Morgunblaðið - 02.07.1999, Síða 33

Morgunblaðið - 02.07.1999, Síða 33
MORGUNBLAÐIÐ UMRÆÐAN Opnum íþróttahúsin fyrir eldra fólki Á YFIRSTANDANDI ári aldraðra hefur tals- verð athygli beinst að líkamsrækt aldraðra. Hún hefur aukist veru- lega hér á landi á undan- fómum árum. Samtök um íþróttir aldraðra, svo sem Félag áhugafólks um íþróttir aldraðra, fé- lagsmálastofnanir sveit- arfélaga og almenn íþróttafélög hafa víða byggt upp fjölbreytta og líflega starfsemi.. Líkamsrækt er mikil- væg á öllum aldurs- skeiðum, ungum sem öldnum. Yngsta fólkið nýtur hinnar miklu starfsemi íþróttafélaganna. Keppnis- íþróttirnar hafa verið íyrir unga fólk- ið og þá fullorðnu. Hinir öldruðu urðu útundan í þróun íþróttastarf- seminnar. Lengi vel var litið hirt um að þeir ættu eða þyrftu að stunda íþróttir eða líkamsrækt eða að skapa þyrfti þeim hentuga aðstöðu til þess. Sem betur fer hefur þessi afstaða verið að breytast. Margt hefur verið gert til þess að auðvelda hinum eldri að stunda líkamsrækt sér til heilsu- bótar og gleði. Vissulega hafa aldrað- ir verið hvattir til þess að stunda ein- hvers konar líkamsrækt, hvort sem er úti eða inni. Margir stunda t.d. sund, golf (pútt) og göngur yfir sum- artímann. Samt má gera betur. Brýnt er að bjóða öldruðum upp á margvíslega möguleika til að stunda líkamsrækt innanhúss, einkum yfir veturinn. Því miður hafa íþróttahúsin ekki verið opin öldruðum eins og vera skyldi. Svo er víða, a.m.k. í þeim Ingimar Jónsson Heilsurækt Eldra fólk, segja þau Lovísa Einarsdóttir og Ingimar Jónsson, þarf einnig að eiga aðgang að íþróttahúsum. hafa skólaíþróttirnar og keppnisfólk íþróttafélaganna haft forgang. Þörfin fyrir tíma í húsunum er mikil. Meiri fjölbreytni Á þessu þarf að verða breyting. Eldra fólk þarf einnig að eiga aðgang að íþróttahúsum. Þar er aðstaða fyrir hendi sem býður upp á ýmsa mögu- leika. Þar er hægt að bjóða öldruðum upp á líkamsrækt sem örðugt er að stunda annars staðar. Þar er auðvelt Lovísa Einarsdóttir að skipuleggja líkamsrækt fyrir þá sem viija mikla hreyfingu, jafnvel stunda stóru leikina (blak og ýmsa aðra knattleiki). Ekki síst er þar hægt að bjóða upp á hreyfingu sem hentar þeim sem ekki eru heilsu- hraustir en vilja samt stunda ein- hverja líkamsrækt, t.d. leikfimi, dans, tæteí eða jóga. Öldruðum stendur víða til boða að stunda líkamsrækt í líkamsræktar- stöðvum og félagsmiðstöðvum. Slík aðstaða hentar ekki öllum sem eru komnir á efri ár. Sumir eru það heilsuhraustir við starfslok að þeir vilja íþróttir sem bjóða upp á mikla hreyfingu. Þeir eiga ekki endilega samleið með þeim sem kjósa fremur hófsamari æfingar. Á flestum líkams- ræktarstöðvum er boðið upp á kappsfullar æfingar sem yfirleitt henta ekki eldra fólki. Mörgum er heldur ekki að skapi sú háværa sí- byljutónlist sem þar tíðkast að leika. I flestum félagsmiðstöðvum er að- staðan yfirleitt þannig að iðkun fjör- mikilla íþrótta verður ekki með góðu móti komið við. Það væri því æskilegt að aldraðir fengju að nýta íþrótta- húsin, sem og alla þá aðstöðu sem þau bjóða upp á, betur en verið hefur til þessa. Fyrir þá skiptir líka máli að stunda sína líkamsrækt í þægilegu umhverfí. Best er að aldraðir fái að- gang að húsunum á daginn. Þá eiga þeir auðveldast með að sækja íþróttatíma, ekki síst yfir vetrartím- ann. íþróttafélögin og samtök aldr- aðra um land allt ættu að taka þetta mál upp á arma sína. Opnum íþrótta- húsin fyrir eldra fólki á ári aldraðra! Lovísa er íþróttakcnnari á Hrafnistu í Hafnarfirði og Ingimar er dósent við KHÍ. frá fimmtudegi til sunnudags Stjúpuv 20 stk. í bakka kr 990 Gunnar Þór Gunnarsson Löggildur: Blómatæknir Hann kann að rœkta stjúpur FÖSTUDAGUR 2. JÚLÍ 1999 33 Mörkin 3, sími 588 0690 GEORG JEN'SEN KÚNÍGÚND SKOLAVORÐUSTIG 8 S 551.3469 Faxafeni 8 Sumarklœði fyrir alla aldurshópa í úrvali á frábœru verði Opið Mán - Fi 10-18 Fö 10-19 Lau 10 - 18 Su 12-17 Fréttagetraun á Netinu vj>mbl.is

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.