Morgunblaðið - 23.06.1999, Page 22
22 MIÐVIKUDAGUR 23. JÚNÍ 1999
MORGUNBLAÐIÐ
^ - ’S>
G FlN^S
Skólavörðustíg 35,
sími 552 3621.
Guðmundur Rafn
Geirdal
skólastjóri og félagsftæðingur
I nýsamþykktum lögum frá
Alþingi er enn við lýði nánast
tvöfalt misvægi atkvæða. Það
| þýðir að ef einn kjósandi er með j
lögheimiliáeinumstaðá landinu,
j þá gildir hans atkvæði næstum j
helmingi minna en atkvæði ein-
hvers annars staðar á landinu. I j
65. grein Stjómarskrárinnar segir j
að allir skulu vera jafnir fyrir lög-
um. Því legg ég til að forseti ís- í
I lands nýti rétt sinn í 26. grein j
j Stjómarskrárinnar og synji laga-
j frumvarpinu staðfestingar og þá j
I verður að leggja það undir
I þjóðaratkvæðagreiðslu.
VIÐSKIPTI
Sala hlutabréfa í PeCOPE, móðurfyrirtæki Islenskrar erfðagreinSngar
Bankarnir selja 45%
til innlendra fag’íjárfesta
FBA, Landsbankinn og Búnaðarbankinn hafa lok-
ið sölu á um 45% þeirra hlutabréfa sem bankamir
keyptu í DeCODE Genetics, eignarhaldsfyrirtæki
Islenskrar Erfðagreiningar, af bandarískum stofn-
fjárfestum þann 16. júní síðastliðinn. Þetta kemur
fram í sameiginlegri fréttatilkynningu sem bank-
arnir sendu frá sér í gær. I tilkynningunni kemur
einnig fram að áhugi á bréfunum hafí verið mikill
og sé búið að selja öll þau bréf sem gert var ráð
fyrir að endurselja í þessum áfanga. Eingöngu inn-
lendum fagfjárfestum voru boðin bréf til kaups að
þessu sinni og gat hver og einn keypt bréf fyrir að
lágmarki 50 milljónir króna, en fagfjárfestar eru
þeir aðilar sem hafa þá starfsemi með höndum að
ávaxta fé í t.d. hlutabréfasjóðum, fjárfestingarfé-
lögum og eignarhaldsfélögum ýmiskonai-. Tekið er
fram að fjárfestar hafí fengið ítai'legar upplýsingar
um rekstur Islenskrar erfðagreiningar, fjárhags-
lega stöðu og framtíðarsýn fyrirtækisins, enda séu
slíkar upplýsingar forsenda þess að fjárfestar geti
lagt mat á verð og áhættu fjárfestingarinnar.
I fjölmiðlum hefur komið fram að fjórir aðilar
hafi staðið að kaupum á 17% hlut í DeCODE, en
það eru bankamir þrír auk eignarhaldsfélagsins
Hofs. Upphæð viðskiptanna var rúmir sex milljarð-
ar króna, en þar af keyptu bankamir um 94% fyrir
um 5.600 milljónir króna. Ekki hefur verið gefið
upp hvert söluverð hlutabréfanna var til íslenskra
fagfjárfesta, en miðað við að bankamir hafí lokið
sölu á um 45% þeirra bréfa sem þeir höfðu eignast
má áætla að kaupverð bankanna þriggja á þeim
bréfum hafi verið nálægt 2.560 milljónum ki-óna.
I Morgunpunktum Kaupþings á mánudag var
fjallað um kaup bankanna á hlutabréfum í
DeCODE og sölu þeirra á bréfunum til inn-
lendra fagfjárfesta. Þar er því meðal annars
haldið fram að lífeyrissjóðum sé óheimilt að
kaupa bréfín þar sem um óskráð erlent félag sé
að ræða. I samtali við Svanbjörn Thorodssen hjá
FBA kom fram að bankarnir geti ekki gefíð upp
hverjir þeir innlendu fagfjái'festar séu sem
keypt hafi bréfin til að brjóta ekki trúnað á við-
skiptavinum. Hins vegar hafi ekki komið upp
lagaleg vandamál sem hindrað hafi sölu bréfa í
þessum áfanga.
