Morgunblaðið - 23.06.1999, Page 50
í50 MIÐVIKUDAGUR 23. JÚNÍ 1999
MORGUNBLAÐIÐ
BRÉF
TIL BLAÐSINS
Hundalíf
Ljóska
Smáfólk
IM ON MY OU)N ONE-YARP LINE ..THE COUNT
IS THREE ANP TWO..THE EI6HTEENTH HOLE IS
A PAR FIVE UIITH WATERIN FR0NT..0NE 5EC0NP
LEFT ON THE 5HOT CLOCK..THE FACE-OFF 15
IN OIIR ZONE..FORTY-LOVE, MATCH POINT...
Ég er stödd í eigin markteig og staðan er 3:2....Átjánda
holan er par 5 með glompu fyrir framan...Ein sekúnda
eftir á skotklukkunni... Uppgjöfin er okkar
megin...Fjörutíu - ást, jöfnunarstig...
Ertu í vandræðum
með fyrstu
spurninguna,
herra?
Og staðan er sjö - tíu
í tíunda ramma!
Kringlunni 1 103 Reykjavík • Sími 569 1100 • Símbréf 569 1329
Hver er til-
gangurinn?
Frá Aðalheiði Jónsdóttur:
YFIRLÝSINGAR Ingibjargar Sól-
rúnar Gísladóttur um að Samfylk-
inguna hafí skort heildstæða fram-
tíðarsýn o.fl. eru athyglisverðar.
Hver er tilgangurinn? Er hún að
svara kalli Agústs Einarssonar sem
vildi strax eftir kosningar stofna nýj-
an stjórnmálaflokk og fá Ingibjörgu
Sólrúnu fyrir formann? Var það
kannski að mati borgarstjóra til að
skaða Samfylkinguna að gefa ekki
yfirlýsingu um að hún ætlaði að
sækja um inngöngu í ESB eins og
hún og mágur hennar sögðust vilja
gera og hrópuðu hátt um fyrir kosn-
ingar? Ef ég man rétt var það
einmitt eftir þetta útspil þeirra sem
fylgi Samfylkingarinnar fór verulega
að dala. Það voru fjölmargir sem
sögðust styðja Samfylkinguna en
vilja ekki ganga í ESB. Þetta útspil
háttvirts borgarstjóra og Össurs
Skarphéðinssonar hafði því gagn-
stæð áhrif við það sem þau munu
hafa ætlast til. Það eru sem sé ekki
allir fúsir til að afsala sér fullveldinu
í hendur valdaklíkunnar í Brussel og
finnst nú þegar nóg hafa verið gert
með EES-samningnum, sem sumir
hafa gjama lofsungið meira en efni
standa til, og vesalings ríkisstjómin
margsinnis orðið uppvís að því að
vita ekkert hvað hún má gera og
hvað ekki.
Borgarstjóri hefur lýst því yfir að
landsmálapólitíkin sé henni hugleik-
in en hún ætli samt að gegna borgar-
stjóraembættinu út kjörtímabilið.
En burt séð frá öllu þessu fæ ég ekki
séð að samanburðarfræði borgar-
stjóra hvað varðar Samfylkinguna
og R-listann fái staðist þar sem
Framsóknarflokkurinn stóð líka að
R-listanum og þá klofnuðu hvorki
Kvennalisti né Alþýðubandalag eins
og nú gerðist.
Enginn er ómissandi, segir ein-
hvers staðar, ekki heldur Ingibjörg
Sólrún. Það er skoðun mín að Sam-
fylkingin nái góðri siglingu án henn-
ar forystu og ég fæ ekki betur séð en
hún hafi staðið sig vel miðað við að-
stæður, þar sem sumir fyrrverandi
samherjar snera sinni kosningabar-
áttu einkum gegn henni og reyndu
að gera hana tortryggilega. Mér sýn-
ist að Ingibjörg Sólrún Gísladóttir
geti þess vegna áhyggjulaus haldið
sig á heimalyklunum, það er að segja
borgarstjórastólnum, ef henni verð-
ur veitt áframhaldandi umboð. Þau
ummæli borgarstjóra að Samfylk-
ingin hafi rekið neikvæða kosninga-
baráttu og dregið upp of dökka
mynd af þjóðfélaginu, þar sem ríkis-
stjórnin hafi ekki gert nein veraleg
mistök, era vægast sagt furðuleg.
