Morgunblaðið - 02.07.1999, Page 12

Morgunblaðið - 02.07.1999, Page 12
12 FÖSTUDAGUR 2. JÚLÍ 1999 MORGUNBLAÐIÐ Hópur frá Mið-Ameríku í kynnisferð um Norðurlönd Athuga meðferðarúrræði við heimilisofbeldi karla FRETTIR Morgunblaðið/Björn Blöndal FYRIR miðju eru Paz Castillo-Ruíz, Petteri Sveins og með þeim Pat- rico Welsh, Níkaragva, Josue Revolorio, Gvatemala, Edmundo Perez, Hondúras, Pedro Cedeno, Panama, Luis Orellana, E1 Salvador, og En- rique Giomaris, Kosta Rfka. SEX manna hópur frá Mið-Amer- íku hefur verið hér á landi að kynna sér meðferðarúrræði fyrir karlmenn sem gerst hafa sekir um heimilisofbeldi. Hópurinn er á ferð um Norðurlöndin og með honum eru ráðgjafi frá Þróunarbanka Am- eríkuríkja og verkefnisstjóri Rann- sóknar- og þróunarstofnunar Finn- lands í velferðar- og heilbrigðis- málum. Þau ræddu við Einar Gylfa Jónsson sálfræðing sem hefur um- sjón með verkefninu „Karlar tO ábyrgðar", og Guðrúnu Agnars- dóttur, framkvæmdastjóra Neyð- armóttöku vegna nauðgunar, sem hefur aðsetur á Sjúkrahúsi Reykjavíkur, á þriðjudag. Á mánu- dag áttu þau fund með starfsmönn- um Kvennaathvarfsins. Þó að samfélagsgerð Mið-Am- eríkuríkja sé um margt ólík sam- félagsgerð Norðurlandanna telur Paz Castillo-Ruíz, ráðgjafi Þróun- arbanka Ameríkuríkja, að hægt sé að nýta mikið af þeim hug- myndum sem meðferðarúrræðin á Norðurlöndum byggja á. Hún sagði ennfremur að þótt hlutfall ofbeldisverka væri talsvert hærra í Mið-Ameríku en á íslandi og að tíðni heimilisofbeldis væri jafn- framt hærri þar en hér á landi væru tilfelli heimilisofbeldis svip- uð. Völdu Norðurlönd vegna árangurs í meðferð Meginástæða þess að Norður- lönd urðu fyrir valinu er að sögn Petteri Sveins, verkefnisstjóra Rannsóknar- og þróunarstofnunai- Finnlands, sú að meðferðarúrræð- in á Norðurlöndunum hafa skilað betri árangri en til að mynda þau sem notuð eru í Bandaríkjunum, en mjög fá lönd bjóði upp á með- ferð fyrir gerendur í heimilisof- beldi. Þessu tO sönnunar sagði hann að engir karlar hættu í hóp- meðferð en venjan væri sú að um helmingur gæfist upp og hætti, að sögn Sveins. Hann sagði ennfrem- ur að í Finnlandi væri samstarf við fleiri aðila, s.s. lögreglu, en í Bandaríkjunum. Jafnframt sagði hann að gripið væri mun fyrr inn í mál þessara manna í Finnlandi því að mun auðveldara væri að hafa áhrif á viðkomandi fljótlega eftir að verknaðurinn er framinn heldur en ef nokkrar vikur líða frá. Ferð sexmenninganna er sam- vinnuverkefni finnska ríkisins og Þróunarbanka Ameríkuríkja og ber yfirskriftina „Karimennskuí- myndin og heimilisofbeldi". Menn- irnir eru frá E1 Salvador, Gvatemala, Panama, Hondúras, Nikaragva og Kosta Ríka og starfa á vegum viðkomandi ríkja. Þeir voru mjög áhugasamir, að sögn Ingólfs V. Gíslasonar, félagsfræð- ings á skrifstofu jafnréttismála, sem sá um að skipuleggja dagskrá þeirra hér á landi, og drógust fund- irnir á langinn vegna þess hve spurulir þeir voru. Ingólfur sagði að grundvallarfor- senda þess að unnt væri að útrýma ofbeldi gegn konum væri annars vegar að bæta efnahagslega og pólitíska stöðu þeira og hins vegar að beita sér fyrir vitundarvakningu um ofbeldi með því að vekja athygli á afleiðingum þess og að hvetja konur til að neita að sætta sig við að vera beittar ofbeldi. Meðferðarúrræði fyrir karla sem gerst hafa sekir um heimilisofbeldi hér á landi er í formi tilraunar- verkefnis sem nefnt hefur verið „Karlar til ábyrgðar“. Meðferðin er bæði í formi einstaklingsviðtala og hópmeðferðar og hefur á fjórða tug karla verið í meðferð. - >- Morgunblaðið/Þorkell GUÐMUNDUR Einarsson, forstjóri Heilsugæslunnar í Reykjavík, og Ingólfur Þórisson, framkvæmdastjóri Ríkisspítalanna, skrifuðu undir samninginn að viðstöddum forstöðumönnum deildanna, læknum, Ijós- mæðrum og