Munum auka upplýsingagjöf til hluthafa
I Morgunpunktum Kaupþings á mánudag er
einnig talað um hve litlar upplýsingar DeCODE
hafi gefið um starfsemi sína og meðal annars lýst
undrun yfir því að forráðamenn félagsins hafi ný-
lega aukið hlutafé í fyrirtækinu án þess að til-
kynna um það og þvert á fyrri yfirlýsingar.
Axel Nilsen, framkvæmdastjóri ijármálasviðs hjá
íslenskri erfðagreiningu, segir einkum tvennt vera í
umfjöllun Kaupþings sem fyrirtækinu þyki ástæða
að svara., Annars vegar er það svo að salan til bank-
anna var undirbúin mjög vel af bæði okkar hálfu og
þeirra. Bankamir fengu mjög ítarlegar upplýsingar
um fjárhagslega stöðu fyrirtækisins og framtíðará-
form og þeim voru kynntar rækilega þær viðskipta-
hugmyndir sem reksturinn hér byggist á.
Hins vegar er bent á það í Morgunpunktum
Kaupþings að upplýsingagjöf okkar til hluthafa sé
almennt ábótavant. Því er til að svara að fyrir-
tækið er í stöðugum vexti og hlutahafahópurinn
hefur að sama skapi stækkað. Við ætlum okkur að
bæta upplýsingastreymi til hluthafa á næstunni
og höfum verið að leggja drög að því hvernig það
verður gert undanfama mánuði. Við lítum á þetta
sem eðlilega þróun í vexti fyrirtækisins sem verð-
ur samfara því að hópur hluthafa stækkar. Rétt
er að benda á að sú grein sem Islensk erfðagrein-
ing starfar í byggist á þekkingu, þekkingin sem
hér verður til er helsta verðmæti fyrirtækisins.
Það er mjög mikilvægt að sú þekking sé vel varð-
veitt innan fyrirtækisins og varin fyrir keppinaut-
um. Sú starfsemi sem hér fer fram er þannig dá-
lítið annars eðlis en viða í öðram fyrirtækjum og
haga ber upplýsingastefnu í samræmi við það,“
segir Axel.
Fyrirvari um aukningu hlutafjár
Kaupþing vísar í Morgunpunktum á mánudag
til útboðslýsingar sem gefin var út þegar hlutabréf
í DeCODE vora fyrst boðin innlendum fjárfestum
í ársbyrjun 1998. Bendir Kaupþing á að þá hafi því
verið lýst yfir af hálfu fyrirtækisins að ekki væri
fyrirhugað að auka hlutafé fyrr en að skráningu
þess á erlendum hlutabréfamarkaði kæmi. I út-
boðslýsingunni segir hins vegai- orðrétt: „Ekki er
stefnt að því að auka hlutafé félagsins umfram það
sem verið er að bjóða samkvæmt þessu útboði. Þó
ber þess að geta að í samningum sem félagið kann
að gera gætu samstarfsaðilar gert þá kröfu að
gerast hluthafar í félaginu. Einnig ber þess að
geta að félagið getur hvenær sem er ákveðið að
auka þurfi hlutafé þess, til dæmis ef rekstrarfor-
sendur breytast.“
Þú séró dagskrá sjónvarps- og útvarpsstöóva næsta hálfe mánuðinn
í Dagskrárblaði Morgunblaósins sem kemur út meó Morgunblaóinu
í dag.
Meðal efnis í blaðinu er viötal vió William Shatner úr Star Trek sem
hefur leikið geimskipstjórann James T. Kirk, bæði í kvikmyndum og
þáttum, umfjöllun um David Strickland úr Lausri og liðugri, yfirlit
yfir beinar útsendingar frá fþróttaviðburóum, kvikmyndadómar, fræga
fólkió og stjörnurnar, krossgáta og fjölmargt annaó skemmtilegt efni.
Hafóu Dagskrárblað Morgunblaósins alltaf til taks
nálægt sjónvarpinu!
