Morgunblaðið - 02.07.1999, Page 60

Morgunblaðið - 02.07.1999, Page 60
> 60 FÖSTUDAGUR 2. JÚLÍ 1999 FÓLK í FRÉTTUM MORGUNBLAÐIÐ Kvikmyndahátíð í Reykjavík í lok ágúst Kusturica treður upp með hljómsveit og kvikmynd LEIKSTJÓRINN margverð- launaði Emir Kusturica verður á meðal heiðursgesta á Kvikmyndahátíð í Reykjavík sem hefst 27. ágúst nk. og stendur til 5. september. Þá verður kvikmynd ■* hans Svartur köttur, hvítur köttur frumsýnd hérlendis en hún var verðlaunuð á kvikmyndahátíðinni í Feneyjum í fyrrahaust og gagn- rýnendur lofuðu hana í hástert. Líkur eru á að fleiri myndir úr smiðju leikstjórans, sem búsettur er í Belgrad, verði sýndar á hátlð- inni. Einnig verður íslenski leikstjór- inn Sólveig Anspach viðstaddur frumsýningu myndar sinnar Hertu upp hugann eða „Hauts les Coe- urs!“ sem valin var til sýninga á kvikmyndahátíðinni í Cannes í vor sem leið. Þá verður sýnd heimild- armynd hennar um franskar hús- f mæður sem gerast bankaræn- ingaar. Ólafur Sveinsson verður við frumsýningu Allan sólarhringinn eða „Non Stop“ sem valin var besta heimildarmyndin á kvik- myndahátíðinni í Berlín. Mætir með hljómsveit Emir Kusturica mætir ásamt hljómsveit sem skipuð er níu manns, auk hans sjálfs. Er stefnan að hljómsveitin spili með honum hérlendis. Þótt hann hafí leikið á bassa í rokkhljómsveitum á árum áður er hann frægari fyrir kvik- JÚGÓSLAVNESKI leikstjórinn Emir Kusturica mætir ásamt fjöl- mennri hljómsveit sinni. myndir sínar, sem allar hafa verið verðlaunaðar á stórhátíðum, hvort sem það er í Feneyjum, Berlín eða Cannes, og hefur hann skapað sér nafn sem einn virtasti leikstjóri í heiminum. Kusturica fæddist í Sarajevo ár- ið 1955 og lærði kvikmyndagerð í kvikmyndaskólanum í Prag. Hann vann gullljónið í Feneyjum fyrir fyrstu kvikmynd sina Manstu eftir Dolly Bell? eða árið 1981. Þá vann hann gullpálmann í Cannes árið 1985 fyrir myndina Þegar pabbi fór í viðskiptaferð sem einnig var tO- nefnd til óskarsverðlauna sem besta erlenda myndin. Hann fékk leikstjórnarverðlaun- in í Cannes fyi-ir mynd sína Stund sígaunanna árið 1989 og gullbjörn- inn í Berlín fyrir myndina Draum- ur í Arizona árið 1992, en sú mynd státaði af leikurum á borð við Johnny Depp og Faye Dunaway og fyrirsætunni Paulinu Porizkovu. Hann var ekki við eina fjölina felldur á þessu annasama tímabili því hann kenndi líka kvik- myndagerð við Columbia-háskóla í New York. Ætlaði að hætta í kvikmyndum Kusturica fékk svo gullpálmann í Cannes árið 1995 fyrir mynd sína Neðanjarðar eða „Underground". Eins og aðrar myndir Kusturica er sú mynd afsprengi stríðsástandið í fyrrverandi Júgóslavíu; hún spann- ar tímabilið frá fyrri heimsstyrj- öldinni að borgarastyrjöldinni sem geisar enn og fer ekki dult með þá skoðun sína að allir stríðsaðilar beri hluta af ábyrgðinni. Vildu sumir meina að hann hefði tekið upp hanskann fyrir Serba og vakti myndin þvílíkar deilur að Kust- urica tilkynnti að hann hygðist hætta afskiptum af kvikmynda- gerð. Það gekk ekki eftir, sem betur fer kynnu flestir að