Morgunblaðið - 02.07.1999, Blaðsíða 1
146. TBL. 87. ÁRG.
FÖSTUDAGUR 2. JÚLÍ 1999 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
Ekkert samkomulag á N-Irlandi um myndun heimastjórnar og afvopnun IRA
Blair og- Ahern leggja
fram tillögur til lausnar
Belfast. Reuters, AFP.
TONY Blair, forsætisráðherra Bret-
lands, og Bertie Ahern, forsætisráð-
herra Irlands, munu í dag leggja
fram tillögur sínar um hver verði
næstu skref í friðarumleitunum á
Norður-írlandi eftir að ljóst varð í
gærkvöldi að leiðtogar stn'ðandi
íylkinga í héraðinu myndu ekki ná
samkomulagi um myndun heima-
stjórnar og afvopnun öfgahópa, eftir
fjögurra daga maraþonviðræður.
Deilendur komu aftur að samn-
ingaborðinu um hádegi í gær, þrátt
fyrir að frestur sem Blair gaf þeim
til að ná saman hefði runnið út um
miðnætti kvöldið áður. I sundur dró
hins vegar í gærdag og var talið að
viðræðurnar væru við það að fara út
um þúfur um níuleytið í gærkvöldi.
Gerði Blair þá lokatilraun til að þoka
málum áfram en allt kom fyrir ekki.
Var tilkynnt að Blair og Ahem
myndu í dag leggja fram yfirlýsingu
þar sem skjalfestur væri sá árangur
sem náðst hefði í viðræðunum og
mat lagt á hvort hann gæti orðið vfs-
ir að fullri sátt.
Gerry Adams, leiðtogi Sinn Féin,
lýsti seint í gær miklum vonbrigðum
með að ekki hefði tekist samkomulag
og sagði flokk sinn hafa gert allt sem
í hans valdi stóð til að svo mætti
verða. Sakaði hann sambandssinna
um að standa í vegi samkomulags en
sagði að eins og málum væri nú kom-
ið væri það í höndum Blairs og
Aherns að ákveða næstu skref. Da-
vid Trimble, leiðtogi Sambands-
flokks Ulsters (UUP), yfírgaf hins
vegar Stormont-kastala án þess að
ræða við fréttamenn.
Tóku „sögnleg, risavaxin" skref
Blair hafði verið vongóður um það
við upphaf funda í gær að honum
tækist að fá Adams og Trimble til að
brúa bilið sín á milli og samkomulag
næðist um afvopnun írska lýðveldis-
hersins (IRA) og myndun heima-
stjórnar með aðild Sinn Féin, stjórn-
málaarms IRA. Hafði breski forsæt-
isráðherrann sagt að hvorir tveggja
deilendumir hefðu stigið „söguleg,
risavaxin“ skref í átt að samkomulagi
um afvopnun. Eftir því sem leið á
daginn varð hins vegar Ijóst að mikið
vantaði upp á að saman gengi og
kepptust deilendur við að kenna
hvorir öðrum um hvernig komið væri.
Það var alveg sama hvað reynt
var, ekki tókst að telja Trimble á að
samþykkja myndun heimastjórnar-
innar með Sinn Féin innanborðs,
nema IRA í það minnsta afhenti ein-
hvern hluta vopna sinna samtímis
því sem stjórnarmyndunin færi
fram. Jafnframt hafði Adams gert
öllum ljóst að hann gæti ekki boðið
betur en loforð um að afvopnun
myndi sannarlega eiga sér stað, og
það fyrr en síðar.
Trimble vildi hins vegar ekki taka
loforð Sinn Féin um að afvopnun
myndi eiga sér stað gott og gilt nema
það væri skriflegt og undirritað af
IRA.
Reuters
Sumarregn
í Prag
HANN hellirigndi í Prag, höfuð-
borg Tékklands, í gær þegar
þetta par gekk berum fótum yfir
hina ævafornu Karlsbrú í mið-
borginni. Á hverju sumri leggja
hundruð þúsunda ferðamanna
leið sína til borgarinnar.
Indverjar
blása til
sóknar
í Kasmír
Nýju Dclhí, Drass, Srinagar. AFP, Reuters.
