Morgunblaðið - 02.07.1999, Qupperneq 8

Morgunblaðið - 02.07.1999, Qupperneq 8
8 FÖSTUDAGUR 2. JÚLÍ 1999 MORGUNBLAÐIÐ FRETTIR Sturla Böðvarsson samgðnguráðherra um breytingar á yfírstjórn Landssímans hf. — Stjóm Landssímans samþykkti í gær að ráða Þórarin V. Þórarinsson í starf forstjórá hefar Guðmundur Bjömsson látið af því ÞETTA hefði einhvem tímann þótt fallega riðið í hlað. SVEINDIS Sveinsdóttir og Helgi Eyjólfsson með fyrstu fískana úr Álftá, þrjá laxa og einn sjóbirting. Morgunblaðið/SAM GUNNAR St. Karlsson með þrjá úr Elliðaánum. Líflegt á Arnarvatnsheiði Veiði byrjaði á Arnarvatnsheiði um síðustu helgi og veiddu ýmsir vel, en aðrir minna. Nokkuð hvasst var á svæðinu og grugguð- ust mörg vatnana við það, enda grunn með lausum Ieir- og mold- arbotni. Um tvennt er að velja þegar haldið er á Arnarvatnsheiði. Ann- ars vegar er farið upp úr Borgar- firði og veiðileyfi keypt í Húsa- felli. Þá eru vinsælustu vötnin Úlfsvatn og Arnarvatn litla, en leyfin ná til fleiri gjöfulla vatna sem eru minna stunduð. Hins veg- ar fara menn upp úr Miðfírði eða Vatnsdal til veiða í Arnarvatni stóra. Oftast er farið úr Miðfirði upp úr Austurárdal, en Austurá rennur einmitt úr Arnarvatni. Veiði var góð í Arnarvatni stóra, enda er það stærra og dýpra en önnur vötn og gruggast því ekki þótt blási. Heyrst hefur af einstökum veiðimönnum sem voru að fá 20 til 30 fiska yfir helgina. Mest er um 1 til 1,5 punda bleikju að ræða, en stærri fiskar eru til. Nokkrir urriðar veiðast jafnan í bland og heyrð- um við af 3 punda stærstum. Á sunnanverða svæðinu var helst veitt í Úlfsvatni og þar heyrðist af mönnum sem voru að fá upp í 45 silunga, mest bieikju frá 1 upp í 2 pund. Heyrst hefur einnig af öðrum með minni afla, en góðan afla samt, en minna veiddist í Arnarvatni litla vegna fyrrgreinds hvassviðris og gruggs. Nokkrir vænir urriðar hafa slæðst með, upp í 3-4 pund. Ekki mættur í Svartá í þjónustumiðstöðinni í Húsa- felli fengust þær upplýsingar, að færð fram á Heiði væri góð, en frá Norðlingafljóti er vegurinn þó einungis fær jeppum ogþaðan af stærri bifreiðum með drifi á öll- um hjólum. Á hádegi í gær hafði enginn lax veiðst í Svartá, en veiði hófst í ánni fyrir hádegi á miðvikudag. Á miðvikudaginn var áin skoluð og köld, en er leið á daginn hreinsaði hún sig. „Hún er nú orðin hrein og fín og þeir hafa verið að fá Iax í Bjöndu þarna rétt fyrir neðan. Útlitið er því bjart þó enginn lax hafí veiðst í opnuninni að þessu sinni,“ sagði Ivar Páll Jónsson, en fjölskylda hans var fyrst að veiða þetta ár- ið. Dauft í Stóru Laxá Afar lítil veiði hefur verið í Stóru Laxá í Hreppum það sem af er. í gærdag voru aðeins þrír lax- ar komnir á land af svæðum 1 og 2, eitthvað mjög Iítið af 3, en þann 25. júní voru þó komnir 13 laxar af svæði 4. Kunnugir telja skýringuna geta verið hlaupdrull- una sem fór úr Hagavatni niður Hvítá. Ganga hafí verið komin í ána áður, en síðan hefði lítið eða ekkert bæst við af laxi. Veiði hef- ur einnig verið dauf á Iðu, en nokkrir laxar hafa þó náðst þar. íslendingar á fimleikahátíð í Svíþjóð Þátttakendur frá 42 löndum AMORGUN heldur hundrað og sextán manna hópur frá Fimleikasambandi Is- lands tO Svíþjóðar til þess að taka þátt í Gymna- strada, sem er alþjóðleg fimleikahátíð sem haldin er fjórða hvert ár af FIG Alþjóðafimleikasam- bandinu. Aðalfararstjóri hópsins er Anna R. Möll- er, framkvæmdastjóri Fimleikasambands Is- lands. Hún var spurð hvort íslendingar hefðu oft tekið svo mikOfeng- legan þátt í þessari íþróttahátíð. Þetta er í fimmta sinn sem Islendingar senda hópa á Gymnastrada en aldrei hefur hópurinn verið jafn fjölmennur og nú. - Hvers vegna fara svon a margir núna? SennOega vegna nálægðar. Það er tOtölulega stutt og ódýrt að fara tO Svíþjóðar og núna hef- ur einnig verið unnið mikið að kynningu hátíðarinnar hér á landi. Undirbúningurinn fyrir mótið hefur staðið „á fullu“ í eitt og hálft