Morgunblaðið - 02.07.1999, Qupperneq 57
MORGUNBLAÐIÐ
FÖSTUDAGUR 2. JÚLÍ 1999 57
BRIDS
Hmsjón Guðmundur
I'áll Arnarsnn
DANO de Falco hitti
ekki á útspilið gegn
slemmu Portúgalans Bar-
bosa, eins og við sáum í
þættinum í gær. En nú var
farið að fjúka í Fálkann og
hann ætlaði ekki að láta
Barbosa valta yfír sig
tvisvar í sama leiknum. de
Falco hélt á þessum spilum
í vestur:
Vestur
AÁK632
V32
♦ Á52
*K82
Það er enginn á hættu
og austur passar sem gjaf-
ari, en suður vekur á þrem-
ur laufum. Hvað vill les-
andinn segja á þessa 14
punkta?
Vestur Norður Austur Suður
de Falco Sa Ferraro Barbosa
Pass 3 lauf
3grönd! Pass Pass Pass
de Falco skellti sér í þrjú
grönd og enginn hafði neitt
við það að athuga.
Norður
* D98
V 9754
* KD983
* 9
Austur
* G104
V ÁKG6
* G1076
* 107
Suður
* 75
VD108
* 4
* ÁDG6543
Norður kom út með smá-
an tígul undan hjónunum,
svo de Falco fékk fyrsta
slaginn ódýrt á gosann i
blindum. Norður fékk
næsta slag á spaðadrottn-
ingu og skipti þá yfir í lauf.
En það var engin vöm til að
de Falco fékk á endanum
tíuslagi.
Á hinu borðinu vakti
Bocchi ekki á spil norðurs,
svo AV fundu spaðann sinn
strax og spiluðu fjóra
spaða. Sá samningur tapað-
ist á mörgum borðum, en
Portúgalinn Castanheira
rataði réttu leiðina. Vörnin
byrjaði á því að taka fyrstu
tvo slagina á laufás og
laufstungu. Norður spilaði
svo hjarta, sem sagnhafi
drap með ás og tók svo ÁK
í spaða. Fyrsta vers. Síðan
ákvað Castanheira að taka
á hjartakóng og trompa
hjarta. Þegar drottningin
féll vora tíu slagir í húsi,
svo spilið skapaði enga
sveiflu.
Vestur
* ÁK632
V32
♦ Á52
*K82
MORGUNBLAÐIÐ
birtir tilkynningar um
afmæli, brúðkaup,
ættarmót og fleira
lesendum sinum að
kostnaðarlausu. Til-
kynningar þurfa að
berast með tveggja
daga fyrirvara virka
daga og þriggja daga
fýrirvara fyrir sunnu-
dagsblað. Samþykki
afmælisbarns þarf að
fylgja afmælistil-
kynningum og/eða
nafn ábyrgðarmanns
og símanúmer. Fólk
getur hringt í síma
569-1100, Sent í
bréfsíma 569-1329,
sent á netfangið ritstj
@mbl.is.
Einnig er hægt að
skrifa:
Árnað heilla,
Morgunblaðinu,
Kringlunni 1, 103
Reykjavík.
í DAG
ÁRA afmæli. Mánu-
daginn 5. júlí verður
sjötugur Elís G. Þorsteins-
son, fulltrúi hjá Vegagerð
ríkisins. Af því tilefni tekur
hann og eiginkona hans
Emilia Lilja Áðalsteinsdótt-
ir á móti skyldfólki, vinum
og kunningjum sunnudaginn
4. júlí kl. 16-19 í Gjábakka,
félagsheimili aldraðra,
Fannborg 8, Kópavogi.
GULLBRÚÐKAUP. Fimm-
tíu ára brúðkaupsafmæli
eiga, föstudaginn 2. júlí,
hjónin Guðmundur Kr. Her-
mannsson frá Suðureyri
v/Súgandafjörð og frú Sig-
ríður Kristjánsdóttir frá
Felli, Biskupstungum, nú til
heimilis að Skúlagötu 20,
Reykjavík. Þau fara í óvissu-
ferð í tilefni dagsins.
ÞESSAR hressu stelpur voru með tombólu um daginn til
styrktar Rauða Krossi íslands og söfnuðu 3.648 krónum.
Þær heita Guðný Rut Jónsdóttir, Árný Jónsdóttir, Elsa
Ruth Róbertsdóttir og Lilja Ragna Róbertsdóttir.
Ast er...
...aðgeta hríngt íhann
þegar þú lendir í vand-
ræðum.
