Borgarhólsskóla á Húsavík voru kennaramir Margrét Samsonar- dóttir, Guðmundur Friðgeirsson og Sigríður Jónsdóttir. Margrét sagði börn úr skóla sínum hafa sótt skólabúðirnar í þessi ellefu ár. Kostir við slíka dvöl væri ótvíræður. Oft væm börn að fara í fyrsta sinn að heiman, dvölin líktist hefðbundinni dvöl á heimavist. Börain kynntust betur með því að dvelja saman þennan tíma og lærðu að taka tillit til hver ann- ars. Þá væri aðstaða í sumarbúð- unum ágæt og maturinn frábær. Margrét sagðist vonast til að starfsemi skólabúðanna legðist ekki af þótt núverandi stjórnend- ur fæm af vettvangi. Aðspurður sagði Bjarni að sér fyndist kominn tími til að hætta störfum á Reykjaskóla. Þau hjón fæm af vettvangi með söknuði. Um framtíðina vill hann ekki ræða, en eflaust lætur þessi reyndi skólamaður ekki iðjuleys- ið grípa sig. Ljóst er að þau hjón skilja eftir sig skarð í samfélaginu við Hrútafjörð. Bjarni hefur setið í sveitarstjórn Staðarhrepps um árabii og Guðrún hefur meðal annarra starfa verið kirkju- organisti í Prestbakkasókn. Bjami sagði að á þessum tíma- mótum væri sér efst í huga þakk- læti til alls samstarfsfólks á Reykjaskóla í gegnum tíðina. Finnbogi G. Lárusson hættir eftir 65 ára setu í sóknarnefnd Hellnakirkju Meðhjálpari, hringj ari, organisti og kórstjóri í áratugi Hellissandi - Með sanni má segja að starfs- ferill Finnboga G. Lárussonar á Laugar- brekku fyrir kirkju sína á Hellnum sé í hæsta máta óvenjulegur orðinn. Finnbogi sat í sóknamefnd Hellnakirkju í 65 ár og þar af var hann formaður nefndarinnar í 61 ár. Hann lét ekki þar við sitja, heldur var hann safnaðarfulltrúi í 28 ár, meðhjálpari kirkjunnar í 12 ár og hringjari í 28 ár. Á þeim árum sem hann hefur verið í forystu safnaðarins hafa ekki fallið úr nema í mesta lagi tveir héraðsfundir sem hann hefur ekki setið. Afskiptum Finnboga af kirkjulegu starfi í Hellnasókn var ekki lokið með þessu einu. Hann var einn af fyrstu mönnum í Breiðu- víkurhreppi til að eignast harmoniku og undi illa organista og kórleysi ldrkjunnar. Því lagði hann á sig að læra sjálfur á harm- oníum og æfa kirkjukórinn með aðstoð Sig- urðar Birkis söngmálastjóra. Þetta gerði hann í 47 ár, sat við hljóðfæri kirkjunnar og stjómaði söngnum og söng sjálfur með. Þá var hann áður í tíu ár búinn að taka þátt í því söngstarfi sem við kirkj- una var. Stóð fyrir kirkjubyggingu og naut aðstoðar Kjarvals Þar sem Finnbogi var formaður safnaðar- ins kom það í hans hlut að standa fyrir nýrri kirkjubyggingu á Hellnum árið 1945. Er það stórmerldleg saga hvemig honum tókst það með ódýrum hætti og aðstoð Jóhannesar Kjarvals listmálara, vinar síns. En honum fylgdi hann ævinlega á ferðum hans á Snæ- fellsnesi. Hann hefur sinnt þeirri kirkju síðan og hugsað um hana eins og sjáaldur auga síns. Kirkjan og kirkjustæðið á Hellnum er talið eitt það fegursta sem finnst og leggur marg- ur þangað leið sína. Fyrirmynd Hellna- kirkju er að ýmsu leyti kirkjan á Þingeyri við Dýrafjörð sem Rögnvaldur Ólafsson teiknaði. Á þessum langa ferli sínum hefur Finn- bogi þurft að vera í sambandi við sex bisk- upa og starfsmenn þeirra í Reykjavík, fjölda