Morgunblaðið - 25.06.1999, Blaðsíða 21
MORGUNBLAÐIÐ
VIÐSKIPTI
FÖSTUDAGUR 25. JÚNÍ 1999 21
Morgunblaöió/Jim Smart
Oskar Magnússon: Islandsbanki
F&M hefur lokið mati á Ferskum
kjötvörum og Lyfjabúðum ehf.
Hlutafjáraukning Baugs samþykkt til að fjármagna kaup á Vöruveltunni
Baugur kaupi Ferskar
kjötvörur og Lyfjabúðir
HLUTHAFAFUNDUR Baugs hf.
samþykkti í gær samhljóða tillögu
stjórnar um að auka hlutafé félags-
ins um 82,5 milljónir króna að
nafnvirði, með áskrift nýrra hluta.
Hluthafar samþykktu jafnframt að
falla frá rétti sínum til að skrá sig
fyrir hinum nýju hlutum og ákváðu
að framselja áskriftarrétt sinn til
eigenda Vöruveltunnar hf. Nýir
hlutir eru því hluti kaupverðs
82,5% hlutabréfa í Vöruveltunni,
sem rekur verslanir 10-11. Hlutirn-
ir eru greiddir Helgu Gísladóttur,
Fjárfari hf. og íslandsbanka, eig-
enda Vöruveltunnar, á genginu 10
og nema því 825 milljónum að
kaupvirði.
Athugasemd frá Kaupþingi hf.
Um upplýsingagjöf
Óskar Magnússon, formaður
stjórnar Baugs, tilkynnti á fundin-
um að Islandsbanki F&M hefði
lokið mati á fyrirtækinu Ferskum
kjötvörum og Lyfjabúðum ehf. sem
eru í eigu Gaums. Gaumur er að
mestu í eigu þeirra feðga Jóhann-
esar Jónssonar og Jóns Asgeirs Jó-
hannessonar.
Hyggjast ekki eiga Ferskar
kjötvörur til frambúðar
„Stjórn Baugs hefur markað þá
stefnu að rétt sé að ganga til samn-
inga um að eignast Lyfjabúðir, að
minnsta kosti að meirihluta, og
einnig komi til greina að kaupa
Ferskar kjötvörur. Pó ekki með
það í huga að eiga síðargreinda
fyrirtækið til frambúðar, heldur
leita að heppilegum kaupanda sem
gæti þjónað verslunum Baugs með
jafn ágætum hætti og Ferskar
kjötvörur hafa gert hingað til.“
Óskar segir að reiknað sé með
því að til fjárútláta komi á næst-
unni vegna kaupa Baugs á Lyfja-
búðum, en væntanlega ekki
kaupanna á Ferskum kjötvörum.
Ekki standi þó til að óska eftir
frekari hlutafjáraukningu vegna
þessara viðskipta.
raunveruleikanum. Kaupþing hf.
og eignaraðilar þess eiga um fjórð-
ung hlutafjár í FBA, sem keypti 3
milljarða í nýafstaðinni sölu, og því
augljóslega hagsmunamál íyrir-
tækisins að sala hlutabréfa í
DeCODE heppnist vel, með sama
hætti og það er jákvætt fyrir alla
aðila markaðarins að útboðið gangi
vel. Ætlast er til þess að aðilar á
verðbréfamarkaði hafi skoðanir á
því sem þar er að gerast og því þarf
þessi gagnrýni Kaupþings ekki að
koma neinum á óvart. Sem leiðandi
aðila á hlutafjármarkaði er það
hins vegar okkar hagsmunamál,
líkt og annarra aðila á þessum
markaði, að upplýsingagjöf og
verklag í hlutabréfaviðskiptum sé
með sem faglegustum hætti.“
Til sölu
Benz C220 Special Edition 4 d. Sedan, árg. 1995, ekinn aðeins 22
þús. km. Sjálfskiptur. Vetrardekk á felgum + sumardekk á ál-
felgum. Verð kr. 2.950.000.
Stórglæsilegur svartur BENZ. Einn eigandi.
Upplýsingar í síma 5624588.
á hlutabréfamarkaði
MORGUNBLAÐINU hefur borist
eftirfarandi athugasemd frá Þor-
steini Víglundssyni, yfirmanni
greiningardeildar Kaupþings.
„Undanfarið hefur orðið umræða
um upplýsingagjöf á hlutabréfa-
markaði og kannski sérstaklega
eftir grein sem birt var í Morgun-
punktum Kaupþings hf. um kaup
ríkisbankanna þriggja á hlutabréf-
um í DeCODE, móðurfyrirtæki ís-
lenskrar erfðagreiningar. Kaup-
þing fagnar þessari umræðu og tel-
ur hana af hinu góða fyrir innlend-
an verðbréfamarkað. I grein Kaup-
þings hf. var það gagnrýnt að upp-
lýsingagjöf DeCODE væri ábóta-
vant og einnig var þess getið að
samkvæmt íslenskri löggjöf væri
lífeyrissjóðunum óheimilt að fjár-
festa í bréfum í DeCODE. Grein
þessi varð Innherja Viðskiptablaðs
Mörgunblaðsins efni til umfjöllunar
um þessi mál í gær og er þar gefið
sterklega í skyn að ástæður gagn-
rýni Kaupþings hf. mætti rekja til
afbrýðisemi. Vegna þeirra skrifa og
annarrar umfjöllunar sem orðið
hefur um áðurnefnda gagnrýni
Kaupþings hf. vill Kaupþing koma
eftirfarandi á framfæri.