TM Reg U.S. P«t. 0«. — »11 fights reserved
(c) 1999 Los Angeles Times Syndicate
ÚR REGINSMALUM
Hverjir ríða þar
Ræfils hestum
hávar unnir,
haf glymjanda?
Seglvigg eru
sveita stokkin,
mun-at vogmarar
vind um standast.
Hér erum vér Sigurður
á sætrjám;
er oss byr gefinn
við bana sjálfan;
fellur brattur breki
bröndum hærri,
hlunnvigg hrapa.
Hver spyr að því?
Hlutavelta
Með morgunkaffinu
Árnað heilla
STJÖRNUSPA
eftir Frances Drake
KRABBI
Afmælisbarn dagsins:
Þú átt auðvelt með að nýta
þér tækifærí lífsins. Mundu
bara að vandi fylgir veg-
semd hverri.
Hrútur -
(21. mars -19. apríl)
Það er engin ástæða til þess
að láta hugfallast þótt eitt-
hvað kunni að blása á móti
um stundarsakir. Öll él birtir
upp um síðir.
Naut
(20. apríl - 20. maí)
Misskilningur sem upp kem-
ur mun leysast farsællega
þér í hag. Það eina sem þú
þarft að gera er að vera sam-
kvæmur sjálfum þér.
Tvíburar
(21. maí - 20. júní)
Þér verður treyst fyrir miklu
leyndarmáli og mátt alls ekki
bregðast því trausti. Hver
veit nema nýr aðdáandi bíði
handan
Krabbi
(21. júní - 22. júlí)
Einhverjir kunna að mis-
skilja tilganginn á bak við
metnað þinn en haltu þínu
striki því árangurinn verður
þér í hag.
Ljón
(23. júlí - 22. ágúst)
Óvænt tækifæri berst þér
upp í hendumar og þér er
fyrir bestu að nýta þér það til
hins ýtrasta. Sýndu samt fyr-
irhyggju.
MeyJU jj
(23. ágúst - 22. september) (Su.
Láttu ekki viðfangsefnið ná
of sterkum tökum á þér og
mundu að þú átt að vera
herra atburðarásarinnar.
Sinntu líka fólkinu í kringum
þig-
(23. sept. - 22. október) M
Nú ríður á að vera vel undir-
búinn til þess að leysa verk-
efni dagsins. Vertu umburð-
arlyndur og láttu ekki aðra
fara í taugamar á þér.
Sþorðdreki
(23. okt. - 21. nóvember)
Þegar í öngstræti er komið
er gott að hugsa málin alveg
upp á nýtt. Treystu á sjálfan
þig og varastu áhrif frá öðr-
Bogmaður
(22. nóv. - 21. desember) nk)
Þér standa ýmsir möguleikar
opnir sem þú átt erfitt með
að velja í milli. Það sakar
ekki að hlusta á skoðanir sér
eldri manna.
Steingeit
(22. des. -19. janúar)
Þér hættir til að slá vandan-
um á frest en þegar til lengri
tíma er litið borgar sig að
leysa málin strax. Vertu já-
kvæður og hafðu trú á sjálf-
um þér.
Vatnsberi
(20. janúar -18. febrúar) CiU
Lausn verkefnis þíns liggur
nær þér en þig grunar í
fljótu bragði. Framkvæmdu
hugmynd þína áður en ein-
hver annar verður fyrri til.
Fiskar
(19. febrúar - 20. mars)
Þú þarft að leysa vandamál
sem krefst mikillar einbeit-
ingar og yfirsýnar. Nú kem-
ur sér vel að eiga góða sam-
starfsmenn.
Stjörnuspána á að lesa sem
dægradvöl. Spár af þessu tagi
eru ekki byggðar á traustum
grunni vísindalegra staðreynda.
Sumartilboð
Jakkar á kr. 3.000, buxur á kr. 1.900, pils á kr. 1.900
á meðan birgðir endast.
Mikið úrval af bolum og blússum frá kr. 990.
'gíjGA
Nýbýlavegi 12, Kópv sími 554 4433.
H
# Ný vefslun™3
gflrrroenannvrðir
Spennandi opnunartilboð
á löngum laugardegi
Verið velkomin iyf
Slétt og brugðið
Skólavörðustíg 22
Sími 5616111
Sendum í
póstkröfuJ
Topptilboð
Tegund: 950280
Litir: Svartir/gráir
Stærðir: 25-35
Tegund: 950283
Utir: Bláir/svartir/gráfr
Stærðir: 25-34
Barnaskór í miklu úrvali
T
Póstsendum samdægurs
oppskórinn
VELTUSUNDI V/INGÓLFSTORG SÍMI 552 1212
T
ÚTILÍF
Glæsibæ sími: 581 2922