Morgunblaðið - 02.07.1999, Blaðsíða 23

Morgunblaðið - 02.07.1999, Blaðsíða 23
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 2. JÚLÍ 1999 23 ____________________VIÐSKIPTI______________________ íbúðalánasjóður tekur tilboði Búnaðarbankans og FBA Húsnæðisbréf fyrir 2 millj- arða seld ÍBÚÐALÁNASJÓÐUR hefur ákveðið að taka sameiginlegu tilboði Fjárfestingarbanka atvinnulífsins hf. og Búnaðarbanka íslands hf. í hús- næðisbréf í 1. og 2. flokki 1996, sam- tals að upphæð 2 milljarðar króna. Ibúðalánasjóður efnir til sölu á þessum flokkum húsnæðisbréfa vegna fjármögnunar annarrar starf- semi en þeirrar sem fjármögnuð er með húsbréfum. Fjármögnun með sölu húsnæðisbréfa á innlendum verðbréfamarkaði er samtals 7.600 milljónir króna á árinu 1999, sam- kvæmt fyrirliggjandi fjárlögum og lánsfjárlögum. Að_ sögn Asbjörns Þorleifssonar hjá íbúðalánasjóði er sölu fyrir sex milljarða lokið og því á eftir að selja húsnæðisbréf fyrir 1,6 milljarða króna. Sú starfsemi sem vérið er að fjár- magna með útgáfu húsnæðisbréf- anna er endurfjármögnun tekinna lána Byggingarsjóðs ríkisins og Byggingarsjóðs verkamanna sem nema fimm milljörðum króna, 1,4 milljarða viðbótarlán, lán til leigu- Morgunblaðið/Jón Svavarsson FULLTRÚAR íbúðalánasjóðs, FBA og Búnaðarbankans við undirritun samningsins. STAÐA IVIARKAÐSSKU LDABRÉFA íbúða sem nema 756 milljónum og u.þ.b. 400 milljónir í önnur útlán. Stefnt er að því að á þessu ári verði boðið til sölu svo mikið af bréfum úr þessum flokkum sem þarf til að mæta fjárþörf Ibúðalánasjóðs, annarri en þeirri sem fjármögnuð verður með húsbréfum. Samkvæmt yfirliti Seðlabanka ís- lands eru húsnæðisbréf um 6,7% af útgefnum markaðsskuldabréfum í maí sl. Húsnæðisbréf eru gefin út í tveimur flokkum, 1. flokki 1996 til 24 ára og 2. flokki 1996 til 42 ára. Bréfin bera 2,7% fasta vexti og eru verð- tryggð skv. vísitölu neysluverðs. Tilboðin taka mið af ávöxtunar- kröfu húsbréfa í 1. flokki 1998, að frádregnum ákveðnum punktum og reyndist besta boð gera ráð fyrir frá- drætti upp á 0,37% fyrir 1. flokk en 0,61% fyrir 2. flokk húsnæðisbréfa. Tilboð barst einnig frá Lands- banka Islands hf. og að auki sameig- inlegt tilboð frá Islandsbanka hf., Kaupþingi hf. og Kaupþingi Norður- lands hf. Súrefnisvörur Karin Herzog Kynning í dag, kl. 14—18 í Hagkaup Kringlunni, Apótekinu Smáratorgi, Grafarvogs Apóteki, Egiisstaða Apóteki - Egilsstöðum. - Kynningarafsláttur - Góð: Samsung VM6000 + Intel Celeron örgjörvi 300MHz + 12.1 “ skj'ár + 32MB + 4GB KAUPMÁTTUR LAUNA OG FERMETRAVERÐ í FJÖLBÝLI Á HÖFUÐBORGARSV/EÐINU 1986-1999 Vísitala, 1990=100 ----------------------------------------------;-------------,---~------------------130 Tæplega 1700 nýjar íbúðir á þessu ári Nýr for- stjori hja Keflavíkur- verktökum STEINDÓR Guðmundsson verk- fræðingur hefur verið ráðinn for- stjóri Keflavíkurverktaka, eins og segir í fréttatil- kynningu frá fyrirtækinu. Steindór tekur við af Jóni H. Jónssyni sem verið hefur for- stjóri fyrirtækis- ins um árabil og lætur senn af störfum vegna aldurs. Fyrirtækið Keflavíkurverktakar var stofnað árið 1957 af fjórum verktakafyrirtækjum á sviði bygg- ingaframkvæmda og eru starfs- menn nú um 200. Steindór Guðmundsson hefur víð- tæka reynslu á sviði verklegra framkvæmda, fyrirtækjareksturs og stjómunar, eins og segir í fréttatil- kynningu frá Keflavíkurverktökum. Hann hefur undanfarin ár verið for- stjóri Framkvæmdasýslu ríkisins en var þar á undan framkvæmdastjóri og annar aðaleigandi Verkfræði- stofu Stanleys Pálssonar hf. Steindór er 52 ára gamall og er kvæntur Bjarndísi