Morgunblaðið - 02.07.1999, Síða 32

Morgunblaðið - 02.07.1999, Síða 32
32 FÖSTUDAGUR 2. JÚLÍ 1999 MORGUNBLAÐIÐ UMRÆÐAN Stóriðja og menning við Evjafjörð Hve mætti bæta lands og lýðs vors kjör að leggja á bogastreng þinn kraftsins ör, að nota máttinn rétt í hrapsins hæðum, svo hafín yrði í veldi fallsins skör. Það var draumur Einars Bene- diktssonar að virkja íslensk fallvötn til rafmagnsframleiðslu. bæta „lands og lífs vors kjör“ vildi hann nota raforkuna til þess að koma upp stóriðju, til dæmis áburðarfram- leiðslu, og hjálpa svo bændum að græða land- ið. Öll átti stóriðjan að bæta lífsskilyrði fá- tækrar þjóðaj'. En draumar Einars Benediktssonar, til dæmis um virkjun Þjórsár við Búrfell, rættust ekki fyrr en langt var liðið á tuttug- ustu öldina. Islendingar voru ekki reiðubúnir að fylgja skáldinu fyrr en Landsvirkjun var stofn- uð árið 1965, en fyrsta verkefni hennar vai’ einmitt að standa fyrir virkjun í Þjórsá. Þá voru breyttir tímai' og verulegur hluti raforkunn- ar frá Búrfellsvirkjun fór til álvers- ins í Straumsvík. Þar er fyrsta raun- verulega stóriðjan sem byggð var á Islandi og markaði tímamót í at- vinnusögu Islendinga, enda þótt verksmiðjan sé að hluta í eigu út- lendinga. Þessi starfsemi hefur gengið vel, en Islenska álfélagið hf., sem rekur álverið í Straumsvík, var stofnað árið 1966. Svo varð langt hlé, þar til ný stór- iðja, sem þvi nafni gæti nefnst, yrði að veruleika á Islandi. Það er járn- blendiverksmiðjan á Grundartanga, en íslenska jámblendifélagið hóf at- hafnir þar árið 1975. Aftur leið lang- ur tími þar til álver Norðuráls reis á sama stað og álverið í Straumsvík Byggðaþróun Við verðum að koma upp fyrirtækjum sjálf, segir Svanbjörn Sig- urðsson, akureyrskum fyrirtækjum sem sækja fram á landinu öllu og inn á erlenda markaði. Til að menning megi blómstra á Akureyri er nauðsynlegt að reisa stóriðju við Eyjafjörð. Hvort tveggja mun ekki einungis hafa áhrif á Akureyri, heldur einnig nær- liggjandi byggðarlög frá Trölla- skaga og austur í Skjálfanda. Mynd- ast mundi eitt atvinnusvæði þar sem jafnframt væri hleypt styrkari stoð- um undir grósku menningar. Akur- eyri er nú láglaunasvæði og íbúamir flytja unnvörpum á suðvesturhomið, þar sem betri vinnu er að fá og hærri laun. Við höfum þó hér á Akureyri ennþá öflug fyrirtæki eins og ÚA og KEA og stórhuga at- hafnamenn eins og Samheijafrænd- ur og Höldsbræður, en okkur vantar meira af slíku. Það er ekki rétta leið- in að reyna sífellt að næla í eitthvað frá Reykjavík. Þó sumt af því sé gott, vill flest sogast íljótt þangað aftur. Við verðum að treysta á eigið hugvit og atorku. Við verðum að koma upp fyrirtækjum sjálf, akur- eyrskum fyrirtækjum sem sækja fram á landinu öllu og inn á erlenda markaði. Því aðeins höldum við áfram að vera menningarbær og höfuðstaður Norðurlands. Höfundur er rafveitustjóri Rafveitu Akureyrar. var stækkað, en það gerðist hvort tveggja árið 1998. A tímabilinu frá því er járnblendiverksmiðjan reis og þar til Norðurál kom til sögunnar var mikið rætt við Atlantsálshópinn um byggingu álvers á Islandi og um tíma var talið koma