Kjarni gagnrýni Kaupþings
beindist að upplýsingagjöf
DeCODE, móðurfélags Islenskrar
erfðagreiningar, sem við teljum að
hafi verið ábótavant. Innherji telur
fullnægjandi að bankarnir þrír sem
keyptu umræddan hlut hafi haft
aðgang að greinargóðum upplýs-
ingum um rekstur DeCODE og þar
sem um lokað útboð hafi verið að
ræða væri ekki við því að búast að
þær upplýsingar yrðu birtar opin-
berlega. Innherji telur augljóst að
bréf þessi verði ekki seld á almenn-
um markaði og yrðu ekki seld þar
án þess að upplýsingar um rekstur
fyrirtækisins liggi fyrir.
Hlutabréf í DeCODE voru fyrst
boðin innlendum fjárfestum í slíku
lokuðu útboði í febrúar 1998. Frá
þeim tíma hafa viðskipti með félag-
ið verið lífleg og fjöldi einstaklinga
og smærri fjárfesta keypt hluta-
bréf í félaginu. Hluthafaskrá
DeCODE telur nú nokkur hundruð
manns samkvæmt upplýsingum
sem finna má á heimasíðu félags-
ins. Þessi þróun mun að öllum lík-
indum halda áfram þó svo félagið
hafi ekki verið skráð á skipulögðum
hlutabréfamarkaði enda hefur fyr-
irtækið verið talinn spennandi fjár-
festingárkostur. Þó að forsvars-
menn bankanna hafi lýst því yfir að
þeir hafi fengið ítarlegar upplýs-
ingar frá DeCODE vegna kaupa
sinna nú, dregur það ekki úr gagn-
rýni á upplýsingagjöf félagsins
enda ljóst að með því er verið að
veita hluta eigenda félagsins mun
ítarlegi’i upplýsingar en aðrir
smærri hluthafar þess hafa aðgang
að.
Aðal forsenda trúverðugs verð-
bréfamarkaðar er jafn aðgangur
fjárfesta að verðmyndandi upplýs-
ingum, skiptir þá engu máli hvort
um „fagfjárfesta" er að ræða eða al-
menna sparifjáreigendur. Slík mis-
skipting upplýsinga um rekstur fyr-
irtækja, sem hér er á ferðinni,
hamlar því myndun skilvirkari
verðbréfamarkaðar hér á landi,
með því að grafa undan trausti al-
mennings á honum. I þessu sam-
hengi er rétt að líta á ákvæði 15.
greinar laga nr. 13/1996 um verð-
bréfaviðskipti: „Fyrirtæki í verð-
bréfaþjónustu skulu kappkosta við
að gæta fyllstu óhlutdrægni gagn-
vart viðskiptamönnum sínum í
starfsemi sinni og ber þeim ávallt
að haga störfum sínum þannig að
viðskiptamenn njóti jafnræðis um
upplýsingar, verð og önnur við-
skiptakjör í verðbréfaviðskiptum."
Þessari jafnræðisreglu er ætlað að
tryggja að fjárfestar sitji við sama
borð í skiptum sínum við verðbréfa-
íyrirtæki - og þannig skjóta stoðum
undir það markmið að almenningur
verði sem virkastur í atvinnuupp-
byggingu landsins með þátttöku á
verðbréfamarkaði. Að mati Kaup-
þings er þvi heppilegast þegar svo
er komið í viðskiptum með hluta-
bréf óskráðra íyrirtækja að eign
þein-a er orðin nokkuð dreifð og
hlutabréfin ganga kaupum og söl-
um á almennum markaði, að við-
komandi fyrirtæki leggi metnað
sinn í góða almenna upplýsingagjöf
um rekstur sinn og tryggi jafnan
aðgang að slíkum upplýsingum.
Þáttur aðila fjármagnsmarkaðar í
því að stuðla að slíkri upplýsinga-
gjöf verður og ekki vanmetinn. Það
þarf því ekki að vekja furðu að
Kaupþing vekti athygli á máli þessu
heldur má fremur spyrja hvers
vegna fleiri aðilar á þessum mark-
aði hafi ekki gert hið sama. Þó að
Kaupþing hf. hafi komið fram með
þessa gagnrýni má ekki skilja hana
sem neikvætt viðhorf íyrirtækisins
til DeCODE almennt. Þeir hlutir
sem félagið er að gera eru mjög
spennandi og endurspeglast það í
miklum áhuga fjárfesta. í þessari
umræðu hefur ekkert verið rætt
um það hvort markaðsvirði
DeCODE teljist hátt eða lágt enda
var það ekki tilefni þessarar um-
ræðu. Þá má og benda á að forráða-
menn DeCODE hafa lýst því yfir að
fyrirtæki hyggist bæta upplýsinga-
gjöf sína í kjölfar þessarar umræðu
og ber að fagna því.
Þær skoðanir sem m.a. Innherji
Viðskiptablaðs Morgunblaðsins
heldur á lofti að annarlegar hvatir
liggi að baki skrifum Kaupþings hf.
um þessi mál eiga sér enga stoð í
hoppikastali
og frabsr tflboð
Þeir sem kaupa vagn
um helgina fá
20.000 kr. ávfsun til úttektar
á útivistarvörum.
> Tjaldvagnar
> Tjöld yf.»30
> Garöhúsgögn 20%
> Fatnaður FrSbffir tUboð
> Útbúnaður
gerðir Á SYNINGARSVÆÐI
afsláttur um helgina
SEGLAGERÐIN
Stofnað 1913
ÆGIR
Eyjarslóð 7 Reykjavík Sími 511 2200
■'sé-verslun ferðafólksins