Morgunblaðið - 26.06.1999, Page 1

Morgunblaðið - 26.06.1999, Page 1
141. TBL. 87. ÁRG. LAUGARDAGUR 26. JÚNÍ 1999 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS Mikíð mann- fall í óeirð- um í Kosovo Pristina, Genf, Brussel. Reuters. AÐ MINNSTA kosti fjórtán íbúar Pristina, höfuðstaðar Kosovo, biðu bana í gær og fyrradag í mestu óeirðum sem blossað hafa upp í hér- aðinu frá því hersveitir NATO fóru þangað fyrir hálfum mánuði. Wesley Clark, yfirhershöfðingi NATO, sagði að senda þyrfti alþjóð- legar lögreglusveitir til héraðsins sem fyrst til að koma á lögum og reglu. Á meðal Kosovo-búanna sem féllu voru að minnsta kosti þrír Serbar sem fundust látnir í háskólanum í Pristina í fyrradag. Tveir dóu á sjúkrahúsi, annar af skotsárum en hinn var drepinn þar. Hjúkrunar- kona særðist einnig á sjúkrahúsinu. Lík fundust víðar í borginni en talsmaður NATO vildi ekki skýra frá þjóðemi fómarlambanna þar sem bandalagið óttast að slíkar upp- lýsingar geti magnað spennuna mUli serbneskra og albanskra íbúa héraðsins. „Þeir vom allir Kosovo- búar,“ sagði hann. Italskur hermaður dó einnig á sjúkrahúsi eftir að hafa orðið fyrir skoti þegar hleypt var af byssu fyrir slysni. Ofbeldið kom ekki á óvart þar sem æ fleiri albanskir flóttamenn hafa snúið aftur tU héraðsins og fyllst reiði vegna aðkomunnar, eyði- lagðra húsa, eitraðra vatnsbóla og hættulegra jarðsprengjusvæða, auk þess sem margir þeirra misstu ætt- ingja í þjóðemishreinsunum Serba. Bandaríkin Hagvöxtur meiri en spáð var Washington. Reuters. HAGVÖXTURINN í Bandaríkjun- um var meiri á fyrsta fjórðungi árs- ins en spáð hafði verið og hagnaður fyrirtækja jókst um 6,2%, sem er mesta hækkun í fjögur ár, sam- kvæmt hagtölum sem bandaríska viðskiptaráðuneytið birti í gær. Hagvöxturinn mældist 4,3% mið- að við heilt ár á fyrstu þremur mán- uðunum, en búist hafði verið við að hann yrði 4,1%. Pótt hagvöxturinn hafi minnkað frá síðasta fjórðungi liðins árs, þeg- ar hann var um 6%, er hann enn verulega yfir þeim mörkum sem bandaríski seðlabankinn telur að hagkerfið þoli til lengri tíma litið án þess að hann valdi verðbólguþrýst- ingi. Verðlagið hélst stöðugt á fyrsta ársfjórðungnum en búist er við að seðlabankinn tilkynni á næstu dögum að vextir verði hækk- aðir til að koma í veg fyrir verð- bólgu. Yfirvofandi vaxtahækkanir hafa orðið til þess að gengi bandarískra hlutabréfa hefur lækkað verulega síðustu daga, en það tók að hækka aftur í gær. Bill Clinton Bandaríkjaforseti lét þau orð falla í gærkvöldi að Serbar ættu ekki að fá neitt fé til endur- uppbyggingar Serbíu nema þeir sýndu iðrun vegna grimmdarverk- anna í Kosovo. Kveikt í húsum Serba Jan Joosten, talsmaður NATO, sagði að hersveitimar hefðu lagt hald á „þúsundir vopna“ á þeim hálfa mánuði sem þær hafa verið í Kosovo. Hermenn NATO handtóku fimm manns sem höfðu brotist inn í mat- vöruverslun í eigu serbneskrar konu í Pristina í fyrrakvöld. Her- sveitunum hafa borist 23 kvartanir vegna gripdeilda í borginni. Astandið var einnig slæmt á nokkrum öðrum stöðum í Kosovo vegna árása Albana á Serba. Nán- ast allir serbneskir íbúar þorpsins Zegra í suðausturhluta héraðsins hafa flúið þaðan vegna árása alb- anskra þorpsbúa, sem hafa rænt eigum þeirra og kveikt í nokkrum húsum. Um 50.000 Kosovo-búar fóru aft- ur tO héraðsins frá nágrannalönd- unum í fyrradag og var það mesti straumur ílóttamanna í héraðið á einum degi tO þessa. Alls hafa 300.000 manns snúið aftur tO hér- aðsins og um hálf mOljón Kosovo- búa er enn í nágrannaríkjunum eða á vergangi í héraðinu. Um 90.000 flóttamenn tO viðbótar hafa fengið hæli tO bráðabirgða í 29 löndum. Ahtisaari falið að stjórna Kosovo? Meðan hermenn NATO reyna að stilla tO friðar í Kosovo sækjast þrír evrópskir stjórnmálamenn eftir því að stjóma uppbyggingunni í hérað- inu, en þeir eru Emma Bonino, sem hefur átt sæti í framkvæmdastjóm Evrópusambandsins, Bernard Kouchner, heObrigðisráðherra Frakklands, og Paddy Ashdown, leiðtogi Frjálslynda demókrata- flokksins í Bretlandi. Stjómarerindrekar segja að svo kunni að fara að Kofi Annan, fram- kvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna, velji engan þessara stjórnmála- manna