til greina að það yrði staðsett við Eyjafjörð. Um þetta var hvað mest rætt á árinu 1990 en undir lok viðræðnanna var tekin um það ákvörðun að álverið yrði byggt á Keilisnesi, ef tO framkvæmda kæmi. Á þessu tímabOi komust Eyfirðingar næst því að fá byggða stóriðju á sínu athafna- svæði og þykir nú tími tO kominn að aftur verði gerð tflraun tfl þess að það geti orðið að veru- leika. Að mínu mati gæti það verið forsenda þess að í þeim lands- hluta héldist sá Iqami sem stuðlað gæti að jafnvægi milli landsbyggðarinnar og Faxaflóasvæðisins. Akureyri hefur verið nefnd ýms- um fögrum nöfnum í tímans rás, svo sem höfuðstaður Norðurlands, skólabær, iðnaðarbær og stundum menningarbær. Bærinn hefur hing- að til getað staðið undir merkjum í öflum þessum tflvikum, en ef það á að vera svo í framtíðinni þarf nú að gerast eitthvað verulegt í atvinnu- málum. Atvinnumálin snúast ekki einungis um fiskveiðar, iðnað og verslun, heldur einnig um menntun og menningu. Lýst hefur verið yfir að á Akureyri skuli rísa menningar- hús og allt gott um það að segja. En tO þess að menningarhús geti þrifist á Akureyri, þarf að búa íbúum þess svæðis, sem það á að þjóna, góð lífs- skilyrði með arðsömum atvinnu- rekstri og góðum kjörum. T0 þess að Svanbjörn Sigurðsson 13.000 heiðagæsir hafa ekki rangt fyrir sér í Morgunblaðinu 27. júní síðastliðinn er viðtal við Friðrik Sophusson, forstjóra Landsvirkjun- ar. Þetta viðtal við Frið- rik er á margan átt at- hyglisvert. Meðal ann- ars segir Friðrik: „Ég tel það vera fagnaðar- efni að fólk virðist vera miklu betur meðvitandi um umhverfi sitt og náttúruna en áður og það er forsenda þess að við tökum réttar ákvarðanir.“ Þá segir Friðrik: „Það er óskyn- samlegt að hunsa tfl- finningar fólks sem er andvígt Fljótdalsvirkjun en þær mega ekki einar ráða.“ Þetta eru at> 40 - 70% AFSLÁTTUR hyglisverð orð þegar það er haft í huga að fram tO þessa hefur ekkert tfllit verið tekið tO skoðana andstæð- inga^ Fljótsdalsvirkjun- ar. í títtnefndu viðtali við Friðrik kemur fram fuflyrðing sem ekki er rétt og Skotveiðifélag íslands vOl leiðrétta en hún er þessi: „Ég hef á hinn bóginn minni áhyggjur af fuglalífinu á Éyjabökkum. Þetta er ekki varpsvæði gæsanna heldur svo- nefnt felHsvæði og ég hef trú á því að heiða- gæsin muni færa sig eins og hún hefur alltaf gert. Lón getur auk þess verið ágætur staður fyrir heiðagæs þegar hún er að feUa fjaðrirnar. Ég bendi á að varpsvæði heiðagæsar- innar hefur verið að aukast mjög á undanfömum árum.“ Stærsti fellistaður heiðagæsa Helstu ástæðumar fyrir því að heiðagæsimar hafa kosið Eyjabakk- ana fremur en önnur svæði tO að fella flugfjaðrimar era þær að þar njóta þær þess friðar sem þær þurfa svo mjög á að halda á meðan þær eru í sáram. Ljóst er að gerð miðl- unarlóns á Eyjabökkum mun valda meh’i og alvarlegri umhverfisspjöll- um en nokkrar aðrar framkvæmdir á hálendinu til þessa. Gæsirnar munu því verða fyrir miklu ónæði og alls konar áreiti. Á meðan gæsimar era í sáram þurfa þær mjög mikla Virkjanir Gerð miðlunarlóns á Eyjabökkum, segir Sigmar B. Hauksson, mun valda meiri og al- varlegri