Morgunblaðið - 02.07.1999, Qupperneq 22

Morgunblaðið - 02.07.1999, Qupperneq 22
22 FÖSTUDAGUR 2. JÚLÍ 1999 VIÐSKIPTI MORGUNBLAÐIÐ • • * FJ0LP0STI FJÖLPÓST m 'O&S&gí- www.postur.is/fjolpostur. m-lTi PÓSTURINN www.postur.is/fjolpostur ÞESSl AUGLÝSING ER BIRT 1 UPPLÝSINGASKYNI ÚTBOÐ O G SKRÁNING HLUTABRÉFA BAUGS H F BAUGU R ISLANDSBANKI Umsjón með útboði og milliganga við skráningu á VÞÍ Fjárfestingarbanki atvinnulífsins hf., kt. 501097-2179, Ármúla 13a, Reykjavík. Sölufyrirkomulag Hluthöfum verða boðin til sölu ný hlutabréf að fjárhæð krónur 40.000.000,- að nafnverði. Hlutabréfin verða ekki boðin í almennri sölu. Gengi Hlutabréfin verða seld á genginu 10,0 fyrir hverja krónu nafinverðs til hluthafa. Áskriftaskrá Tekið verður á móti áskriftum hluthafa á tímabilinu 15. júní til 5. júM 1999 á grundvelh forgangsréttar þeirra í áskriftaskrá Baugs sem liggur ffammi á skrifstofu Baugs, hluthafaskrá, Skútuvogi 7, Reykjavík, í samræmi við gögn sem félagið hefur sent hluthöfum. Sölutrygging Seljist ekki allt það hlutafé sem að þessu sinni er boðið til sölu á áskriftatímabilinu, sölutryggir Islandsbanki hf. kt. 421289-5069, Kirkjusandi 2, Reykjavík söluna. Gengi í sölutryggingu er hið sama og gengi til hluthafa, eða sem nemur 10 krónum fyrir hverja krónu nafnverðs. Sölutryggingin tekur gildi þegar niðurstöður sölu til hluthafa Uggja fyrir. Viðskipti og skráning öll þegar útgefin hlutabréf Baugs hf, samtals að nafhverði krónur 1.000.000.000,- eru skráð á Aðallista Verðbréfaþings Islands. Þau hlutabréf sem að þessu sinni eru boðin til sölu, auk hlutabréfa að fjárhæð krónur 82.500.000,- að nafnverði, sem ráðstafað hefur verið sem hluta af endurgjaldi vegna kaupa á Vöruveltunni, verða jaffiframt skráð á Aðallista að lokinni sölu hlutafjárins. Skjöl varðandi skráninguna Unnt er að nálgast útboðs-og skráningarlýsingu og önnur þau skjöl sem vitnað er til í henni hjá FBA að Ármúla 13a, Reykjavík sem og heimasíðu FBA, www.fba.is og Baugi, Skútuvogi 7, Reykjavík sem og heimasíðu Baugs, www.baugur.is. íþróttir á Netinu ^mbl.is ALLTAf= G/TTH\SA£? A/ÝT7 ICEPRO, nefnd um rafræn viðskipti Morgunblaðið/Jón BENEDIKT Benediktsson, skeytaráðgjafi ICEPRO, og Jakob Falur Garðarsson, framkvæmdastjóri ICEPRO: Rafræn farmbréf munu koma í staðinn fyrir á aðra milljón pappírsfarmbréfa í fimmriti. Fyrsta rafræna fylgi- bréfið FYRSTA rafræna farmbréfið með vörusendingu innanlands var „gefið út“ á miðvikudag. Flutningshópur ICEPRO, nefnd- ar um rafræn viðskipti, annaðist undirbúning verkefnisins og seg- ir Jakob Falur Garðarsson, fram- kvæmdastjóri ICEPRO, að raf- ræn farmbréf í flutningum eigi eftir að hafa í för með sér bæði hagræði og öryggi fyrir flutn- ingafyrirtæki og viðskiptavini þeirra. Verkefninu var ýtt úr vör seinasta haust í samvinnu við helstu fyrirtækin í flutninga- starfsemi innanlands. „I hinum alþjóðlega EDI-staðli um rafræn viðskipti er til raf- rænt farmbréf. Okkar vinna hef- ur falist í að þýða á íslensku leið- beiningar við þetta rafræna farmbréf. Markmið þeirra fyrir- tækja sem hafa hingað til gefið út farmbréf á pappír er að snúa sér eingöngu að rafrænum farm- bréfúm,“ segir Jakob Falur. Á hverju ári hafa verið gefin út á aðra milljón farmbréfa á pappír innanlands, þar sem hvert farm- bréf er oft í fímmriti. „Það er þó ekki eingöngu pappírsflóð sem menn eru að hugsa um að losna við, heldur hagræðingin í vinnuferli og betra eftirlit með vörunni sem rafrænt form fylgiskjals hefur í för með sér.