Harðardóttur snyrtifræðingi. Þau eiga þrjú böm. KAUPMÁTTUR launa hefur vaxið síðustu fjögur ár og hefur, ásamt greiðari aðgangi að lánsfé og mikl- um fólksflutningum tO höfuðborg- arsvæðisins, stuðlað að hækkandi íbúðaverði. Fjrrstu fimm mánuði þessa árs hefur umsóknum til Ibúðalánasjóðs vegna nýbygginga einstaklinga á íbúðarhúsnæði fjölg- að um 27% frá sama tíma í fyrra. Því má gera ráð fyrir að byrjað verði að byggja á milli 1600 og 1700 íbúðir á þessu ári sem er mesti fjöldi á þessum áratug. Að sögn Friðriks Más Baldurs- sonar, forstjóra Þjóðhagsstofnunar, hefur reynslan sýnt að húsnæðis- verð fylgi í kjölfar efnahagssveiflna og það taki töluverðan tíma fyrir markaðinn að bregðast við. Minnkandi eftirspurn ekki fyrirsjáanieg Friðrik segist ekki sjá fyrir minnkandi eftirspum, framboð á lánsfé sé ennþá nægilegt. Friðrik segir ennfremur að húsnæðisverð sé ekki orðið eins hátt og það var í síðustu uppsveiflu, árið 1988. Þá fór vísitala raunverðs (miðað við bygg- ingavísitölu) á fennetra á höfuð- borgarsvæðinu upp í 115,6 en var í maí 1999 111,18. Vísitalan var 100 stig árið 1990. Þrír lífeyr- issjóðir i samstarf ÞRIR lífeyrissjóðir sem hingað til hafa starfað sem séreignasjóðir hafa gert með sér samkomulag um samstarf í örorkutryggingum sjóð- anna, sem miðar að dreifingu áhættu milli sjóðanna. Þessir sjóð- ir eru Islenski lífeyrissjóðurinn, Lífeyrissjóður Tannlæknafélags Islands og Frjálsi lífeyrissjóður- inn. Tveir fyrstnefndu sjóðirnir eru í umsjá Landsbréfa hf. en sá síðastnefndi er í umsjá Fjárvangs hf., að því er fram kemur í frétta- tilkynningu frá fyrirtækjunum tveimur. Verða fullgildir lífeyrissjóðir Sjóðirnir þrír munu starfa sam- kvæmt lögum sem fullgildir lífeyr- issjóðir og bjóða sjóðfélögum upp á lágmarkstryggingavernd, ásamt séreignasparnaði. Trygginga- verndin er veitt með samþættingu séreignar- og sameignarforms og eru lífeyrisréttindin aldurstengd, segir í fréttatilkynningunni. Heild- arfjöldi sjóðfélaga í þessum þrem- ur sjóðum er um 12.500. íslenski lífeyrissjóðurinn og Frjálsi lífeyr- issjóðurinn krefjast ekki aðildar- skyldu heldur eru öllum opnir sem ekki er skylt að greiða til tiltek- inna lífeyrissjóða. + 4MB SGföAM skjáminni + 16 bita hljóðkort (3D SRS), hljóðnemi og hátalarar. + Innbyggð disklingadrif og geisladrif + DVD eða Zip drif fáanleg sem aukabúnaður Betri: Samsung GS6000 + Intel Pentium II örgjöivi 333MHz + 13,3" TFT skjár + 64MB + 6,4GB + 8MB SGRAM skjáminni + 56KB mótald + 16 bita hjjóðkort (3D SRS) hljóðnemi og hátalarar + Útskiptanlegt disklingadrif og 24x geisladrif. + DVD eða Zip drif fáanleg sem aukabúnaður. Best: Samsung GT6000 + Intel Pentium II örgjörvi 366MHz + 14.1" TFTskjár + 64MB vinnsluminni + 6,4GB diskur + 8MB SGRAM skjáminni + 56KB mótald + 16 bita hljóðkort (3D SRS), hljóðnemi og hátalarar. ♦ Innbyggð disklingadrif og DVD drif Fartölva er eins og tannbursti - ómissandi og alltaf með á ferðalögum Pað er merki' um framferir þegar góðir hlutir hætta að vera munaðarvara. Fartölvan er vissulega ennþá munaður en nú færðu öfluga fartötvu á verði sem þú ræöur auðveldlega við. Samsung fartölvan verður ómissandi og óaöskijjanlegur hluti af lífi þfnu. Hvert sem þú ferð fer hún llka. Hún tengir þig við vinnustað og vini, léttir vinnunna og styttir þér stundir þess á milli. Þú gleymír því fljótt hvernig lífið var án hennar! EJS hf. 4. 563 3000 + www.ejs.is «■ Grensásvegi 10 + 10 8 Reykjavík mBmnmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmammmmnmmmmmmmmmmummmmmmmmMmmmmummmammtmmtmm
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.