umhverfís- spjöllum en nokkrar aðrar framvæmdir á hálendinu til þessa . orku tO að framleiða nýjar fjaðrir og byggja upp vöðva og bein. Hinn kjammikli háfjallagróður á Eyja- bakkasvæðinu gefur þeim þá orku sem þær þarfnast. Við gerð 44 fer- kflómetra uppistöðulóns mun beiti- land gæsanna fara í kaf. Heiðagæs- inni mun því ekki verða vært á Eyjabökkum, hún mun hrökklast burt og enginn veit hvert hún mun flýja eða hvaða áhrif þetta rask mun hafa á stofninn. Talið er að heiða- gæsastofninn sé nú í hámarki. Stór- felldar framkvæmdir á Eyjabökk- um, sem er stærsti fellistaður heiða- gæsa í heiminum, gæti því haft mjög alvarleg áhrif á stofninn, jafnvel stuðla að veralegri fækkun hans. Era stjóm Landsvirkjunar og AI- þingi Islendinga tilbúin að taka þá áhættu? Höfundur er formaður Skotveiðifélags íslands. 9' Sigmar B. Hauksson Samkeppnisstofn- un - afturhvarf til haftastefnu LANDSSÍMINN hefur verið í umræð- unni að undanförnu og það mjög á einn veg. Það er eins og það til- heyri samkeppni að mola hann niður í smá- einingar, sérstakt bók- hald þurfi að vera um þetta eða hitt og jafn- vel sérstök hlutafélög búin til um hverja ein- ingu sem eykur ýmsan innri kostnað. Þannig er útlit fyrir að það eigi að eyðileggja hinn stór- kostlega árangur sem síminn hefur náð í ódýrri og góðri fjar- skiptaþjónustu á heimsmælikvarða og það í fámennu dreifbýlislandi. Símanum hefur tekist svo vel að lækka verð þjónustunnar að ekki virðist árennilegt að stofna ný fyr- irtæki tO að keppa við Landssím- ann. Hagnaðurinn verði of lítill. Vantaði talfærin Vegna starfa hjá Framkvæmda- banka Islands á sjötta áratug ald- arinnar þurfti ég að afla upplýs- inga um fjárfestingar Pósts og síma. Ég ræddi við póst- og síma- málastjóra og fékk greið svör. Langur biðlisti var í Reykjavík á þeim tíma eftir nýjum símum. Póst- og símamálastjóri sagði mér frá því að ný sjálfvirk símstöð væri að fullu tilbúin en það væri ekki hægt að taka hana í notkun því það fengjust ekki innflutningsleyfi fyr- ir talfærunum. Innflutningi var þá stjórnað með leyfum og þeim stjórnaði „Samkeppnisráð" þess tíma en um langt árabil var sam- keppninni stýrt af innflutnings- nefndum og -ráðum sem breyttu um nafn þegar þurfa þótti en bak- grunnurinn - miðstýringin - var óbreytt. Þetta voru fyrstu kynni mín af því sem Póstur og sími átti við að stríða. Ný utanlands- sambönd treyst Nokkru síðar gerðist ég starfs- maður Pósts og síma og þekkti þar til innanhúss um 20 ára skeið. Þrátt fyrir einokunaraðstöðu var stöðugt unnið að aukinni hag- kvæmni og lækkun þjónustu- gjalda. Fjarskiptasamböndin frá og til landsins vora í höndum er- lendra aðila. Síminn hafði áhuga á að eignast þau sambönd þegar samningar rynnu út. Síminn náði því að verða aðili að ýmsum sam- böndum mflli erlendra staða á leið- um sem Island þurfti á að halda og koma Skyggni upp. Þannig var bú- ið að vinna í haginn til að takast á við það stóra mál að eignast öll sambönd að og frá landinu þegar einkaréttur hins erlenda aðila rann út. Miklar kvaðir á Pósti og síma Ég kom til starfa hjá Pósti og síma í ársbyrjun 1961. Þá