Morgunblaðið - 25.06.1999, Blaðsíða 51
MORGUNBLAÐIÐ
FRETTIR
FÖSTUDAGUR 25. JÚNÍ 1999 51
Orkuveita Reykjavfkur og Félag eldri borgara
Samið um
afnot golf-
vallar í
Hvammsvík
ORKUVEITA Reykjavíkur og
Félag eldri borgara í Reykjavík
og nágrenni, hafa gert með sér
samning um afnot félagsmanna
af golfvellinum í Hvammsvfk
Kjósarhreppi án endurgjalds. f
Félagi eldri borgara í Reykjavík
og nágrenni, eru félagsmenn um
sjö þúsund talsins og er búist við
að íjöldi þeirra muni nýta sér
þessa aðstöðu.
Ásamt félögum í áðurnefndum
félagsskap aldraðra munu fé-
lagsmenn í öðrum samtökum
eldri borgara á orkuveitusvæði
Orkuveitu Reykjavíkur njóta
sömu réttinda, segir í fréttatil-
kynningu frá Orkuveitunni.
Orkuveita Reykjavíkur er eig-
andi Hvammsvíkur og er hluti
jarðarinnar leigður til Hvamms-
víkur ehf. sem rekur ferðaþjón-
ustu á staðnum. Þar eru fjöl-
breyttir útivistarmöguleikar í
boði, svo sem veiði, kajakróður,
gönguferðir o.fl. og er þar
einnig boðið upp á margskonar
þjónustu við útivistarfólk. Þá er
Skógræktarfélag Reykjavíkur
Morgunblaðið/Jim Smart
ÓLAFUR Ólafsson og Alfreð
Þorsteinsson takast í hendur
vegna samnings Félags eldri
borgara í Reykjavík og Orku-
veitu Reykjavíkur um afnot fé-
lagsmanna af golfvellinum í
Hvammsvík.
að græða landið skógi í sam-
vinnu við Orkuveitu Reykjavík-
ur og gerð hefur verið náttúru-
farskönnun og landnýtingará-
ætlun með það að markmiði að
svæðið nýtist til almennrar úti-
vistar, segir í tilkynningunni.
Hvammsvík er í um 50 km
fjarlægð frá Reykjavik. Áætlun-
arferðir eru farnar um Hval-
fjörð frá BSÍ og einnig býður
rútufyrirtækið AUrahanda upp á
daglegar ferðir í Hvammsvík.
Fyrirlestur um líf-
fræðiverkefni
EGILL Briem lífefnafræðingur,
meistaranemi í efnafræðiskor, flytur
fyi-irlestur um verkefni sitt: Einangr-
un, hreinsun og eiginleikar þorska-
kollagenasa Ib í dag, föstudag kl.
13.15. Fyrirlesturinn verður haldinn í
stofu 158 í VR II, húsi verkfræði- og
raunvísindadeilda við Hjarðarhaga.
Fyrirlesturinn er lokaáfangi til
meistaraprófs í lífefnafræði við efna-
fræðiskor raunvísindadeildar Há-
skóla Islands í október í ár. í fyrir-
lestrinum fjallar Egill um einangrun,
hreinvinnslu og hvötunareiginleika
próteinaensíms úr þorski. Leiðbein-
andi Egils er Jón Bragi Bjarnason
prófessor.
Fyrirlesturinn er á vegum mál-
stofu efnafræðiskorar. Aðgangur er
öllum heimill.
Frjálslyndi flokkurinn
Alyktun um um-
hverfísmat
FRJÁLSLYNDI flokkurinn hefur
sent frá sér eftirfarandi ályktun um
lögformlegt umhverfismat Fljóts-
dalsvirkjunar:
„Fundur miðstjómar og þing-
flokks Frjálslynda flokksins, haldinn
í Reykjavík 22. júní, vísar til stefnu-
yfirlýsingai- flokksins, þar sem segir:
„Virkjanaleyfi á aldrei að veita
nema að undangengnu lögformlegu
umhverfismati. Geri virkjanir ráð
fyrir að stór landssvæði fari undir
uppistöðulón, fossar hverfi o.s.frv.
er þjóðin ein fær um að veita sam-
þykki fyrir framkvæmdum."
Með vísan til þessa er það krafa
Frjálslynda flokksins að viðhorf
þjóðarinnar til eyðingar Eyjabakka
verði kannað í þjóðaratkvæða-
gi-eiðslu, þverskallist ríkisvaldið við
að fram fari lögformlegt umhverfis-
mat.“
Radíusbræður
á Grandrokk
RADÍUSBRÆÐUR, þeir Davíð
Þór Jónsson og Steinn Armann
Magnússon, munu troða upp á
Grandrokki í kvöld. Nokkuð er um
liðið síðan þeir félagar komu síðast
fram. Að atriði Radíusbræðra loknu
mun hljómsveit stíga á stokk.
