Morgunblaðið - 23.06.1999, Side 32
32 MIÐVIKUDAGUR 23. JÚNÍ 1999
MORGUNBLAÐIÐ
MORGUNBLAÐIÐ
MIÐVIKUDAGUR 23. JÚNÍ 1999 33t
STOFNAÐ 1913
ÚTGEFANDI: Árvakur hf., Reykjavík.
FRAMKVÆMDASTJÓRI: Hallgrímur B. Geirsson.
RITSTJÓRAR: Matthías Johannessen,
Styrmir Gunnarsson.
FJÖREGGIÐ OG
ÞJÓÐARVILJINN
HINIR ungu ofurhugar, sem sigldu á gúmmíbátum og
kajökum um Dimmugljúfur um helgina, hafa unnið
mikið afrek. Það er ánægjulegt að fylgjast með því hve ungt
fólk stefnir hátt í útivist af margvíslegu tagi og stundar
hana af mikilli þekkingu og fagmennsku og leitar aðstoðar
erlendra kunnáttumanna ef þörf krefur. Enda aldrei of var-
lega farið. Fífldirfska getur verið dýrkeypt. Ferðin um
Dimmugljúfur er eitt dæmi um þetta. Fjallgöngur ungra
fjallgöngumanna eru annað. Skíðagöngur á jöklum og Suð-
urskautslandinu eru enn eitt slíkt dæmi.
Leiðangursmenn áttu ekki orð til þess að lýsa fegurð
gljúfranna. Lesendur Morgunblaðsins, sem skoðuðu myndir
sem blaðið birti í gær, geta þó gert sér grein fyrir að með
þessari ferð hefur nýr ævintýraheimur opnazt á íslandi.
Þegar sjónvarpsmynd verður sýnd eftir nokkrar vikur eða
mánuði fær fólk enn gleggri hugmynd um það sem hér er á
ferð.
Ferð þessa unga fólks um Dimmugljúfur verður áreiðan-
lega til þess að margir munu telja fráleitt að efnt verði til
virkjunarframkvæmda sem valdi því að þessi hrikalega
náttúra hverfí að verulegu leyti. Það munu ekki síður standa
deilur um þetta svæði en önnur sem til umræðu hafa verið.
Deilur um það hvort virkja beri hér eða þar eru erfíðar
fyrir þetta fámenna þjóðfélag þar sem návígið er mikið.
Deilurnar um fiskveiðistjórnarkerfið sýna hve slíkar deilur
geta orðið hatrammar í okkar samfélagi. Við þurfum að
finna leið til þess að leysa slík deilumál á lýðræðislegan hátt
og á þann veg að báðir málsaðilar geti sæmilega við unað.
Slík aðferð er til og er þá átt við að þjóðin taki afstöðu til
einstakra álitamála í þjóðaratkvæðagreiðslu. í umræðum
um hugsanlega aðild Islands að Evrópusambandinu hafa
stjórnmálamenn verið sammála um að slíka ákvörðun ætti
að taka í þjóðaratkvæðagreiðslu. Nýjar hugmyndir um auk-
ið lýðræði, lýðræði 21. aldarinnar, sem Morgunblaðið hefur
ítrekað fjallað um síðustu árin, byggja á því að hinn almenni
borgari hafí nú jafngóðan aðgang að upplýsingum og hinir
kjörnu fulltrúar í sveitarstjórnum og á Alþingi. Þar með
hafi forsendur skapazt fyrir því að þjóðin sjálf taki ákvörð-
un um viðkvæm deilumál í þjóðaratkvæðagreiðslu.
Það ætti að verða alvarlegt umhugsunarefni að beita
þessari aðferð við úrlausn veigamikilla álitamála á borð við
þau hvar skuli virkjað eða ekki virkjað og hvernig standa
skuli að stjórn helztu auðlinda þjóðarinnar á borð við fiski-
miðin.
FRUMKVÆÐI
HORNAFJARÐARBÆJAR
UPPLÝSINGABYLTINGIN, sem orðið hefur með örri
þróun tölvutækni og tilkomu Netsins, á eftir að hafa
mikil áhrif á samskipti stjórnvalda og almennings. Upplýs-
ingalögin, sem sett voru fyrir nokkrum misserum, opna fólki
leið til margvíslegra upplýsinga og ef synjað er um upplýs-
ingar er hægt að skjóta þeirri afgreiðslu til sérstakrar úr-
skurðarnefndar sem tekur afstöðu til þess hvort um trúnað-
armál sé að ræða.