kynntist ég því hvað erfítt er að reka fyrir- tæki samkvæmt fjárlögum settum af Alþingi jafnvel þótt allar fjár- festingar hafí verið fyrir eigið fé frá fyrirtækinu. Óskum um arð- bærar fjárfestingar var oft skotið á frest og stundum oftar en einu sinni. Póstur og sími vildi láta markaðinn fyrir eftirspurn þjón- ustunnar ráða en það fékkst ekki. Fjárlögin stöðvuðu það. Miklar kvaðir fylgdu þeirri ein- okun sem Póstur og sími hafði og enn eru kvaðirnar í fullu gildi þótt einkaleyfið hafi verið afnumið. Það er því ekkert óeðlilegt við það að Landssíminn fái, eins og gróin fyr- irtæki á öðrum svið- um, að njóta allrar þeirrar uppbyggingar sem árin hafa gefið. Þá er tæknin það hröð að uppbygging frá göml- um tíma er að ýmsu leyti úrelt orðin og samkeppni mun mið- ast við nýjungar og tækni framtíðarinnar. Á þeim vettvangi ættu allir að standa jafnfæt- is þótt að sjálfsögðu ráði fyrirtæki, ný og gömul, yfir mismiklu fjármagni og við- skiptavild. Þannig er það á öllum sviðum í þjóðfélaginu, enda munu höft á helsta þjónustuaðila í ákveðinni grein engan skaða meira en við- skiptavinina. Þá verður að gera sér grein fyr- Samkeppni Það er eðlilegt að setja samkeppnislög, segir Páll V. Daníelsson. En ég tel að gengið sé til haftatíma fortíðar að skipa samkeppnis- ráð og það beri að leggja niður. ir því að Landssíminn þarf að taka virkan þátt í viðskiptum á alþjóða- fjarskiptamarkaðnum. Hann er þekktur þar og virtur fyrir að hafa náð frábærum árangri í góðri og ódýrri þjónustu. En miðað við er- lendu risana á þessum markaði er hann smár og því auðveldara að setja fótinn fyrir hann. Landssím- inn þarf að verða sterkur aðili í því að vernda og styrkja sjálfstæði ís- lensku þjóðarinnar. Höftín liðin tíð Eins og áður er sagt bjó þjóðin við mikla opinbera stýringu nefnda og ráða. Állskonar reglur, fyrir- mæli, skömmtun og kvóti réðu för. Þessi kerfi gerðu fyrirtæki mjög missterk á markaðnum. Þegar frelsið jókst man ég ekki eftir neinu fyrirtæki sem settar voru samkeppnishamlandi skorður. Þau fengu að njóta sín hvert eftir sín- um styrk, hvernig sem hann var til kominn. Sama á að gilda um ríkis- fyrirtæki sem byggð hafa verið upp, þótt með einokun sé á ekki að eyðileggja þau. Enda er það svo að þau hafa tekið á sig miklar skyld- ur, m.a. til að jafna aðstöðumun þegnanna. Forðast þarf nýja haftastefnu Það er eðlilegt að setja sam- keppnislög. En ég tel að gengið sé til haftatíma fortíðar að skipa sam- keppnisráð og það beri að leggja það niður. Réttargæsla samkeppn- islaga á að vera eins og annarra laga hjá dómsvaldinu. Samkeppn- isráð, eins og nú er, er nánast ein- okunarvald og endurlífgun á fyiri ráðum og nefndum sem stýrðu við- skipta- og atvinnulífi þjóðarinnar. Að skammta samkeppni er út í hött. Það er í raun furðulegt ef við ætlum að ganga inn í nýja öld með slíkt helsi um háls og Samkeppnis- ráð hlýtur að verða og breytir þar engu hverjir það skipa því kerfið sjálft ber óviðráðanleg og hættu- leg höft og forsjá í skauti sér. Höfundur er viðskiptafræðingur Páll V. Daníelsson'

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.