INDVERSKI herinn blés í gær til
harðrar sóknar gegn pakistönskum
skæruliðum í fjöllum í norðurhluta
Kasmír-héraðs á sama tíma og ind-
versk stjórnvöld neituðu því alfarið
að þau ættu nú í leynilegum við-
ræðum um lausn Kasmír-deilunnar.
Jafnframt sökuðu Indverjar Pak-
istana um að hafa tekið upp á því að
myrða saklausa borgara eftir að
þeir gerðu sér Ijóst að innrás þeirra
í Kasmír hefði verið hrundið. Leið-
togar skæruliðanna héldu því á
hinn bóginn fram að þeim hefði tek-
ist að skjóta niður eina af árásar-
flugvélum Indverja.
Indlandsher sótti í gær bæði með
landher og flugher gegn skærulið-
unum við rætur Himalaja-fjalls
Indlandsmegin við þau landamörk
sem skilja að umráðasvæði Pakist-
ans og Indlands í Kasmír, sem ver-
ið hefur bitbein þjóðanna tveggja
um áratugaskeið. Indverjar segja
að skæruliðarnir séu liðsmenn
pakistanska hersins en því neita
stjórnvöld í Islamabad og segja þá
heimamenn sem ósáttir séu við yf-
iiTáð Indlands.
Lal Krishna Advani, innanríkis-
ráðherra Indlands, sakaði Pakist-
anstjóm um að eiga þátt í skyndi-
legri fjölgun morða í Jammu- og
Kasmír-héraði undanfarið, en á
þriðjudag myrtu byssumenn tólf
verkamenn í Kasmír-dalnum og
þótt enginn haíl lýst ábyrgð á
ódæðinu á hendur sér velktist Adv-
ani ekki í vafa um hver bæri sökina.
„Nú þegar okkur hefur tekist að
stemma stigu við innrásinni grípur
Pakistan til þess bragðs, sem það
hefur oft áður gripið til, að myrða
saklaust fólk og leita uppi auðveld
skotmörk," sagði Advani.
Hörð átök
í Jakarta
INDÓNESÍSKIR lögreglumenn
berja á andófsfólki í Jakarta,
höfuðborg Indónesíu, í gær eft-
ir mótmælaaðgerðir fólksins
fyrir utan kjörfundarskrifstofu
í miðborg Jakarta. Síðar hóf
lögreglan skothríð að fólkinu
og særðust þá að minnsta kosti
þrír. Óeirðirnar voru hinar
fyrstu í Jakarta frá því að kosn-
ingar fóru fram hinn 7. júní
síðastliðinn.
Reuters
Fórna frímu fyrir lík Leníns
Moskvu. The Daily Telegraph.
KOMMUNISTAR á rússneska þinginu fóma sumar-
fríinu í ár til að standa vörð um jarðneskar leifar
byltingarforingjans Leníns, sem varðveittar eru í
glerkistu í grafhýsi á Rauða torginu í Moskvu, af
ótta við að Borís Jeltsín noti tækifærið og láti fjar-
lægja þær.
Kommúnistar óttast að stjómvöld hyggist grafa
Lenín í jörðu og banna starfsemi Kommúnista-
flokksins meðan á sumarleyfum stendur. Gennadí
Zjúganov, leiðtogi kommúnista, sagði að þingmenn
flokksins myndu skipuleggja sumarleyfi sín þannig
að ekki færri en 30 manns yrðu á verði við Rauða
torgið hverju sinni. Munu þeir þó ekki standa beint
fyrir utan grafhýsi Leníns, en fylgjast grannt með úr
skrifstofum sínum þar skammt frá.
Stjórnvöld virðast hafa mikla ánægju af að stríða
kommúnistum með því að ýja að því að dagar Leníns
á Rauða torginu kunni senn að vera taldir, og að til-
skipun um bann við starfsemi Kommúnistaflokksins
hafi þegar verið samin. Nokkur rússnesk dagblöð
hafa meira að segja tilgreint daginn sem líkið verður
fjarlægt úr grafhýsinu, og segja það verða 17. júlí,
sama dag og rússneska keisarafjölskyldan var tekin
af lífi árið 1918.