Morgunblaðið - 02.07.1999, Page 56
MORGUNBLAÐIÐ
, 56 FÖSTUDAGUR 2. JÚLÍ1999
Eru rimlagardínurnar óhreinar!
Við hreinsum:
Rimla, strimla, plíseruS og sólargluggatjöld.
Setjum afrafmagnandi bónhúð.
Sækjum og sendum ef óskað er.
.Níi11
tsdkxúhreinsunm
SdUÍMorU *SM:SU34M*OSMi|97 3634
Ný tímaáætlun
Samkvæmt ósk íbúa Reykjavíkur hefur nú verið lögð
fram lítillega breytttímaáætlun fyrir átaksvikur hverfanna
og er mikilvægt að borgarbúar kynni sér hvenær átakið
verður í þeirra hverfi. í lok hverrar viku verða hverfahátíðir
á vegum Bylgjunnar og borgarinnar í beinni útsendingu
á hverjum sunnudegi!
Átaksifikur hverfanna
Grafarwogur og Borgarholt:
4. - ll.júlí._____
Múlar. Háaleiti, Hvassaleiti, Kringla,
Smáfbúðahverfi, Bústaðahverfi, Fossvogur
og Blesugróf:
11.-18. júlí.
Kjaiarnes:
18. - 25. júli.__________
Árbær, Ártúnsholt, Selás og Bæjarháls:
25. júlí- l.ágúst.________
Neðra-BreiðhoK, Efra-BreiðhoK og Seljahverfi:
1. - 8. ágúst.
Tún, HoH, Norðurmýri, Hlíðar og Suðurhlíðar:
8. - 15. ágúst.
Melar, Hagar, Skjól, Grandahverfi, SkOdinganes,
Háskólahverfi og flugvallarsvæðið:
15. - 22. ágúst.
Laugarnes, Lækir, KleppshoK, Laugarás, Sund,
Heimar og Vogar:
22. - 29. ágúst.
Miðbærinn, gamla httfnín, gamli Vesturbærinn
og gamli Austurbærinn:
29. ágúst - 5. september.
Taktu þátt, taktu til og góða skemmtun!
Reykjavíkurfjorg
S©RPA
Nánari upplýsingar: Verkefnastjóri sími 5632318,
www.reykjavik.is, www.reykjavik2000.is,
www.reykjavik.is,www.ys.is
REyKJAVIK
í SPARIFÖTIN
í DAG
VELVAKAJVPI
Svarað í síma 569 1100 frá 10-13
frá mánudegi til föstudags
Bréf úr
miðbænum
TJÖRNIN í Reykjavík og
umhverfí hennar er að
mati margra helsta perla
höfuðborgarinnar. Þetta
leggur þá skyldu á framá-
menn borgarinnar að hafa
vakandi auga með þessu
svæði öllu, einkum varð-
andi umhirðu og um-
gengni. Þessu er á ýmsum
sviðum áfátt. Mjög stingur
í augu draslið og rekaldið
meðfram tjarnarbökkun-
um. Um kerfísbundna
hreinsun virðist ekki að
ræða því draslið blasir við,
ýmist fljótandi, marandi í
vatnsskorpunni eða hggj-
andi á tjarnarbotninum.
Ruslafotumar eru oft
meira eða minna fullar
dögum saman.
Ekki verður hjá því
komist að minnast einnig á
óþrifnaðinn á gangstéttun-
um þar sem umferð fólks
og fugla er mest. Hellurn-
ar eru orðnar grænleitar
af fuglaskít. Svo virðist
sem við þetta verði ekki
ráðið, af þeim sem að
hreinsuninni koma. Verður
ekki að leita til hér-
lendra/eriendra ræsti-
tækna ef leysa á úr þessu
ófremdarástandi?
Lítill sómi er sýndur
hinu ægifagra tré á homi
Vonarstrætis og Suður-
götu. Það stendur á órækt-
arbletti. Flóran þar er arfi
og fíflar. Á Þjóðhátíðar-
daginn var bletturinn und-
ir nærri hnédjúpri breiðu
arfa og fífla. Auðvitað á að
gera þarna fallega skák.
Það væri lágmarkið. Von-
andi verður drifið í þessu.
