Morgunblaðið - 02.07.1999, Síða 31

Morgunblaðið - 02.07.1999, Síða 31
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 2. JÚLÍ 1999 31 DAIVS Nurræna liúsið JO STRÖMGREN, KOMPANI miðvikudagur 28. júní. MEÐ sumardagskrá sinni býður Norræna húsið upp á ýmsar sýning- ar og uppákomur. Þar á meðal dansverk eftir Björgvinjarbúann Jo Strömgren. Strömgren hefur vakið athygli sem dansari og danshöfund- ur í heimalandi sínu, Noregi. Hann hefur unnið verðlaun norskra leik- stjóra svo og norskra gagnrýnenda. Hann stofnaði eigin dnsflokk árið 1998 og er það hann sjálfur ásamt Bergmund Waal Skaslien sem flytja dansverkið „Maskuline Mysterier". Þetta dansverk er sambland dans og hreyfinga, leikrænnar tjáningar, tónlistar, kvikmyndar og leikbrúðu- sýningar.- Því er ætlað að varpa ljósi á tilfínningaheim karlmanns í ástar- sorg og samskipti hans við félaga sinn. Aðeins var um þessa einu sýn- ingu að ræða. Verkið er í söguformi og segir frá Barokktón- leikar í Arbæjarsafni BAROKKTÓNLEIKAR verða í Arbæjarsafni á morgun, laugardag, kl. 14. Að þessu sinni eru það Guð- rún Óskarsdóttir, Ólöf Sesselja Óskarsdóttir og Ragnheiður Har- aldsdóttir sem spila fyrir gesti barokktóna á blokkflautu, sembal og viola da Gamba. Meðan á tónleikunum stendur er boðið upp á leikjadagskrá fyrir börn við Komhúsið. -------------- Blái engillinn í Kaffíleikhúsinu SIF Ragnhildardóttir flytur nokkur frægustu lög Marlene Dietrich í Kaffileikhúsinu á morgun, laugar- dag, kl. 21. Undirleik annast Jóhann Kristinsson og Tómas R. Einarsson. Seremóníumeistari og kynnir kvöldsins er Arthúr Björgvin Bolla- son, en hann mun á sinn hátt fjalla um ævi Marlene. Dagskráin var áð- ur í Kaffileikhúsinu 1. maí sl. ------♦-♦♦---- Ljósmyndasýn- ing á Gallerí Nema hvað JÓHANNES A. Hinriksson og Lilja Gunnarsdóttir opna sýningu á ljósmyndum o.fl. í Gallerí Nema hvað, Skólavörðustíg 22c, í kvöld, föstudagskvöld, kl. 20. Sýningin er opin fímmtudaga til sunnudaga frá kl. 14-18 og er síð- asti sýningardagur sunnudaginn 11. júlí. -----♦♦♦------ Ný handverks- stofa á Egils- stöðum HUS handanna er ný starfsemi með handverk og listiðnað á Egilsstöð- um sem staðsett er í gömlu mjólk- urstöðinni. Þar hafa sameinast þrír aðilar um að reka vinnustofur og verslun undir einu þaki þær De- Signý, Randalín og myndlistarkon- an Sjöfn Eggerstdóttir. Opnunartími verslunar er alla virka daga kl. 10-18, langir mið- vikudagar í sumar kl. 10-22 og laug- ardagsopnun kl. 10-14. Formleg opnun hússins er í dag, föstudaginn 2. júlí kl. 20-24. c re c 1 S 2 Heldur þú að C-vítamm sé nóg ? NATEN -ernógl LISTIR Mikið lagt í lítið tveim vinum, annar hefur nýlega hitt konu en ástarsambandi hins er nýlokið. Verkið hefst á fiðluspili Bergmundar Waals Skasiliens sem Jo Stromgren túlkar með hreyfing- um í ætt við óþreyju og angist. Leikbrúður eru dregnar fram. Með brúðu tjáir sá óheppni angist sína og öfundnast út í vin sinn sem heppnari er í kvennamálum. Félag- arnir takast á í sjómanni, drekka sig fulla og eiga í heimspekilegum vangaveltum um konur. Samræður þeirra eru spilaðar af segulbandi. Ljósmynd af andliti konu er varpað upp á vegg og félagarnir baða sig í vörum hennar í algleymi erótískra drauma. Til að halda karlmennsku- ímynd sinni fljúgast þeir stuttu síð- ar á í léttum boxæfingum. í verkinu kom ekki fram ný sýn á tilfinningar og upplifun karlmanna í ástarsorg. Að fara á fyllerí og takast á í sjómanni er gömul klisja. Vinátta félaganna og stuðningur þess sem láni átti að fagna í ásta- málum og sýnd með innihaldslausri samræðu þar sem konum er líkt við ólíkar lofttegundir. Samtal þeirra var spilað á ensku með norskum hreimi sem gerði tengsli vinanna á milli enn tilgerðarlegri og fjarlæg- ari. Hvergi var varpað nýju ljósi á tilfinningaflóru manneskjunnar. Verkið nær ekki flugi en þar má að einhverju leyti kenna um takmark- aðri hugmyndavinnu. Þótt ágætis hugmyndir hafi skotið up kollinum í verkinu, eins og notkun brúðanna, voru þær lítið sem ekkert útfærðar, fyrirsjáanlegar og þar af leiðandi óspennandi. Tónlist Bergmundar Waals Skasliens náði að flétta verk- ið saman á köflum og hreyfingar Jos Strömgrens einar sér voru at- hyglisverðar. Ast og vinátta karlmanna er ef- laust eins fjölbreytt og mennirnir eru margir. „Maskuline Mysterier" sýnir takmarkaða mynd þessara til- finninga og samskipta. Salur Nor- ræna hússins sem notaður var hent- ar illa fyrir dansverk af þessum toga. Það er hvimleitt að áhorfend- ur þurfi að fetta sig og bretta í sæt- unum til að sjá hvað fram fer á svið- inu. Lilja ívarsdóttir Amerískir lúxus rafmagnsnuddpottar Engar lagnir nema rafm. Loftnudd, vatns- nudd og blandað nudd. Lofthreinsikerfi. Einangrunarlok. Vetraryfirbreiðsla. Rauðviðargrind. Allt fyrir aðeins kr. 430 þús. stgr. Lægsta verðið á sambærilegum pottum. Sýningarsalur opinn alla daga. VESTAN ehf., Auðbrekku 23, 200 Kópavogi, sími 554 6171, fars. 898 4154. (. (jM HElG/jty Opið lau. 10-16 og sun. 13-16. GÍSL! JÓNSSON ehf Bfldshöfða 14, 112 Reykjavfk, sfmi 587 6644. Umboðsmenn á Suðurnasjum, Toyota-salurinn í Njarðvfk, sfmi 421 4888 Frábaer sérútbúin feilihýsi fyrir íslenskar aðstæður. Gott rými, yfirburða tjalddúkur og sterkt þak og gólf eru atriði sem þú vilt vita af í góðu horfi þegar ferðast er um ísland. Þægindi og öryggi eru staðalbúnaður Starcraft Arctidine. Einföld tjöldun, mikið pláss, áfast eldhús og fortjald, auk frábærrar endingar eru atriði sem gera Camp-let að einstökum tjaldvagni. Ef allir vagnar eru skoðaðir sést að betri kostur er varla á boðstólum 0G ÁXLLT HITT , Frá Isabella og Trio. Heimsþekkt vörumerki. Gæði sem ná í gegn. ftW Gasvörur, ferða- klósett og margt fleira bráðnauð- synlegt! Á góðu verði fyrir flestar gerðir pallbíla.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.