Nú hefur Hornafjarðarbær tekið forystu um nýja þróun á
þessu sviði með þeirri ákvörðun að opna leið að skjalasafni
sveitarfélagsins um Netið. Þar með getur hinn almenni
borgari kynnt sér þau málefni sem til meðferðar eru og op-
inn aðgangur er að. Stjórnsýsla sveitarfélagsins verður opn-
ari og gagnsærri en um leið losna starfsmenn sveitarfélags-
ins við að afla upplýsinga fyrir fólk sem það getur sjálft
nálgast í stofunni heima hjá sér. Þetta er merkilegt frum-
kvæði hjá Hornafjarðarbæ sem ástæða er til að veita eftir-
tekt.
Akvörðun sveitarstjórnarinnar á Höfn í Hornafirði hefur
mikla þýðingu og á eftir að varða veginn fyrir önnur sveitar-
félög í landinu og opinberar stofnanir. Ekki er ástæða til að
ætla annað en að þessi tilraun gefist vel og þess er að vænta
að önnur sveitarfélög fylgi í kjölfarið og það sem allra fyrst.
Opinn aðgangur borgaranna að slíkum gögnum eykur traust
í garð sveitarfélagsins og skilning borgaranna á þeim við-
fangsefnum sem fjallað er um á opinberum vettvangi. For-
ráðamenn Hafnar í Hornafírði hafa vísað veginn til framtíð-
arinnar með þessari merkilegu ákvörðun.
Forsætisráðherrar Norðurlandanna áttu fund með forsætisráðherra Japans
Viðræður forsætisráðherranna Keizo Obuchi og Davíðs Oddssonar
NORWAY
FINLAND
JAPAN
SWEDEN
Morgunblaðið/Jim Smart
NORRÆNU forsætisráðherramir og sá japanski sátu hádegisverðarboð forseta íslands í gær. Fyrir miðri mynd
eru Keizo Obuchi, forsætisráðherra Japans, og Ólafur Ragnar Grímsson, forseti íslands, og forsetanum á vinstri
hönd er Poul Nyrup Rasmussen, forsætisráðherra Danmerkur, en á hægri hönd Obuchi er frú Ástríður Thoraren-
sen, eiginkona Davíðs Oddssonar forsætisráðherra.
Islandskynning
í Japan og
sendiráð í
undirbúningi
Á FUNDI forsætisráðherra Japans
og Islands, Keizo Obuchi og Davíðs
Oddssonar, í Höfða í gærmorgun var
meðal annars rætt um opnun sendi-
ráða í löndunum, Islandskynningu
sem halda á í Japan á næsta ári, við-
skipti landanna og tvísköttun. Is-
lendingar hefja á næsta ári undir-
búning að opnun sendiráðs íslands í
Japan og Japanar hyggjast opna
fljótlega upplýsingaskrifstofu á ís-
landi.
Davíð Oddsson forsætisráðherra
kvaðst í samtali við Morgunblaðið
ánægður með viðræðumar, náðst
hefði að koma inn á mörg mál en
nokkur þeirra hefði þó orðið að
geyma. Ráðhen-arnir ræddu meðal
annars um viðskipti landanna. „Fyr-
irkomulagið á utanríkisviðskiptum
þeirra er þannig að þau eru mikið
kvótabundin og skriffínnska mikil og
við vildum nota tækifærið til að óska
eftir því að dregið yrði úr slíkum
þáttum og viðskipti landanna auð-
velduð. Það var tekið vel í það þótt
vissir þættir séu ekki kvótabundnir
eins og til dæmis í fisksölunni," sagði
Davíð Oddsson.