Dagskráin í hálfan mánuð
Aðalfundur Hlutabréfasjóðs
Búnaðarbankans
Einkavæðing
banka jók áhuga
„LÉLEG loðnu- og
rækjuvertíð mun hafa
áhrif á afkomu sjávarút-
vegsfyrirtækja á fyrri
hluta ársins en á móti
mun góð þorskvertíð og
hátt verð sjávarafurða á
erlendum mörkuðum
vega þar á móti.“ Þetta
sagði Jón Adolf Guð-
jónsson, formaður
stjómar Hlutabréfa-
sjóðs Búnaðarbankans,
m.a. á aðalfundi sjóðsins
sem haldinn var í gær,
en í máli hans kom fram
að afkoma fyrirtækja í
milliuppgjörum muni án
efa ráða miklu um þróunina á næstu
vikum. Hann sagði einnig að í lgölfar
einkavæðingar ríkisbankanna hefði
myndast mikill áhugi á innlendum
hlutabréfamarkaði, sem leiddi til mik-
illa hækkana og aukinna viðskipta.
Hagnaður Hlutabréfasjóðs Búnað-
arbanka íslands á seinasta rekstrar-
ári nam 129 milljónum króna, eigið
fé sjóðsins nam tæpum 1.828 milljón-
um króna. Á seinasta ári nam ávöxt-
un hlutabréfa í Hlutabréfasjóði Bún-
aðarbankans liðlega 15%. Á fundin-
um var samþykkt að greiddur yrði
7% arður, og sagði Jón Adolf að það
væri hlutfallslega hærri fjárhæð en
þeir hefðu séð hjá sambærilegum
hlutabréfasjóðum.
í máh Jóns Adolfs kom einnig
fram að lokið væri öðru heilu starfs-
ári Hlutabréfasjóðs Búnaðarbank-
ans. Fjöldi hluthafa í lok reiknings-
ársins væri 6.515, og hafði þeim
fjölgað um 2.709 á tímabilinu.
Fá félög með
meginhluta veltu
Valgeir Geirsson, sem starfar við
áhættugreiningu hjá eignastýringu
Búnaðarbankans Verðbréfa, hélt er-
indi um hlutabréf og samanburð á
mörkuðum á Norðurlöndunum.
Valgeir bar m.a. saman umfang
viðskipta í stærstu fyr-
irtækjunum á hluta-
bréfamarkaði á Norð-
urlöndunum. Hann
sagði að yfir helmingur
viðskipta á Verðbréfa-
þingi Islands væri í
þeim sex félögum sem
mest viðskipti væru
með. Svipað væri uppi á
teningnum í Danmörku
þar sem 53,5% við-
skipta á danska hluta-
bréfamarkaðnum væru
í sex veigamestu félög-
unum, og í Svíþjóð væri
þetta hlutfall 47,9%.
Staðan væri hins vegar
önnur í Noregi og Finnlandi. í Finn-
landi væru 57,5% viðskiptanna í
Nokia-fyrirtækinu einu saman, en í
Noregi væru 32,2% viðskiptanna í
þeim sex félögum sem mest viðskipti
væru í.
Valgeir sýndi einnig umfang við-
skipta og veltuhraða hlutabréfa. Þar
kom fram að veltuhraði á hlutabréfa-
markaðnum í Kaupmannahöfn var
53,1%, sem túlka má sem svo að
53,1% fyrirtækja á hlutabréfamark-
aðnum hafi skipt um eigendur á sein-
asta ári. Veltuhraðinn var 56,1% í
Helsinki, 63,9% í Ósló, 83,1% í Stokk-
hólmi en 9,5% í Reykjavík, og er
veltuhraðinn því minnstur á íslandi.
„Þetta kann að stafa af því að hér
eru tiltölulega meiri utanþingsvið-
skipti. Áætlun um utanþingsviðskipti
hér fyrir árið 1999 er 20,6% sem
myndi lyfta þessu nokkru hærra,“
sagði Valgeir Geirsson og bætti við
að hér væri einnig tiltölulega mikið
um félög sem hreyfðust lítið á mark-
aði, eins og til dæmis meirihluti rík-
isbankanna og stór hluti hlutabréfa í
eigu fjárfestingarfélaga eins og
Burðaráss og fleiri. „Veltuhraði hér
árið 1997, að teknu tilliti til utan-
þingsviðskipta, var um 15,8%,
þannig að þetta stefnfr allt í rétta
átt,“ sagði Valgeir.
Jón Adolf
Guðjónsson