fjölmiðlafólki. Heilsugæsla Reykjavíkur og Ríkisspítalar undirrita samning Miðstöð mæðra- verndar fæðist SAMNINGUR um sameiningu á starfsemi göngudeildar kvenna- deildar Landspítalans og mæðra- deildar Heilsuverndarstöðvar Reykjavíkur var undirritaður á blaðamannafundi sem fram fór á gangi mæðravemdar Heilsuvernd- arstöðvarinnar á þriðjudag. Með samningnum er lagður lagalegur gmnnur að Miðstöð mæðraverndar, sem verður í Heilsuvemdarstöð Reykjavíkur, þar sem Læknavaktin sf. var áður til húsa. Miðstöð mæðraverndar tekur til starfa fyrsta október næstkomandi og mun veita faglega þjónustu fyrir allt landið. Við gildistöku samningsins fyrsta september flytjast tæplega sex stöðugildi ljósmæðra í Miðstöð mæðraverndar frá kvennadeild Landspítalans. Að sögn Guðrúnar Sigurbjörnsdóttur, yfirljósmóður og sviðsstjóra kvenlækningasviðs, er mæðravernd í raun hluti af heilsugæslu þrátt fyrir að hún hafi verið starfrækt í miklum mæli inni á sjúkrahúsum. í sama þráð tók Guðmundur Einarsson, forstjóri Heilsugæslunnar í Reykjavík, og sagði einnig að markmiðið með sameiningunni væri markvissari þjónusta við verðandi foreldra en ekki sparnaður í rekstri. Sérhæfíng og fjarlækningar Verkefni Miðstöðvar mæðra- verndar munu meðal annars felast í almennri mæðravernd en auk þess mun þar sinnt sjúkdómum og öðni sem þarfnast sérhæfðari þekkingar. Reynir Tómas Geirs- son, prófessor í kvensjúkdóma- og fæðingarfræði á kvennadeild Landspítalans, sagði að starfsfólk yrði í aðstöðu til þess að veita ráð- gjöf um ýmis sértæk mál, s.s. syk- ursýki og meðgöngueitranir. Hann segir Miðstöð mæðraverndar ekki bara svara þörf á hagræðingu í mæðravemd. „Við þurftum líka meira rými á kvennadeild Land- spítalans fyrir aðra stoðstarfsemi eins og ómskoðun, félagsráðgjöf og fieira." Prófessor Reynir Tómas er í forsæti sex manna fagráðs sem annast stjórn Miðstöðvar mæðra- verndar. Doktor Arnar Hauksson, yfir- læknir á mæðradeild Heilsuvernd- arstöðvar Reykjavíkur, segir nafn- ið Miðstöð mæðraverndar vísa til að hún sé ekki stofnanatengd og einnig að þangað geti fólk leitað með öll sín vandamál. Hann segir að þjónustan verði fyrir allt landið og að í einu herbergjanna verði komið fyrir tækjum sem gera fjar- lækningar í mæðravernd möguleg- ar. Miðstöð mæðraverndar verður einnig kennslu- og rannsóknar- stofnun í tengslum við Háskóla Is- lands. „Stór hluti samvinnunnar," sagði doktor Arnar, „er að skapa aðstöðu til að framkvæma rann- sóknir og nýta alla þá sjúkdóma og meðferðir til að vita hvernig hægt sé að gera betur.“ Þangað til sameiningunni verður að fullu lokið hinn fyrsta október verður unnið að frekari endurbót- um á aðstöðunni sem íyrir er á Heilsuverndarstöðinni, en þar er mikil vinna eftir. fslensk miðlun og bæjaryfírvöld ísafjarðar Ræða um opnun fj arvinnslustöðvar á Ísafírði VIÐRÆÐUR standa yfir á milli bæjaryfirvalda á ísafirði og ís- lenskrar miðlunar um uppbygg- ingu fjarvinnslustöðvar sem skapað gæti atvinnu fyrir allt að 20 manns til að byrja með, segir Halldór Halldórsson bæjar- stjóri. „Við höfum verið að leita eftir nýjum tækifærum. Við unn- um metnaðarfulla stefnumótun í atvinnu- og ferðamálum í vetur og að þeirri vinnu komu milli 70 og 80 manns úr bæjarfélaginu. Við vinnum nú eftir henni og er- um að reyna að efla nýsköpun og skapa fleiri atvinnutækifæri. Þessar samningaviðræður eru meðal annars liður í því,“ segir Halldór. Að sögn Halldórs hefur Is- lensk miðlun ákveðið að opna útibú á svæðinu, en hins vegar er eftir að ræða um nánari út- færslu á framkvæmdinni. Býst hann við að skriður gæti komist á verkefnið innan eins til tveggja mánaða. Fjarvinnslustöð af þessu tagi felur einna helst í sér störf við skráningarvinnu og símsvörun.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.