segja, og sneri Kusturica baki við pólitík í næstu mynd sinni og setti upp fjölleika- hús að hætti Fellinis. Myndin nefndist Svartur köttur, hvítur köttur og fékk Kusturiea leik- stjórnarverðlaunin fyi-ir hana í Cannes. Töluðu gagnrýnendur um þjófnað aldarinnar þegar myndin hreppti ekki gullljónið. Hvíta hótelið næsta verkefni Kusturica ætlar ekki að láta þar við sitja heldur stendur til að næsta kvikmynd hans verði byggð á skáldsögu D.M. Thomas Hvíta hótelið. Dennis Potter skrifaði handritið og er áætlaður kostnaður 2,5 milljarðar króna. Þessi súrreal- íska, ofsafengna og erótíska saga verður sneisafull af tæknibrellum og gerist á milli heimsstyrjaldanna tveggja. I forgrunni sögunnar er ung kona sem þjáist af sefasýki og lýsir sjúkdómurinn sér í miklum líkams- kvölum og hamslausum, erótískum og blóði drifnum ofsjónum með dularfullu hvítu hóteli. Stendur til að flytja sögusviðið frá Vínarborg til Berlínar og að í stað Freuds verði ungur lærlingur í sálfræði konunnar og jafnframt ástmaður í þeim fantasíum sem hún upplifír. Leikkonur á borð við Nicole Kidm- an, Juliette Binoche, Lenu Olin og Irene Jacob hafa þegar fundað með Kusturica um að taka að sér aðalhlutverkið. Harmonikkutvíburabræðurnir Yuri og Vadim á íslandi Flikk flakk o g rauðvínsglas á nikkunni SÍÐUSTU 30 árum hefur harmóníkan notið sívaxandi vinsælda meðal tónlist- arunnenda sem og hljóðfæraleik- ara. Samtímatónskáld uppgötva í æ ríkari mæli nýja möguleika í tón- sköpun í tengslum við hljóðfærið. Fjöldi verka genginna snillinga hafa verið umrituð fyrir harmóník- una en einnig vinsæl rússnesk þjóðlög,“ segir m.a. í bæklingi sem fylgir geisladiski rússnesku tví- burabræðranna Vadim og Yuri Fjodorov, en þeir verða gestir á Landsmóti harmóníkuleikara sem fram fer á Siglufirði á morgun, ' ardaginn 3. júlí. kjölfarið munu þeir Fjodorov- bræður halda þrenna tónleika, í Salnum í Kópavogi sunnudaginn 4. júlí kl. 16, í Safnaðarheimilinu Vinaminni á Akranesi þriðjudaginn 6. júlí kl. 20.30 og í Ytri-Njarðvík- urkirkju miðvikudaginn 7. júlí kl. 20.30. Útgáfufyrirtæki Hrólfs Vagnssonar, CordAria, í Hannover í Þýskalandi, stendur fyrir tón- leikaferðinni og er hún meðal ann- ars farin til að kynna áðurnefndan geisladisk þeirra bræðra, „Twins“. Alveg eins dúett Vadim og Yuri eru eineggja tví- burar, en Yuri telst samt vera stóri bróðir enda þrjátíu mínútum eldri. „Við höfum spilað á harmóníku frá því að við munum eftir okkur,“ sagði Vadim í viðtali við fréttarit- ara Morgunblaðsins í Hannover ^ stuttu áður en lagt var af stað til 4 Islands. Meðan á spjalli okkar stóð var beðið í ofvæni eftir póstinum en vegabréf þeirra bræðra voru enn ekki komin, með tilheyrandi stimplum, fjórum tímum fyrir brottför. „Við byrjuðum báðir samtímis á sama hljóðfæri eins og svo oft vill verða hjá tvíburum," hélt Vadim áfram. „Við hófum þó ekki að spila saman fyrr en seinna, fyrst þurft- um við að ná tökum á undirstöðu- tækninni hvor í sínu lagi. Það tók nokkur ár og upp úr því byrjuðum við á einföldum