Morgunblaðið - 23.06.1999, Side 26

Morgunblaðið - 23.06.1999, Side 26
26 MIÐVTKUDAGUR 23. JÚNÍ 1999 MORGUNBLAÐIÐ NATO eina yfirvaldið í Kosovo Kosovo-Albanar treysta Frelsishernum Pristína, Prizren. Reuters. WESLEY Clark, yfirmaður herafla Atlantshafsbandalagsins (NATO) í Evrópu, hvatti í gær til þess að flutn- ingi friðargæsluliða til Kosovo yrði hraðað og sagði að ef til vill þyrfti að senda þangað meiri mannafla en ráð hafl verið fyrir gert í fyrstu. A þeim tæplega hálfa mánuði sem liðinn er síðan fyrstu gæsluliðamir héldu inn í héraðið hafa um 17 þús- und NATO-liðar verið sendir þangað, en alls er áætlað að alþjóðlegu gæslu- liðamir í héraðinu verði 65 þúsund. Háttsettir embættismenn hjá NATO sögðu aðgerðimar hafa farið vel af stað, en þetta væri ekki nóg. „Það eru ekki nógu margir her- menn komnir [til Kosovo],“ sagði Cl- ark. Héraðið er um 11 þúsund fer- kílómetrar að stærð, og þótt það sé e.t.v. ekki mjög víðfemt séu NATO-liðarnir þar nú einu, öflugu og óháðu yfírvöldin sem fólk geti snúið sér til. A afskekktari stöðum í héraðinu hafí íbúamir enn ekki séð einn einasta NATO-liða. Opinberar stofnanir á borð við lög- reglu í héraðinu vora að langmestu leyti mannaðar Serbum, sem nú era allir á bak og burt og borgaraleg yfír- völd era því engin. Gæsluliðar NATO og liðsmenn Frelsishers Kosovo (UCK) era því einu aðilamir sem íbú- ar er orðið hafa fyrir skakkaföllum eða verið hótað geta snúið sér til. í afskekktari byggðum héraðsins eru UCK-liðar nú einu löggæslu- mennimir og gæta þeir verksmiðja og annarra mikilvægra staða. Kosovo-Albanar treysta UCK-lið- unum og segja talsmenn NATO að það væri óráðlegt að þeim yrði vikið frá áður en NATO-liðar geti tekið við gæsluhlutverki þeirra. Ekki snerta En eitt erfíðasta verkefmð sem bíður NATO í Kosovo er að fjar- lægja ósprungnar sprengjur sem NATO varpaði á héraðið í loftárás- um sínum, og einnig ósprangnar sprengjur sem serbneskar hersveitir skildu eftir þegar þær yfirgáfu hér- aðið. I gær sprengdu þýskir gæsluliðar átta klasasprengjur sem flugvélar NATO höfðu varpað á búðir Serba í borginni Prizren. Kosovo er morandi í ósprungnum sprengjum, serbnesk- um sprengigildram og jarðsprengj- um og öðram vopnum sem UCK kom fyrir. „Farið ekki út fyrir malbikið. Ekki snerta gransamlega eða aðlaðandi hluti. Ekki fara inn í yfirgefin hús eða byggingar", eru skilaboðin sem blasa við á eftirlitsstöð NATO á landamærum Albaníu og Kosovo. Fyrstu alþjóðlegu gæsluliðarnir sem féllu í Kosovo, tveir breskir sér- sveitarliðar, vora að aftengja virkar klasasprengjur frá NATO þegar þeir og tveir óbreyttir borgarar létust er sprengjan sprakk. „Við fáumst ekki bara við sprengj- ur, við leitum líka í húsum. Við höf- um farið í gegnum tvö sjúkrahús og skóla nú þegar. Þetta tekur langan tíma,“ sagði Michael Briest, majór frá Berlín, við fréttamenn. „Við er- um of fáliðuð. Of fáir sem geta gert þetta.“ „Getum ekki búið með þeim“ Undanfarna daga hafa nokkrir tugir Serba sem kalla sig „borgara- her“ komið í veg fyrir að Kosovo-Al- banar fari inn í þann hluta bæjarins Mitrovica sem er að mestu byggður Serbum. Hafa Serbarnir lýst um þriðjung bæjarins „serbneska hlut- ann“, þvert ofan í fyrirmæli NATO. Yfirmenn NATO segja markmið sitt fyrst og fremst vera að forðast árekstra við Serbana í þeirri von að með tímanum minnki spennan. Segja R A L P H L A U R E N SKíHH: W: Berðu íjiiráttaföttn með stseí með Pöfa Sport frá Rafpft Lataren. ÍJráttstaskan fyigir þegar keyptar eru 3 Polo Sport herravörur. Bafcpofciimn; q§ srqrátaskan fyfgia þegar keyptar' er 2 Pefe Sjport dörmiMörur. Mlóttiii Báoa,, nióttu þess að fta wel út- UtsíUtasíadir:. Seykjevik; Sara BankasSFseti;.. Sir/rtwv. Sæsibæ Hygea. Austurstirætii,, L3tiga>;egi. Kringlunnt, Súgurboginn. Laugavegi., Liiaa Hagkaup Kringltinni, Shnéramm. HafriaH|.: Andorrs.. RSpstt.: Byfgjart, Afaireyric Amaró, Akranes: Bjarg Hösa»ífc: Hfrna, Isatj. • Krisroa VéstmanmaayjBr: Miðbær, Seifess: Seifossapátek. KeflatnkSfrmt.. ERLENT JARÐSPRENGJUR Haldið inn íKosovo með varúð Yfirmenn NATO vilja hreinsa jarðsprengjur úr vegum og þorpum áður en flóttafólki er leyft að snúa aftur. Flykkist