Um opnun sendiráða sagðist Da-
víð hafa skýrt starfsbróður sínum
frá því að Island myndi hefja á
næsta ári undirbúning að opnun
sendiráðs í Japan árið 2001. „Sem
svar við því hafa þeir ákveðið að
opna hér fljótlega upplýsingaskrif-
stofu og að auka viðveru sendiherra
síns hérlendis en aðsetur hans er í
Ósló.“
Japanar hafa lýst áhuga sínum á
því að sérstök Islandskynning verði í
landinu á næsta ári. „Þetta er að
frumkvæði þeirra og þeir myndu sjá
um skipulagningu en þeir vilja líka
fá íslensk stjórnvöld til þátttöku,“
sagði Davíð og segir þetta mjög já-
kvætt framtak.
Ósk um tvísköttunarsamning
endurnýjuð
Um tvísköttun sagði Davíð að
endurnýjuð hefði verið beiðni frá
síðasta ári um tvísköttunarsamning
landanna sem svarað var á þann
veg að lönd stæðu nú í biðröðum
eftir slíkum samningum við Japana.
Davíð sagði Japana gjarnan vilja
gera slíkan samning við Islendinga
en þar væri m.a. farið eftir hversu
mikil viðskipti landa væru og því
kæmi ekki að Islendingum alveg í
bráð.
Davíð Oddsson sagði að þótt
nokkur mál hefðu orðið útundan á
fundi þeirra í gærmorgun myndi
hann hugsanlega geta nefnt einhver
þeirra í óformlegu spjalli við Keizo
Obuchi í kvöldverðarboði í gærkvöld
en síðan hefði aðstoðarmönnum jap-
anska ráðherrans einnig verið af-
hent minnisblöð um ýmis atriði varð-
andi samskipti landanna. Hann sagði
fund þeirra tveggja alltaf hafa verið
ráðgerðan sem hluta af Islandsheim-
sókn japanska forsætisráðherrans;
jafnframt því sem hann ræddi við
forsætisráðherra Norðurlandanna
hefði alltaf verið gert ráð fyrir við-
ræðum við ráðherra gestgjafalands-
ins á sama hátt og var í Noregi fyrir
tveimur árum. Davíð Oddsson
kvaðst að lokum mjög ánægður með
viðræðurnar við japanska forsætis-
ráðherrann.
ICELAND
Morgunblaðið/Jim Smart
RÁÐHERRARNIR gerðu grein fyrir viðræðum sínum á fundi með fréttamönnum. Frá vinstri: Kjell Magne Bondevik, Paavo Lipponen,
Keizo Obuchi, Davíð Oddsson, Poul Nyrup Rasmussen og Göran Persson.
FORSÆTISRAÐHERRAR
Norðurlandanna fimm og
Keizo Obuchi, forsætisráð-
heiTa Japans, urðu sammála
um það á fundi sem þeir áttu saman á
Hótel Sögu í gærmorgun að stuðla
áfram að góðri samvinnu og vingjam-
legum samskiptum landanna. Sagði
Davíð Oddsson forsætisráðherra á
fréttamannafundi, sem haldinn var að
loknum fundi ráðherranna sex, að
komið hefði fram ríkur vilji til að
starfa saman að ýmsum þeim verkefn-
um sem bíða á nýju árþúsundi.
Atburðimir í Júgóslavíu vora ofar-
lega á dagskrá viðræðna forsætisráð-
herranna og lýstu þeir áhuga sínum á
því að starfa að friðsamlegri lausn
Kosovo-deilunnar, sem og annarra
álíka þjóðemisátaka i heiminum. Vilja
forsætisráðherramir sex gjarnan
vinna í sameiningu að því að tryggja
að tuttugasta og fyrsta öldin verði öld
friðar í samfélagi þjóða; veröld þar
sem allir íbúar jarðar búa við viðun-
andi lífsskilyrði og þar sem tryggt er
að hverjum einstaklingi sé kleift að
halda mannlegri reisn sinni.
Rætt um aðild að
öryggisráði SÞ
Afvopnunarmál og starfsemi friðar-
gæslusveita bar á góma í samræðum
þeirra Davíðs, Pouls Nyrups Rasmus-
sens, forsætisráðherra Danmerkur,
Görans Perssons, forsætisráðherra
Svíþjóðar, Kjells Magnes Bondeviks,
forsætisráðherra Noregs, og Paavos
Lipponens, forsætisráðherra Finn-
lands, við Obuchi og ennfremur ítrek-
uðu forsætisráðherrar Norðurland-
anna stuðning sinn við að Japan og
Þýskaland hljóti fast sæti í öryggis-
ráði SÞ. Notaði Obuchi tækifærið á
fréttamannafundinum á Hótel Sögu til
að þakka þann stuðning.
