Morgunblaðið - 06.07.1999, Blaðsíða 8

Morgunblaðið - 06.07.1999, Blaðsíða 8
8 ÞRIÐJUDAGUR 6. JÚLÍ 1999 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Stjórnarfonnaður Landssímans gagnrýnir Samkeppnisstofnun 1 bréfí tO ráðherra C3^lu/\JC2 HÆSTVIRTUR viðskiptaráðherra á skilið að fá nokkrar hugljúfar línur frá þér foringi, ég er lagður í einelti. Sólinni haldin hátíð Morgunblaðið/Halldór Kolbeins ÞESSIR kátu krakkar skemmtu sér vel á Sólhátíðinni á Mánagarði, enda búnir að sjá leikrit, gæða sér á grilluðum pylsum og appelsínusafa. Eftir allt þetta var tilvalið að skella sér í smáökuferð. Full búð af nýjum vörum Tilbúnir eldhústaukappar frá kr. 650 metrinn, Falleg stofuefni frá kr. 980 metrinn. Tilbúnir felldír stofutaukappar frá kr. 1.790 metrinn. Nýkomið mikið úrval af vaxdúkum. Einnig undirlagsdúkur í metratali. Z-brautir & gluggatjöld, Faxafení 14, símar 533 5333/533 5334. Reglugerð um vinnu barna og unglinga Ákvæðisvinna á færibandi er bönnuð Ný reglugerð um vinnu bama og unglinga tekur gildi 1. september næst- komandi. Hún er í sam- ræmi við tilskipun sem gildir á evrópska efna- hagssvæðinu um vinnu- vemd bama og ung- menna. Magnús Erlings- son er lögfræðingur Vinnueftirlits ríkisins. „Þessi nýja reglugerð setur ýmis mörk og skil- greinir betur hvaða vinna telst hættuleg fýrir böm og unglinga. Hún afmark- ar einnig nánar og tak- markar vinnutíma bama og unglinga. Barn er sam- kvæmt reglugerðinni ein- staklingur undir 15 ára aldri sem enn stundar skyldunám. Unglingur er einstak- lingur sem hefur náð 15 ára aldri en er undir 18 ára aldri og er ekki lengur í skyldunámi." -Hvað með vinnu barna sem eru undir 13 ára aldrí? „Börn sem em yngri en 13 ára mega ekki vinna nema vinnan falli undir þá skilgreiningu að teljast á menningar-, íþrótta- eða auglýs- ingasviði. Sækja þarf sérstaklega um leyfi fyrir slíkri vinnu hjá Vinnueftirliti ríkisins. Þegar börn era orðin 13 og 14 ára er þeim heimilt að vinna við takmörkuð störf sem talin era upp í reglu- gerðinni." Magnús segir að undir þessi verkefni falli hefðbundin vinna eins og hjá Vinnuskólanum svo og blaðburður. Hann segir að sérfræðingar hafi talið varasamt að leyfa blað- burð með tilliti til álags á börn á vaxtarskeiði og umhverfisþátta. „En niðurstaðan varð sú að leyfa blaðburð en taka ákvæðið til end- urskoðunar eftir þrjú ár. Þó era í gildi lægri þyngdarmörk gagn- vart bömum eða 8-10 kíló há- mark.“ Hann bendir á að umrædd reglugerð sé lágmarksreglugerð og fyrirtæki geti sett sér strang- ari reglur ef þau vilja. - Geturðu nefnt dæmi um vinnu sem samkvæmt reglugerðinni teist hættuleg fyrír börn og ung- linga? „Nærtækt dæmi er færibanda- vinna sem jafnframt er ákvæðis- vinna. Slík vinna er nú almennt bönnuð. Akstur dráttarvéla er al- mennt bannaður þeim sem er yngri en 16 ára og er slíkt bundið við að viðkomandi hafi réttindi. Þá er vinna með villt eða skað- vænleg dýr bönnuð. Það var tölu- vert rætt hvort þessi liður ætti við hér á landi og hvemig taka ætti á almennri sveitavinnu. í reglu- gerðinni er tekið fram að heimilt sé að vinna með ótamin húsdýr og böm geta farið í sveit og aðstoðað við tamningu ef fullorðnir fylgjast með. Vinna við villta refi eða minka er á hinn bóg- inn bönnuð." - Samkvæmt þess- ari nýju reglugerð mega börn ekki lyfta mjög þungum hlutum. Hver eru mörkin? „Mörg böm hafa “““ hlotið slæm álagsmeiðsli þegar þau byrja í þungri sumarvinnu eftir skóla. Með viðmiði um þyngdir er í reglugerðinni verið að sporna við slíkum tilfellum. Börn og unglingar mega ekki lyfta þyngri hlutum en sem vega 25 klló og að jafnaði ekki lyfta þyngri hlutum en 12 kílóum. Böm Magnús Erlingsson ► Magnús Erlingsson er fæddur í Reykjavík árið 1965. Hann lauk lagaprófi frá Háskóla Islands ár- ið 1992 og vann í tvö ár á fast- eignasölu og sem sjálfstætt starf- andi lögmaður. Hann lauk MA- prófi í Evrópurétti frá Árósahá- skóla svo og dönsku lagaprófi ár- ið 1997. Magnús hefur frá árinu 1998 verið lögmaður og lögfræð- ingur hjá Viimueftirliti ríkisins. Eiginkona hans er Sunna Ólafs- dóttir flugfreyja og eiga þau þrjú börn 2, 7 og 11 ára. Hann á eina dóttur. mega ekki lyfta þyngri hlutum en 8-10 kílóum háð vinnuaðstæðum." - Hvað með lengd vinnutíma? Gilda strangar reglur þar um? „Böm mega vinna frá sex á morgnana en ekki eftir klukkan átta á kvöldin og engar undan- tekningar era veittar frá þeirri reglu. Unglingar mega vinna frá sex á morgnana og til klukkan tíu á kvöldin. Veittar era undanþágur frá þeirri reglu.“ Magnús segir að vinnutími sé misjafn eftir aldri barna. „Þegar þau eru 13 og 14 ára mega þau vinna 12 tíma á viku með skóla en 35 tíma á viku þegar þau era í fríi. Þegar krakkarnir era orðnir 15 ára mega þeir vinna 40 tíma á viku í fríi og þeir sem era búnir með skyldunám geta unnið 40 tíma á viku með skóla.“ -1 reglugerðinni er sérstakt of- beldisákvæði. Um hvað fjalhir það? „Þar er sérstaklega tekið fram að vinna í sölutumum, söluskál- um, myndbandaleigum, á skyndi- bitastöðum og á bensínstöðvum sé bönnuð börnum og unglingum yngri en 18 ára nema þau séu að vinna með einstaklingum sem eru eldri en 18 ára. Tilefni þessa ákvæðis er ofbeldi sem hefur við- gengist og það má segja að þetta sé verndarákvæði gagnvart þess- um hópi.“ - Eru viðurlög ef ekki er farið eftir þessum reglum? „Ef um slík tilfelli verður að ræða fá þau hefðbundna meðferð og eru kærð eftir at- vikum og kunna að leiða til höfðunar á refsimáli. Atvinnurek- endum ber skylda til að meta áhættu vegna starfa barna og unglinga. Það er mikilvægt að mat fari fram og fyrirtæki skoði hvaða vinnu þau eru að láta ung- menni inna af hendi og að þau sinni fræðslu um þær hættur sem eru samfara störfum bama og unglinga." Börn mega vinna frá sex á morgnana en ekki eftir átta á kvöldin
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.