Morgunblaðið - 06.07.1999, Side 18

Morgunblaðið - 06.07.1999, Side 18
18 ÞRIÐJUDAGUR 6. JÚLÍ 1999 MORGUNBLAÐIÐ AKUREYRI Framkvæmdum við Borgarbraut og nýja brú yfír Glerá að Ijúka Stærsta verkefnið á sviði gatnagerðar FRAMKVÆMDIR við lagningu Borgarbrautar og gerð nýrrar brú- ar yfir Glerá eru nú í fullum gangi en stefnt er að því að opna fyrir um- ferð um næstu mánaðamót. í dag, þriðjudag, verður leiðin frá Tryggvabraut og upp að Háskólan- um á Akureyri við Sólborg opnuð fyrir umferð en þar hafa menn verið að malbika nánast dag og nótt und- anfarið. Opnað með pomp og prakt í ágúst Þorvaldur Konráðsson, verkstjóri hjá Amarfelli sem sér um fram- kvæmdir, sagði að tíðarfarið í vetur hefði sett svolítið strik í reikninginn og ekki hefði verið hægt að vinna við gatnagerðina og brúarsmíðina af jafn miklum krafti af þeim sök- um. Nú síðustu vikur hefðu hins vegar á milli tuttugu og þrjátíu Róleg þrátt fyrir fjölmenni MIKILL fjöldi fólks var á Akureyri um helgina, en tvö stór fótboltamót voru þá hald- in í bænum. Að sögn varð- stjóra lögreglunnar á Akur- eyri gekk helgin óhappalaust fyrir sig þrátt fyrir að margir væru á ferli. Tjaldstæðið á Akureyri var smekkfullt og þá gistu margir í tjöldum í kring- um félagssvæði Þórs. Ein- hverjar kvartanir bárust um ónæði þegar fór að líða á nótt- ina. Um tuttugu ökumenn voru teknir fyrir of hraðan akstur um helgina og var að sögn varðstjóra býsna algengt að menn ækju á um 130 km hraða. Einn þeirra sem það gerði var að auki grunaður um ölvun við akstur, en alls voru þrír ökumenn grunaðh- um að aka bifreiðum sínum undir áhrifum áfengis. manns verið að störfum á svæðinu og væri vinnudagurinn langur. Þessar framkvæmdir eru stærsta einstaka verkefnið á sviði gatna- gerðar sem farið hefur verið í á Akureyri um lengri tíma en að því standa Vegagerðin og Akureyrar- bær. Kostnaður við þetta verkefni er á bilinu 140 til 150 milljónir króna. Vegurinn nær frá Tryggva- braut að Hlíðarbraut og er tvöföld brú yfir Glerá lögð skammt neðan við háskólasvæðið. Einnig var gerð- ur undirgangur í beinu framhaldi af göngubrú yfir Glerárstíflu og göngustíg milli bæjarhverfa. Þorvaldur sagði að mannvirkið yrði væntanlega opnað með pomp og prakt í byrjun ágúst en nú þegar er búið að malbika þann kafla leið- arinnar sem liggur að háskólanum og þá verður í vikunni lokið við ann- an helming brúarinnar og verður hægt að nota hann fyrir umferð sem tengist vinnu við framkvæmdir. Þá sér verktaki einnig um að setja upp ljósastaura sem og annan frágang eins og sáningu og þökulagningu. „Hér verður unnið af krafti í júlí- mánuði og verkefninu lokið, enda bíða okkar fjöldamörg önnur stór verk, eins og snjóflóðavamargarður í Neskaupstað, vegagerð á Möðru- dal og virkjanaframkvæmdir.“ MIKILL kraftur hefur nú verið settur í gerð brúar yfir Glerá um Borgarbraut en þessum miklu gatnagerðarframkvæmdum lýkur í byrjun næsta mánaðar og rætist þá langþráður draumur margra Akureyringa, leiðin úr ystu úthverfum í miðbæinn styttist verulega. Morgunblaðið/Hörður Geirsson BORGARBRAUT liggur frá Tryggvabraut og upp að Hlíðarbraut en hér sést neðsti hluti götunnar sem lögð er meðfram bökkum Glerár. Fyrirtæki sem voru að koma í söiu 1. Heildverslun með valda frábæra hluti sem gefa mikla álagningu og möguleika. Mjög góður skrifstofubúnaður, góð staðsetning í höfuðborginni. Þekkt fyrirtæki. Kvenfataverslun á besta stað við Laugaveginn. Flyturinn vörurnar sjálf. Góð sambönd, frábær vara sem nýtur vaxandi vinsælda. Laus strax vegna veikinda. 