“ Jakob Falur segir að útgáfa rafrænna farmbréfa, sem oftast yrði komið í hendur móttakenda gegnum gagnaflutningsnet Landssimans, X400, eða með tölvupósti, muni einnig minnka þörf á innslætti gagna, sem þar af leiðir muni minnka líkur á inn- sláttarvillum. Formaður flutningahóps ICEPRO sem unnið hefur að út- gáfu rafræns fylgibréfs er Ragn- ar Þór Ragnarsson, yfirmaður tölvudeildar Samskipa. ICEPRO var komið á árið 1990 að tilstuðl- an iðnaðar- og viðskiptaráðu- neytisins en í samvinnu við aðra aðila sem hagsmuna hafa að gæta, og er henni ætlað að vinna að framgangi rafrænna við- skipta hér á landi. Fyrsta verk- efni nefndarinnar var að koma á rafrænni tollskýrslugerð, og seg- ir Jakob Falur að um næstu ára- mót verði hefðbundnar toll- skýrslur úr pappír endanlega úr sögunni. Flutningsgeta Atlants- skipa eykst um 55% ATLANTSSKIP hafa tekið á tíma- leigu nýtt 294 gámaeininga skip sem þýðir um 55% aukningu í flutnings- getu á siglingaleiðinni milli Norfolk í Virginufylki í Norður-Ameríku til Njarðvíkur. Skipið er útbúið til að flytja þurrgáma, frystigáma, yfir- stærðir s.s. stórar vinnuvélar sem og mjöl og hveiti í lestir. í fréttatilkynningu frá Atlants- skipum kemur fram að skipið heitir M/S Radeplein og var sjósett í maí sl. og er búið öllum nýjasta tækni- búnaði til siglinga. Atlantsskip munu nota skipið til siglinga fyrir varnarliðið sem og verslunarvöru, sem er ört vaxandi liður í rekstri fyrirtækisins. Skipið mun hafa viðkomu í Nor- folk og Njarðvík á 24 daga fresti. Það tekur um átta daga fyrir skipið að sigla frá Norfolk til Njarðvíkur. Skipið getur flutt 50 frystigáma og rúmar 4.180 m3 í lest fyrir lausa- vöru, s.s. mjöl og hveiti, en heildar- Þarftu að skipta um olíusíu? Komdu í skoðun burðargeta er 3.500 tonn. Skipið er búið tveim krönum með allt að 40 tonna hífigetu. Það er 91 m á lengd og 16 m á breidd. Siglingahraði er um 15 hnútar. Radeplein er skráð í Hollandi og er fjöldi áhafnarmeð- lima átta. Aukin áhersla á yfirstærðir Atantsskip munu halda áfram að bjóða hagkvæmt fraktverð milli ís- lands og Bandaríkjanna. Aukin áhersla verður lögð á að flytja svo- kallaðar yfirstærðir, en það eru hlutir sem komast ekki inn í gáma s.s. vörubílar, stórar vélar og tæki. „Atlantsskip hafa öðlast mikla reynslu í að flytja yfirstærðir þar sem stór hluti flutninga fyrir vam- Á SÍÐASTA ári komu rúmlega 232.000 erlendir ferðamenn til Is- lands eða 64% fleiri en í byi-jun ára- tugarins, eins og segir í Hagvísi Þjóðhagsstofnunar. Gera má ráð fyrir að fjöldi erlendra ferðamanna verði á bilinu 250.000-260.000 á þessu ári. Tekjur af ferðaþjónustu hafa vax- ið að sama skapi. Á síðasta ári námu gjaldeyristekjur 26,3 milljörðum sem er u.þ.b. helmings raunhækkun frá árinu 1990. Á árinu 1998 voru arliðið hefur falist í að flytja vélar og tæki á borð við þyrlur og vöruflutn- ingabíla. Þar á meðal eru fjórar þyrlur sem kosta um 25 milljónir ; dollara stykkið og voru fluttar inn í byrjun sumars og verða fluttar út með Radeplein. Viðbrögð inn- og út- 1: flytjenda hafa verið góð gagnvart Atlantsskipum og var því ákveðið að stækka skipakost Atlantsskipa," að því er fram kemur í fréttatilkynn- ingu Atlantsskipa. M/S Radeplein kemur til Njarð- víkur nk. laugardag og verður byrj- að að afferma skipið á laugardaginn. Skipið mun svo sigla út á miðviku- | dagskvöld. Farmurinn verður að mestu leyti frakt vegna heræfinga sem stóðu yfir í júní. gjaldeyristekjur af erlendum ferða- mönnum 12,9% af útfluttri vöru og þjónustu. Á árinu 1999 er gert ráð fyrir að þessar tekjur verði um 28,5- 29,5 milljarðar og auki því hlut sinn í útflutningi landsmanna. Ferðamannatíminn á íslandi virð- ist einnig vera að lengjast skv. upp,- lýsingum frá Þjóðhagsstofnun. Á | fyrstu fimm mánuðum þessa árs sóttu 73.000 erlendir ferðamenn * landið heim og eru það 16,4% fleiri en á sama tíma í fyrra. FJOLDI ERLENDRA FERÐAMANNA OG GJALDEYRISTEKJUR 1990-1999 Vísitala, 1990=100 200 1990 1991 1992 1993 1994 1995 1996 1997 1998 1999 áæti. Erlendum ferðamönnum fjölgar um 64% á áratug
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.