og reyni að fá Martti Ahtisa- ari Finnlandsforseta tO að taka þetta verkefni að sér. BANDARÍSKUR hermaður gengur framhjá brennandi húsi serbneskra íbúa þorpsins Urosevac í Kosovo. Kosovo-Albanar hafa kveikt í mörgum húsum Serba til að hefna grimmdarverka serbneskra öryggissveita. ísraelar hefna árásar Hizbollah með lofthernaði Senda skriðdreka í átt að Líbanon Beinit, Jerúsalem. Reuters, AFP. ÍSRÁELAR sendu skriðdreka í átt að landamærunum að Líbanon í gær eftir að hafa gert harðar loftárásir á landið tO að hefna flugskeytaárásar ísl- ömsku hreyfingarinnar Hizbollah á norðurhluta ísraels í fyrrakvöld. Moshe Arens, varnarmálaráðherra Israels, sagði mjög líklegt að Hizbollah gerði fleiri árásir og heimOaði hemum að grípa tO „sérstakra aðgerða" tO að vemda íbúa bæja í norðurhlutanum. Reuters LÍBANSKIR slökkviliðsmcnn halda á líkkistum tveggja slökkviliðsmanna sem biðu bana í loftárásum Israela á Líbanon í fyrrakvöld. Öryggisráð Sameinuðu þjóðanna og stjórnvöld í Bandaríkjunum og Frakklandi hvöttu til þess að árásun- um yrði hætt og friðarviðræður yrðu hafnar sem fyrst. Benjamin Net- anyahu, fráfarandi forsætisráðherra ísraels, og leiðtogi Hizbollah hótuðu hins vegar báðir að halda árásunum áfram. Netanyahu fyrirskipaði loftárásir á orkuver og mikOvægar brýr í Líb- anon í fyrrakvöld eftir flugskeyta- árásina, sem kostaði tvo ísraela lífið auk þess sem tugir særðust. Átta Líbanar, þeirra á meðal fimm slökkviliðsmenn, biðu bana og rúm- lega 60 særðust í loftárásum Israela, hinum mannskæðustu í þrjú ár. „Hizbollah skjátlast ef hreyfingin heldur að hún geti notfært sér Leggja SÞ til herlið BRETAR og Frakkar urðu í gær- kvöldi fyrstir þjóðanna sem eiga fast sæti í öryggisráði Sameinuðu þjóðanna tO að undirrita samning við samtökin um að hafa ávallt 5-8.000 hermenn tO reiðu vegna hugsanlegra friðargæslustarfa á vegum Sameinuðu þjóðanna. Sir Jeremy Greenstock, sendi- herra Bretlands hjá SÞ, og Alain Dejammet, sendiherra Frakklands, undirrituðu samningana í New York. Áður höfðu 22 ríki, sem eiga ekki fast sæti í öryggisráðinu, und- irritað svipaða samninga. Talið er að samningar Breta og Frakka séu einkennandi fyrir breytta tíma og breyttar áherslur í hemaði sem endurspeglist af auk- inni þörf fyrir heri stórveldanna tO að sinna friðargæslu fjarri heima- högum í stað ofuröflugra vama í heimalandinu. Robin Cook, utanríkisráðherra Bretlands, sagði í samtali við The Independent að Bretar myndu með þessum fyrirætlunum ekki fyrir- gera rétti sínum tO að neita SÞ um hermennina ef hagsmunir Bret- lands væm í húfi. Þá lagði hann áherslu á að ekki væri um vísi að fastaher SÞ að ræða. Hins vegar hefur verið bent á að geta SÞ til að taka betur á málum hafi nú stóraukist. „Ef slíkt fyrir- komulag hefði verið við lýði áður, hefði vel verið hægt að koma í veg fyrir þjóðarmorðið í Rúanda," sagði Cook. stjórnarskiptin í ísrael,“ sagði Net- anyahu. „Stjórn Israels ber ábyrgð á öryggi íbúa norðurhlutans. Israelar hefna sín ef reynt verður aftur að skaða borgara okkar.“ Leiðtogi Hizbollah, Hassan Nasrallah, sagði að árásum hreyfing- arinnar yrði haldið áfram þar til ísraelar hættu að ráðast á saklausa borgara í Líbanon. Hafði ekki samráð við Barak Netanyahu hafði ekki samráð við Ehud Barak, nýkjörinn forsætisráð- herra ísraels, áður en hann fyrir- skipaði loftárásirnar. Haft var eftir Barak að hann hefði „efasemdir“ um þær. Sýrlendingar sökuðu Netanyahu um að hafa fyrirskipað hernaðinn til að torvelda Barak að hefja friðarvið- ræður við araba eftir að hann tekur við völdum. „Svo virðist sem Net- anyahu sé staðráðinn í að ljúka stjórnmálaferlinum með miklum og heimskulegum aðgerðum,11 sagði í fréttaskýringu ríkisútvarpsins í Sýr- landi. Útvarpið tók þó fram að Sýr- lendingar vildu ekki að árásirnar yrðu til þess að friðarviðræðunum yrði frestað. Selim al-Hoss, forsætisráðherra Líbanons, sagði árásirnar valda efnahag landsins miklu tjóni og kvað ekki rétt að kenna aðeins Net- anyahu um árásirnar, því Barak bæri einnig ábyrgð á þeim. „Ef þetta er aðferð Israela við að greiða fyrir friðarviðræðum þá er ég ekki bjartsýnn.“

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.