Áðspurður um það hvort Japanir
hygðust á móti styðja óskir Norð-
manna og Islendinga um að fá sæti í
öryggisráðinu til skemmri tíma svar-
aði hann því til að Japanir ættu eftir
að taka afstöðu til þess. Hafa þyrfti í
huga að Italir og Tyrkir hefðu einnig
sóst eftir sæti í öryggisráðinu.
Obuchi kynnti niðurstöður
fundar G-8 ríkjanna
Obuchi kvaðst gjarnan vilja nota
þau tímamót, sem yrðu við lok árþús-
unds, til að efna til gagngerrar end-
urskoðunar á starfsemi SÞ þannig að
jafnvægi væri í starfsemi hinna ólíku
stofnana SÞ. Að sögn Obuchis væru
slíkar umbætur forsenda þess að SÞ
gætu orðið nægilega öflug samtök til
að taka með skilvirkum hætti á
vandamálum eins og þeim sem dunið
hafa yfir í Kosovo. Lýsti Obuchi
ánægju sinni með að forsætisráð-
herrar Norðurlandanna hefðu sömu
sýn og hann á framtíðarhlutverk SÞ.
Davíð Oddsson sagði í upphafi
fréttamannafundarins í gær að sér og
þeim Nyrup Rasmussen, Persson,
Bondevik og Lipponen hefði þótt sér-
stakt ánægjuefni að fá tækifæri til að
ræða við Obuchi nú, svo skömmu eftir
mikilvægan fund G-8 ríkjanna, sem
haldinn var í Köln um nýliðna helgi.
Mun Obuchi hafa kynnt íyrir þeim
niðurstöður þess fundar.
Jafnframt ræddu ráðherramir um
ástand efnahagsmála í heiminum og
greindi Obuchi starfsbræðrum sínum
frá því til hverra bragða Japanir hefðu
gripið í þeirri viðleitni að rífa landið
upp úr þeim efnahagslega öldudal sem
það hefur verið í, og hvernig horfði til
í efnahagsmálum almennt í SA-Asíu.
Japanir hafa sóst eftir því að næsti
framkvæmdastjóri UNESCO, menn-
ingar- og vísindastofnunar Sameinuðu
þjóðanna, verði japanskur. Sagði Da-
víð að Island og Danmörk hefðu á
fundi sínum með Obuchi lýst yfir
stuðningi við framboð þeirra í emb-
ættið.
Japanir horfa mjög
til Norðurlanda
Þetta er í annað skipti sem forsæt-
isráðherrar Norðurlandanna eiga
sameiginlegan fund með forsætisráð-
herra Japans, en sá fyrri var haldinn í
Bergen í Noregi í júní 1997. Sam-
komulag náðist þá um að efna til sam-
eiginlegrar ráðstefnu um öldran og
var sú ráðstefna haldin í ágúst 1998.
Lýstu ráðherrarnir í gær ánægju
sinni með hvemig til tókst og fógnuðu
því að í október á þessu ári mun verða
haldin ráðstefna í Tókíó þar sem sam-
starf þjóðanna á þessu sviði er enn
aukið.
Obuchi kvaðst í gær mjög ánægður
með að hafa fengið tækifæri til að
koma tO Islands fyrstur japanskra
forsætisráðherra og sagði ennfremur
að fundur sinn með forsætisráðherr-
um Norðurlandanna hefði verið einkar
gagnlegur, enda litu Japanir svo á að
samfélög Norðurlandaþjóðanna væra
að mörgu leyti fyrirmyndarsamfélög
og að Japanir teldu sig geta lært mik-
ið af Norðurlandabúum. Hrósaði hann
Norðurlandaþjóðunum sérstaklega
fyrir hversu mikill árangur hefði náðst
í tilraunum til að tryggja jafnrétti
kynjanna.
