Morgunblaðið - 26.06.1999, Blaðsíða 24
24 LAUGARDAGUR 26. JÚNÍ 1999
ERLENT
MORGUNBLAÐIÐ
Skipan Gregs Dykes í yfírmannsstöðu BBC hefur vakið harðar deilur í Bretlandi
Hafnar gagnrýni
og lofar að gæta
hlutleysis í starfi
London. AFP, The Daily Telegraph.
GREG Dyke, nýr yfirmaður breska
ríkisútvarpsins, BBC, reyndi í gær
að lægja öldur, sem urðu þegar til-
kynnt var um skipan hans í starfið á
fimmtudag. Dyke lýsti því yfir á
fréttamannafundi í London að hann
hefði slitið öll tengsl við breska
Verkamannaflokkinn og lofaði hann
jafnframt að gæta ýtrasta hlutleysis
í starfi. „I dag gekk ég úr Verka-
mannaflokknum," sagði Dyke og
kvaðst ekki telja að hann myndi
eiga erfitt með að aðskilja starf sitt
hjá BBC frá stjómmálaskoðunum
sínum.
Farið var hörðum orðum um
sldpan Dykes, sem er 52 ára, í leið-
urum breskra dagblaða í gær og
breska stjómarandstaðan brást
einnig ókvæða við, en Dyke hefur
alla tíð verið stuðningsmaður
breska Verkamannaflokksins og
þykir skipan hans nokkuð vafasöm í
ljósi þess að sú krafa hefur jafnan
verið gerð að ekki félli blettur á
pólitískt hlutleysi yfirmanns BBC.
Dyke viðurkenndi í gær að í
gegnum tíðina hefði hann saman-
lagt styrkt Verkamannaflokkinn um
sex milljónir íslenskra króna en
einnig hefur verið greint frá því að
Dyke sé persónulegur vildarmaður
Tonys Blairs forsætisráðherra, og
styrkti hann kosningasjóði Blairs
um rúmlega fimm hundrað þúsund
krónur þegar Blair bauð sig fram
sem leiðtoga Verkamannaflokksins
árið 1994.
Ekki deilt um hæfni Dykes
Þetta mun vera í fyrsta sinn sem
maður, sem aldrei hefur komið ná-
lægt rekstri BBC, er ráðinn í æðsta
embætti stofnunarinnar. Dyke hef-
ur getið sér gott orð fyrir frammi-
stöðu sína í rekstri Pearson-stöðv-
arinnar, en einnig hefur hann starf-
að hjá LWT, GMTV og Stöð 5.
Athygli vekur að flestir virðast
sammála um að Dyke sé í raun hæf-
astur þeirra sem til greina komu í
stöðu yfirmanns BBC. Hann þykir
vel í stakk búinn til að takast á við
þær áskoranir sem bíða BBC á
nýrri öld, útbreiðslu stafrænnar
tækni í ljósvakamiðlun, deilna um
skylduáskrift Breta að BBC og til-
raunum tíi að hagræða í rekstri
stofnunarinnar.
En þótt kunnugir segi Dyke
með skipan Dykes að gera, en það
er tólf manna útvarpsráð sem velur
yfirmanninn, hikuðu bresku dag-
blöðin í gær ekki við að kalla Dyke
„skjólstæðing" Tonys Blairs. Jafn-
vel The Guardian, sem er til vinstri í
stjómmálum, kallaði skipan Dykes
„áfaU“.
Mun Hugo Young, stjómarfor-
maður Scott-sjóðsins sem á The Gu-
ardian, hafa sagt nýlega að ef Dyke
fengi starfið jafngilti það yfirlýs-
ingu stjómenda BBC um að gott
orðspor BBC skipti þá engu máli
lengur. „Þeir myndu þá hafa horft
til stjómarherra Verkamanna-
flokksins og sagt auðmjúkir „verði
ykkar vilji“. Megi fjandinn hafa þá
geri þeir það.“
Dagblaðið The Times, sem er í
eigu fjölmiðlarisans Ruperts Mur-
dochs, og hefur barist gegn skipan
Dykes, gekk harðast í gagnrýni
sinni í gær en í leiðara blaðsins var
lýst áhyggjum um framtíð BBC.
Var þess getið að fréttamenn hjá
BBC óttist nú mjög að með Dyke
við stjómvölinn falli blettur á
starfsheiður þeirra. Jafnframt er
lögð áhersla á þá skoðun margra að
það góða orðspor, sem af BBC fer
víða um heim, byggist á þeirri vissu
að stofnunin sé hafin yfir gagnrýni
um hlutdrægni.
Fulltrúar í útvarpsráðinu höfn-
uðu allri gagnrýni í gær og sögðu að
þeir hefðú „einróma" samþykkt
skipan Dykes í embættíð. Lét Sir
Christopher Bland, formaður út-
varpsráðsins, hafa eftir sér að Dyke
væri „rétti maðurinn til að stýra
BBC inn í nýtt árþúsund".
Reuters
GREG Dyke fyrir framan aðalstöðvar BBC í London í gær.
harðan í hom að taka, óhræddan við
að taka áhættur, snjallan stjórn-
anda og færan um að láta ekki eigin
persónulegu skoðanir hafa áhrif á
dómgreind sína hafði verið talið að
tengsl hans við Verkamannaflokk-
inn gerðu út um möguleika hans á
að hreppa stöðuna. William Hague,
leiðtogi íhaldsflokksins, gekk fyrr í
mánuðinum svo langt að segja að
skipan Dykes yrði „algerlega óvið-
unandi" vegna tengsla hans við
Verkamannaflokkinn.