3. Heildverslun, stór og mikil, með hverslags fatnað sem alltaf selst. Frábær skrifstofuaðstaða, góð innlend og erlend viðskiptasambönd. Traust heildverslun með góða veltu og afkomu. 4. Einstök sérverslun við Laugaveginn sem selur fylgihluti úr leðri. Glæsilegar innréttingar, góð staðsetning og fallegar vörur. 5. Bílabón. Til sölu fyrirtæki sem bónar bíla og teflonhúðar. Mikið að gera og vaxandi viðskipti. Frábærstaðsetning á besta stað í Reykja- vík. 6. Útgerðarmenn. Einstök aðstaða. Til sölu er á Austurlandi, þar sem fiskurinn er, smáútgerðarþorp. Sér bryggja, síldarverkunarhús, fisk- verkunarhús, kæliskemma, geymslur og færibönd, kerrur, vigtir og búnaður sem til þarf. Þrír 2,51 lyftarar. Íbúðir, skrifstofupláss og byggingarmöguleikar. Á staðnum er mikið af vönu fólki og auðvelt að fá vinnuafl. T.d. kjörið fyrir bátaeigendur að fullvinna aflann. 7. Vínveitingastaður í hjarta Reykjavíkur. Tekur 100 í sæti en á þriðja hundrað inn í húsið. Líflegar uppákomur reglulega. Mikil velta, einnig er þar gott eldhús með frábærum tækjum og húsbúnaði. Skipti á fasteign möguleg. Upplýsingar aðeins á skrifstofunni. I ; I IT€77=I SUÐURVE R I SÍMAR581 2040 OG 581 4755, REYNIR ÞORGRÍMSSON. Morgunblaðið/Áfldís Nýtl; byggingasvæði á Eyrarlandsholti Sr. Birgir tók fyrstu skóflustunguna Veðurklúbburinn á Dalbæ á Dalvík Hæglætisveð- ur framundan FÉLAGAR í Veðurklúbbnum á Dal- bæ á Dalvík eru flestir sammála um að veðrið verði svipað í júlímánuði og það var í nýliðnum júnímánuði, þ.e. hæglætis norðlæg átt, hafgola, bjart og hlýtt flesta daga fram í næstu viku, eða til 13. júlí, þegar nýtt tungl kvikn- ar í norðnorðaustri og hundadagar hefjast. Klúbbfélagar eru sammála um að einhver breyting verði á veðri í kjölfar þess að hundadagar hefjast, en stóra spumingin snúist vitanlega um hver hún verði. Um helmingur félaga telur að veðrið verði áfram gott en svo eru aðrir á að vætusamari tíð og kaldari verði síðari hluta júlímánaðar. Þó svo að kaldir og blautir dagar verði í boði seinnihluta mánaðarins biðja klúbbfé- lagar menn ekki að örvænta, þeir sjái fram á góðan ágústmánuð. Fjölmargir hafa samband við fé- lagsmenn í klúbbnum, hringja og skiifa og kemur þá margt skrýtið og skemmtilegt upp á. A dögunum hringdi sænskur blaðamaður til að leita upplýsinga um klúbbinn og vildi hann að sjálfsögðu heyra spá fyrir sumarið í Svíþjóð. Var hann hálf fúll þegar honum var tjáð að klúbbfélag- ar einbeita sér að því að spá fyrir norðurhluta Islands. FYRSTA skóflustungan að nýju íbúðahverfi sem Trésmíðaverk- stæði Sveins Heiðars hefur til umráða á svonefndum reit 1 á Eyrarlandsholti var tekin nýlega, en það gerði séra Birgir Snæ- björnsson sóknarprestur á Akur- eyri. Alls verða reist 27 raðhús, öll á einni hæð með bflskúr, á þessum reit og gerir Sveinn Heiðar Jónsson framkvæmda- stjóri fyrirtækisins ráð fyrir að um sé að ræða verkefni til tveggja eða þriggja ára. Sveinn Heiðar sagði að mikið hefði verið spurt um húsin, en þau hafa ekki verið sett í sölu enn; „við vildum hefja framkvæmdir fyrst og nú eru þær komnar í fullan gang,“ sagði hann. Á myndinni má sjá sr. Birgi taka fyrstu skóflustung- una.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.