fólkið aftur til héraðsins verður hreinsunarstarfið óvinnandi Bandarískir og breskir vopna- sérfræðingar gegna lykilhlutverki. SPRENGJUHREINSUN: DSkriðdrekar hreinsa veginn inn á svæðið með plógum og einskonar „þreskiþúst". HBráðabirgðastikur afmarka hreinsað svæði. Fólk skal halda sig innan þeirra. BSjúkraskýli og bækistöðvum komið i • ■ ■ - upp á hreinsaða svæðinu. □ Leitað í jörðinni með beittum stöngum, málmleitartækjum og merkt jafn óðum og leit er lokið. Þetta gengur hægt, eða um einn metra á mínútu. □ 80.000 jarðsprengjur Júgóslavar áætla að hersveitir sínar hafi komiö fyrir 80.000 jarðsprengjum. Sprengjurnar geta verið virkar í allt að hundrað ár. Hermenn í brynjum og sérþjálfaðir hundar leita í byggingum. fl Varúðarmerkjum er “ komið fyrir á sprengju- svæðum sem verða hreinsuð síðar. SPRENGJUGERÐIR Flestar jarð- sprengjurnar í Kosovo eru júgóslavnesk framleiðsla, en sumar sóvésk smíð frá því í seinni heims- styrjöld. Skriðdrekasprengjur Draga 45 metra 20 cm Hermannasprengjur Draga 30 metra 10 sm Lítil niður- grafin Hæl sprengja: sprungur ef vír, tengdur við hana, er snertur. sm 10 sm Stökksprengja: skýst upp í loftiö og springur ef hleypt er af henni. LEE HULTENG/KRT NATO-liðarnir hlutverk sitt fyrst og fremst vera að draga úr spennu. En fréttamaður AP sagði hana fara vaxandi fremur en hitt, og hefði bænum eiginlega verið skipt upp. „Þetta verður eins og í Beirút,“ var haft eftir einum Serbanna sem heftu för Albananna inn í hinn svonefnda „serbneska hluta“ bæjarins. „Héma verður græna línan.“ I bænum Grace fóru Kosovo-Al- banar ránshendi um serbnesk heim- ili, sem höfðu verið yfirgefin, og kveiktu í þeim. „Við kveikjum í hús- unum þeirra svo að þeir geti ekki snúið aftur,“ sagði ungur Albani. „Við getum ekki búið með þeim. Annaðhvort fara þeir eða við förum.“ Ummæli Romanos Prodis um evruna valda uppnámi Italir gætu þurft að draga sig út úr EMU Mfland, London, París. AFP. GENGI evrunnar, sameiginlegs gjaldmiðils ellefu Evrópusam- bandsríkja (ESB), féll nokkuð seinnipart mánudags eftir þau ummæli Romanos Prod- is, fyrrverandi forsætisráð- herra Ítalíu og væntanlegs for- seta fram- kvæmdastjórnar ESB, að ítalir gætu þurft að úr Efnahags- og Evrópu (EMU). Evran tók hins vegar nokkuð við sér að nýju í gær eftir að Prodi dró úr vægi orða sinna. A fundi með forstjórum ítalskra lyfjafyrirtækja í Mílanó á mánudag sagði Prodi að ítalar yrðu að taka „róttækar ákvarðanir" ef þeir ætl- uðu sér að halda áfram aðild að EMU. Voru þessi orð hans túlkuð þannig að hann útilokaði ekki að Italía drægi sig tímabundið út úr Prodi draga sig út myntbandalagi EMU. Ollu ummælin miklu upp- námi á fjármálamörkuðum og urðu þess valdandi að gengi evrunnar féll að nýju eftir nokkra hækkun í síðustu viku. „Við höfum haft mjög lága verð- bólgu, eða einungis um tvö pró- sent,“ sagði Prodi á fundinum, „en hjá samkeppnisaðilum okkar í Evr- ópu hefur vöruverðshækkun ein- ungis numið einu prósenti. Haldi sú þróun áfram, að kostnaðaraukn- ing okkar og annara ESB-ríkja helst ekki í hendur munum yið ekki geta haldið áfram aðild að EMU.“ Prodi bætti því við að evran gæfi sannarlega frábær tækifæri en að án „róttækra ákvarðana" gæti hún reynst Itölum sem myilusteinn um háls. Undarleg ummæli í ljósi þeirra fórna sem ítalir hafa fært Eftir að gengi evrunnar hafði fallið nokkuð, í kjölfai- ummæla Prodis, tók gjaldmiðillinn við sér að nýju, ekki síst þar sem Japans- banki hélt áfram að kaupa mikið magn af evrum. Jafnframt hjálpaði það nokkuð til að Prodi dró seinna úr vægi orða sinna þegar hann sagðist einungis hafa verið að vitna í orð Tommasos Padoa-Schioppas, fulltrúa Italíu í framkvæmdastjórn Evrópubankans (ECB). Skaðinn var hins vegar skeður og ekki tókst að ná gengi evrunnar á það stig sem verið hafði. Audrey Child-Freeman, hag- fræðingur í London, sagði um- mæli Prodis heldur undarleg, ekki síst í ljósi þeirra fórna sem ítalir hefðu fært til að geta verið með í EMU frá byrjun. Bætti Child- Freeman því við að vegna þessara fórna tryði enginn því að Italir myndu hrökklast úr EMU á næst- unni.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.