Fór Hague þegar á fimmtudag,
þegar fréttir af skipan Dykes láku
út, fram á einkafund með Dyke,
sem tekur við starfinu af Sir John
Birt í aprfl á næsta ári, í því skyni
að fá loforð Dykes fyrir því að hann
muni gæta fyllsta hlutleysis.
Michael Ancram, flokksformaður
Ihaldsflokksins, lýsti áhyggjum sín-
um í gær þegar hann sagði að engu
skipti hversu hæfur Dyke værí 'í
starfið, erfitt yrði fyrir BBC að
hrista af sér yfirbragð hlutdrægni
með Dyke við stjómvölinn. „Fari
svo að menn kvarti yfir því að BBC
hygli ríkisstjóm Verkamanna-
flokksins munu menn vitaskuld út-
skýra það með því að benda á
stjómmálaskoðanir yfirmanns
stofnunarinnar," sagði Ancram.
„Þetta tel ég afar miður fyrir BBC.“
Harðorður leiðari
dagblaðsins The Times
Þótt talsmenn ríkisstjórnar
Verkamannaflokksins hafi reyndar
fullyrt í gær að þeir hafi ekkert haft
Efnismeira Dagskrárblaö
Hafðu Dagskrárblaó Morgunblaósins alltaf til taks nálægt
sjónvarpinu!
Jflor Jtmtíabiíi
(MK
Dagskrárþlað Morgunblaðsins inniheldur dagskrá sjónvarps- og
útvarpsstöðva í hálfan mánuð.
í blaðinu er einnig að finna viðtöl, greinar, kvikmyndadóma,
fræga fólkið og stjörnurnar, krossgátu, yfirlit yfir beinar útsend-
ingar frá íþróttaviðburóum og fjölmargt annað skemmtilegt efni.
Walter Schwimm-
er næsti aðal-
framkvæmdastjóri
Strassborg. Morgunblaðið.
ÞING Evrópuráðsins hefur ákveðið
að Austurrfldsmaðurinn Walter
Schwimmer verði næstí aðalfram-
kvæmdastjóri
ráðsins. Hinn 1.
september næst-
komandi tekur
Schwimmer við
embættinu úr
höndum Daniel
Tarschys frá
Svíþjóð og mun
gegna því í fímm
ár.
I annarri um-
ferð kosninganna um embætti að-
alframkvæmdastjóra Evrópuráðs-
ins var kosið á milli Bretans Terry
Davis og Walter Schwimmer og
hafði Austurríkismaðurinn betur.
Walter Scwimmer er fimmtíu og
sjö ára að aldri og lögfræðingur að
mennt. Hann hefur gegnt þing-
mennsku í Austurríki fyrir OVP,
flokk kristilegra demókrata, síðan
1971. Hann hefur átt sæti í austur-
rísku sendinefndinni á þingi Evr-
ópuráðsins síðan 1991 og verið for-
maður þingflokks frjálslyndra og
kristilegra demókrata frá árinu
1996. Síðan þá hefur hann einnig
gegnt starfi varaforseta þings Evr-
ópuráðsins.
Höfuðstöðvar framkvæmda-
stjórnar Evrópuráðsins era í
Strassborg í Frakklandi og í
starfsliði hennar eru nú um 1.300
manns. Aðalframkvæmdastjórinn
er kosinn til fimm ára af þinginu og
hefur yfiramsjón með stjórnsýslu-
störfum Evrópuráðsins. I þakkar-
ræðu sinni fyrir þinginu varð
Schwimmer tíðrætt um þróun Evr-
ópuráðsins og aukið vægi í alþjóða-
kerfinu eftir stjómarfarsbreytíng-
arnar í Austur-Evrópu. Hann
sagðist staðráðinn í að styðja þá já-
kvæðu þróun sem átt hefði sér stað
á þessum áratug því samrani Evr-
ópu sé eina leiðin til að halda megi
Reuters.
Walter
Schwimmer
friðinn í álfunni.
Samfara örri stækkun Evrópu-
ráðsins á þessum áratug hefur póli-
tískt vægi aðalframkvæmdastjór-
ans aukist tíl muna. Evrópuráðið
hefur reynt að móta sér stöðu sem
eitt helsta pólitíska afl samranaþró-
unar álfunnar síðan eftir seinni
heimsstyrjöld. Á sama hátt og kalda
stríðið markaði störf stofnunarinnar
er hún í dag vettvangur nýn-a
stjórnmálasambanda og mikilvæg-
ur hlekkur í samstarfi austurs og
vesturs. Evrópuráðið hefur ekki að-
eins veitt sautján ríkjum Austur-
Evrópu inngöngu heldur styður það
og hefur eftírlit með stjórnai’fars;
breytingunum í þessum löndum. I
ljósi þess hversu lítil stofnunin er í
samanburði við starfsfjölda og fjár-
lög ESB er stækkunin til austurs
mikill árángur.
Aukið pólitískt vægi Evrópu-
ráðsins samfara þessum mikilvægu
verkefnum kemur einnig fram í
nýjum starfssviðum aðalfram-
kvæmdastjórans. Síðan á fjöratíu
ára starfsafmæli Evrópuráðsins
árið 1989 hittir aðalframkvæmda-
stjórinn ásamt formanni ráðherra-
nefndarinnar forseta fram-
kvæmdanefndar sem og starfandi
forseta ráðherraráðs Evrópusam-
bandsins á ráðstefnu þar sem farið
er yfir sameiginleg markmið, verk-
efni og hagsmunamál.
Næsta ráðstefna verður haldin
sjötta október í Reykjavík í boði
Halldórs Ásgriímssonar sem fer
um þessar mundir með for-
mennsku ráðherranefndar Evr-
ópuráðsins.
í