Flutt
í Sætún
SMUR-, bón- og dekkjaþjónustan
sf., sem áður var tH húsa að
Tryggvagötu 15, er nú flutt í nýtt
húsnæði að Sætúni 4.
Að sögn Páls Jóhannssonar, ann-
ars eiganda fyrirtækisins, varð að
flytja starfsemina þar sem Reykja-
víkurborg, sem á húsnæðið að
Tryggvagötu, ætlar að koma þar
upp aðstöðu fyrir Borgarbókasafn-
ið. Varð því úr að keypt var af Vest-
fjarðaleið 600 fennetra húsnæði í
Sætúni. Sagðist Páll vera ánægður
með hina nýju aðstöðu. „Hér eru
mun betri bílastæði en á Tryggva-
götunni og húsnæðið sjálft er mun
bjartara og betra. Við vonum bara
að gömlu viðskiptavinimir okkar
elti okkur hingað, sem þeir virðast
raunar gera í miklum mæli.“
Sem fyrr verða starfrækt olíu-
smurstöð og dekkjaverkstæði hjá
Smur-, bón- og dekkjaþjónustunni.
Einnig er boðið þar upp á bón- og
þvottaþjónustu, auk ýmiss konar
smærri viðgerða. Opið er kl. 8-18
alla virka daga og 10-15 á laugar-
dögum á tímabilinu 1. október-1.
maí.
Morgunblaðið/Þorkell
PALL Jóhannsson, annar eig-
andi Smur-, bón- og dekkja-
þjónustunnar sf., í hinu nýja
húsnæði að Sætúni 4.
Nuddpottar
Amerískir rafmagnspottar
fyrir heimili og sumarhús.
Stærð ca 2x2 m, 1.100 Itr. Kr. 450 þús.
VESTAN ehf.,
Auðbrekku 23, 200 Kópavogi,
sími 554 6171, fars. 898 4154.
Nýtt jarðfræði-
kort gefíð út
NÁTTÚRUFRÆÐISTOFNUN ís-
lands hefur gefið út jarðfræðikort af
íslandi í mælikvarðanum
1:1.000.000. Kortið er 44 x 62 sentí-
metrar að stærð og hentar vel sem
veggkort á heimilum, vinnustöðum
og skólum.
Nýja kortið er einfölduð útgáfa af
berggrunnskorti í mælikvarðanum
1:500.000, sem stofnunin gaf út í
maí 1998, og sýnir helstu drætti í
jarðfræði landsins. Jarðlög eru
flokkuð eftir aldri, gerð og samsetn-
ingu. Einnig sýnir kortið vel gos-
belti landsins og er nútímahraunum
skipt í forsöguleg og söguleg hraun.
Nýja kortið er unnið með sér-
stakri tækni sem lyftir landslaginu
svo að það virðist í þrívídd þannig
að yngri jarðlög leggjast yfir hin
eldri. Höfundar kortsins eru jarð- r
fræðingarnir Haukur Jóhannesson
og Kristján Sæmundsson en Hans
H. Hansen annaðist kortagerðina.
Kortið er prentað í Prentsmiðj-
unni Odda. Náttúrufræðistofnun
Islands hefur gert sölu- og dreif-
ingarsamning við Mál og menningu
og mun kortið fara í almenna dreif-
ingu á þess vegum eins og önnur
nýrri náttúrufarskort stofnunar-
innar.
Snyrtifræðingar,
förðunarfræðingar
og annað áhugafólk
um betra útlit
Sunnudaginn 27. júní fáum við
í heimsókn erlendan snyrtifræðing
sem mun kynna fyrir íslendingum
nýja ítalska förðunarlínu.
Snyrtifræðingur þessi hefur 10 ára
reynslu við að kynna vörur á borð við
Lancaster, Lancöme, Kanebo, Claris,
Babor og Maria Galland. Hér gefst
spennandi tækifæri fyrir þá sem vilja
vinna sjálfstætt. Allar nánari
upplýsingar fást hjá mér í síma
699 0166 (María Hjaltadóttir).
LAUGARÁSBÍÓ KYNNIR
Þú Ert Frábær AOSHN
20.000 MANNS Á1 VlKU
BJÓSTU Við einhverju Öðru Elskan ?