Morgunblaðið - 06.07.1999, Page 19

Morgunblaðið - 06.07.1999, Page 19
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 6. JÚLÍ 1999 19 AKUREYRI Morgunblaðið/Ásdís SVEINN Ásgeirsson fjarstýrir járnpressunni. í baksýn má sjá hluta haugsins og tvo bfla sem síðar enda sem fýrirferðarlitlir kassar. Brotajárn endurunnið í Krossanesi HEILMIKILL brotajárnshaugur hefur myndast á svæðinu fyrir ofan Krossanesverksmiðjuna. Þar má sjá vél hamast við að tæta járnarusl og breyta heilu bflunum í fyrirferðarlitla kassa. Þarna er á ferðinni járnpressa frá fyrirtækinu Hringrás sem er endurvinnslufyrirtæki. Þeir eru í samvinnu við Sorpeyðingu Eyja- fjarðar og sveitarfélögin á Eyja- fjarðarsvæðinu sem sjá um mót- töku á járnarusli. Hringrás kem- ur svo hingað með járnpressuna og pressar járnið sem síðan er flutt út til bræðslu. Að sögn Sveins Ásgeirssonar hjá Hring- rás þá hefur mikið breyst frá því sem áður var þegar mest allt járn var urðað og sáralítið end- urunnið. Sveinn segir að í næsta mánuði verði uppskipun á járni til að flytja út til bræðslu, úr brota- járninu er síðan unninn mótavír og járn til að framieiða bíla og ýmislegt fleira sem framleitt er úr járni. Hann segir að stefnt sé á að ná um 2500 tonnum af sam- anpressuðu járni. Hann segir að á Islandi falli til um 20.000 tonn af járni árlega og því sé mjög mikilvægt að ná að endurvinna sem mest. „Eftir að umhverfislög voru hert þá jókst endurvinnsla á járni til muna og við höfúm nóg að gera við að pressa brotajárn út um allt land,“ sagði Sveinn. Sveinn sagði að stefnt væri á að flyfja út tvo til þrjá farma af þessu svæði í sumar en einn farmur hefði farið fyrir ári síðan. Akureyrarbær veitir styrki til kennaranáms Þrjátíu og ein umsókn SKÓLANEFND Akureyrarbæj- ar auglýsti fyrir nokkru styrki til náms í kennara- og leikskóla- kennaradeild Háskólans á Akur- eyri. Upphæð styrkjanna verður 60.000 krónur á mánuði eða alls um 560.000 krónur yfir skólaárið. Skilyrði fyrir umsókn eru að styrkþegar skuldbindi sig til að inna af hendi vinnuframlag 'við leik- og grunnskóla Akureyrar, eitt ár fyrir hvert styrkár. Að sögn Ingólfs Armannssonar hjá Akureyrarbæ þá barst þrjátíu og ein umsókn um styrki og fór það fram úr björtustu vonum for- svarsmanna kennslusviðs Akur- eyrabæjar. Ingólfur sagði að styrkimir væri ein leið til að fjölga rétt- indakennurum í bænum og laða fólk til náms. „Við fáum efnilegt fólk til að mennta sig í bænum sem síðan skuldbindur sig síðan til að vinna hjá okkur í ákveðinn tíma. Háskólinn hér á Akureyri hagnast líka á því að fá til sín efnilega nemendur enda tekur hann þátt í þessu með okkur,“ sagði Ingólfur. Hann sagði að nú færu í hönd sumarfrí hjá starfs- mönnum bæjarins og óvíst væri hvenær unnið yrði úr umsóknun- um en stefnt væri að því að nið- urstaða lægi fyrir ekki seinna en 10. ágúst. Minjasafnið á Akureyri Fyrsta söngvakan SÖNGVÖKUR Minjasafnsins á Akureyri eru yfirlit íslenskrar tónlistarsögu í tali og tónum en fyrsta söngvakan fer fram í kvöld, þriðjudagskvöldið 6. júlí, kl. 21, að því er fram kemur í fréttatilkynningu. Flytjendur á söngvökunni eru Rósa Kristín Baldursdóttir og Hjörleifur Hjartarson. Allir þeir sem vilja eiga notalega og jafnframt fræð- andi kvöldstund eru hvattir til að mæta, segir ennfremur í frétta- tilkynningunni. Aðgangseyrir er 700 krónur og er heimsókn í Minjasafnið innifalin, en safnið verður opið á þriðjudagskvöldum milli kl. 20 og 23, auk venjulegs opnunar- tíma sem er frá ld. 11 til 17. Halló! Horföu hingað. Komdu nær. Allir sem skrá sig vikuna 5. til 11. júlí fá fyrstu þrjá mánuðina fría. Fyrstu 200 sem skrá sig fá að auki bókina Internetiö á eigin spýtur. Mótald 1.190 ISDN 64 1.690 ISDN 128 2.190 Samskipti eru góð. Ókeypis samskipti eru samt betri. Komdu í heimsókn mam Síminn Internet, Grensásvegi 3, sími 800 7575, simnet@simnet.is SÍMINN internet -tengir þig við lifandi fólk

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.