dúettum. Samæf- ing tók sinn tíma, þó að við séum eineggja tvíburar, því við þurftum að læra inn á hvor annan á sama hátt og aðrir sem flytja kammer- tónlist, þótt sjálfsagt hafi það verið eitthvað auðveldara fyrir okkur,“ bætti Yuri við. í Dans- og söngvahljómsveit rússneska hersins Á síðustu þremur til fjórum ár- um hafa bræðumir síðan lagt grundvöll að farsælum ferli með þátttöku í viðurkenndum sam- keppnum. Þar er helst að nefna hinar þekktu keppnir í Klingenthal í Þýskalandi og St. Etienne í Frakklandi. Þeir hlutu einnig 1. verðlaun í tónlistarkeppni á vegum Friedrich-Jurgen-Sellheim-Ges- ellschaft 1996 og hafa þeir síðan haldið fjölda tónleika í Þýskalandi. í framhaldi af því voru þeir einnig valdir á lista yfir unga framúrskar- andi tónlistarmenn. Vadim og Yuri stunduðu harmóníkunám til nítján ára aldurs í heimaborg sinni, St. YURI og Vadim bregða á leik á tónleikum. Pétursborg, en sinntu síðan tveggja ára rússneskri herskyldu þar sem þeir voru meðlimir í Bala- laika-hljómsveitinni í Berlín. „Við vorum meðlimir í Dans- og söngvahljómsveit rússneska hers- ins í Þýskalandi," útskýrði Yuri há- tíðlega en með bros á vör. Úr dans- sölum rússneska hersins héldu þeir í enn harðari skóla þar sem fram- MARGIR ruglast á þeim Yuri og Vadim og skyldi engan undra. haldsnám hjá prófessor Elsbeth Mose í Hannover tók við, en Els- beth er eiginkona hins góðkunna harmóníkuleikara Hrólfs Vagns- sonar. Þeir stunda nú nám við ein- leikaradeild Tónlistarháskólans í Hannover. Tónlist sem samin hefur verið fyrir tvær harmóníkur liggur ekki á lausu, eins og Yuri staðfesti. „Það er ekki um auðugan garð að gresja hvað varðar tónverk, þannig að við höfum verið iðnir við að umbreyta verkum sem samin hafa verið t.d. fyrir tvö píanó eða þá að við bætum við annarri rödd.“ Skemmtilegd leyninúmer Á tónleikum sínum munu Fjodor-bræðumir m.a. leika franskar musettur og tangóa eftir Piazzolla, sem njóta mikilla vin- sælda meðal harmóníkuunnenda, en auk þess leika þeir þjóðlög frá heimalandinu, Rússlandi. Tónleikagestum er ráðlagt að krefja þá bræður um aukanúmer, því einu bráðskemmtilegu, ein- stöku atriði luma þeir á sem hvaða fjölleikahús sem er gæti verið stolt af að bjóða upp á. Vadim leikur „Flic Flac“ á harmóníkuna með bundið fyrir augun, næstum fullt rauðvínsglas uppi á hljóðfærinu og hvítan dúk yfir nótnaborðinu til að villa um fyrir fingrunum. Atriðið vekur hvarvetna athygli og kátínu áhorfenda og eitt sinn lenti Yuri í því að þurfa, tilneyddur, að leika þetta eftir Vadim. „Við vorum að spila saman á ein- hverju veitingahúsi þegar gömul kona vindur sér að mér og segist hafa séð mig gera þetta; hún átti auðvitað við Vadim, bróður minn,“ sagði Yuri. Hún lét vínglasið á hljóðfærið mitt og bað mig að spila. Mér brá nokkuð, enda ekki á hvers manns færi að leika þetta eftir, en það gekk upp. Ég er sennilega bú- inn að horfa svo oft á Vadim gera þetta,“ bætir Yuri við og bræðurnir hlæja báðir dátt að minningunni.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.