Morgunblaðið - 02.07.1999, Qupperneq 59
MORGUNBLAÐIÐ
FÖSTUDAGUR 2. JÚLÍ 1999 59
€
FÓLK í FRÉTTUM
KVIKMYNDIR/Regnboginn, Sambíóin í Álfabakka og Borgarbíó á
Akureyri hafa tekið til sýninga gamanmyndina Aldrei veríð kysst með
Drew Barrymore og David Arquette í aðalhlutverkum.
Aftur í
Frumsýning
JOSIE Geller (Drew Barry-
more) vill fá meira út úr lífinu.
Hún er greind 25 ára kona,
handritalesari á stórblaðinu Chic-
ago Sun-Times, en þráir að verða
blaðamaður. Hún er fær í starfi en
gjörsamlega úti á þekju í einkalíf-
inu. í skóla var hún algjör „proffi"
og félagslegt viðrini og hefur aldrei
staðið í alvarlegu sambandi við
karlmann. Hún harmar það að hafa
aldrei verið kysst í alvöru.
En hlutirnir eru við það að breyt-
ast í lífi Josie því hún fær tækifæri
til að láta drauminn rætast og verða
blaðamaður. Fyrsta verkefnið henn-
ar er reyndar algjör martröð; hún á
að vera í dulargervi í framhalds-
skóla og skrifa um unglinga dagsins
í dag. Hún er átta árum eldri en sá
elsti í bekknum og hún verður að
komast að því um hvað hún á að
skrifa og takast á við tíðindi í ástar-
lífinu um leið og hún lifir upp á nýtt
ömurleg unglingsár og reynir að
komast hjá því að falla í gildrumar í
félagslífinu og tilfinningalífinu.
Drew Barrymore er bæði aðal-
leikari og einn framleiðenda mynd-
arinnar og hún lagði sig alla fram
við verkefnið. „Mig langaði til að
gera þessa mynd af því að hún
tengist tilfinningum sem allir
þekkja; vandræðalegum augnablik-
um í framhaldsskóla," segir hún.
„Fyrir Josie var framhaldsskólinn
hræðileg og auðmýkjandi lífs-
reynsla. Hún er gjörsamlega úti á
þekju félagslega og nú þegar hún
þarf að endurupplifa þennan tíma
mistekst henni aftur það sem henni
mistókst þá.“
Hún segist líta á myndina sem
brú milli ólíkra heima unglinga og
fullorðinna. „Never been kissed er
ekki bara framhaldsskólamynd, í
Randalín ehf.
v/ Kaupvang
700 Egilsstöðum
sfmi 4/1 2433
Handunnar gesta- og
minningabækur fyrir:
✓ Ferminguna
✓ Brúðkaupið
✓ Merka ófanga
✓ Erfidrykkjuna
Leitið upplýsinga um sölustaði
framhaldsskóla
henni er eitthvað fyrir alla,“ segir
hún. „Fyrst og fremst er hún
skemmtileg, það er mikið til að
hlæja að, hvort sem maður hlær að
öðrum eða að sjálfum sér. Sem
framleiðandi sá ég mikla möguleika
í þessu efni, segir hún. Áhorfendur
fá að fylgjast með Josie við margs
konar aðstæður þar sem hún stend-
ur sig bæði vel og illa.“
En Josie hlýtur loks viðurkenn-
ingu, bæði „bekkjarsystkinanna"
og í eigin brjósti. Sú staðreynd
höfðaði til framleiðandans Nancy
Michael Vartan leikur ensku- Juvonen. „Stundum koma þeir tím-
kennarann Sam Coulson. ar í lífi okkar allra þegar við reyn-
yjczturjjatinn
Smiðjuvegi 14, 9(ópavojji, sími 587 6080
í kvöld og laugar-
dagskvöld leikur
danssveitin
Cantabile
frá Akureyri
Opió frá kl. 23—3
Munió opið sunnudagskvöld
Næturgalinn þar sem stuðið er
og alltaf lifandi tónlist
um að komast að einhvers staðar
þar sem við föllum ekki í hópinn í
fyrstu, hvort sem er í skóla eða á
vinnustað, og oft tekst okkur illa
upp í fyrstu,“ segir hún. „Josie
lendir í alls konar vandræðum og
óþægindum áður en hún finnur
loksins frið innra með sér.“
Leikstjóri myndarinnar er Raja
Gosnell, sem leikstýrði Home Alone
3.
Auk Barrymore, sem er þekkt úr
myndum eins og E.T, The Wedding
Singer og Everyone Says I Love
You, eru í helstu hlutverkum David
Arquette úr Scream, John C. Reilly
úr Thin Red Line og Michael Vart-
an úr The Pallbearer.
ASUNDBOLUM
ÆFINGAR - UTIVIST - BOMULL
— Skeifunni 19 - S. 568 i 717 —