Já, áður en menningar-
borgarsólin helhr geislum
sínum yfir land og lýð og
menningarhöfuðborgina
Reykjavík.
Jón Reykvíkingur.
Fegrun borgarinnar
TALANDI um fegrun
borgarinnar langar mig að
benda borgarstjóra og
Helga P. á að aldrei hefur
verið meira sleifarlag á
fegrun garða eldri borgara
heldur en nú, þótt þeir
borgi það að fullu. Getur
það kannski verið ástæðan
að 10 börn hrúgast í litla
garðholu í staðinn fyrir að
dreifa þeim í fleiri garða.
Of seint er að taka til
hendi þegar fer að snjóa.
Ég vil einnig lýsa
ánægju minni yfír mál-
flutningi Kjartans Magn-
ússonar. Ég efast um að
Helgi hafi nokkurn tíma
ferðast í strætisvagni og
legg til að Sveinn Andri
verði fenginn í þessi störf
aftur.
230626-4059.
Það er ekki sama
hver það er sem sækir
um passa!
í þESSUM stutta texta
mínum vil ég segja frá
reynslu minni þegar ég fór
og sótti um passa fyrir
barnið mitt. í Morgunblað-
inu (Velvakanda) las ég
hvað maður einn fékk góða
þjónustu þegar hann þurfti
að fá passa sinn fyrr en
umræddur tími segir til
um. Það fékk hann eins og
allir aðrir en þurfti ekki að
borga tvöfalt gjald og var
hann að lýsa yfir ánægju
sinni.
Ég, ung kona, fór og
þurfti að fá passa fyrir 3.
júlí en afgreiðsludaman
sagði við mig að passinn
yrði ekki tilbúinn fyrr en 5.
júlí. Ég tók það fram að
5-júlí væri mánudagur og
spurði hvort ég gæti fengið
passann minn 2.júlí, á
fóstudeginum. Jú, það var
hægt en viti menn, ég varð
að borga tvöfalt gjald.
Ekki er sama hver það er
sem fer og sækir um
passa, það er alveg greini-
legt.
Ég stend fast á því að
passinn hlýtur að vera til-
búinn á föstdeginum því
það er örugglega ekki unn-
ið þarna á laugadögum og
sunnudögum. Einnig vil ég
taka það fram að það
stendur hvergi að það eigi
að vera 10 virkir dagar
sem það tekur að bíða eftir
passanum. Umrædd af-
greiðustúlka sagði mér að
það væru 10 virkir dagar
en ég er búin að kanna það
og það sendur hvergi. Þeg-
ar ég fór voru 11 dagar eft-
ir, að meðtöldum helgar-
dögum, og samt fór þetta
svona.
Mér finnst ömurlegt
þegar fólki er misboðið.
Ég get ekki hrósað þeim
fyrir afgreiðsluna og þær
mættu vera glaðlyndari.
Getur einhver skipt
við mig?
ÉG er að safna litlum vín-
flöskum og ef einhver er
að safna líka þá myndi ég
mjög gjama vilja skiptast
á flöskum við viðkomandi.
Upplýsingar í síma
553 3727.
Stella.
Tapað/fundið
Seðlaveski
fannst
LITIÐ seðlaveski fannst á
Vesturvallagötu. Upplýs-
ingar í síma 562 3532.
Dýrahald
Kettlingxir
í óskilum
ÞESSI litli ketthngur ca.
3ja mánaða fannst kaldur
og svangur í vesturbæ
Kópavogs s.l. sunnudags-
kvöld. Eigandinn er vin-
samlegast beðinn um að
hringja í síma 554-1290.
SKÁK
Umsjón Margeir
Pétursson
STAÐAN kom upp í úrsht-
um á alþjóðlega Éan Adams
mótinu í New York sem nú
stendur yfir.
Giorgi Kacheishvili (2.570),
Georgíu, hafði hvítt og átti
Ieik gegn Josh Waitzkin
(2.467).
20. Hxh7+! _ Kxh7 21. Hhl+
_ Kg8 22. Dh2 _ Rxe5 23.
Dh7+ _ Kf8 24. fxe5 _ Dd8
og svartur gafst upp um ieið.
Kacheishvili sigraði á mót-
inu.
HVÍTUR leikur
og vinnur.
HVERNIG hélstu að Marsbúar litu út?