ár. - Er þetta keppni eða sýning- arhátíð? Þetta er sýningarhátíð. Þarna koma fram 25 þúsund þátttak- endur frá fjörutíu og tveimur þjóðlöndum. Islenski hópurinn er með níu sérstakar sýningar og auk þess tekur hann þátt í sam- norrænni sýningu sem nefnist Norræna kvöldið. - Hvemig eru sýningaratriðin okkar? Við erum í samvinnu við Reykjavík - Menningarborg árið 2000, og erum með þrjár sérstak- ar sýningar sem nefnast Reykja- vík 2000, þar sem við kynnum í dansi og hreyfingum landið, nátt- úruna, fiskveiðar, veðurfar, mannlífið, miðnætursólina og eldinn og ísinn. Síðan eru í hinum sýningunum atriði frá félögunum sem taka þátt frá íslandi. - Hvaða félög eru það? Það er FimleikadeOd Ár- manns, FimleikadeOd Gerplu, fimleikafólk frá Keflavík og hóp- ur frá Hressingarleikfimi Ast- bjargar Gunnarsdóttur sem kall- ar sig Hress í 40 ár. Þátttakend- umir ern á aldrinum 12 tO 73 ára. Konumar eru hundrað og þrett- án en karlamir eru sjö. Við erum mjög stolt af að hafa þessa sjö karlmenn með í hópnum. - Hve oft hefur þessi Gymna- strada-hátíð verið haldin? Þetta er ellefta hátíðin. Sú fyrsta var haldin í Berlín 1959. Þessi hátíð er haldin tO þess að stuðla að þátttöku fjöldans í fim- leikum, þetta er hátíð þar sem allir geta verið með. ---------- Hátíðinni er oft líkt við Ólympíuleika vegna umfangs og glæsileika, en hún er hins vegar án keppni. Allar þjóðir sem taka þátt kepp- ast að vísu við að sýna það allra besta sem tO er í þeirra landi. Svisslendingar eru yfirleitt fjöl- mennastir, núna senda þeir 4600 þátttakendur. - Hvar er öllu þessu fólki kom- ið fyrir? Langflestir þátttakendur gista í skólum og á stúdentagörðum. Borðaður er morgunmatur á gististað, síðan er borðaður há- degismatur á sýningarsvæðinu, sem að þessu sinni er Svenska Anna R. Möller ►Anna R. Möller er fædd í Reykjavík 18. ágúst 1952. Hún lauk verslunarskólaprófi 1971. Hún hefur starfað í Landsbank- anuni og við heildsölu en er nú framkvæmdastjóri Fimleika- sambands Islands. Hún er gift Stefáni Hjaltested og eiga þau þrjár dætur. Hefur verið gífurlega mikil vinna. Mássan í Gautaborg, sem er stór ráðstefnu- og sýningarhöll. -Hvernig eru svona hátíðir skipulagðar? A daginn fara fram sýningar frá þátttökulöndunum en á kvöldin setja margar þjóðimar upp eins konar hátíðarsýningar, þar á meðal er t.d. Norræna kvöldið sem við frá Islandi tökum þátt í. Hæst ber Fig Gala, þar sem eru valin sýningaratriði frá hinum ýmsu þjóðum. Við höfum átt þar þátttakendur, en ekki núna. Þetta eru aUt innisýningar, en síðan eru útisýningar víða um Gautaborg. Þar verður væntan- lega hópurinn Hress í 40 ár með sýningu. - Hvert er gildi svona íþrótta- hátíða? Það er að þarna safnast saman fólk á öUum aldri frá ólíkum þjóð- um og það kynnist og lærir hvert af öðru. Þetta hefur mjög mikið félagslegt gUdi. Undirbúningur- inn fyrir þessa hátíð hefur verið gífurlega mikO vinna en að sama skapi lærdómsrík. Fólk lærir að taka tOlit hvert tO annars um leið og það iðkar íþrótt sína. -Eru fímleikar að verða æ vinsælli íþrótt? Já, bæði hefur aukist mikið þátttaka í áhaldafimleikum, einnig er mikO þátttaka í því sem kallað er trompfimleikar - þar æfa hópar saman. Það nýjasta í fimleikum er þolfimi. - Hve lengi stendur þessi há- tíð? Hún stendur frá 4. tU 10. júlí. --------- - Hefur þú tekið þátt í Gymnastrada áður? Eg sýni ekki, en er _________ í fararstjórahlutverki og sem slík hef ég far- ið tvisvar áður á Gymnastrada, 1995 í Berlín og 1991 í Amster- dam. Mér er eftirminnUegast þegar ég sá hóp af þroskaheftum börnum sýna í Amsterdam og hlustaði á sögu þeirra - hvað það hafði tekið langan tíma að kenna þeim það sem þau voru að sýna. Við sem forum núna á Gymna- strada hlökkum til ferðarinnar. Þess má geta að þátttakendur greiða kostnað af ferðinni sjálfir en allir hópar hafa verið mjög duglegir í eigin fjáröflun. . '
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.