Era það ekki alvarleg mistök eða
jafnvel glæpur að skipta þjóðarkök-
unni þannig að tugir þúsunda lifa
undir sultarmörkum og verða að
leita til hjálparstofnana til að geta
lifað? Hvar hefur borgarstjóri verið
undanfarin misseri? Hefur hún
kannski lifað í fílabeinsturni og
hvorki heyrt né séð það sem hefur
verið að gerast í þjóðfélaginu? Lof-
söngur hennar um ríkisstjómina og
gagnrýni á Samfylkinguna benda
eindregið til þess. Maður getur að
sjálfsögðu látið sér detta í hug að
ríkisstjómarflokkarnir þurfi ekki að
kvíða harðri gagnrýni eða kosninga-
baráttu næst ef Ingibjörg Sólrún
Gísladóttir verðm- hið leiðandi afl á
vinstri vængnum.
Lofsöngur borgarstjóra um ríkis-
stjórnina og óeðlileg gagnrýni á
Samfylkinguna vekja upp ýmsar
spurningar sem ekki verður svarað
hér en kannski á háttvirtur borgar-
stjóri eftir að svara þeim.
AÐALHEIÐUR JÓNSDÓTTIR,
Furugerði 1,
Reykjavík.
Þj óðaratkvæðagreiðslu
um atkvæðavægi
Frá Guðmundi Rafni Geirdal:
SAMKVÆMT fréttum hefur Alþingi
nýlega samþykkt lög um kosningar
og kjördæmaskipan. Að sjálfsögðu
ber að fagna betrumbótum á fyrri
skipan og að misvægi í atkvæðum
hafi minnkað úr um 3,5 niður í um
1,8. En það þýðir að misvægi er enn
við lýði! Hvernig er hægt að sætta
sig við það að einn kjósandi hafi at-
kvæðavægið 1 og annar 1,8? í öllum
félögum er það við lýði að allir hafi
sama atkvæðavægi, sama hvort hann
sé Jón eða séra Jón. Á grandvelli
þess er kosið í stjóm. Hvers vegna á
það að vera öðru vísi í þjóð-félagi
sem þar að auki státar af því að vera
svo lýðræðislegt? Að sjálfsögðu ætti
kjósandi á einum stað á landinu að
hafa sama rétt og annars staðar á
landinu.
Þetta er spurning um jafnrétti. í
65. grein stjórnarskrárinnar segir:
,Alhr skulu vera jafnir fyrir lögum
og njóta mannréttinda án tillits til
kynferðis, trúarbragða, skoðana,
þjóðernisuppruna, kynþáttar, litar-
háttar, efnahags, ættemis og stöðu
að öðra leyti. Konur og karlar skulu
njóta jafns réttar í hvívetna.“ Þarna
mætti bæta við: kjósendur skulu
njóta jafns réttar í hvívetna.
Kosningaréttur eru ein helstu
mannréttindin í lýðræðisríki og fjalla
um rétt einstaklingsins til að kjósa
ákveðna aðila í stjóm þjóð-félagsins.
Fyrst að ekki er tryggt jafnrétti í
hinum nýsamþykktu lögum legg ég
til að þau séu ekki undirrituð af for-
seta Islands, Ólafi Ragnari Gríms-
syni, sem eitt sinn barðist fyrir hag
þeirra sem minna mega sín. Þannig
legg ég til að fram fari undirskriftar-
söfnun þar sem þessu ójafnrétti er
mótmælt. Einnig legg ég til að Ólafur
sé hvattur með beinum hætti til að
nýta rétt sinn í 26. grein stjömar-
skrárinnar þar sem segii' meðal ann-
ars: „Nú synjar forseti lagafram-
varpi staðfestingar, og fær það þó
engu síður lagagildi, en leggja skal
það þá svo fljótt sem kostur er undir
atkvæði allra kosningarbærra manna
í landinu til samþykktar eða synjun-
ar með leynilegri atkvæðagreiðslu.“
GUÐMUNDUR RAFN GEIRDAL,
skólastjóri og fyrrv.
forsetaframbjóðandi.
Allt efni sem birtist í Morgunblaðinu og Lesbók er varðveitt í upplýsinga-
safni þess. Morgunblaðið áskilur sér rétt til að ráðstafa efninu þaðan, hvort
sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu efni
til birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari hér að lútandi.