Víkverji skrifar...
KERFIÐ getur stundum verið
erfitt. Víkverji býr í fjölbýlis-
húsi með þrem stigahúsum sem
sameinuðust á sínum tíma um að fá
verktaka til að annast viðgerðir á
húsinu. Eins og kunnugt er geta
húseigendur samkvæmt lögum
fengið endurgreiddan virðisauka-
skatt af ákveðnum hluta slíkra við-
haldsreikninga, launaliðnum.
Nýlega ákvað húsfélagið að
ganga frá þessum málum. Teknir
voru saman viðgerðareikningar á
árinu. Þar sem um var að ræða einn
reikning fyrir sameiginlegu fram-
kvæmdina í stigahúsunum var
ákveðið að láta ljósrit af honum
duga og benda á að húsfélagið hefði
greitt þriðjunginn. Eitt stigahúsið
var ekki búið að greiða sinn hluta
og ekki tókst að komast yfir frum-
ritið.
Fulltrúi húsfélagsins fór á skatt-
stofuna. Þar var biðröð og fyrst
þurfti að bíða dágóða stund eftir
þeim sem tók við reikningunum en
þá notar stofnunin til að fylgjast
með því að iðnaðarmenn vinni ekki
svart. Við erum því að rækja eins
konar tilkynningaskyldu fyrir stofn-
unina og látum það nú vera.
Nú tók við önnur afgreiðsla fyrir
þá sem ætla að fá endurgreiðslu.
Þar kom babb í bátinn. Ekki er
hægt að afhenda peningana vegna
þess að frumrit skorti. Hvort ljósrit
dygði ekki? Nei stofnunin gæti þá
ekki haldið utan um málin og mikil
hætta væri á því að húseigendur
kæmu aftur og vildu fá endur-
greiðslu á ný fyrir sömu fram-
kvæmdirnar. En er ekki hægt að
koma upp kerfi þar sem kvittað er
fyrir þannig að tryggt sé að ekki sé
verið að leika á kerfið? Nei það var
ekki hægt. Og eftir klukkustundar
þóf varð fulltrúi húsfélagsins að
halda heim með sárt ennið.
Þetta finnst Víkverja undarlega
stirðbusalegt. Nógu erfitt er oft
fyrir eigendur húsnæðis að þurfa
að eiga samstarf við aðra í sama
húsi um framkvæmdir þótt ekki sé
beinlínis verið að skipuleggja þjón-
ustu hjá opinberum stofnunum
þannig að eigendumir, almennir
borgarar, þurfi að verja óþarfa
tíma í svona mál. Auðvelt hlýtur að
vera að liðka þama til með einfaldri
breytingu.
XXX
VÍKVERJI er hugsi yfir frá-
sögnum af því að hundruð
þroskaheftra íslendinga skuli hafa
verið gerð ófrjó í krafti laga frá
1938 og síðari útfærslu á þeim.
Það er auðvitað jákvætt að nú
skuli vera fjallað um málið með
þeim hætti sem raun ber vitni en
það ekki þagað í hel. Svíar hafa orð-
ið fyrir menningaráföllum á undan-
fömum ámm vegna þess að í Ijós
hefur komið að þar í landi urðu
margir þroskaheftir, alls yfir 60
þúsund manns, að sæta vönun alveg
frá því á ámm seinni heimsstyrjald-
ar og fram á síðustu áratugi.
En nú er komið að okkur. í ljós
hefur komið að réttur var brotinn á
sumum þroskaheftum með því að
farið var framhjá lagaákvæðum sem
áttu að tryggja að ekki yrði um mis-
beitingu að ræða.
Víkverja dagsins finnst verst að
málið skuli ekki hafa verið rætt op-
inberlega fyrr. Auðvitað er alltaf
umdeilanlegt hvemig setja beri lög
sem skerða réttindi sumra einstak-
linga en allt er þetta mál gott dæmi
um að sýn okkar á mannréttindi
allra, án nokkurra undantekninga,
hefur breyst. Við skiljum betur
núna en lagasmiðimir 1938 að með
því að gefa því undir fótinn að þessi
réttindi séu afstæð og samfélagsleg
nauðsyn geti kippt mannréttinda-
ákvæðum úr sambandi er haldið inn
á hættulega braut.