Morgunblaðið - 02.07.1999, Side 9

Morgunblaðið - 02.07.1999, Side 9
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 2. JÚLÍ 1999 9 _____________FRÉTTIR___________ Jarðeigendur í Árnessýslu skila landamerkjakröfum til óbyggðanefndar Vilja að jarðeigendur eignist afréttinn EIGENDUR 79 jarða í Árnessýslu eru þessa dagana að skila inn kort- um og landamerkjakröfum til óbyggðanefndar. Jarðeigendur í sýslunni gera m.a. þá kröfu að af- réttir verði skilgreindir sem land- fræðileg eign jarðanna. Páll Lýðs- son, formaður Afréttamálafélags Flóa og Skeiða, telur ekki ólíklegt að bændur muni láta reyna á rétt sinn fyrir dómstólum verði úrskurður óbyggðanefndar þeim óhagstæður. Óbyggðanefnd var stofnuð með lögum um þjóðlendur sem nýlega voru samþykkt á Alþingi, en lögin gera í stuttu máli ráð fyrir að allt land sem einstaklingar eða félög geta ekki sýnt fram á að sé eign þeirra teljist eign ríkisins. Óbyggðanefnd hefur fengið það verkefni að skýi'a hvar landamörkin eru milli lands í eigu rík- isins og lands í eigu eintaklinga og fé- laga, en þessir jarðeigendur eru flest- ir bændur. Óbyggðanefnd ákvað að hefja þetta verk í Amessýslu og er búist við að niðurstaða af þessum fyrsta áfanga verkefnisins ráði miklu um niðurstöðuna fyrir landið í heild. Mikil vinna við gagnaöflun og kortagerð Afréttamálafélag Flóa og Skeiða og sveitarfélögin í Ámessýslu réðu Pál Lýðsson, sagnfræðing og bónda í Litlu-Sandvík, til þess verkefnis að afla gagna til að rökstyðja kröfur jarð- eigenda í Ámessýslu. Páll sagði að jarðeigendur hefðu orðið að leggja á sig talsverða vinnu og kostnað við að rökstyðja kröfur sínar. M.a. þyrftu þeii' allir að leggja fram kort af jörðum sínum þar sem landamerkin væru teiknuð inn á. Hann sagði að að mörgu leyti hefði verið eðlilegra að ríkið bæri kostnað af þessari vinnu sem það hefði óskað eftir að yrði ynnt af hendi. Páll sagði að á áranum 1882-1890 hefði verið unnin greinargerð um alla landamerkjapunkta í Árnessýslu og jafnframt hefði verið óskað eftir að fólk gerði athugasemdir við þá. Síðan hefði þessum landamerkjum verið þinglýst. Nú væri verið að vinna þetta verk aftur og að þessu sinni með landakortum. Óvissa um afréttínn Páll sagði að jarðeigendur í Ár- nessýslu gerðu kröfu til þess að af- réttir yrðu skilgreindir sem land í eigu jarðanna. Hann sagðist gera sér grein fyrir að um þetta væm skiptar skoðanir, en bændur biðu spenntir eftir því að heyra afstöðu óbyggða- nefndar til málsins. „Eg hef alltaf litið svo á að afrétt- ur væri svæði þar sem fé væri haldið til beitar og hrossum hér áður fyn' og jafnvel geldneytum og að þetta væri landfræðilegt hugtak. En mér sýnist að verið sé að reyna að gera þetta að einhvers konar gerandi hugtaki sem tekur til beitarréttinda, berjatínsluréttinda, vikurnámurétt- inda og réttinda til að tína fjallagrös. Þeir sem hafa þessa afstöðu telja að ríkið eigi sjálft landið.“ Páll sagði að ef óbyggðanefnd hafnaði kröfum bænda til eignar á afréttum mætti gera ráð fyrir að þeir létu reyna á afstöðu dómstóla til þessa máls. Þarna væra miklir hags- munir í húfi og ólíklegt að bændur sættu sig við að afréttir yrðu teknir af þeim án þess að þeir leituðu allra leiða til að spyrna við fótum. Nú þegar jarðeigendur í Árnes- sýslu hafa lýst kröfum sínum mun óbyggðanefnd fara yfir kröfurnar og meta þær. Nefnd á vegum fjármála- ráðuneytisins, sem var sett á stofn til að gæta hagsmuna ríkisins í málinu, mun einnig skila skýrslu um málið og að því búnu kveður óbyggðanefnd upp úrskurð. Bæði ríkið og jarðeig- endur geta höfðað dómsmál sætti þeir sig ekki við úrskurðinn. Niður- staðan í þessum málum gæti tekið talsverðan tíma, en óbyggðanefnd er ætlað að starfa til ársins 2007. Ýmls tilboð I gangi Bolir áður 1.490, nú 950 Buxur áður 3.950, nú 1.995 Peysur áður 3.450, nú 2.600 Kringlunni, sími 568 3242 . : : . ’ . : . . :: ■ : :. . ; :: ftówpBIl “ ...pottþétt Silfurpottar í Háspennu frá 16.júní til 30.júní 1999 Dags. Staður Upphæð 20. júní Háspenna, Laugavegi.............54.511 kr. 21. júní Háspenna, Hafnarstræti.....137.317 kr. 22. júní Háspenna.Laugavegi..............57.387 kr. 24. júní Háspenna, Hafnarstræti......98.272 kr. Háspenna, Laugavegi............53.081 kr. Háspenna, Laugavegi.......138.683 kr. 29. júní Háspenna, Laugavegi.............80.473 kr. 30. júní Háspenna, Laugavegi........140.738 kr. 26. júní 29. júní Dragtir, buxur, bolir, peysur frá K.S. Selection íría Skólavörðustíg 4a, s. 551 3069. Víðtækar rannsóknir hafa sýnt fram á mjög áhugaverðar niðurstöður fyrir notendur hins einstaka fæðubótarefnis PROLOGIC wm \ ,\N S SHOQ, _ *iu^ LÍKT fæst í flestum apótekum og lyfjaverslunum um land allt.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.