prófasta og hefur orðið flestum prestum prófastsdæmisins gjörkunnugur sem hrifist hafa af ósérhlífnu og fómfúsu starfi hans. Samskipti hans við kirkjuna og prestana hafa verið svo náin, og framganga hans virðuleg, að sumir hafa ósjálfrátt orðið til að kalla hann sr. Finnboga á Hellnum og hafa ekki vitað betur. Slíkrar virðingar hefur hann notið innan kirkjunnar. Forsöngvarí í kveðjuhófinu Nú hefur Finnbogi látið af störfum enda verður hann níræður í haust. Af því tilefni var honum haldið samsæti á Hellnum á sunnudag og þökkuð löng og mikil störf fyr- ir kirkju og söfnuð. Hófst það með helgi- stund í Hellnakirkju, þar sem Finnbogi gegndi bæði hlutverki meðhjálpara og hringjara og var forsöngvari í þeim sálmum sem sungnir vom að gömlum sið. Að helgi- stundinni lokinni þökkuðu kirkjugestir Morgunblaðið/Ólafur .Jens Sig. FINNBOGI G. Lámsson á Laugar- brekku á tröppum Hellnakirkju. Fyrir kirkju sína og samfélag hefur hann unnið af heilum hug en hann lætur nú af störfum, níræður að aldri, eftir 65 ára setu í sóknarnefnd. Finnboga fyrir störf hans með hlýju og inni- legu faðmlagi á kirkjutröppum. í kaffisamsætinu sem Kristinn Kiástjáns- son, kennari frá Bárðarbúð, stjórnaði flutti núverandi formaður safnaðarins, Reynir Bragason á Laugarbrekku, þakkir frá söfn- uðinum og Guðrún Bergmann flutti þakkir frá Snæfellsássamfélaginu á Hellnum. Það er einn af höfuðkostum Finnboga að hann gerir aldrei ágreining við aðra útaf trúmál- um en vinnur traust þeirra og trúnað með vináttu og kærleika. Þannig tilkynnti Guð- rún, um leið og hún afhenti Finnboga gjöf frá samfélaginu í Brekkubæ, að þau hjónin hyggðust vera í sömu kirkju og Finnbogi framvegis og gerast sóknarbörn Hellna- kirkju. Fleiri ræður vom fluttar og Finn- boga færðar gjafir í tilefni þessara merku tímamóta. Hjálpaði mönnum og málleysingjum í veikindum þeirra Störf Finnboga fyrir Hellnakirkju era að- eins einn þáttur af mörgum í lífsstarfi hans því hann hefur alla sína tíð verið að vinna þessu samfélagi og byggð á Hellnum allt það gagn sem hann hefur getað og raunar gamla Breiðuvíkurhreppi öllum. Jafnframt búskap sínum á Laugarbrekku. Þannig var hann vörslumaður lyfja fyrir héraðslækninn og dýralækninn áratugum saman, sótti námskeið og fékk leiðbeiningar um hvemig ætti að hjálpa mönnum og málleysingjum í veikindum þeirra. Langt lífsstarf Finnboga er því vægast sagt orðið óvenjulegt í hæsta máta og ekki að undra að fólki væru þakkir í huga á Hellnum sl. sunnudag, því enn mætti halda áfram að telja upp hvemig hann hefur lagt sig í lima við að verða samtíð sinni og um- hverfi að liði. Finnbogi var giftur Lóu Fanneyju Jó- hannesdóttur sem studdi mann sinn í hverju sem hann tók sér fyrir hendur. Konu sína missti hann fyrir tveimur árum. Þau áttu ekki böm saman en stjúpsyni tvo ól Finn- bogi upp, syni Fanneyjar. Eru það Reynir Bragason, bóndi á Laugarbrekku og núver- andi formaður sóknarnefndar á Hellnum, og Helgi Þorkelsson sem búsettur er í Reykja- vík. Þrátt fyrir háan aldur er Finnbogi enn- þá vel ern og við ágæta heilsu til líkama og sálar.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.