Vilja auka samstarf
sitt á nýju árþúsundi
Morgunblaðið/Arnaldur
HER sýna listamennirnir Leifur Breiðfjörð og Sigríður Jóhannsdóttir norrænum gestum vinnu sína, en japanska
forsætisráðherrafrúin var ekki með í heimsókninni.
Samvinnan öðrum þjóðum fyrirmynd
SÉRSTÖK dagskrá var skipulögð
fyrir eiginkonur norrænu forsætis-
ráðherranna og japanska forsætis-
ráðherrans í gærmorgun. Heimsóttu
þær bæði Listasafn Islands og
vinnustofu Sigríðar Jóhannsdóttur
og Leifs Breiðfjörð.
Á Listasafni Islands tók Ólafur
Kvaran, forstöðumaður safnsins, á
Kynntu sér
íslenska list
móti gestunum og sýndi þeim safn-
ið.
Að því loknu var haldið í Kópa-
vog, í vinnustofu þeirra Sigríðar Jó-
hannsdóttur veflistakonu og Leifs
Breiðfjörð myndlistarmanns. Leifur
kynnti gestunum m.a. stóran gler-
glugga fyrir Hallgrímskirkju sem
vígja á fyrsta sunnudag í aðventu og
Sigríður sýndi kirkjuskrúða fyrir
Fella- og Hólakirkju sem hún vinn-
ur nú að.
FORSÆTISRÁÐHERRAR Norð-
urlandanna og Japans sátu há-
degisverðarboð forseta Islands
að Bessastöðum í gær eftir að
ráðherrarnir höfðu átt viðræðu-
fundi fyrir hádegi. Eftir hádegi
héldu norrænu ráðherrarnir í
Reykholt en japönsku forsætis-
ráðherrahjónin til Þingvalla.
Forseti íslands, Ólafur Ragnar
Grímsson, sagði í ræðu sinni við
hádegisverðinn, að aukin sam-
vinna Japana og Norðurlanda-
búa væri öðrum þjóðum fyrir-
mynd. Þótt þjóðirnar væru ijar-
lægar ættu þær það sameigin-
lega markmið að gera lýðræði og
mannréttindi að hornsteini í al-
þjóðasamvinnu á 21. öldinni.
„Við stefnum að því markmiði að
gróska og jöfn tækifæri verði
möguleg konum jafnt sem körl-
um og að stýra og viðhalda við-
skiptum og efnahagsstefnu
þannig að allir megi njóta góðs
af,“ sagði forsetinn meðal ann-
ars.
Morgunblaðið/Arnaldur
DAVÍÐ Oddsson forsætisráðherra tók á móti Keizo Obuchi á tröppum
Höfða laust fyrir klukkan 9 í gærmorgun.
VIÐ komuna í Höfða rituðu forsætisráðherrarnir nöfn sín í gestabók
hússins. Ingibjörg Sólrún Gísladóttir borgarsljóri fylgdist með.
RÁÐHERRARNIR heilsast yfir borðið áður en viðræður þeirra hefjast,
\ ~ I * ~tm JÍf ‘J V " JjB«
W'- i
. • • , M l
Morgunblaðið/Þorkell
JAPANSKI forsætisráðherrann, Keizo Obuchi, hitti Japana búsetta á ís-
landi síðdegis í gær áður en hann hélt til Þingvalla.
Heimsókn Obuchi
lýkur fynr hádegi
HEIMSOKN Keizo Obuchi, forsætis-
ráðherra Japan, til íslands lýkur fyrir
hádegi í dag og er brottför hans ráð-
gerð frá Keflavíkurflugvelli klukkan
11. Hann mun fyrst heimsækja Al-
þingi og Ámastofnun.
Klukkan 9:05 mun ráðherrann
koma að Alþingishúsinu og tekur
Halldór Blöndal, forseti Alþingis, á
móti honum og kynnir honum starf-
semi þingsins. Klukkan 9:30 er ráð-
gert að ráðherrann komi í Árnastofn-
un og þar mun Vésteinn Ólason, pró-
fessor og forstöðumaður stofnunar-
innai’, sýna honum nokkur handrit.
Eftir hálftíma viðdvöl heldur ráðherr-
ann síðan til Keflavíkur og af land/
brott klukkan 11.